Þjóðviljinn - 09.12.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.12.1976, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 9. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 16-liöa úrslit UEFA-keppninnar ( gærkvöldi Aþena slapp í 8-liða úrslit! Spánverjar tryggöu sér í gærkvöldi tvö sæti í átta liða úrslitum evrópu- keppninnar í knattspyrnu er Barcelona og Athletic Bilbao léku í 16-liða úr- slitunum í gær. Barcelona sigraöi sænsku mótherj- ana með yfirburðum á meðan landar þeirra í Bilbao töpuðu 0:3 fyrir italska liðinu AC Milan, en komst samt áfram á markatölunni 5:4 úr báð- um leikjunum. Sólarhring áður hafði Q.P.R. tryggt sér rétt til þátttöku i 8- liða úrslitunum og i gærkvöldi bættust við auk spánsku liðanna austur-þjóðverjar, grikkir og italar. Það var hollenska knatt- spyrnuhetjan Johan Cruyff sem kom Barcelona á sporið i leikn- um gegn sænska liðinu öster strax á 3. minútu, og urðu loka- tölurnar 5:1 sigur spánska liðs- ins og samanlögð markatala úr báðum leikjum er 8:1 fyrir spánverja. öruggur sigur það. Ékki var eins mikil reisn yfir bröltinu i spánska liðinu Athletic Bilbao. Flestum á óvart er þetta litt þekkta félag þó komið i 8-liða úrslit UEFA- keppninnar og var það italska liðið AC Milan sem varð að lúta i lægra haldi. Leikurinn fór fram i Milan og lauk með 3-1 sigri heimamanna, en það dugði ekki til þvi i fyrri leiknum sigruðu Spánverjar með 4:1 og komast þvi áfram á saman- lagðri markatölu. Eina mark spánska liðsins i gærkvöldi kom á siðustu minútunum úr vita- spyrnu...og réði það úrslitum. Madraiaga heitir hin örugga vitaskytta spánverja og sýndi hann af sér mikla ró er hann skoraði þetta þýðingarmikla mark þremur minútum fyrir leikslok undir háværu bauli fjörutiu þúsund italskra áhorf- enda. Griska liðið Aþena kom ekki minna á óvart. Það lék á útivelli gegn Rauðu Stjörnunni frá Bel- grad og tapaði að visu 1:3 en komst engu að siður áfram. Fyrri leikinn unnu grikkirnir nefnilega með 2-0 og varð samanlögð markatala 3:3 en það eru mörk á útivelli sem telja ef markatalan er jöfn og þá höfðu grikkirnir vinninginn. Heldur betur óvænt úrslit og tæplega eitt hundrað þúsund júgóslavneskir áhorfendur urðu fyrir miklum vonbrigðum. Af öðrum úrslitum i gærkvöldi i 16-liða úrslitum UEFA-keppn- innar má nefna Feyenoord Rotterdam — Espanol Barcelona 2-0. Hollendingarnir unnu 3-0 á samanlagðri marka- tölu. V-þýska liðið Schalke og belgíska liðið Molenbeek gerðu 1:1 jafntefli en þjóðverjarnir komast áfram eftir 1-0 sigur i fyrri leiknum, sem þó var leik- inn i Belgiu. gsp ;Í|||Í|Í Meö sex Islandsmet Þessi vel stælti kraftlyftinga- maður er tiltölulega nýbyrjaður að taka lyftingarnar alvarlega og verður ekki annað sagt en að vel gangi hjá honum. Maðurinn heitir Helgi Jónsson og er rúm- lega tvitugur háskólanemi. Hann gerði sér litið fyrir um siðustu helgi og setti sex ný Islandsmet og hafa menn oft hoppað hæð sina i loft upp af minna tilefni. Helgi, sem er vesturbæingur og að sjálfsögðu i KR, keppti i 100 kg. þyngdarflokki, sem hingað til hefur verið nánast óþekkt fyrirbæri i lyftingum. Hann tók i hnébeygju 235 kg., I bekkpressu 160 kg., og i rétt- stöðulyftu 245 kg. og gerir þetta samtals 640 kg. Allt eru þetta tslandsmet og tvö önnur setti Helgi á mótinu, en bætti siðan enn um betur og stóðu þessi fjögur gildandi met þá eftir. Sannarlega efnilegur lyftingamaður a tarna. —gsp ' Johan Cruyff og félagar hans I Barcelona sigruðu sænsku mótherj- ana nieð miklum yfirburðum. „I musterj íslensku íþróttanna” Arsþingi Fr jálsiþrótta- sambands tslands er nýlega lokið og var örn Eiðsson endur- kjörinn formaður. t skýrslu stjórnar kom fram að fjárhags- erfiðleikar eru verulegir, yfir áttahundruð þúsund króna tap var á rekstrinum i ár og skuldir frá fyrri árum eru miklar. Niðurstöðutölur efnahags- reiknings eru rúmlega f jórar og hálf miljón króna. 1 skýrslu formanns FRl kemur örn Eiðsson viða við. M.a. er að finna i henni eftir- farandi kafla um ferð nokkurra frjálsiþróttamanna til Laugar- vatns: Snemma sl. sumar efndi FRl til B-stigs námskeiðs i framhaldi af A-stigi Grunnskóla tSI. Akveðið var að halda þetta námskeið i iþróttamiðstöðinni að Laugarvatni. Þvi miður voru þátttakcndur færri en búist var við eða 8 talsins. Leiðbeinendur voru Guðmundur Þórarinsson og Haukur Sveinsson. Þeir unnu mjög gott starf við vægast sagt furðulegar aðstæður i þessu musteri islenskra iþrótta að Laugarvatni. tþróttafólk, sem komið var austur ásamt væntanlegum leiðbeinendum og forystumönnum sambandsins, hafði það á tilfinningunni að það væri erkióvinir staðarins. Starfsfólk iþróttamið- stöðvarinnar átti þar ekki hlut að máli. Það gerði allt til aö reyna að bjarga málum, en án árangurs. Það voru aðrir sem sýndu skilningsleysi. ISt gerði vist á sinum tima marg- umtalaðan samning við Iþrótta- kennaraskólann um heima- vistarskólann á staðnum og afnotaf mannvirkjum. Eitthvað hafa þessi mál farið úr skorðum vægast sagt, engin reglugerð undirrituð o.s.frv. Þegar áður- nefndur flokkur FRI kom austur var alls staðar komið að lokuðum dyrum, nema matsal og iveruherbergjum. Gufubað, lyftingáherbergi og leikfimi- salur, allt lokað og engu fékkst um þokað. Svo ekki sé talað um iþróttatæki. tþróttamennirnir sem komnir voru til að æfa sig m.a. fyrir Ólympiuleikana urðu að sjálfsögðu að fara aftur i bæinn. Þetta er allt svo vitlaust að það tekur þvi varla að ræða um það og svo tala menn um að ekki r.áist árangur i iþróttum! En hvað um það. þátt- takendurnir i B-námskeiðinu unnu af kappi þessa viku og stóöu sig með ágætum. en allir aðrir yfirgáfu ..tþrótta- miðstöðina” og vissu ekki hvort þeir áttu að gráta eða hlæja." Amerískir risar á leiöinnitil íslands A leiö til Islands eru nú bandarískir körfubolta- menn úr liðinu University of Tennessee og munu þeir leika hér þrjá leiki, tvo við landsliðið og einn við lið njarðvíkinga. Einn „tveggja metra maður" er í iiði bandaríkja- manna, en meðalhæðin er um 1.95. Sannarlega hörku lið sem þarna er á ferðinni ef marka má þær upplýsingar sem borist hafa til landsins Bandarikjamennirnir koma hingað að lokinni fjögurra daga dvöl I Englandi og leika þeir fyrsta leikinn gegn islenska landsliðinu þann 19. desember. Daginn eftir verður siðan leikið við njarðvikinga og loks við landsliðið aftur daginn þar á eftir. Eftir slaka frammistöðu islenska liðsins i leikjunum gegn norðmönnum um daginn verður fróðlegt að sjá hvaöa ráðstafanir júgóslavneski körfuboltaþjálfarinn gerir i sambandi við liðsskipan og leik- kerfi landsliðsins. Þó á hann nú erfitt um vik á meðan landsliðs- æfingar eru ekki betur sóttar en raun ber vitni, en á siöustu æf- ingu mættu t.d. aðeins sjö menn. 1 Ijl ■ { ;; ^ M , JB 1 1 v ,-..; '' i.lf / v \ L. ■ V J . | 1 ll J i Hj —gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.