Þjóðviljinn - 15.02.1977, Side 4

Þjóðviljinn - 15.02.1977, Side 4
— StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 15. febrúar 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. Útgefandi: Útgáfuféiag Þjó&viljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar:Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann. Útbreiðslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson. Auglýsingastjóri: (Jlfar Þormóðsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Sfðumúla 6. Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Verkalýðs- samtök og jjöl- þjóðahringir í ræðu á alþingi i siðustu viku gerði Sigurður Magnússon að umtalsefni vax- andi umsvif fjölþjóðlegra auðhringa. Nefndi Sigurður nokkrar tölur i þessu samhengi. Þar kom meðal annars fram: Framleiðsla fjölþjóðahringa vex um þessar mundir tvöfalt hraðar en efna- hagsstarfsemi heimsins i heild. Arleg aukning heimsframleiðslunnar er talin vera um 5% að meðaltali á ári, en aukning á framleiðslu hringanna um 10%. 1971 var öll framleiðsla auðhringanna um 560 miljarðar dollara til samanburðar við samanlagða þjóðarframleiðslu i öllum löndum, sem þá var um 3000 miljarðar dollara. Þvi er spáð að árið 1985 muni um 300 fjölþjóðahringar ráða yfir um 50% af allri framleiðslu heimsins, en 1995 um 70% af þessari framleiðslu. Þessar tölur eru fengnar upp úr athugun sem gerð var á vegum sænska alþýðusambandsins. Aluisse er ekki talinn meðal stærstu auðhringa heimsins. En 1973 var ársvelta allra fyrirtækja hringsins um 727 miljarð- ar dollara, en það ár var þjóðarfram- leiðsla islendinga talin hafa verið um 1 miljarður dollara. Framleiðsla útibúa auðhringanna segir sina sögu um alþjóðleg umsvif þeirra. Framleiðsla þeirra var metin á 20 milj- arða dollara hærri upphæð en framleiðsla allra þjóðrikja heimsins. Til dæmis um þetta er að framleiðsla útibúa banda- riskra auðhringa erlendis var fjórum sinnum meiri 1971 en öll útflutningsfram- leiðsla bandarikjamanna i heimalandinu. Er Sigurður Magnússon hafði rakið þessar tölur komst hann þannig að orði: „Þessar upplýsingar um framleiðslu- magn fjölþjóðaauðhringa segja nokkuð um veldi þeirra og hver þróunin er i þess- um efnum og áhrifa þeirra gætir nú i auknum mæli hvarvetna i heiminum, þannig að allar fyrri hugmyndir manna um vald og rikisvald hljóta að endurmet- ast. Sérlega er vert fyrir verkalýð heims- ins að gera sér grein fyrir áhrifum fjöl- þjóðahringa á verkalýðsbaráttu og launa- baráttu alla. Vegna þeirrar viðleitni auð- hringanna að leita alltaf eftir hámarks- gróða án tillits til þarfa og hagsmuna verkafólks i hverju einstöku landi og vegna þeirrar staðreyndar, að auðveldara er að flytja á milii landa fjármagn en vinnuafl mun starfsemi fjölþjóðahringa aldrei veita verkafólki það atvinnuöryggi sem þjóðlegir atvinnuvegir geta veitt. Með hótunum um að stöðva framleiðslu eða flutning hennar milli landa geta hringarnir ógnað og kúgað verkafólk und- ir vilja sinn og dregið úr þvi að það krefjist aukinnar hlutdeildar i arði framleiðslunn- ar hverju sinni. Þannig geta fjölþjóða- hringar miklu frekar en þjóðleg fyrirtæki komist hjá þvi að viðurkenna hefðbundinn rétt verkafólks og verkalýðssamtaka. Einnig er rétt að gefa þvi gaum i allri umræðu verkafólks um atvinnulýðræði, að framleiðsiuskipan fjölþjóðahringa er i fullri mótsögn við hugmyndir innan verkalýðssamtaka um aukin áhrif á vinn- una, fyrirkomulag hennar og arðskipt- ingu, yfirstjórn og miðstýring fjölþjóða- hringa á útibúum sinum i einstökum lönd- um er slik, að þau hafa ekki olnbogarými til sjálfstæðrar ákvarðanatöku nema að mjög litlu leyti.” Þessi ummæli Sigurðar Magnússonar i þingræðunni þar sem hann bendir á hags- muni verkalýðshreyfingarinnar og verka- fólks sérstaklega eru i fullu samræmi við ábendingar þær sem fram komu i forystu- grein Þ jóðviljans fyrir nokkru þegar skor- að var á alþýðusamtökin að veita kröftuga viðspyrnu við stóriðjuáformum Gunnars Thoroddsens, meðal annars og sérstak- lega áætlun „integral”. Með auknum um- svifum og yfirráðum erlendis fjármagns á íslandi á starfsemi verkalýðshreyfing- arinnar erfitt uppdráttar. Einmitt af þess- ari ástæðu hafa verkalýðssambönd, jafn- vel Alþjóðasamband frjálsra verkalýðs- félaga, varað við auknum umsvifum fjöl- þjóðahringa og hvatt verkalýð heimsins til virkrar andstöðu. —s. Þórarinn besti vinur rússa A' laugardag birtist forystu- grein í Morgunblaöinu eftir Matthias Johannesen undir fyrir- sögninni „Þórarinn leikur sér aö eldi”. Þar segir I upphafi: ,, Sovétmenn eiga hauk f horni þar sem er Þórarinn Þórarinsson rit- stjóri Timans og formaöur utan- rikismálanefndar Alþingis. Þaö kom glögglega fram i forystu- grein er hann ritar i blaö sitt I gær, þar sem hann gerir litiö úr þeirri hættu, aö Sovétmenn stundi njósnir hér og sér ekkert athuga- vert við þann mikla fjölda starfs- manna, sem sovéska sendiráöiö hefur á að skipa. Raunar kemur þaö engum á óvart, aö þessi rödd skuli heyrast úr þessari átt. Ekkert dagblaö á tslandi birtir jafnmikiö af efni, sem sovéska áróöursstofnunin Novosti, sem hefur skrifstofu hér á landi, reyn- ir aö troöa inn i islenska fjölmiöla og einmitt dagblaöiö Timinn. Hefur þaö lengi veri undrunarefni hvernig á þvi stendur.” Matthias segir siöan furöulegt andvara- leysi alþingis aö ekki skuli tekiö þar á starfsemi soveska sendi- ráðsins hér á landi, en ,, þaö and- varaleysi veröur kannski skiljan- legra, þegar þaö liggur fyrir hversu hallur formaöur utan- rikismálanefndar alþingis er undir sovétmenn. En þaö afsakar þó ekki sinnuleysi annarra.” Barn varð dóni og sál ríki Loks segir Morgunblaöiö: „Astæöa til þess aö Morgunblaöiö teluraöminnihætta stafi af dóna- skap manns eins og Þórarins Þórarinssonarersú staöreynd aö Sjálfstæöisflokkurinn er i rikis- stjórn og hefur væntanlega aö- hald af honum og rikisfélögum hans. Þaö er hættulegt, þegar börn leika sér aö eldi, þaö er einn- ig hættulegt, þegar Þórarinn Þór- arinsson leikur sér aö staðleys- um.” Þó aö lesendum Morgunblaös- ins hafi vafalaust létt nokkuö viö þau tiöindi aö „dónaskapur” Þór- arins heföi aöhald af „rikisfélög- um” sinum varö sú gleöi skamm- vinn. 1 Morgunblaöinu á sunnu- dag birtist leiörétting þar sem segir: „Tvær vondar prentvillur uröu i niöurlagi seinni forystugreinar Morgunblaösins i gær. Forystu- greinin fjallaði um skrif Þórarins Þórarinssonar um njósnastarf- semi Sovétmanna hér á landi og átti niöurlag hennar aö vera svo- hljóöandi: „Astæöan til þess aö Morgunblaðiö telur aö minni hætta stafi af barnaskap manna eins og Þórarins Þórarinssonar er sú staðreynd aö Sjálfstæöis- flokkurinn er i rfkisstjórn og hef- ur væntanlega aöhald meö honum og sálufélögum hans.” Þarna breytist eins og sjá má „barn” i „dóna” og „sál” i „rfki”. Eru þaö vissulega kostulegustu „prent- villur” sem sögur fara af i dag- blööunum og er þá langt til jafn- aö. Klofnar ríkisstjórnin? Aö öllu gamni slepptu er ljóst aö niöurstaöa Morgunblaösleið- arans er sú aö sovétmenn fái aö stunda njósnastarfsemi hér á landi I friöi vegna þess aö þeir eigi „hauk i horni” þar sem er Þórarinn Þórarinsson. Ljótt er ef satt er. Ef taka á ummæli Morgunblaðsins alvarlega er Þórarinn er línuvöröur númer eitt. Skyldi stjórnin klofna út af njósnum rússa? Þórarinn linuvöröur rússa á Islandi númer eitt, hann birtir meira i blaöi sinu frá rússum en nokkurannar ritstjóri, hann gerir litiö úr njósnastarfsemi þeirra. Spurningin er: Klofnar rikis- stjórnin á afstööunni til njósna rússa? Taki Geir Hallgrimsson mark á málgagni sinu er sú spurning i fyllsta máta eölileg. Spekingslegir unglingar 1 morgunblööum helgarinnar kennir margra grasa. Viö höfum hér á undan rýnt i þau um stund, en af nógu er aö taka. Þó eru lambhrútum. Sem betur fer... áberandi fróölegastar skrautjurt- ir Reykjavikurbréfsins sem lik- legast er skrifaö af Eyjólfi Konráö Jónssyni. I Reykjavfkur- bréfinu kemur fram aö hann telur aö skrif Þjóöviljans og andstaöa sósialista viö stóriöjurekstur út- lendinga hér á landi stafi frá „leynifundi kommúnista” i Díisseldorf snemma i desember siðastliönum. Segir Eykon þaö „barnaskap” (ekki dónaskap) aö „halda aö þaö sé einskær tilviljun aö þessi herferö komúnista i stór- iöjumálum hefjist einmitt skömmu eftir fundinn I Dússel- dorf.” Segir Morgunblaöiö einkar athyglisvert aö þaö séu ekki ein- asta Þjóöviljinn og þingmenn Alþýöubandalagsins sem berjist gegn erlendri stóriöju. „Vinstri sinnaðir islenskir námsmenn” erlendis hafi hlýtt kallinu, „stúd endtar viö Háskóla fslands” fái ,,skyndilega alveg gifurlegan áhuga á stóriöjumálum og fjölþjóöafyrirtækjum og setjast niöur viö skriftir. Jafnvel unglingar i framhaldsskólum taka til hendi, setja á fót svo- nefnda starfshópa og koma svo meöspekingslegar greinar um þaö hvaöa óskaplegar hörmungar hafi duniö yfir islensku þjóöina þegar álsamningurinn var geröur á sinum tima. Semsagt: þaö er eins og ýtt á hnapp — eftir leyni- fundinn f Dússeldorf — og allt apparatiö fer i gang. öllum hin- um „trúuöu” ber aö láta til sin heyra og þeir sinna þvf kalli.” Ekki er nóg meö aö ósóminn frá þessum spekingslegu unglingum birtist i Þjóöviljanum, aö sögn Eykons. Þeir reyna lika aö troöa sér inn i önnur blöö og „misnota” þaö frelsi sem hér rikir. Allt er þetta brölt „bersýnilega skipu- lagt.” Þannig sjá forystumenn Sjálf- stæöisflokksins hvarvetna óvini, einkum þó i velgefnum „spek- ingslegum” unglingum. Valda- menn sem voru haldnir ofsóknar- brjálæöi af þvi tagi sem sést i Reykjavikurbréfi Morgunblaös- ins voru fyrr I sögu mannskynsins hættulegir umhverfi sinu. Sagt er aö svipaö geöheilsuástand hafi einkennt siöustu valdaár Stalins. Sem betur fer búum viö á tslandi þar sem valdsmenn veröa hins vegar aö skeyta skapi sinu á lambhrútum þegar sefasýkin sækir þá heim. Þess vegna er hægt aö umgangast skrif forystu- manna Sjálfstæöisflokksins meö vorkunnseminni einn( meö vin- samlegum óskum um bráöan baía. —s.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.