Þjóðviljinn - 07.01.1977, Qupperneq 11
Föstudagur 7. janúar 1977 ÞJóÐVILJINN — SIÐA — 11
Ólafur og Axel
verða í lands-
liðinu í kvöld!
— þegar það mætir liði íþróttafréttamanna
Loksins munu is-
lenskir handknattleiks-
unnendur fá að sjá þá
leika saman á ný með
landsliðinu, ólaf H.
Jónsson og Axel Axels-
son, og rennur sú lang-
þráða stund upp i
Laugardalshöllinni i
kvöld. íslenska lands-
liðið sem valið var i
fyrradag, mætir þá
pressuliði sem iþrótta-
fréttaritarar velja, og er
leikurinn háður fyrir til-
stilli Janusar landsliðs
þjálfara, sem vill sjá þá
Ólaf og Axel saman i
leik.
Auk þeirra tveggja hefur Arna
Indriðasyni nú verið bætt i lands-
liðshópinn, en hann leikur þó með
pressuliðinu I kvöld, hvað svo
sem verður á sunnudaginn, en þá
fer annar pressuleikur fram.
í þrótta maðu r á rsi ns
verður kosinn í dag
1 dag klukkan þrjú munu
iþróttafréttaritarar islensku fjöl-
miðlanna tilkynna val sitt á
iþróttamanni ársins árið 1976, og
verður það gert i hófi, sem haldið
verður i Glæsibæ.
Núverandi handhafi nafnbótar-
innar og hins glæsilega farand-
bikars er Jóhannes Eðvaldsson.
islenska landsliðið er þannig
skipað:
Ólafur Benediktsson Val
Gunnar Einarsson Haukum
Aðrir leikmenn:
Geir Hallsteinsson FH
Þórarinn Hagnarsson FH
Viðar Simonarson FH
Jón H. Karlsson Val
Bjarni Guðmundsson Val
Ólafur Einarsson Viking
Björgvin Björgvinsson Viking
Viggó Sigurðsson Viking
Axel Axelsson Dankersen
Ólafur H. Jónsson Dankersen
Ágúst Svavarsson.
Pressuliðið:
Orn Guðmundsson ÍR
Kristján Sigmundsson Þrótti
Arni Indriðason Gróttu
Bjarni Jónsson Þrótti
Sigurbergur Sigsteinsson Fram
Sigurður Gislason ÍR
Trausti Þorgrimsson Þrótti
Páll Björgvinsson ÍA
Hörður Sigmarsson Haukum
Steindór Gunnarsson Val
Konráð Jónsson Þrótti
Jón P. Jónsson Val
Þorbergur Aðalsteinsson Vikingi
Leikurinn i kvöld hefst klukkan
20.30.
1/ §m Jkeá h X LrjM i Ít!3K»flíHEi8HH
gp S !JiÍ|
Liðiðsem héltutan til þátttöku IPolar Cup ásamt þjálfurum. Efrið röð frá vinstri: Gunnar Gunnarsson,
Hreinn Þorkelsson, Eyjóifur Guðlaugsson, Ingólfur Hjörleifsson, Þórir Einarsson, Pétur Guðmundsson, . '•
Þorvaldur Geirsson, fyrirliði, Stefán Kristjánsson, Stefán Friöleifsson, Ivar Geirsson og Kristinn
Stefánsson.
Neðri röð frá vinstri: Garðar Sverrisson, Lárentsfus Agústsson, Sigurjón Ingvarsson, Grétar Sigurðs-
son, Kristján Sigurðsson, Arni Þ. Lárusson, Sigurgeir Þorleifssson og Steinn Logi Bjarnason.
Mynd: G.Jóh.
Unglingalandsliöiö
hélt utan í gær
Unglingaiandsliðiö í
körfubolta hélt utan í gær-
morgun til að taka þátt í
Polar Cup (Norðurlanda-
móti) unglinga í íþróttinni.
Hópurinn sem hélt utan
samanstendur af 17 leik-
mönnum, tveimur þjálf-
urum og einum dómara.
Leikir liðsins i mótinu eru
á föstudag og laugardag,
tveir hvorn dag, en mótið
endar á sunnudag. Þessi
niðurröðun leikja er óhag-
stæðokkar liði og má búast
við að strákarnir verði
orðnir þreyttir undir lokin.
,,Þaö mætti halda að þessi
niðurröðun væri vegna þess aö
allir búast við að við lendum i
siðasta sæti á mótinu, en við
ætlum okkur stærra hlutverk en
það. Ef við vinnum mótiö þá eru
tveir leikir eftir að við ljúkum
okkar og myndum við þá eyði
leggja mótið fyrir hinum og væri
það mátulegt á þá fyrir að ganga
að þvi visu að við verðum síðastir
eins og þeir virðast gera.” Þetta
voru orð Gunnars Gunnarssonar
og Kristins Stefánssonar þjálfara
liösins. Um styrkleika hinna
liöanna gátu þeir félagar litið
sagt, þvi hann breytist mjög ár
frá ári.
í þessari ferð eru ráðgerðir 4
aukaleikir, tveir við norömenn og
tveir við dani, og kemur liðið
aftur heim 15. jan.
Arni Indriðason er nú kominn á ný inn I landsliðshópinn að loknum
prófönnum i Háskólanum, en hann leikur þó ekki með landsliðinu i
kvöld, heldur klæðist hann búningi pressuliðsins og velgir væntanleg-
um félögum sinum trúlega undir uggunum.
„Ég verð úti
næstu
árin”
— segir Pétur
„stóri”
Guðmundsson
Pétur Guðmundsson 18
ára unglingur er alltaf
fréttaefni er hann kemur
hingað heim í heimsókn.
Péturstundar nám vestur«
Bandaríkjunum, nánar til-
tekið í Mercer Island High
School í Washington fylki.
Pétur sem er 2.17 metrar á
hæð, stundar körfubolta af
miklum áhuga þar vestra
og alltaf öðru hvoru er
leitað til hans til að taka
þátt í mótum með íslenska
unglingalandsliðinu. Núna
er liðið í Osló þar sem það
tekur þátt í Norðurlanda-
móti unglinga, og eru
möguleikar á sigri þeirra
góðir, ekki síst vegna komu
Péturs í liðið. En áður en
Pétur hélt utan með fé-
lögum sinum átti Þjóð-
viljinn stutt viðtal við
hann.
,,Við erum búnir að leika 8 leiki
i deildarkeppninni i fylkinu og viö
höfum unnið þá alla. Meðan á
Polar Cup stendur leikur skóla-
liðiö 3 leiki og þess vegna voru
forráðamenn þar tregir til að
sleppa mér, en gerðu það með þvi
skilyrði að ég kæmi aftur strax og
mótið væri búið, þvi að föstu-
daginn 14. eigum við að leika
fjögur
Pétur hefur nú ákveöið aft
dveljast erlendis næstu árin.
mikilvægan leik og þeir vilja hafa
mig með.
Ég er ekki búinn að ákveða
hvað ég ætla að leggja stund á
þegar ég klára hér, en ég hef
ákveðið að vera i Bandarikjunum
þar til ég er búinn með skólann,
en hvað siðan tekur viö er ekki á-
kveðið.
Jú það er rétt aö nokkrir góöir
skólar eru búnir að hafa samband
við mig og kanna hvort ég vilji
koma til þeirra. Þar ber hæst
skóla i Micigan, sem er einn af 10
bestu i Bandarikjunum og einn
skóla i San Francisco. I allt er ég
búinn aö fá eitthvað um 100 bréf
frá skólum viðsvegar i landinu.”
Um möguleika islenska liösins i
Polar Cup vildi Pétur litið segja,
en vonaði bara þaö besta. ,,Ég
spila alla leikina i Noregi, en
leikina við dani spila ég ekki þvi
ég verð kominn vestur til að leika
þar með skólanum.”
Við óskum Pétri og félögum
hans i unglingalandsliðinu góðs
gengis i mótinu og Pétri i fram-
tiðinni með skólann og körfu-
boltann.