Þjóðviljinn - 24.11.1976, Blaðsíða 13
Miövikudagur 24. nóvember 1976 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 13
Prá Sambandsstjórnarfundi Landssambands iðnaöarmanna á Akureyri.
Lánageta Iðnlánasjóðs
Fjórfalt minni en
umsóknir
Var upplýst á sambandsstjórnar-
fundi Landssambands iðnaðarmanna
Sa m bandss tjórn Landssam-
bands iðnaöarmanna kom nýlega
saman til fundar á Akureyri og
var þar rætt um breytingar á iön-
löggjöfinni, lánamál iönaöarins
og iönfræöslumálin.
Gunnar S. Björnsson, formaöur
Meistarasambands bygginga-
manna, hafði framsögu um lána-
mál iðnaöarinsá fundinum. Rakti
hann ýtarlega þróun þeirra mála
og gerði samanburð á lánamálum
iðnaðarins og annarra atvinnu-
greina, og framlögum á fjárlög-
um til lánasjóða atvinnuveganna
og lántökum sjóðanna I
Framkvæmdasjóði. Þá gerði
Gunnar grein fyrir fjarhagsstöðu
lánasjóðanna sjálfra, en staða
þeirra sumra er þannig, að fyrir-
sjáanlegt er að stórauka verður
framlög til þeirra, þar sem skuld-
ir sjóðanna eru álika eða meiri en
heildarútlán, en yfirleitt eru út-
lánin með lægri vöxtum en þau
lán, sem sjóðirnir hafa tekið.
Fram kom, að Iðnlánasjóður,
sem er helsti lánasjóðuraðila inn-
an Landssambandsins, hefur til
ráðstöfunar um 705millj. kr. á ár-
inu 1976, en áætlað er að heildar-
fjárhæð lánsumsókna til sjóðsins
muni nema um 2800 millj. kr. A
næsta ári má búast við að um-
sóknir nemi um 3200-3500 millj.
kr., en til ráðstöfunar verði um
800 millj. kr. fyrir utan lántökur
sjóðsins.
Miklar umræður urðu um lána-
mál iðnaðarins i heild og ein-
stakra iðngreina og var lögð á-
hersla á að úrbætur i þeim efnum
væri eitt mikilvægasta hags-
munamál Landssambands iðnað-
armanna. Auk eflingar sjóöanna
var talið nauðsynlegt að starfs-
svið þeirra væri útvikkað.
öfluga
Verkalýðsfélag Borgarness
ASÍ hefji nú
sóknarbaráttu
„Drykkjuskapur eykst í Borgarnesi”
Verkalýðsfélagiö i Borgarnesi
lætur sér ekkert óviökomandi og
samþykkti á fundi nýveriö áskor-
un til Hótels Borgarness h.f. aö
leyfa ekki aögang aö vinbar öör-
um en föstum dvalargestum á
lokuðum samkomum. Fram kom
á fundinum aö þaö er álit margra
aö drykkjuskapur hafi stóraukist
i Borgarnesi siöan fariö var aö
hafa opinn bar I bænum yfir
sumarmánuöina.
Svíviröileg árás
á lifskjör.
„Fundur haldinn i Verkalýösfé-
lagi Borgarness 22. okt. 1976 mót-
mælir harölega svivirðilegum
árásum rikisvaldsins á liskjör
launþega i landinu og skorar á
verkafólk aö risa upp og hefja
kröftug mótmæli.
Fundurinn skorar á A.S.Í. að
hefja öfluga -sóknarbaráttu gegn
láglaunastefnu stjórnvalda.
Fundurinn telur, að það sé ekki
verkafólk sem komið hefur þjóð-
inni i þann efnahagsvanda, sem
hún nú er i. Það sé verk fárra
manna, sem reynt hafa að telja
fólki trú um, aö ekki sé hægt að
greiða hærri laun. Ýmsir hafa
trúað þeim áróöri og verkafólk
hefur verið hógvært i öllum sinum
kröfum.”
Skeröing á frjálsum
samningsrétti
„Verkalýðsfélag Borgarness
hefur á tveimur félagsfundum
fjallað um drög aö frumvarpi til
laga um stéttarfélög og vinnu-
deilur, sem félagsmálaráðherra
hefur látið gera og fyrirhugað er
aö leggja fyrir alþingi i vetur.
Frumvarp þetta er samiö án
alls samráðs við verkalýðshreyf-
inguna.
Fundurinn telur, að það feli i
sér veigamikla skerðingu á
frjálsum samningsrétti verka-
fólks og sé liklegt til aö tryggja
stöðu atvinnurekenda gegn
verkafólki.
Fundurinn lýsir andstöðu við
meginatriði frumvarpsins og
skorar á rikisstjórnina að leggja
ekki slikt frumvarp fyrir al-
þingi.”
Báðar tillögurnar samþykktar
samhljóða.
Húseigendur í Reykja-
vík athugið
Samvinnuferðir hyggjast bjóða erlendum
ferðamönnum gistingu á einkaheimilum i
Reykjavik næsta sumar. Þeir sem hafa
laus herbergi með aðgang að baði og gætu
veitt morgunverð eru beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu samvinnuferða i sima
27077.
Samvinnuferðir
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Guðrún Guðlaugsdótt-
ir les söguna „Halastjörn-
una” eftirTove Jansson (3).
Tilkynningar kl. 9.30 Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða Drög að útgáfusögu
kirkjulegra og trúarlegra
blaða og timarita á istandi
kl. 10.25: Séra Björn Jóns-
son á Akranesi flytur
fimmta erindi sitt. Morgun-
tónleikarkl. 11.00: Vladimir
Ashkenazý leikur á pianó
.Kreisleriana”, átta fanta-
siur op. 16 eftir Robert
Schumann / Elly Ameling
syngur úr „ttölskuljóðabók-
inni” eftir Hugo Wolf:
Dalton Baldwin leikur á
pianó.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna.
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: ,,Lögg-
an sem hló” eftir Maj Sjö-
wall og Per Wahlöö.Ólafur
Jónsson les þýðingu sina
(3).
15.00 Miðdegistónlcikar.
Martin Jones leikur á pianó
Fjögur rómantisk smálög
eftir Alan Rawsthorne. Igor
Gavrysh og Tatjana
Sadovskaja leika Sónötu
fyrir selló og pianó eftir
Hindemith. Filharmóniu-
sveitin i New York leikur
Klassisku sinfóniuna i D-dúr
op. 25 eftir Prokofjeff:
Leonard Bernstein stjórnar.
15.45 Frá Sameinuðu þjóöun-
um.Soffia Guðmundsdóttir
segir fréttir frá allsherjar-
þinginu.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 óli frá Skuld Gisli Hall-
dórsson les (14).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki Til-
kynningar.
19.35 Rennsli vatns um berg-
grunn islands og uppruni
hvera og linda. Dr. Bragi
Árnason prófessor flytur
annað erindi flokksins um
rannsóknir i verkfræði- og
raunvisindadeild háskólans.
20.00 Kvöldvaka a. Ein-
söngur: Fngel Lund syngur
islensk þjóðlög i útsetningu
Ferdinands Rauters. Dr.
Páll Isólfsson leikur á
pianó. b. Bóndinn á Brúnum
Sverrir Kristjánsson sagn-
fræðingur flytur þriðja
hluta frásögu sinnar. c.
Visur og kvæöi eftir Lárus
Saiómonsson Valdimar
Lárusson les. d. Miðfjarðar-.
disin Rósa Gisladóttir les
sögu úr þjóösagnasafni Sig-
fúsar Sigfússonar. e. Kynni
inin af huidufólki Jón Arn-
finnsson segir frá. Kristján
Þórsteinsson les frá
sögnina. f. Haldið til haga
Grimur M. Helgason cand.
mag. flytur þáttinn. g. Kór-
söngur: Karlakórinn Fóst-
bræður syngur Söngstjóri:
Jón Þórarinsson. Pianó-
leikari: Car) Billich.
21.30 Útvarpssagan: „Nýjar
raddir, nýir staöir" eftir
Truman Capote Atli
Magnússon les þýöingu sina
(9).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöld-
sagan: „Minningabók Þor-
valds Thoroddsens" Sveinn
Skorri Höskuldsson les (14).
22.40 Iljassþátluri umsjá Jóns
Múla Arnasonar.
23.25h’réttir. Dagskrárlok.
; H sjónvarp]
18.00 Þúsunddyrahúsið.
Norsk myndasaga. Hola
cikin.Þýöandi Gréta Sigús-
dóttir. Sögumaöur Þórhall-
ur Sigurðsson. (Nordvision
— Norska sjónvarpið)
18.20 Skipbrotsmennirnir
Astralskur myndaflokkur.
7. þáttur. Steingcrvingarn-
ir. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.45 Gluggar Bresk fræðslu-
myndasyrpa. Furðuleg
listaverk, Sólhlifar úr
bambus, Vatnsveitur. Þýð-
andi og þulur Jón O. Ed-
wald. Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækniog visindi,
Nýjar gerðir flugvéla,
Hávaoi. hiti og svefn, Veiru-
rannsóknir, Fornleifarann-
sóknir neöansjávar.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.05 A tiunda timanum.
Norska popphljómsveitin
Popol Ace flytur rokktón-
list. (Nordvision — Norska
sjónvarpið)
21.50 Undir Pólstjörnunni.
Finnskur framhaldsmynda-
flokkur i 6 þáttum, byggður
á samnefndri skáldsögu eft-
ir Vainö Linna. Leikstjóri
Edvin Laine. Aðalhlutverk
Aarno Sulkanen, Titta
Karakorpi, Matti Ranin,
Anja Pohjola og Risto
Taulo. 1. þáttur Hjáleigu-
bóndinn. Rakin er saga
Koskeia-ættarinnar frá
aldamótunum siðustu og
fram á miðja öld. Jussi
Koskela, sem er vinnumað-
ur á prestssetri, gerist hjá-
leigubóndi. Lýst er viðhorf-
um og lifsbaráttu kotbónd-
ans, en jafnframt er dregin
upp mynd af þeim miklu
umbrotum, sem urðu i
finnsku þjóölifi á fyrri hluta
aldarinnar og hrundu af
stað innanlandsstyrjöldinni
1918. Þýöandi Kristin
Mántyia.
22.40 Dagskrárlok.
Nauðungaruppboð
eftir kröfu Gjaldheimtunnar f Reykjavlk, skattheimtu
rikissjóðs iHafnarfirði og Kópavogi, Landsbanka Islands.
Útvegsbanka Islands, og lögmannanna Arna Grétars
Finnssonar, Kristjáns Stefánssonar og Þórólfs Kristjáns
Beck, verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauöung-
aruppboði, sem hefst i bæjarfógetaskrifstofunni I Kópa-
vogi að Hamraborg 7 þriðjudaginn 30. nóvember 1976 kl.
14, en verður siðan fram haldið á öörum stöðum, þar sem
nokkrir lausafjármunir eru staðsettir:
1. Húsgögn og heimilistæki: sjónvarpstæki, isskápar,
þvottavélar, útvarpstæki, hátalarar, og plötuspilarar, P-
Pioneer Magnari, sófasett $), sófi, 4 stólar,
Normendefónn úr tekki.
2. hakkavélasamstæða.
3. 6 stk. girmótorar.
4. Edwards vélklippur.
5. leiktjöld.
6. Sólningarvélar, Super jolly og tegund S 510.
7. fræsari, hjólsög, afréttari, þykktarhefill, bandsög, og
stativ fyrir handborvél.
Uppboðsskilmálar liggja frammi í bæjarfógetaskrifstof-
unni að Hamraborg 7.
Uppboðshaldari mun leitast við að sýna uppboðsmuni skv.
töluliðum 2-7 siðustu 2 daga fyrir uppboö en muni skv.
tölulið 1 á uppboðsdegi.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.