Þjóðviljinn - 15.02.1977, Síða 14

Þjóðviljinn - 15.02.1977, Síða 14
14 — StDA — ÞJÓDVILJINN ÞriOjudagur 15. febrúar 1977 Stefán Framhald af bls 8. flokkar meirihluta i kosningun- um, yrði þaö hneisa ef þeir gætu ekki komist að einhverju sam- komulagi sín i milli. Sósialdemókratar ættu sem fyrst að gefa hugmyndina um stöðvun frekari launahækkana uppá bátinn, þvi annars er hætt við að hægribylgjan veröi aö óvíðráðanlegu stórflóði. Miðdemókratar viðurkenna ekki að komandi kosningar snúist um Anker Jörgensen eða Poul Hartling. Það skiptir varla sköp- um hvor þeirra myndar næstu stjórn. Þar af leiðandi sé ég ekki ástæðu til annars en að ætla að flokkurinn muni styðja nýja stjórn Ankers svo framarlega sem hún fylgir áfram sömu stefnu oghingamla fylgdi. Fyrrv. stjórn og Sósdem. flokkurinn hafa sýnt hófsemi og tillitssemi i garð sam- starfsflokka sinna og meðan flokkurinn starfar i sama anda, munum við ganga af heilum huga til nýs samstarfs viö hann. Fari svo óliklega að ágústflokk- arnir biði ósigur og úrslit kosn- inganna þýði Venstre-stjórn með stuðningi Glistrups, munum við ekki hindra að sú rikisstjórnaxli ábyrgðina. Flokkurinn mun vinna slikri stjórn af trúmennsku, eins og hann hefur gert áður i sam- starfi við Hartlingstjórnina og eins og hann gerði i samvinnu við stjórn Ankers Jörgensens. Við styðjum hvorki sósial- demókratiska né Venstre pólitik en setjum hagsmuni landsins ofar flokkshagsmunum og landinu þarf jú að stjórna. Knud Jespersen, Kommúnistaflokki Danmerkur. Kommúnistaflokkurinn hefur alla tið verið tilbúinn til sam- starfs við aöra flokka, bæði innan og utan dyra. Á þingi hefur verið samstarf við bæði Réttarsam- bandiö og Sósialiska þjóðarflokk- inn i öllum málum er varða Efna- hagsbandalag Evrópu. A siðasta þingi áttum viö samstarf við Sósiah'ska þjóðarflokkinn, Vinstri sósialista og Lars Emil Johansen frá Grænlandi um nefndarkjör og lögðum fram sameiginleg frum- vörp. Við lögðum einnig fram frumvarp ásamt ihaldinu og Sósíaliska þjóðarflokknum um aö sjúkt eldra fólk missti ekki heimili sin ef það er lagt inn á elli eða hjúkrunarheimili. Þessi dæmi sýna þá breidd sem er og hefur verið i samvinnu okkar við aðra flokka. Samband okkar við vinnustaðina hefur alla tiö verið sérkenni okkar og borið góðan ávöxt. Kommúnistaflokkurinn hefur verkamenn að mestum hluta á framboðslistum sinum. Fyrsta frumvarp okkareftir kosningarn- ar 1975 var um að tryggja at- vinnuna og um bætt kjör atvinnu- lausra. Við höfum flutt fjölda frumvarpa og stutt öll þau, sem horfðu til atvinnuaukningar þó að okkur hafi ekki alltaf likað vel aö styðja kapitalismann um leið en hagsmuni verkamanna setjum við ofar öðru. LO (Alþýðusambandið) og Kommúnistaflokkurinn voru og eru sammála um að ganga af samstarfihinna svonefndu ágúst- flokka dauðu, enda var Anker Jörgensen um margra ára skeið samherji okkar i þvi að hafna launafrystingu og ihlutun þings og stjórnar i gerð kjarasamninga. Athugun Observa 15 mars 1976 sýndi að 68% kjósenda Sós. dem. álitu að aöilar vinnumarkaðarins ættu ihlutunarlaust að semja um kaup og kjör, og án þess að þingið setti nokkurn ramma þar um. 1 þessu efni er Kommúnistaflokk- urinn sammála meirihluta kjósenda sósialdemókrata. Jens Möller Kristilega þjóðarflokkn- um. Kristilegi þjóðarflokkurinn er frjálslyndur flokkur og það þýðir það, að við álitum hvorki sósialisma né liberalisma hið eina rétta þjóðskipulag. Þessi afstaöa gefur flokknum mikla möguleika til að miðla málum og vinna með flokkum bæði til vinstri og hægri. Flokkurinn hefur löngu sannað gildi sitt i hinum erfiöu stjórn- unarskilyrðum sem skapast hafa af miklum fjölda þingflokka. Flokkurinn hefur einnig til að bera staðfestu og menn skulu minnast þess er viö i lok nóv. sl. sáum til þess að forsætisráðherr- ann stæði við orð sin. Það dæmi sýndi að við erum samstarfsfúsir i málum er til heilla horfa og höf- um okkar eigin skoðun á hvernig framkvæma skal hlutina. Þetta atvik leiddi siðan til þess að viðræður strönduðu og nýjar viðræður hófust er leiddu til þess að verðstöðvunarlögin urðu aö veruleika i des. sl. Við göngum ekki til kosn- inganna fyrirfram ákveönir um það, með með hverjum við mun- um hafa samstarf eftir kosn- ingar. Þar mun stefna flokkanna ráða mestu um. Poul Hartling, Venstre. Einu sinni á ári kemur fyrir almenningssjónir statistik um hvernig flokkarnir hafa greitt atkvæði um frumvörp, sem orðin eru að lögum. Þar sést að Venstre og Haukur ólafur Ragnar Svavar Alþýðubandalagið Seltjarnarnesi Umræðufundur verður haldinn i Félagsheimilinu Seltjarnarnesi þriðjudaginn 15. febrúar kl. 8.30. Umræðuefni: Vinstristjórnin — aödragandi og árangur. Frummælendur: Haukur Helgason, hagfræðingur, Ólafur Ragnar Grimsson, prófessor og Svavar Gestsson, ritstjóri. Fundurinn er opinn öllum flokksmönnum. Frjálsar umræöur að lokn- um framsöguræðum. — Stjórnin. Umræðufundur ABR um auðvald og verkalýðsbar- áttu 2. hluti: Auðvaldsskipulagið á ts- landi, verkalýðshreyfingin og sósialisk barátta. Fundur firnmtudaginn 17.2 um timabilið frá fyrstu árum verka- lýðshrey fingarinnar til 1942 Frummæiandi ólafur R. Einars- son ólafur Neskaupstaður. — Fræðsluerindi. verður i Egilsbúð (fundarsal) fimmtudagskvöldið 17. febrúar kl. 21. Ólafur Ragnar Grfmsson, prófessor, talar um efnið: Verkalýðshreyf- ing og alþjóðahyggja. Allir velkomnir. Alþýðubandalagið f Neskaupstað. Samtök hérstöðvaandstæðinga. Hverfahópar i Vesturbæ,Hliðum og Mýrum. Fundurinn verður að Tryggvagötu 10 fimmtudaginn 17. febr. kl. 20.30 Umræður um leyniskýrslurnar frá 1949. Framsögumaöur veröui Haukur Sigurðsson kennari. Herstöðvaa ndstæði nga r Herstöðvaandstæðingar i Hafnarfirði Herstöðvaandstæðingar i Hafnarfirði boða til fundar á Skálanum n.k. þriðjudagskvöld, 15. febrúar. Einar Karl Haraldsson flytur hug- leiðingu um efnið: „Hernám hugarfarsins og áróðursleiðir setuliðsins.”Almennar umræö- Einar Karl. íbúð óskast Tveggja til þriggja herbergja íbúð óskast I Laugarneshverfi, Kleppsholti, Sundum eða Vogum. Upplýsingar i sima 34049 eftir kl. 8 á kvöldin. Bifvélavirki Bifreiðaeftirlit rikisins i Reykjavik óskar að ráða bifvélavirkja með meiraprófs ökuréttindi. Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu stofnunarinnar að Borgartúni 7. Bifreiðaeftirlit ríkisins. sósialdemókratar og stór hluti annarra flokka hafa greitt eins atkvæöi i flestöllum málum er varða fjárveitingar, Þau mál, sem ekki hefur orðið samstaða um eru örfá og sýnir þetta aö þrátt fyrir allt tal um pólitiska kreppu, eru lýðræðisflokkarnir einhuga i löggjafarstarfinu. Vissulega eru ýmis grund- vallaratriði 1 stefnu flokkanna ólik og hamla samstarfi i mörg- um málum og má i þvi sambandi minna á er Venstre greiddi at- kvæði gegn ýmsum atriðum i samningaviðræðum ágústflokk- anna ekki alls fyrir löngu. Markmið Venstre er að mynda frjálslynda rikisstjórn, ef kjósendur veita okkur til þess umboð sitt. Full þörf er á annarri stjórnar- stefnu en verið hefur undanfarin 2 ár. Allt hefur verið á niðurleiö er varðar atvinnumál og utanrikis- verslunin er rekin með meiri halla en dæmi eru til um áður. Við svo búið má ekki standa og þvi óskar Venstre eftir traustri Samvinnu um aðra stjórnarhætti. Kurt Hansen, vinstrisósialistum. Vinstrisósialistar eru ekki á þingi til að stunda pólitisk hrossa kaup og málamiðlanir. Við höfum og munum sem áður leggja höf- uðáherslu á samvinnu við verka- fólk á vinnustöðum og við ýmsar andkapitaliskar hreyfingar og félög, enda er okkar samstarfs- vilji ekki bundinn innan veggja þingsins þar sem við teljum þingræði ekkert endanlegt mark- miö né það, sem lengst verður komist til lýðræðis. Að við leggjum svo mikið upp úr samstarfi við hópa utan þings, þýðir þó ekki að allt samstarf viö aðra pingflokka sé útilokað. Við höfum haft samvinnu á þingi við Sósialiska þjóðarflokkinn og Kommúnistaflokkinn i sambandi við nefndakjör, um dagskrártil- lögur, flutning frumvarpa og fyrirspurna. Gott samband við hið vinnandi fólk er höfuðnauösyn traustum, virkum og framsæknum flokki eins og vinstrisósialistum og samstarf við flokka eins og tvo þá nýnefndu er sjálfsagt og eins samvinna við aðra þá vinstriflokka sem sam- einast vilja i baráttu gegn húsa- leiguhækkunum, launafrystingu og stjórnarafskiptum af kjara- samningaviðræðum. Mogens Glistrup Framsóknarflokknum. Orsök atvinnuleysisins og hall- ans á utanrikisversluninni er sú að útgjöld rikis og bæja hafa verið skrúfuð feykilega upp undanfarin ár. Undir þessum þrýstingi liða fyrirtækin og ekki borgar sig fyrir þau aö færa út kviarnar og þar með auka atvinnuna. Til að kóróna þetta ástand koma svo skattarnir sem þrúgandi kostn- aðarliður, er eyðileggur endan- lega möguleika okkar á að standa I samkeppni við önnur lönd. Þaö sem nú er mest aðkallandi erað svelta hið opinbera, sem bú- ið er að éta illilega yfir sig. Nauðsynlegt er að afnema pappirsvitleysuna, sem gerir okkur lifið svo erfitt hér i Danmörku. Við alla flokka með þessa grundvallandi skoöun vill Framsóknarflokkurinn hafa fast samstarf. Það verður að snúa þróuninniiréttaátt. Ivæntanlegu samstarfi verða aðilar að sjálf- sögöu að koma til móts hver við annan. Hversu mikið hver aðili gefur eftir, er að sjálfsögðu komið undir þeim styrk, sem hann hefur frá kjósendum. Sérhver k jósandi sem hefur þor til að horfast i augu við sannleik- ann og elskar föðurlandið mun þvi ekki kasta atkvæði sinu á neinn duglausan ágúst- eða septemberflokk, sem ekki hefur dugaðlandinu hið minnsta, nema að siður sé. Þessa flokka vantar kannski ekki viljann, heldur getuna til að stjórna og ekkert bendir til að þeirmuni hafa meira afhenni eft- ir kosningar en þeir hafa haft til þessa. Væntanlegt samstarf okkar við aðra flokka veröur að grundvall- ast á nýrri pólitik, þvi að annars fer illa fyrir Danmörku. Erfiðleikar hjá þjóðum bitna allt- af fyrst og harðast á smælingjun- um og það má ekki verða hér. ÞJÓDLEIKHÚSIÐ DÝRIN I HALSASKÓGI i dag kl. 17. Uppselt. laugardag kl. 15. GULLNA HLIÐIÐ miövikudag kl. 20. Uppselt. Laugardag kl. 20. NÓTT ASTMEYJANNA fimmtudag kl. 20. SÓLARFERÐ föstudag kl. 20. Litla sviðið: MEISTARINN fimmtudag kl. 21. I siðasta sinn.’ AAiðasala 13.15—20. Sími 1-1200. LEIKFEIAG 2l2 „REYKjAVtKUR SAUMASTOFAN i kvöld uppselt STÓRLAXAR miðvikudag, uppselt. SKJALDHAMRAR fimmtudag kl. 20,30. MAKBEÐ föstudag kl. 20.30. Miðasala I iðnó kl. 14-20.30. Simi 16620. SÁ SEM STELUR FÆTI VERÐUR HEPPINN I ASTUM Leikféiag Selfoss Sýning: I Kópavogsbiói I kvöid ki. 21:00. Miðasala: frá kl. 19:00. Sími: 41391 4 SKIPAUTGCRÐ RIKISINS m/s Baldur fcr frá Reykjavik miðviku- daginn 16. þ.m. til Breiða- fjarðarhafna og Patreks- fjarðar. Vörumóttaka: alla virka daga til hádegis á miðvikudag. SKIPAUU.CRB RÍKISINS m/s Esja fer frá Reykjavlk mánudaginn 21. þ.m. vestur um land I hringferð. Vörumóttaka: miðvikudag, fimmtudag og tii hádegis á föstudag til Vest- fjarðahafna, Norðurfjarðar Sigiuf jarðar, óiafsfjarðar, Akureyrar, Húsavikur, Rauf- arhafnar og Þórshafnar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.