Þjóðviljinn - 09.12.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.12.1976, Blaðsíða 3
Fiinmtudagur 9. desember 1976 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3 Kröfur Sósíalistaflokks Spánar: Amerísk stell á hagstæðu verði Glæsibæ. Simi: 86440 BÚSÁHÖLD OG GJAFAVÖRUR 8 gr. diskar 8 dj. diskar 8 bollar 8 undirskálar 8 kökudiskar Fimm litamunstur Verö: 16.500.— Sendum i póstkröfu Allir flokkar leyfðir Hlutleysi í utanríkismálum Spænskir hægrimenn heilsa meö fasistakveðju — sósfalistar hvattir til að vera reiðubúnir til varnar. Hver borgar brúsann? Nató-ríki ósam- mála um dreif- ingu kostnaðar við jijúgandi radar-net BRUSSEL 8/12 — Varnarmála- ráðherrum Nató mistókst i dag að ná samkomuiagi I máli, sem fréttaritari Reuter-frétta- stofunnar kallar viðurhlutamestu sam starfs tilraun bandalags- rikjanna til þessa. Hér er um að ræða áætlun þcss efnis að koma upp neti fljúgandi radarstöðva yfir Evrópú Það fylgir með að ráðherrarnir hafi að visu allir verið sammála um nauðsyn radarstöðva þessara, en ekki getað náð samkomulagi um hvernig kostnaðurinn við þær, sem mundi verða gifurlegur, ætti að skiptast niður á bandalags- rikin. Ár er þegar liðið siðan samkomulag átti að hafa náðst um radarnet þetta i siðasta lagi, samkvæmt áðurgerðu mati Nató- varnarmálaráöherranna sjálfra. En þar stendur hnifurinn i kúnni, segja Natóheimildir, að ráð- herrarnir ná ekki samkomulagi um skiptingu kostnaðarins, sem gert er ráð fyrir að verði fimm miljarðar dollara. Sagt er að önnur tilraun til að jafna ágrein- inginn verði gerð i janúar eða febrúar. Aætlunin er á þá leið aö 27 flug- vélar af gerðinni Boeing 707, búnar besta leitarradar sem Bandarikin geta framleitt, verði hafðar á flugi yfir Evrópu. Varnarmálasérfræðingar Nató segja þesskonar fljúgandi radar- stöðvar nauðsynlegar til að fylla upp i eyður, sem þeir vilja meina að séu i loftvörnum Nató. Ekki er talið að stöövar þessar komist i gagnið fyrr en 1980, þótt svo ráð- herrarnir komist að samkomu- lagi um þær fljótlega. HaftereftirNató-heimildum að Vestur-Þýskaland sérstaklega telji að þvi sé ætlað aö borga meira en þvi beri, og ltalia og Tyrkland telji málið sér ekki við- komandi nema að takmörkuðu MADRID 8/12 Reuter — Landsþingi Sósialistaf lokks Spánar, þvi fyrsta sem haldið er innanlands frá þvi í borgar styrj- öldinni, lauk i dag með því að flokkurinn lýsti þvi yfir, aö hann myndi ekki taka þátt i almennum þingkosningum næsta ár nema þvi aðeins að stjórnarvöld gengju að skilyrðum hans um endurreisn lýöræðis. Landsþingið ákvað að flokkurinn skyldi sitja hjá i þjóöaratkvæðagreislunni, sim hafa á um stjórnarfarsbreytingar rikisstjórnarinnar 15. þ.m., og lagði áherslu á að öllum stjóin- málaflokkum yrði leyft að starfa, þar á meðal Kommúnistaflokki Spánar, sem enn er bannaður. Sósialistaflokkurinn krefst þess að stjórnin gæti hlutleysis i kosm- ingabaráttunni, allir flokkar fái jafnan aðgang að fjölmiðlum og að stjórnmálasamtök Francos verði leyst upp. Ennfremur hvatti leyti, þar eð umræddar flugvélar, sem á Nató-slangi eru kallaðar AWACSZ, verði aðallega hafðar yfir Norður-Evrópu. Kostnaðurinn við radarstöðvar þessar er talinn verða meira en helmingi meiri en kaupverð F-16- orrustuflugvélanna, sem Banda- rikin selja fjórum Nató-rikjum i Evrópu — Noregi, Danmörku, Hollandi og Belgiu — samkvæmt samningi gerðum i fyrra, en sá kaupsamningur var kallaður „vopnasölusamningur aldarinn- ar”, sökum þess hve þar var um háa fjárhæð að ræða. Frakkland, sem ekki tekur þátt i hermálasamstarfi Nató, sendi ekki fulltrúa á ráðstefnuna og ekki heldur Grikkland, sem hundsar hermálasamstarfið i mótmælaskyni vegna t innrásar annars bandalagsrikis — Tyrklands — á Kýpur. Útlendingum bönnuð fyrirtækjaeign í Saúdi-Arabíu AMMAN 8/12 Reuter — Búist er við að þúsundir útlendinga muni yfirgefa Saudi-Arabiu vegna til- kynningar stjórnarvalda um að þeir megi ekki eiga fyrirtæki þar i landi. Bannið gildir að sögn frá 22. des., en i útvarpstilkynningu um málið var þess ekki getið að þaö næði yfir erlenda banka eða verktakafyrirtæki. Hinsvegar var þess sérstaklega getið i til- kynningunni að útlendir mat- vörukaupmenn og farandsalar yrðu ekki lengur liðnir i landinu. þingið til þess að Spánn yrði hlut- laus i utanrikismálum og skorað var á Efnahagsbandalag Evrópu að veita Spáni þar ekki inngöngu fyrr en fullkomið lýðræði væri komið á i landinu. Felipe Gonzal- ez, aðalritari flokksins, sagði meðal annars á ráðstefnunni að sósialistar væru á móti þvi að nota hrottalegt ofbeldi, en þeir gerðu sér ljóst að borgarleg öfl gætu fundið upp á þvi að brjóta leikreglur lýðræðisins og yrðu þvi að vera reiðubúnir að verja þann árangur, sem náðst hefði, með öllum tiltækum ráðum. Aðalritari Kommúnistaflokks Spánar, Santiago Carillo, sendi landsþinginu skeyti og endurtók þar fyrri yfirlýsingar flokksins um að berjast við hlið Sósialista- flokksins fyrir lýðræði á Spáni. Var þá hrópað i salnum: „Eining, eining.” Þúsundir þingfulltrúa og erlendra gesta fögnuöu er skeggjaður maöur ungur birtist með fána spænska lýðveldisins, sem Franco-herirnir brutu á bak aftur i borgarastyrjöldinni. W aldheim útnefndur formlega SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM 8/12 Reuter — AUsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna útnefndi i dag austurrikismanninn Kurt Wald- heim formlega sem fram- kvæmdastjóra S.þ. fyrir annað kjörtimabilið i röð. Fór allsherj- arþingið þar eftir samþykkt öryggisráðsins i gær. Waldheim, sem er 57 ára, var fyrst útnefndur framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna 1971 sem eftirmaður búrmamannsins Úþants og ný- byrjað kjörtimabil rennur út i árslok 1981. Waldheim er fjórði maðurinn i þessu embætti. Fyrstur til að hafa það á hendi var norðmaðurinn Trygve Lie og annar sviinn Dag Hammerskjöld. Assad — samkomulag egypta og israelsmanna varð til þess að þeir llússein fóru að draga sig sáman. Sýrlun d og Jórdaniu: Náið bandalag fyrirhugað AMMAN 8/12 Reuter — Sýrland og Jórdania hafa lýst þvi yfir, að þau hafi I hyggju að koma & með sér einskonar rikjabandalagi og hafa skipað nefnd i málið. Var þetta gefið til kynna I sameigin- legri tilkynningu þjóðhöfðingja rikjanna, sem send var út eftir tveggja daga opinbera heimsókn Hafesar al-Assad, Sýrlandsfor- seta, til Jórdaniu. Fyrr var haft cftir ábyggilegum heimildum að þeir Hússein Jordaniukonungur heföu orðið sammála um að sam- eina kerfi rikja sinna i efnahags- málum, menntamálum, fjar- skiptamálum, tollamálum og á fleiri sviðum. Þetta þykir sæta nokkrum tið- indum, þar eð fyrir sex árum var striðsástand milli Sýrlands og Jórdaniu vegna aðfara Jórdaniu- hers, sem að miklu leyti er skip- aður bedúinum, gegn skæruliðum palestinumanna, sem sýrlending- ar studdu þá. Draga tók saman með jórdönum og sýrlendingum eftir að ljóst varð i fyrra að Egyptaland hugðist ná griðasam- komulagi við tsrael án þess að þvi fylgdi nokkur afhending landsvæöa, sem israelsmenn hafa tekið af jórdönum og sýrlending- um. Gairy stórtapaði ST. GEORGE’S Grenada 7/12 Reuter — Stjórnarflokkur Vestur- Indiaeyjarinnar Grenada hafði betur i þingkosningum þar i þriðja skiptið i röð, en tapaði miklu fylgi til stjórnarandstöðu- flokkanna þriggja, sem I þetta sinn gengu sameinaðir til kosninga. Fékk stjórnarflokkur- inn, sem lýtur forustu Erics Gairy forsætisráðherra og nefnist Sameinaði verkamannaflokkur- inn, niu þingsæti af fimmtán alls i kosningunum I dag, en hafði fjórtán áður. ^Borðsfofu- og ^eldhúsborð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.