Þjóðviljinn - 15.02.1977, Page 8

Þjóðviljinn - 15.02.1977, Page 8
8 — StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 15. febrúar 1977 Gert Petersen Ib Christensen Erhard Jacobsen Anker Jörgensen Knud Jespersen Mogens Glistrup Stefán Ásgrímsson, fréttarítarí Þjóðviljans í Kaupmanna- höfn: Poul Schluter Jens Möiler Kurt Hansen Poul Hartling Svend Hauggárd Kosningaloforð dönsku flokkanna Flokkur eftirlaunafólks, Pensionistpartiet, sem nýlega hlaut viðurkenningu sem fullgild- ur stjórnmálaflokkur, býöur i fyrsta sinni fram í þingkosning- unum 15. febr. nk. Flokksstofnun- inerframhald þeirrar þróunar aö einstakir hagsmunahópar stofna með sér stjórnmálaflokk og bjóöa fram tii þings. Stefnuskrá flokksins er ekki mikil aö vöxtum, rúmast á 2 siðum vélrituðum og er um flest óljós mjög, nema aö þvi er beinlinis varðar hagsmuni eftir- launafólks, en flokkurinn hyggst vinna að þvi að eftirlaun hækki og verði skattfrjáls. í öðrum málum er litið lagt til málanna. Formaður flokksins segir.aðhverjum og einum fram- bjóðanda sé frjálst að hafa sina sérkoðun á hverju þvi máli er ekki varðar beint hagsmuni eftir- launafólks. Fiokkurinn telur þó að Danmörk skuli áfram vera konungsriki, en hætta skuli uppi- haldi á fjarskyldum ættingjum konungsfjölskyldunnar. Spara þurfi i rlkisrekstrinum, en ekkert er greint frá hvar helst skuli bera niður. Varðandi af- stöðuna til NATO og EF sagði formaðurinn að afstaða yrði tekin eftir kosningarnar og mega þvi væntanlegir kjósendur kaupa köttinn i sekknum hvað varðar flest stefnumál flokksins. Skoða nakan na nir. Sósialdemókratar hafa bætt stöðu sina á fyrstu viku kosninga- baráttunnar samkv. skoðana- könnun Observa, sem gerð var opinber 6. febr. sl. og eru þeir eini flokkurinn sem hefur aukið fylgið um meir en eitt prósent frá sið- ustu könnun, (31. des.) Flokkur- inn hefur nú samkv. þessu 36% fylgi, en fékk i kosningunum 29. jan. 1975, 29,9%. Annars lita töl- umar svona út. 31. des. 31. jan. 1976 1977 Sósialdem. 33% 35% Radikale venstr. 5% 5% thaldsflokkurinn 6% 6% Réttarsambandiö 2% 2% Sósialiski þjóðarfi. 7% 6% Kommúnistafl. 4% 3% Miðdemókratar Flokkur eftirlaunafólks 0% 0% Kristilegi þjóöarfl. 4% 4% Venstre 16% 16% Vinstri sósiaiistar 3% 3% Framsóknarfl. 17% 16% Samkvæmt þessari könnun yrði skipting þingsæta þannig: Sósíaldemókratar 61 (53), Radikaie Venstre (tiltölulega rót- tækur miðflokkur) 9 (13), íhalds- flokkurinn 11 (10), Réttarsam- bandið 4 (0), Sósialiski. þjóðar- flokkurinn 10 (9), Kommúnista- flokkur Danmerkur 5 (7), Miðdemókratar 7 (4), Kristilegi þjóðarfiokkurinn 7 (9), Venstre (ihaldssamur miðflokkur) 28 (42), vinstrisóslalistar 5 (4) og Fram sóknarflokkurinn (Glistrup) 28 (24). (Tölurnar i svigunum eru þingmannafjöldi á siðasta þingi.) Samkævmt þessum tölum skoðanakannanastofnunarinnar Observa hafa ágústflokkarnir svokölluðu, sem stefna að verð- stöövun og launafrystingu og beinni ihlutun i yfirstandandi kjarsamningum styrkt stööu sina sem nemur 6 þingsætum. Þessir flokkar eru sósialdemókratar, radikalar, Ihaldsflokkurinn, mið- demókratar (hægri klofningur úr sósialdemókrötum) og Kristilegi þjóðarflokkurinn. Þeir höfðu á siðasta þingi (89) þingmenn, en samkvæmt þessu hefðu þeir samtais 95 þingmenn. Dagblaðið Aktuelt lagði fyrir flokkana spurninguna: „Með hver jum getur flokkur yðar hugs- að sér að starfa eftir kosningarn- ar?” Svörin sem forkólfar flokk- anna gáfu, fara hér á eftir þýdd og endursögð og gefa þau allgóða mynd af kosningamálum flokk- anna og greinilegt er að þeir Hartling og Glistrup renna nú hýruauga hvor til annars og eiga launþegar og svo maður nú ekki tali um atvinnuleysingja, ekki von á góðu, ef þeir standa að næstu stjórn. Anker Jörgensen, Sósialdemókrataflokkn- um. Það eru tvö meginmál sem flokkurinn leggur áherslu á fyrir þessar kosningar og þau eru: A: Að rekin verði félagslega sann- gjörn pólitik, sem taki fullt tillit tilhinna veikustu og lakastsettu i þjóðfélaginu og tryggi félagslegt réttlæti, jöfnuð til mennta og góða heilbrigðisþjónustu. B: Aðþannig verði að stjórn landsins staðið eft- ir kosningarnar, að atvinnuleysi verði útrýmtog grundvöllur verði lagðurað þvi að atvinna verði um ianga framtið næg og stöðug. Að þessum markmiðum hefur flokk- urinn keppten i jan. sl. urðum við aðbita I það súra epli að á siðasta þingi gátum við ekki komið fram þessum meginmálum og þvi ruf- um við þing og boðuðum til kosn- inga tilað leita liðsinnis kjósenda til að koma þeim í höfn. Um þessi meginatriði viljum við hafa samstarf við aðra flokka og þá er spurningin hverjir vilja starfa með okkur að þessum markmiðum. Nú sem stendur vit- um við ekki nákvæmlega hverjir eru llklegastir en reynslan hefur kennt oss ýmislegt. Vist er að Kommúnistaflokkur- inn og Vinstrisósialistar hafa ekki áhuga á að starfa eftir þingræðis- legum leikreglum. Klofningur innan Sósialiska þjóðarflokksins gefur ekki ástæðu til að ætla að við getum reiknaö meðþeim, sam- starf við Framsóknarflokk Gli- strups er útilokað vegna þess að við metun samvinnu- og sam- neysluhugsjónina mikils og of mÚcið ber i milli okkar og flokks, sem hefur einkahagsmunina að hugsjón. Auk þess er Framsóknarflokkurinn áhuga- laus um skynsamlega langtlma pólitik, enda hentistefnuflokkur. Kjósendur verða aö gera sér ljóst að þvi fleiri atkvæði sem þessir sýndarmennskuflokkar fá, þvi erfiöara verður um samvinnu- möguleika varðandi lausn á vandamálum þjóðarinnar. Svend Hauggard, Rad. Venstre. Þegar þing var rofið, stóöu yfir samningaviðræður milli ágúst- flokkanna 5, en Venstre gerði út af viö þær með ósveigjanleika sinum og pólitiskri spiiamennsku. Eftir kosningarnar veröur það meginatriði að halda áfram þvi starfi, sem i gangi var hjá þess- um flokkum og sérstaklega er mikilvægt að stefna þeirra 1 launa-og fjármálum verði tryggö á eins breiðum grundvelli og kostur er. öfgaflokkarnir tveir á vinstri vængnumogsá á hægri vængnum hafa sýnt sig óhæfa til samstarfs um þessi mál og Sósialiski þjóðarflokkurinn á við innri vandamál að etja, en viö aðra flokkaerum við tilbúnir til sam- starfs. Eftir aö samkomulag hefur náðst um efnahagsstefnuna er nauðsynlegt að samkomulag verði gert með væntanlegum stjórnarflokkumum að þing verði ekki rofið fyrir 1980 til að tryggð- ur verði vinnufriður og pólitískur stööugleiki. Poul Schluter, íhalds- flokknum. Flokkurinn mun vinna að þvi að ágústflokkarnir haldi áfram þeirri fjármálastefnu sem þeir hafa fylgt til siöustu þingslita, ef þingstyrkur fæst til. Ef svo verður ekki, er útlitið sannarlega dökkt. Ihaldsflokkurinn er fylgjandi myndun borgaralegrar fjöl- flokkastjórnar en á þeim timum sem slikterómöglegt, vinnum við með þeim flokkum sem við getum haft einhver áhrif á. Við höfum átt hlut að tíma- bundnum launa- og verðstöðvun- um og munum vinna efiir kosn- ingar á svipaðan hátt og við gerð- um á siðasta þingi. Ib Christiansen, Réttarsambandinu. Það er grundvallaratriði um hvaða mál flokkurinn hefur sam- starf við aðra flokka, ekki hver flokkurinn er sem samstarf er haft við. Við álitum að fyrirfram getum við ekki útilokaö neinn möguleika i þessu efni, en hins vegar eru nokkrir flokkar það öfgasinnaðir að samstarf við þá er aðeins hugsanlegt á mjög af- mörkuðu sviði. Við höfum haft samstarf við Sósialiska þjóðarflokkinn, Kom m únis t af lokkin n og Vinstrisósialista i málum er varða andóf gegn veru okkar i EBE. Einnig viljum við gjarnan hafa samvinnu við Sósiald. og Radikale Venstre i lóða- og landamáium, ef þeir taka skrefið til fulls og fylgja okkar áliti i þvi að allt land skuli vera samfélags- leg eign og lóðabrask þar með úr sögunni. Gert Petersen Sósialiska þjóðarflokkn- um. Spurningin er sú, ,,um hvaða mál verður höfð samvinna en ekki með hverjum.” Hægri sveifl- an er aöeins vandamál vegna þess að margt verkafólk hefur ánetjast henni. - Við getum ekki haft neina sam- vinnu við hægri flokka vegna þess aö þeir stefna að ójöfnuði i þjóðfélaginu og misskiptingu, þannig að þeir veikari bera þyngri byrðar en þeir sem betur mega við þvi. Sérstaklega er þetta áberandi hvað varðar stefnu þeirra i skatta- og hús- næðismálum. Sósialiski þjóðarflokkurinn get- ur ekki sætt sig við höfuð- markmið ágústflokkanna I efna- hagsmálum, sem eru i eðli sinu atvinnuleysisaukandi, fyrir nú utanað launafrysting er hneyksli. Við viljum hafa samvinnu við þá flokka, sem vilja útrýma at- vinnuleysinu, endurskoða tekju- skattslögin, stöðva hækkanir á vöruverði og húsaleigu, berjast gegn skrifræði og endurbæta félagsleg skilyrði, menntunar- möguleika og þróun alls menn- ingarlifs. 1 þessum efnum getum við hugsað okkur samvinnu við Sós.dem. og flokkana til vinstri við þá. Við litum að visu ekki sömu augum og þessir flokkar á hvern- ig beri að koma þessum málum i höfn, en erum tilbúnir aö slaka til þar sem i milli ber, en fái þessir Framhald á bls. 18 Stjórnarkjör í Félagi starfsfólks í veitingahúsum: Tveir listar komu fram A föstudag rann út frestur til að skila framboðum i stjórnar og trúnaðarráöskosningum Félags starfsfólks i veitingahúsum. Fram komu tveir listar og mun það vera f fyrsta skipti i sögu þessa féiags. Listi stjórnar og trúnaöar- mannaráös er þannig skipaöur: Formaður: Indriði Hall- dórsson. Meðstjórnendur Mál- friður ólafsdóttir, Maria Sigur- geirsdóttir Hótel Sögu, Anna M. Kristjánsdóttir Flugleiðum, Ingólfur Jökulsson Hótel Esju, Sigrún Gísladóttir Hótel Holti, GIsli Pálmason Naustinu. Varastjórn: Þórunn Thorlacius Hótel Sögu, Rannveig Magnús- dóttir Flugleiðum, Jóna M. Jó- hannsdóttir Skiphól, Gestur Kristinsson Flugleiðum. Trúnaðarmannaráð: Halldór Jónsson Hótel Sögu, Guðmundur Ólafsson Þórskaffi, Asdis Þór- hallsdóttir Flugleiðum og Anna Sigurðardóttir Flugleiðum. Varamenn: Vigdis Bjarnadótt- ir Hótel Sögu og Stefanla Runólfs- dóttir Flugleiðum. Hinn listinn sem fram er kom- inn er þannig skipaður: Stjórn: Kristinn Hrólfsson. óð- ali formaður, Meðstjórnendur eru Kristrún Guðmundsdóttir Skip- hól, Hrefna Jóhannsdóttir Flug- leiðum, Ingigerður Sæmundsdótt- ir Flugleiðum, Bjarni Hermanns- son Flugleiðum, Jónina Davíös- dóttir Flugleiðum og Ragnheiður Erlendsdóttir Norræna húsinu, Varastjórn: Lilja Kristjansen Skrlnúnni, Guðmunda Davlðs- dóttir Flugleiðum, Gestur Krist- insson Flugleiðum, Kristín Egg- ertsdóttir Norræna húsinu. Trúnaðarmannaráö: Stefania Runólfsdóttir Flugleiðum, úlfar Hellerc Klúbbnum, Anna Queen Flugleiðum, Unnur Ingólfsdóttir Flugleiðum. Varastjórn: Petra Þórlinds- dóttir og Lárus Brown Óðali. —GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.