Þjóðviljinn - 15.02.1977, Blaðsíða 10
1« — SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. febrdar 1977
Landskeppni í borðtennis: ísland — Færeyjar
íslendingar sigruðu
á öllum borðunum
Gunnar Finnbjörnsson sigraði á opna mótinu
sem færeyingarnir tóku þátt í sl. laugardag
islendingar og færeying-
ar háðu landskeppnií borð-
tennis sl. föstudagskvöld
og fór keppnin fram i
Laugardalshöllinni. Eins
og búist var við/ sigruðu ís-
lendingar á öllum borðum/
en keppt var í einliða- og
tviliðaleik karla, einliða-
leik unglinga 15-17 ára og
drengjaf lokki 12-15 ára.
Leiknir voru alls 25 leikir og
sigruöu islendingar 23:2. 1 lands-
keppninni i karlaflokki einliöa-
leik, sigraði Ragnar Ragnarsson
Niels Hovgard 21:12 og 21:17.
Björgvin Jóhannsson sigraöi
Jóhannes Ellingsgard 21:13 og
21:10. Hjálmar Aöalsteinsson
sigraöi Alek Beck 21:12 og 21:15.
Gunnar Finnbjörnsson sigraöi
Johan Johannesen 20:22 — 21:15
og 21:17. Stefán Konráösson sigr-
aði Kristian Christiansen 21:10 og
21:14.
A sunnudaginn fór fram opið
mót uppi á Akranesi og tóku fær-
eysku borötennismennirnir þátt i
þvi. Þar sigraöi Gunnar Finn-
björnsson, en hann lék til úr-
slita við Stefán Konráðsson, hinn
unga og efnilega borötennismann
úr Gerplu. — S.dór
Fimm kepp-
endur á NM
í badminton
Eftir úrtökumót BSÍ fyrir
Noröurlandamót unglinga I bad-
minton voru þessir keppendur
valdir til að keppa fyrir Islands
hönd:
Jóhann Kjartansson, TBR.
Siguröur Kolbeinsson, TBR,
Friörik Arngrimsson TBR,
Broddi Kristjánsson, TBR,
Kristin Kristjánsdóttir. Norður-
landamótiö verður haldið I Kaup-
mannahöfn i mars.
Víkingur sló Fram út úr keppninni og sfðan skagamenn. t úrsiitaleikn-
um sigraði liðið svo Þrótt og tryggði sér meistaratitilinn I fyrsta sinn.
Mynd: —gsp.
Víkingur komst
í úrslitaleikinn
og sigraði Þrótt af öryggi í
Guðmundur Freyr með skjöldinn eftirsótta i fyrsta sinn um hálsinn. A
bak viðeru Halldór og Guðmundur ólafsson. Mynd: — gsp.
Óvenjufátt í Skjaldarglímu
Ármanns
Guðmundur Freyr
fékk skjöldinn
Aðeins sex glímumenn
tóku þátt i Skjaldarglímu
Armanns um helgina og er
það óvenjulítil þátttaka.
Mótið bar þess enda merki,
það var stutt og lítt spenn-
andi.
Guðmundur Freyr Halldórsson
sigraöi eftir nokkuö haröa keppni
við Guömund Ólafsson, en þeir
félagar skildu jafnir i sinni viöur-
eign. Guömundur Freyr sigraöi
hins vegar i öllum öörum glimum
sinum á meðan Guömundur
ólafsson fór illa aö ráöi sinu gegn
Halldóri Konráðssyni i siöustu
glimu mótsins... og varö aö láta
sér lynda jafntefli.
Endanleg röö varö þvi þessi:
1. Guðmundur Freyr Halldórsson
4.5 vinningar
2. Guðmundur Ólafsson 4
vinningar.
3. Haildór Konráösson 2,5 vinn-
ingar.
4. Guöni Sigfússon 2 vinningar
j. óskar Valdimarsson 1,5 vinn-
ingar
B. Arni Þór Bjarnason 1/2 vinn-
ingur.
—gsp.
Islandsmótinu innanhúss
ófarir hjá lands-
liðinu gegn Slask
Janus nýtir æfingaleikina til hins ýtrasta, en
landsliðsmenn eru greinilega
þreyttir eftir geysilegt álag síðustu daga
tslandsmótið I innanhússknatt-
spyrnu var háð um siðustu helgi,
bæði iaugardag og sunnudag.
Mikill fjöldi liða tók þátt i mótinu,
sem var hið fjörugasta. Undan-
farin ár hafa Valur, Fram, KR og
1A verið með bestu liðin I innan-
hússknattspyrnu, sem er allt önn-
ur iþrótt en knattspyrna utan-
húss, eins og menn eflaust vita.
En nú brá svo við að lið Vikings
og Þróttar báru af i mótinu og
léku til úrslita um íslands-
meistaratitilinn, og lauk þeirri
viðureign meö sigri Vikings 5:2
(4:0)
Orslitakeppni mótsins hófst um
kl. 17.00 á sunnudag og lauk henni
ekki fyrr en kl. 21.30. Úrslit leikja
i lokakeppninni urðu sem hér seg-
ir:
1A-KA 7:6
IBK-FH 6:3
Fram-KR 6:4
Þróttur-Týr 8:5
ÍA-Haukar 7:3
Valur-IBK 8:6
Vikingur-Fram 9:6
Þróttur-Valur 9:7
Víkingur-IA 5:3
Og þar meö voru Vikingur og
Þróttur komnir i úrslit og Vlk-
ingur vann úrslitaleikinn 5:2.
í kvennaflokki sigraöi
Braiöblik. Til úrslita léku
Breiðablik og IA og sigruöu
Kópavogsstúlkurnar 5:1
—S.dór
tslenska landsliðið lék
um helgina tvo leiki gegn
pólska liðinu Slask
Wrocklaw.... og tapaði
báðum stórt. I gærkvöldí
fór síðan fram síðasti leik-
ur pólverjanna hér að
þessu sinni og mættu þeir
þá landsliðinu á Akranesi.
Janus Cherwinsky lands-
liösþjálfari hefur notaö þessa æf-
ingaleiki gegn pólverjunum til
hins ýtrasta og kannað lið sitt eins
og frekast er unnt. Ekki er aö efa
að leikirnir gegn pólverjunum
hafa veriö mikilvægir i lands-
liösundirbúningnum en hinu er
ekki að neita aö frammistaöa Is-
lendinganna veldur nokkrum
vonbrigöum.
Auövelt er þó aö finna svör aö
þessu sinni. Alagiö á lands-
liöspiltana hefur veriö geysilegt
undanfarna daga og raunar
margar siöustu vikur. Æft er
tvisvar á dag og örugglega mæta
strákarnir örþreyttir I hvern leik
gegn pólverjunum. Þeir fá hins
vegar tlma til hvildar fyrir B-
keppnina og ná sér þá vonandi vel
á strik.
Þegar hefur verið skýrt frá leik
pólverjanna og landsliösins sl.
fimmtudagskvöld, en sá leikur
tapaöist naumlega. Á laugar-
daginn var svo leikiö á Akureyri I
litlu skemmunni þar og sigruöu
pólverjar meö hvorki meira né
minna en tlu marka mun, 25:15.
Klempel skoraði tiu mörk og var
óstöövandi með öllu.
Hann var óneitanlega ekki
buröugur handknattleikurinn
sem islenska landsliðiö sýndi
fyrirnoröan. Oeining eða einhver
„pirringur” virtist rikja I her-
búöum íslands og enda þótt
Skemman væri troöfull af áhorf-
endum náöist aldrei sú stemning
sem skyldi. Fyrir leikinn afhenti
Helgi Bergs bæjarstjóri lands-
liöinu tvö hundruö þúsund krónur
aö gjöf og haföi þeim verið safn-
aö þar nyröra.
Daginn eftir, á sunnudags-
kvöld, mættust liöin aö nýju og þá
I Hafnarfiröi. Enn fóru pólverj-
arnir meö öruggan sigur af hólmi,
og höföu þeir sjö marka forskot.
24:17, þegar flautaö var til leiks-
UMFN sigraði ÍS
í baráttuleik
JMFN heldur enn sinu striki I
deildinni i körfubolta, og nú
ast unnu þeir stúdenta með 93
;um gegn 77. Mikil barátta var
iknum og var munurinn oftast-
r litill, en undir lokin sigu
arðvikingarnir framúr og
ggðu sér sigurinn.
lesti maðurinn I leiknum var
anar Þorvaröarson fyrirliöi
UMFN og var hann einnig stiga.
hæstur I liði sinu. Jónas
Jóhannesson átti einnig góöan
leik, sérstaklega i vörninni, þar
sem hann gætti Bjarna Gunnars
og gerði hann þaö vel. Steinn
Sveinsson var i aöalhlutverkinu
hjá 1S, bæöi I uppbyggingu leiks-
ins og stigaskorun.
Stig UMFN skoruöu: Gunnar
26, Guösteinn Ingimarsson 15,
Þorsteinn Bjarnason 14, Brynjar
Sigmundsson 12, Kári Marisson
og Geir Þorsteinsson 8 hvor,
Jónas 6, og Stefán Bjarkason 4.
Stig 1S: Steinn 27, Bjarni
Gunnar 17, Ingi Stefánsson 14 Jón
Héöinsson 12, Ingvar Jónsson 4 og
Guöni Kolbeinsson 3 stig.
Stefáni Bjarkasyni var visaö út
úr húsinu af dómara leiksins og
þýöir þaö aö hann fær ekki aö
leika næsta leik með liöinu.
G.Jóh.