Þjóðviljinn - 30.12.1976, Page 13
Fimmtudagur 30. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA — 13
Ekki orða bundist
Það mætti æra óstööugan, ef
maöur færi aö skipta sér af þvi
opinberlega, sem manni þykir
miður fara i dagblööum og öðrum
fjölmiölum. Oft segir maður viö
sjálfan sig: ,,Nú get ég ekki oröa
bundist”, en þegir svo þunnu
hljóði.
Þeirsem i stjórnmálum standa,
eru manna berskjaldaðastir fyrir
óhróðri og hafa vinstri menn ekki
sist fengið á þvi að kenna i
Morgunblaðinu. Hinir almennu
lesendadálkar, svo sem Velvak-
andi og ritstjórnargreinar, Stak-
steinar og Reykjavikurbréf eru i
skjóli nafnleysis misnotaðir, oft
með ógeðslegum hætti til þess aö
læða inn áróðri um menn og mál-
efni, oft án raka. Hefur mér oft
sviðið það menningarleysi. Minni
sérstaklega á ofstækisgreinar
þær sem birtast alltaf öðruhvoru
undir dulnefninu Húsmóðir, sem
ég held að undantekningarlaust
séu öllum vandamönnum sinum
til skammar.
Þó ég hafi ekki alltaf átt sam-
leið með Þjóðviljanum og þeim
pólitikusum, sem að honum
standa, verð ég að játa, aö ég ber
til hans nokkrar viðkvæmar taug-
ar, kannski umfram önnur blöð.
Ég skal bera það með þögn hve
mistækir ritdómarar hans hafa
jafnan veriö og að þeir fara ekki
batnandi, stundum ekki hægt aö
sjá að þeir hafi lesið þær bækur,
sem þeir skrifa um. Um pólitiska
stefnu hans ætla ég ekki að ræða
hér. Ég gæti sannarlega unnað
Þjóðviljanum þess, að vera betra
og vandaöra blað en Morgun-
blaðið og öll hin blöðin, heiðar-
Jón úr Vör.
legri, skorinorðari og merkilegri.
En þvi miður, þótt margt megi
gott um hann segja þyrfti fremur
að taka honum ærlegt tak, en
hella yfir hann öllu þvi hóli, sem
vandamenn hans hafa fengið að
heyra á liðnu afmælisári. En hér
ætla ég hvorki að lofa hann né
lasta.
Tilefni orða minna eru skrif
Þjóðviljamanna um Reykja-
vfkurbréf Matthiasar Jóhannes-
sen 12. des. s.l. Þar ritar M.J. um
nýjar bækur Halldórs Laxness,
Jóns Auðuns og biskupsins og
kemur að vanda viða við. Ætla ég
ekki að rekja þaö. En þetta er að
minum dómi ein skemmtilegasta
og vandaðasta grein, sem Matt-
hias hefur ritað og hverjum rit-
höfundi til sóma. — Og mér er tii
efs að margir ritstjórar vorir hafi
ritað á þessu ári menningarlegri
grein.
t Þjóðviljanum hafa birst
a.m.k. tvær ómerkilegar greinar
um þessa ritsmið Matthiasar og*
ummæli hans mistúlkuð, jafnvel
fölsuð — auk þess sem vanvirðu-
lega er skrifað um hann. Auðvitaö
er Matthias einfær um aö bera
hönd fyrir höfuð sér i sinu eigin
blaði. En það þarf að gera at-
hugasemd við þetta i Þjóðviljan-
um. Blaðamönnum og rit-
höfundum ber að snúa bökum
saman og sjá um að almenn um-
ræða um menningarmál — og
helst um stjórnmál lika — sé
mannsæmandi. Stráksskapur á
þar auðvitað stundum rétt á sér —
en þó i hófi.
Rithöfundar, sem ráðist hafa til
þjónustu við pólitikusa, hvort sem
það er til hægri eða vinstri, eru i
hópi munaðarlausustu manna
heims, þótt það sé kannski ekki
sambærilegt við þá sem snúast
gegn rikjandi þjóðskipulagi i
ófrelsislöndum. Matthias ber sem
kunnugt er mjög fyrir brjósti þá
siðarnefndu, ef þeir eru fæddir
rússar eða eru austantjaldsmenn.
En góðir rithöfundar og blaða-
menn eiga að láta andstæðinga
sina njóta sannmælis, jafnvel þótt
þeir séu islendingar. Á þetta þarf
að minna i herbúðum blaðanna.
Námsmenn í Edinborg örvænta
Eftirfarandi samþykkt var
gerð á fundi stúdenta i Edinborg
þ. 9/12 1976:
Islenskir námsmenn i Edin-
borg lýsa örvæntingu sinni
vegna þeirrar svivirðilegu
árásar sem gerð hefur verið á
kjör þeirra.
Ekki einungis hafa endur-
greiðsluskilmálar verið gerðir
þeir verstu sem þekkjast á Is-
landi með þvi að visitölubinda
upphæð lánanna, heldur hefur
einnig verið ráðist að barnafólki
með þvi að draga úr ivilnunum
vegna barna á þeirra framfæri.
Ekki hefur heldur með núgild-
andi lögum verið staðið við fyrri
loforð um það að greidd yrðu
100% umframfjárþarfar náms-
manna.
Þetta verður ekki skilið á
annan hátt en þann að verið sé
að gera tilraun til þess að fækka
námsmönnum og veita börnum
af riku foreldri þau forréttindi
sem þau höfðu áður til að stunda
nám.
Það er greinilegt, að með nú-
gildandi lögum hefur verið
stigið skref aftur á bak og kjör
námsmanna stórlega skert frá
þvi sem áður var.
Benda má einnig á það mis-
rétti sem fólgið er i þvi að náms-
menn erlendis sem búa utan
Reykjavikur fá einungis
greiddan ferðastyrk til og frá
Reykjavik, en fá engan styrk til
að ferðast á milli heimilis sins
og Reykjavikur.
FLUGELDAR
ÚRVALIÐ ALDREI FJÖLBREYTTARA
Fallhlífarrakettur
Silfurstjörnuflaugar
rakettur
TUNGLFLAUGAR
ELDFLAUGAR
STJÖRNU
RAKETTUR
JOKERSTJÖRNU-
ÞEYTARAR
STÓRAR SÓLIR
rauð og blá
JOKERBLYS
BENGALBLYS
RÓMÖNSK BLYS
FALLHLÍFARBLYS
GULL- OG SILFURBLYS
GULL- OG SILFURREGN
STJÖRNULJÓS
tvær stærölr
STJÖRNUGOS — BENGALELDSPÝTUR, rauðar, grænar.
VAX-ÚTIHANDBLYS, loga 1 /2 tíma - VAX-GARÐBLYS, loga 2 tíma
HENTUG FYRIR UNGLINGA.
\3BQ2ö,i3a Q.aiuiflia(388a ca?
ANANAUSTUM. SÍMAR 28855.
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00,8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.) 9.00
og 10.00 Morgunbænkl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Jónas Jónasson les
sögu sina „Ja hérna, Bina”
(4). Tilkynningar kl. 9.30.
Léttlögmilli atriða. Viösjó-
inn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson sér um þáttinn.
Tónleikar Morguntónleikar
kl. 11.00: La Suisse
Romande hljómsveitin leik-
u r „G u 11 h a n a n n ”,
hljómsveitarsvitu eftir
Rimsky-Korsakoff: Emest
Ansermet stjórnar / Josef
Suk og Tékkneska fil-
harmoniusveitin leika
Fiðlukonsert i g-moll op. 26
eftir Max Bruch: Karel An-
cerl stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frivaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna
14.30 Miðdegissagan: „Lögg-
an sem hló” saga um glæp,
eftir Maj Sjövall og Per
Wahiöö Olafur Jónsson les
þýðingu sina, sögulok (17)
15. Miödegistónleikar
Sinfóniuhljómsveit brezka
útvarpsins leikur Tilbrigði
og fúgu op. 34 eftir Benja-
min Britten um stef eftir
Purcell: Sir Malcolm
Sargent stj. George London
syngur meö Filharmóniu-
sveit Vinarborgar lokaatriði
óperunnar „Valkyrjunnar”
eftir Wagner: Hans
Knappertsbusch stjórnar.
Sinfóniuhljómsveitin i
Boston leikur Sinfóniu nr. 2
fyrir strengjasveit eftir
Honegger: Charles Munch
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 „Gestur töframanns-
ins”, ævintýr eftir ókunnan
höfund Séra Friðrik J.
Bergmann islenzkaði. Einar
Guðmundsson les.
17.00 Tónleikar.
17.30 Lagiö mitt Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar
19.30 Jólaleikrit útvarpsins:
„Piitur og stúlka” eftir
Emil Thoroddsen samið
eftir samnefndri sögu Jóns
Thoroddsens. Emil samdi
einnig tónlistina sem
Sinfóniuhljómsveit Isiands
leikur undir stjórn Páls P.
Pálssonar. Leikstjóri:
Klemenz Jónsson. Persónur
og leikendur: Ingveidur i
Tungu...Guöbjörg Þor-
bjarnardóttir, Sigriður dótt-
ir hennar...Margrét Guð-
mundsdóttir, Ingibjörg á
Hóli...Auður Guðmunds-
dóttir, Indriði, sonur henn-
ar...Garðar Cortes, Gróa á
Leiti...Briet Héðinsdóttir,
Bárður á Búrfelli...Valur
Gislason, Guðmundur á
Búrfelli...Bessi Bjarnason,
Valgerður, dóttir
hans...Þórunn M. Magnús-
dóttir, Þorsteinn matgogg-
ur... Flosi ólafsson,
StIna...Þóra Friðriksdóttir,
Möller kaupmaöur. ..Er-
lingur Gislason, Kristján
búöarmaöur...Arni
Tryggvason, Levin kaup-
maður...Ævar R. Kvaran,
Guðrún...Herdís Þorvalds-
dóttir, Maddama Lúdvig-
sen...Anna Guðmundsdótt-
ir, Jón...Róbert Arnfinns-
son, Stine...Nina Sveins-
dóttir, Rósa...Guðrún
Stephensen,
Sigurður...........Baldvin
Halldórsson, Aðrir leik-
endur: Arni Benediktsson
og Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir. Einsöngvarar og kór
syngja undir stjórn Carls
Billich.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöld-
sagan: „Minningabók l>or-
valds Thoroddsens” Sveinn
Skorri Höskuldsson les (26).
22.40 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
V inningsnúmer
i happdrætti Styrktarfélags vangefinna:
1. vinningur: Chevrolet Concuras R-37586
2. -6. vinningur: R-37645, R-43551, R-52204,
A-2597, A-2688.
Jólatrés-
skemmtanir
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Sjó-
mannafélags Reykjavikur, verða i Lind-
arbæ dagana 2. og 3. janúar 1977 kl. 15-18.
Sjómannafélagsins sunnudaginn 2. janúar
1977.
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar mánu-
daginn 3. janúar 1977.
Aðgöngumiðar seldir á skrifstofum félag-
anna á kr. 500 i dag og næstu daga.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Sjómannafélag Reykjavikur