Þjóðviljinn - 15.02.1977, Qupperneq 3
ÞriOjudagur 15. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA ■#- 3
Danír kjósa í dag
óvenju margir ætla að sitjaheima
Idi Amin Dada
Enn
eitt
tilrœði
gegn
Amin
Nairobi 14/2 reuter — Idi Amin
forseti Uganda skýrOi frá þvi i
dag aO hann heföi komiö upp um
samsæri um aö svipta sig lifi og
gera stjórnarbyltingu i landinu.
Amin sagöi aö fundist heföu
kinversk vopn sem komin væru
frá Tansaniu og átt heföi aö nota
viö valdarániö. Heföu þau fund-
ist 5. febrúar sl. viö heimili erki-
biskups ensku biskupakirkjunn-
ar. Aöalmaöurinn aö baki sam-
særinu væri hins vegar Milton
Obote fyrrverandi forseti
Uganda sem Amin steypti af
stóli áriö 1971, en hann dvelur i
útlegð I Tansániu.
Þessi uppljóstrun Amins fylgir i
kjölfar blaöaskrifa i Bretlandi
um helginá þar sem skýrt var
frá misheppnuðu samsæri um
aö steypa Amin af stóli. Einnig
sögöu bresku blöðin aö þessa
hefði verið hefnt grimmilega
meö fjöldahandtökum og
moröum.
Útvarpið i Kampala, höfuð-
borg Uganda, skýrði frá þvi i
dag aö fjórir menn heföu veriö
handteknir og heföu þeir játaö
aöild sina aö samsærinu. Einnig
var annar enskur biskup bendl-
aöur við samsæriö. Tekiö var
fram aö hvorugur guösmann-
anna heföi veriö hnepptur i
fangelsi. Þá var sagt aö tveir
menn heföu veriö skotnir til
bana i borginni Gulu i
noröurhluta landsins, en þar
fannst hluti vopnanna.
Otvarpiö bar til baka fréttir
um aö Gulu væri umkringd
hersveitum; þar væri allt meö
eölilegum hætti.
Þettaerekkiífyrsta sinn sem
reynt er aö ráöa Amin af dög-
um. Ari eftir aö Obote var
steyptaf stóli geröi hann innrás
i landiö frá Tansaniu, en henni
var hrundið. Og l júni sl. slapp
Amin naumlega er þrem hand --
sprengjum var varpað aö bil
sem hann sat i.
Verkföll í
Hollandi
Haag 14/2 reuter — Tilraunir tii
aö binda endi á verkfall 20 þúsund
hollenskra verkamanna fóru út
um þúfur i gær þegar atvinnurek-
endur höfnuöu kröfu þeirra um
2% hækkun á grunnlaun.
Wim Kok formaður stærstu
verkalýössamtaka landsins
kvaöst ekki vita hvenær samn-
ingaviðræöur hæfust á nýjan leik.
Atvinnurekendur hafa fallist á
visitölubætur á laun út þetta ár.en
vilja ekki hækka grunnlaun um
meira en 1%.
Kaupmannahöf n 14/2
reuter — A morgun,
þriöjudag, ganga danir til
kosninga í fjórða sinn
á mörgum árum. Skoðana-
kannanir hafa leitt i Ijós að
óvenjumargir ætla að sitja
heima.
Astæöan fyrir þvi,að svo margir
ætla aö sitja heima er ýmist sú ab
þeir geta ekki gert upp hug sinn
til þeirra 12 flokka sem i boði eru
eða að þeir búast ekki viö þvi að
kosningarnar verði til þess að
skýra linurnar i dönskum stjórn-
málum.
Sósialdemókratar hafa veriö
við stjörnvölinn undanfarin 2 ár
þótt þeir hafi aöeins 54 af 179 sæt-
um i þinginu. Anker Jörgensen
forsætisráöherra hefur látið hafa
eftir sér aö ef flokkur hans vinnur
á — sem skoöanakannanir benda
til að hann geri — muni hann
reyna aö mynda meirihluta-
stjórn; „minnihlutastjórn gengur
ekki lengur,” sagði hann.
Eins og áður segir búast fæstir
við þvi aö kosningarnar veröi til
þess aö leysa efnahagsvanda
dana sem er ærinn. Atvinnuleysi
nær nú til rúmlega 170 þúsund
manna eöa yfir 6% vinnufærra
manna. Og greiösluhallinn gagn-
vart útlöndum hefur aldrei veriö
hærri; hann nemur nú 20 miljörð-
um danskra króna.
Samt eru danir i hópi auöugustu
þjóða heims ef miðað er viö
þjóðartekjur á mann og koma þar
rétt á hæla svium. Þeir eiga held-
ur ekki i neinum vandræöum meö
aö fá lán á alþjóðlegum lána-
markaöi.
Hvaða stjórn sem mynduð
verður aö kosningum loknum
þarf strax að horfast i augu viö
stéttabaráttuna þvi nú standa yfir
samningaviöræður verkalýös og
atvinnurekenda um nýja heildar-
samninga. Segir Reuter aö
verkalýöshreyfingin biöi átekta
fram yfir kosningar. Að þeim
loknum muni þeir af endur-
Anker Jörgensen: — Stjórna ekki
lengur i minnihluta.
nýjuöum krafti reisa 'kr'ólur sinaT
um launahækkanir og úrbætur i
atvinnumálum.
PLO
Fallast á stofhun smáríkis
Vín, Beirut og víðar 14/2
reuter.— Svo virðist sem
meiriháttar stefnubreyt-
ing sé að verða innan
Frelsissamtaka palestínu-
araba (PLO) varðandi
kröfuna um frelsun ahrar
Palestinu.
Bruno Kreisky kanslari
Aussturrikis skýröi frá þvi um
helgina, að sér hefði borist
skjal frá PLO þar sem segir aö
samtökin muni sætta sig viö
stofnun palestinsks rikis á vestur-
bakka Jórdanár og Gazasvæöinu.
Einnig segir I skjalinu aö PLO séu
þess fullviss aö slikt riki gæti lif-
aö i friði viö hliö ísraelsrikis.
Hingaö til hafa palestinumenn
ekki viljað ljá máls á aö viöur-
kenna tilverurétt Israels.
Frá Damaskus i Sýrlandi
berast þær fréttir að viðræður
hafi átt sér staö milli fulltrúa
PLO og Israels i Paris. Dagblööin
Al-baath og Tishrin sem bæöi eru
málgögn stjórnarinnar i Sýrlandi
skýröu frá þessu I dag athuga-
semdalaust.
Talsmenn PLO hafa hingað til
neitað þvi að slikar viöræöur hafi
átt sér staö, en Reuter hefur þaö
eftir „valdamiklum aöilum” inn-
an PLO að svo sé. Hins vegar hafi
sá sem fundina sat af hálfu
palestinumanna ekki veriö opin-
ber fulltrúi PLO.en aö hann hafi
setiö þá meö samþykki valda-
stofnana innan PLO.
Frá Beirut ber Reuter þær
fréttir að ekki riki full eining inn-
an PLO um stofnun Palestinurik-
is á vesturbakkanum. Þar sé and-
stöðuhópur með PFLP undir for-
ystu Georgs Habasch i farar-
broddi. Hafa PFLP lýst þvi yfir
að samtökin muni gera sitt
ýtrasta til ab berjast gegn þvi aö
slik stefna veröi samþykkt á fundi
Palestinska þjóöarráösins sem
hefjast á i Kairó 12. mars nk.
Palestinska þjóöarráðiö
samsvarar þjóöþingi Palestinu og
starfar að sjálfsögöu i útlegð.
Líbanon:
Spenna í
BEIRUT
Beirut 14/2 reuter — Mikil spenna
rikti I Beirut I dag eftir aö ara-
bisku friöargæslusveitirnar i
Libanon umkringdu flóttamanna-
búöir palestinum anna i
suðvesturjaöri Beirut.
Talsmaöur palestinumanna
sagði i dag aö hætta væri á aö upp
úr syði innan skamms. Palestínu-
menn óttast aö sýrlensku
hersveitirnar hyggist ráöast inn i
búöirnar og þurrka út herskáustu
hermenn i liöi palestinumanna.
Talsmaöur palestinumanna i
Róm sagði i dag aö PLO hefði
sent stjórnum Egyptalands og
Saudi-Arabiu skeyti og „Deoio
þær aö hlutast til um máliö áöur
en blóðugir bardagar hef jast milli
okkar og sýrlendinga”. Yassir
Arafat leiötogi PLO átti i dag
skyndifund meö egypskum ráöa-
mönnum i Kairó.
A hinn bóginn virðist vera aö
slakna á spennunni sem rikt hefur
á landamærum Libanon og
tsraels.en israelskum stjórnvöld-
um hefur fundist sýrlensku
hersveitirnar I Libanon vera of
nærri landamærum sinum. I dag
var skýrt frá þvi aö 2000 sýrlensk-
ir hermenn heföu farið frá þorp-
Cyrus Vance utanrlkisráöherra
Carters er aö leggja upp I ferö til
Austurlanda nær.
inu Nabatiyeh sem er 11 km frá
landamærum tsraels. tsraelsk
stjórnvöld búast viö þvi aö allir
sýrlenskir hermenn verði farnir
frá þorpinu áöur en Cyrus Vance
utanrikisráöherra Banda-
rikjanna leggur upp i ferö á
morgun til tsraels og fimm
arabarikja.
Sovétríkin
Norskir diplómatar
geröir brottrœkir
Moskvu 14/2 reuter —
Sovésk stjórnvöld ráku í
dag úr landi einn
starfsmann norska sendi-
ráðsins i Moskvu og til-
kynntu um leið að öðrum
starfsmanni sem nú er í
Tókíó yrði ekki hleypt inn i
Sovétríkin.
Sá sem rekinn var úr landi
gegnir stööu verslunarfulltrúa, en
hinn var fyrsti sendiráðsritari.
Þeim var gefið aö sök að hafa
sýnt af sér athæfi sem ekki sam-
rýmdist stööu þeirra sem dipló-
matar. Þessi ákvörðun var til-
kynnt norska sendiherranum i
Moskvu, Petter Graver, er hann
var kallaöur til viðtals I sovéska
utanrikisráöuneytinu i dag.
Talsmaöur norska utanrikis-
ráöuneytisins i Osló sagöi i dag aö
ásakanir sovétmanna á hendur
norsku sendiráðsmönnunum
væru tilhæfulausar og aö lita yröi
á þennan atburð i ljósi þeirrar
ákvöröunar norsku stjórnarinnar
i siöasta mánuöi aö reka sex
sovéska sendiráðsstarfsmenn úr
landi vegna njósna.
Nú eru aöeins sjö starfsmenn
eftir i norska sendiráöinu I
Moskvu.
Nýfasisti
handtekinn
á Ítalíu
Róm 14/2 reuter — ttalska lög-
reglan handtók I gærkvöldi nýfas-
istann Pierluigi Concutelii sem
grunaöur er um morö á dómara
einum og er talinn einn hættu-
legasti pólitiski glæpamaöur
landsins.
Concutelli fannst i ibúö nærri
rústum Forum Romanum I miö-
borg Rómar. Þar fundust einnig
11 miljón lirur sem eru hluti af
lausnargjaldi sem greitt var fyrir
unga stúlku sem rænt var nýlega.
Þessi fundur er talinn renna stoö-
um undir fullyrðingar um aö
nýfasistar standi á bak viö þá
þaulskipulögðu hópa mannræn-
ingja sem numið hafa um 20
manns á brott þaö sem af er ár-
inu.
Concutelli er grunabur um aö
hafa myrt Vittorio Occorsio
dómara i júlimánuði sl. en þá var
Occorsio einmitt aö rannsaka
hvort áðurnefndar fullyröingar
hefðu viö rök að styðjast.
Crosland
í Mshættu
London 14/2 reuter —
Anthony Crosland utanrikis-
ráöherra Bretlands varö
fyrir hjartaáfalli i gær og var
fluttur á sjúkrahús. 1 dag var
heilsa hans sögð fara versn-
andi og aö hann væri i lifs-
hættu.
Crosland var aö vinna viö
skjöl varöandi Ródesiumáliö
á landsetri sinu nærri Oxford
er hann kenndi sér skyndi-
lega meins.
Breska utanrikisráðuneyt-
iö skýröi frá þvi i dag aö
David Owen aðstoðarráð-
herra myndi gegna störfum
Croslands I veikindum hans