Þjóðviljinn - 07.01.1977, Síða 6
6 S!ÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. janúar 1977
Saga 1976
komiii út
með mörgu merkilegu efni
Oddur las
skattafrum-
varpið og seldi
j arðhitasvæðið
Komin er út Saga,
timarit Sögufélags, 14.
bindi 1976. Sögufélagið
hefur gefið Sögu út allt
frá árinu 1949, en þar
áður gaf félagið út
timaritið Blöndu frá
1918.
Fremst i Sögu 1976 er ritgerð
eftir Ásgeir Guðmundsson um
nasisma á íslandi, eins og höf-
undur orðar fyrirsögn, og er þar
fjallað um sögu Þjóðernis-
hreyfingar islendinga og Flokks
þjóðernissinna. Þessi saga gerð-
ist á árunum 1932-38. Höfundur
fjallar um stofnun ftokkanna
beggja, stefnuskrá þeirra eru
bornar saman við stefnuskrá
þýska nasistaflokksins og rakin
er þátttaka flokkanna i kosning-
um. Fjallað er um þetta efni allt
af hlutlægni og án nokkurrar for-
dæmingar. Með ritgerðinni birt-
ast m.a. áður óbirtar myndir frá
fundum og kröfugöngum ungra
þjóðernissinna.
Trausti Einarsson prófessor á i
heftinu ritgerð er stendur á mörk-
um jarðfræði og sagnfræði. Fjall-
ar hann þar um hina fornu
Sprengisandsleið Skálholts-
biskupa frá Suðurlandi til Austur-
lands og setur fram nýstárlegar
tilgátur um legu hennar.
Jón Þ. Þór ritar um Snorra
Pálsson, sem var verslunarstjóri
i Siglufirði 1864-83, og lýsir m.a.
tilraunum hans tii sildveiða og
niðursuðu. Einnig fjallar hann
um þingsetu Snorra.
Sigurður Ragnarsson á hér rit-
gerð um fossamálið, tengda rit-
gerð, sem birtist eftir hann i Sögu
1975. Nú tekurhann til meðferðar
það sem gerðist i þessu máli
kringum aldamótin 1900 og
nefnist ritgerðin Fossakaup og
framkvæmdaáform. Fjallað er
um fyrstu fossakaupin 1897-99 og
um afskipti alþingis af laga-
setningu til að hindra yfirráð er-
lendra manna yfir islenskum
fasteignum. Loks er gerð grein
fyrir fossalögunum 1907.
1 þessu hefti Sögu er að finna
samantekt frá hendi Bergsteins
Jónssonar um afstöðu Alþýðu-
fiokksins gagnvart Sambands-
lagasamningunum 1918 og för
Ólafs Friðrikssonar til Danmerk-
ur i þvi sambandi. Þá ritar Jón
Guðnason minningarorð um
Sverri Kristjánsson sagnfræðing
og birtir skrá um öll helstu rit
hans.Loks eru i heftinu tvær rit-
fregnir og ritaukaskrá um sagn-
fræði og ævisögur 1975.
Með þessu nýja hefti Sögu er
breytt til um káputeikningu rits-
ins frá þvi sem verið hefur siðustu
16 ár.
í ritstjórn Sögu eru Björn Sig-
fússon, Björn Teitsson og Einar
Laxness. — Verð heftisins er kr.
1750.
Afgreiðsla Sögufélagsins er i
Garðastræti 13 b (gengið inn úr
Fischersundi) og er hún opin kl.
14-18, laugard. kl. 10-12.
Forseti Sögufélagsins er Björn
Þorsteinsson prófessor.
Oddur
Ekki er að efa að Oddur óiafs-
son hefur kynnt sér þær breyt-
ingar á skattalögunum sem nú
eru i bigerð og gera meðal annars
ráð fyrir þvi að söluhagnaður
eigna verði skattlagður að fullu
og að lög um það efni taki gildi
fyrir tekjur þær sem verða til á
yfirstandandi ári. Oddur ólafsson
er aiþingismaður og þarf ekki
annað en að lesa skattalagafrum-
varpið til þess að átta sig á þess-
um tiðindum sem nú eru á
Þvi verður ekki haldið fram
með sanni, að verðlagseftirlitið
okkar sé strangt. Lesandi Þjóð-
viijans hringdi í gær og sagði okk-
ur frá hrikalegum verðmismun
að verðlagsbroti, sem hann varð
vitni að.
Hann sagðist vanalega hafa
keypt þvottefni sem nefnist —
dagskrá stjórnvalda.
En Oddur Ólafsson er lika land-
eigandi, og á gamlaárskvöld sl.
seldi hann mikla eign á
Suðurnesjum fyrir 21 miljón
króna. Þar með sleppur hann við
skattalögin sem nú eru i undir-
búningi og hirðir skattfrjálsan
stórfelldan gróða.
Það kemur fram i Morgunblað-
inu i gær að sjö sveitarfélög hafa
keypt háhitasvæði á Reykjanestá
fyrir 21 miljón króna af bræðrun-
UPP — og er islenskt. Hann
sagðist oftast hafa keypt það i
Hagkaup, þar sem pakkinn hefur
undanfarið kostað 124 kr.
Nýverið keypti hann svo slikan
pakka í Grimsbæ, þar sem hann
kostaði 220 kr. Að sögn verðlags-
stjóra mátti svona þvottaefnis-
pakki kosta 143 kr. mest, fyrir
um Oddi Ólafssyni og Karli. Þetta
er háhitasvæði sem mest hefur
verið rætt i sambandi við hugsan-
lega saltvinnslu á Reykjanesi.
Salan nær til 60—70 ferkilómetra
svæðis og á rikið hálft svæðið, en
kaupendur, sjö sveitarfélög, hafa
eignast hinn helminginn. Verður
þvi hér um að ræða sameign rikis
og sveitarfélaga.
Ekki mun að fullu gengið frá
einstökum atriðum kaupsamn-
ingsins.
áramót, en nú er leyfilegt
hámarksverð orðið 160 kr. En
pakki sá sem keyptur var i
Grimsbæ var af þeirri sendingu,
sem mátti kosta 143 kr.
Það er greinilega mikilvægt
fyrir fólk að vera á verði gegn
svona verslunarmáta.
—S.dór
77 króna munur á
þvottaefnispökkum
SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
@ Sjávarafurðadeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200
Vió erum umboösmenn fyrir:
Þorskanet frá:
MORISHITA FISHING NET LTD.
"Islandshringinn” og aörar plastvörur frá
A/S PANCO
Vira frá:
FIRTH CLEVELAND ROPES LTD.
Saltfiskþúrrkunarsamstæöur frá
A/S RAUFOSS og PYROFABRIKKEN
Slægingarvélar frá:
A/S ATLAS
Loónuflokkunarvélar frá
KRONBORG
Innflytjendur á salti, striga og
öllum helstu útgeröarvörum.
Fiskþvottavélar frá:
SKEIDES MEK. FABRIKKER A/S
Pökkunarvélar fyrir saltfisk frá
A/S MASKINTEKNIKK
F/V Kassaþvottavélar frá:
FREDRIKSONS
Bindivélar frá
SIGNODE
Umboössala fyrir:
HAMPIÐJUNA H.F
Sigriður Ella Magnúsdóttir.
Simon Vaughan
Syngjú 24 lög í
Austurbæj arbíói
Sigriður Ella Magnúsdóttir
óperusöngkona og Simon
Vaughan óperusöngvari frá Bret-
landi halda tónleika í Austur-
bæjarbióin.k. laugardag kl. 14.30.
Undirleikari er Ólafur Vignir Al-
bertsson pianóleikari.
Á efnisskránni eru bæði ein-
söngslög og dúettar, kunn þýsk
þjóðlög, óperudúettar og lög m.a.
frá Frakklandi, Italiu og Islandi.
Miðar eru seldir i bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar og i
Austurbæjarbiói við innganginn.
Sigriður Ella hefur sungið viða
hér heima á Islandi og einnig viða
i Evrópu, en hún er um þessar
mundir búsett i London. S.l. vetur
söng hún, sem kunnugt er, hlut-
verkCarmen i samnefndrióperu í
Þjóðleikhúsinu á alls 50 sýning-
um. Sigriður Ella er hér heima i
stuttu leyfi, en i mánaðarlokin
heldur hún i söngferð til Banda-
rikjanna og Kanada.
Simon Vaughan hefur sungið
bæði i útvarp og sjónvarþ á Is-
landi og einnig lék hann hlutverk
nautabanans á nokkrum sýning-
um Carmen i Þjóðleikhúsinu s.l.
ár. Simon starfar sem söngvari i
London og m.a. mun hann á næst-
unni syngja i tveimur óperum i
London, Scubert-operunni
Alfonso og Estrella og hlutverk
Papageno i Töfraflautunni, en
hún verður flutt i nýja Beck-leik-
húsinu i London. Þá er Simon
einnig að búa sig undir nokkra
tónieika á tónlistarhátið i London
i april.
Aefnisskrá þeirra Sigríðar Ellu
og Simons i Austurbæjarbiói eru
24 lög.