Þjóðviljinn - 30.12.1976, Page 1
Niðurstaða Hagstofu Islands:
Dýrara að lifa
úti á landi
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 30. desember 1976 — 41. árg. — 293. tbl.
Hættuástand eykst
ennþá við Kröílu
vegna jarðsigs sem búist er við að nái hámarki i byrjun janúar
Að tala um hættuástand
við Kröflu fer kannski að
virka á fólk líkt og sagt er
frá i sögunni um strákinn,
sem hrópaði „úlfur, úlf-
ur". En sannleikurinn er
sá að nú i byrjun janúar
mun enn á ný skapast mik-
ið hættuástand á Kröflu-
svæðinu, kannski meira en
nokkru sinni síðan gaus í
Leirhnjúk í fyrra.
Þetta er mat jarðe&lisfræöinga
Orkustofnunar og kom fram i við-
tali við Axel Björnsson, jarðeðlis-
fræðing, sem Þjóðviljinn átti i
gær. Axel útskýrði þetta nánar:
Eins og menn muna var mikið
landris við Kröflu sl. sumar, en
land á svæðinu seig um 2 m þegar
gaus i Leirhnjúk i fyrra. Við þetta
landris myndaðist ákveðin
spenna, sem orsakaði hina miklu
jarðskjálfta sem þar urðu sl.
llagstofa íslands hefur sent frá
sér skýrslu um framfærslu-
kostnað i þremur kaupstöðum og
sumar og haust. En siðast i
september sl. varð aftur jarðsig
og um leið dró úr jarðskjálftum.
Enn á ný tók land að risa á
svæðinu i október og hélst svo út
mánuðinn með tilheyrandi jarð-
skjálftum. En i lok otkóber varð
aftur.jarðsig og þá meira en i lok
Framhald á 14. siðu
einu kauptúni úti á landi, og er
skýrslan byggð á könnun á
verðiagi, sem framkvæmd var i
máimánuði s.l.
Meginniðurstaða skýrslunnar
er sú, að framfærslukostnaðurinn
sé um 5% hærri úti um iand
heldur en i Reykjavík.
Þessi könnun Hagstofunnar var
gerð i samræmi við ályktun frá
Alþingi, er þar var samþykkt
þann 16. mai 1975. 1 samráðí við
milliþinganefnd um byggðamál
var ákveðið, að athugunin skyldi
taka til eftirtalinna staða: isa-
fjarðar, Akureyrar, Neskaup-
staðar og Hvolsvallar.
A þessum fjórum stöðum var
kannað verðlag á flestum þeim
vörum, sem tekið er mið af við
útreikning á visitölu framfærslu-
kostnðar, svo og verðlag á
þjónustu.
Niðurstöður eru þessar sé hús-
liðurinn, sem erfitt er að meta
með sæmilegu öryggi, ekki reikn-
aður með:
Á isafirði er framfærslukostn-
Framhald á 14. siðu
A þessari mynd sést hvernig
framtiðarskipan byggingamála
á Landspitalalóðinni er
áformuð. Ofarlega fyrir miðju
sjást lívitum lit núverandi
byggingar á lóðinni, en með
dökku eru sýndar á þessu likani
þær byggingar sem risa eiga i
framtiðinni, eða hafa þegar
risið en ennþá ekki verið teknar
I notkun.
Eins og sjá má mun Land-
spitalinn byggja veglega niður
fyrir Hringbrautina, sem
verður um leið færð neðar og
aftur fyrir BSl. Slaufurnar til
hægri liggja þar sem nú er
Miklatorg. Gert er ráð fyrir þvi,
að nýbyggingar Landspitalans
myndi eina samfellda heild, þar
sem hægt verður að sinna
hinum fjölmörgu þáttum starf-
seminnar á skipulegan hátt við
fullkomnar aðstæður. Eins og
sjá má er stærsta viðbyggingin
áföst við gamla Landspitala-
húsið og teygir hún sig þaðan
samfellt niður fyrir Hring-
brautina.
—gsp
Ávísanamálið til saksóknara
Upphæð
tékka 3
miljarðar
„Það er mitt mat, að
ávisanamálið standi nú
þannig, að rannsókn þess
verði ekki haldið áfram án
beins atbeina Ríkissak-
sóknara og hann verður að
taka ákvörðun um hvort
rannsókn verði haldið
áfram og þá um leið hvaða
stefnu skuli taka um
áframhaldandi rannsókn,
ellegar hvort rannsókn
skuli hætt", sagði Hrafn
Bragason, umboðsdómari í
ávísanamálinu, á fundi
með fréttamönnum í gær,
eftir að hann hafði visað
málinu til Rikissaksókn-
ara.
Rannsóknin sem hófst i ágúst
mánuði sl. hefur verið mjög um-
fangsmikil. Sem dæmi má nefna,
að i heildartölvulistanum koma
fyrir 90.000 tékkahreyfingar og
upphæð þeirra tékka, sem i
vinnslu eru nemur röskum 3
miijörðum króna, sem segir þó
aðeins til um umfang rannsókn-
arinnar en ekkert annað.
Það hefur komið fram við yfir-
heyrslur, að þeir sem tengdir eru
þessu ávisanamáli halda þvi
iram að þeir hafi haft i sumum
tilfellum skriflega og i öðrum til-
fellum munnleg leyfi frá viðkom-
andi bönkum til útgáfu ávisana
umfram umsaminn yfirdrátt sem
margir stórir viðskiptamenn
bankanna hafa
1 sumum tilfellum hafa,
bankarnir staðfest þetta, en i öðr-
Framhald á 14. siöu
Fœðingardeildin innlimuð i sérstaka kvennadeild
54rúm á nýju deildinni
gjörbreyta aðstöðunni
1 gær var formlega opnuö ný
deild viö Landspitaiann og er þaö
fyrsta sérstaka kvennadeildin
sem stofnuö er við Islenskt
sjúkrahús. Byggingarfram -
kvæmdir hófust áriö 1976 og var
göngudeild tekin i notkun áriö
1974, en siðan hafa kveniækninga-
deildin, fæöingadeild, vökudeild
nýfæddra barna og sængur-
kvennadeild tekiötil starfa f þess-
ari álmu, auk þess sem þrjár
skuröstofurhafa veriö teknar þar I
notkun á efstu hæöinni.
Fæðingadeild Landspítalans
tók til starfa f ársbyrjun árið 1949
og voru þar fimmtiu og þrjú rúm.
Siðan hefur ekkert bæst við deild-
ina fyrr en með tilkomu nýju
kvennadeildarinnar, en á henni er
rúm fyrir samtals fimmtíu og
fjórar konur, sem ýmist liggja þá
á fæðingadeild, sængurkvenna-
deild eða kvenlækningadeild.
Kvennadeild Landspitalans er
búin fullkomnum tækjum sem
ýmist hafa verið gefin af félaga-
samtökum eða keypt af opinber-
um aðilum. Óhætt er að fullyrða
að aðstaða til hvers konar lækn-
inga kvenna eða fæðingarhjálpar
gjörbreytist, en eftir sem áður
verður gamla deildin þó nýtt til
fulls.
Á nýju deildinni verður einnig
starfrækt sérstök vökudeild eða
gjörgæsludeild nýfæddra barna,
og verða þar rúm fyrir 14 börn. Sá
rekstur er i raun hluti af Barna-
spftala Hringsins.
A kvenlækningadeildinni er
fyrirhugað að hafa m.a. aðstöðu
fyrir konur með bráöa sjúkdóma
eins og bráðabólgur í grindarholi,
utanlegsþykkt, blæðingar vegna
yfirvofandi fósturláts og annars
þess háttar. Auk þess verður
fengist við meðferð illkynja kven-
Fra formlegri opnum nýju kvennadeiidarinnar i gær.
—Ljósm. —eik.
sjúkdóma i grindarholi, fram-
kvæmdar almennar kvenlækn-
ingar, fóstureyðingar, ófrjó-
semisaðgerðir o.fl. Auk þess mun
þar fara fram kennsla lækna-
nema, ljósmæðranema og
hjúkrunarnema. Einnig veröur
þarna fengist við vfsindastörf.
—gsp