Þjóðviljinn - 04.03.1977, Side 5

Þjóðviljinn - 04.03.1977, Side 5
Föstudagur 4. mars 1977 WÓÐVILJINN — SIÐA 5 ASKORENDA- EINVÍGIN 1977 ‘FIDE GEIMS UIMASUMUS Skákskýringar: Helgi Olafsson Umsjón: Gunnar Steinn Dramatískur endir eftir mikil átök á Loftleiðahóteli... Spassky fórnadi skiptamun og felldi Hort á tíma! Sovétmaðurinn tefldi gullfallega undir lokin og í lokastöðunni virtist hann með unnið tafl (Auövitað ekki 8... Rxb4? 9. Da4+ Rc6 10. d5 o. sfrv.) 9. Hbl-Re7 10. f3-exf3 11. Bxf3-0-0 12. 0-0-Kh8 13. b5-Reg8 14. Rf4-He8 15. Hb2-Rh6 16. Bg2-Rf7 17. Rfd5-Rxd5 18. Bxd5-Dd7 19. Bg2-Rg5 Eftir miklar sviptingar og geysilega spennu undir lokin tryggði Boris Spassky sér þýðingar- mikinn sigur í einvíginu gegn Hort í gær. Þéttset- inn salur áhorfenda stóð á öndinni af spenningi er síðustu leikirnir voru leiknir undir miklu tíma- hraki. Spassky fórnaði skiptamun# Hort baúð slíkt hið sama> en sovétmaðurinn tefldi djarft og leit ekki við til- boðinu/ heldur barðist áfram með skiptamun undir. Spassky tefldi af mikilli dirfsku en öryggi undir lokin, Hort lenti í vaxandi erfiðleikum og féll á tima eftir 39 leiki... að öllum líkindum með tapað tafl. Sannarlega æsandi skák á Loftleiða- hótelinu í gærkvöldi, og mátti greinilega finna að áhorfendur fóru flestir ánægðir heim eftir þenn- an fyrsta sigur sovéska stórmeistarans, — sigur sem vafalaust á eftir að reynast þýðingarmikill í næstu umferðum. Eiginkona Spasskys var brosmild að viðureigninni lok- inni og sama var að segja um aðstoðarmanninn Smyslov, sem á timabili var þó orðinn æði þungbúinn til augnanna, enda urðu skjólstæðingi hans á mis- tök i 21. leik, sem áttu þó ekki eftir að verða honum að falli eins og flestir áttu von á. Hort tefldi mjög hagstæðri stöðu niður með ónákvæmni, en hann tók ósigrinum með sæmd og rétti Spassky umsvifalaust höndina er klukkuvlsirinn féll. Hann gat þó ekki dulið von- brigði sin. Hort grúfði sig yfir taflborðið, reif i hár sér og hristi höfuðið margsinnis, vonsvikinn eftir þetta tap, sem virtist svo fjarlægt um tima. Spassky komst langt á reynslu sinni I gærkvöldi. Hann lét sér ekki bregða þrátt fyrir ógöngurnar i miðtaflinu, og er upp var staðið var á honum sami rólyndissvipurinn og þegar hann barðist hvað mest við yfirburði tékkans I miðtafli. , Engin geðbrigði er hægt að sjá i fari sovétmannsins, sem marg- sinnis hefur áður gengið I gegn- Var það stúlkan fáklædda sem kom Hort úr jafnvægi? A.m.k. tafðist skákkappinn um dýrmœtar sekúndur hennar vegna Örfáar sekúndur réðu þvi að Vlastimii Hort féll á tfma I gær og tapaði þar með sinni fyrstu skák i einviginu. Að visu átti hann e.t.v. tapaða lokastöðu, en óneitanlega er merkileg saga á bak við þær sekúndur sem Hort vantaði til þess að leika siðasta leiknum sinum. Mái er þannig vaxið, að til þess að komast á salerni ganga bæði Spassky og Hort i gegnum bakherbergi til þess að komast út úr keppnissaln- um fram á salernið. 1 þvi her- bergi mun hluti af starfsliði Flugleiða hafa aðstöðu til að skipta um föt o.fl., og einmitt þegar Hort snaraðist ábúðar- mikill inn i herbergið i gær- kvöldi, stóð þar undur falleg islensk stúika, fáklædd f meira lagi. Hort lét sér ekki bregða og strunsaði i gegnum her- bergið, en stúlkunni var meira bilt við og skellti hún hurðinni fast á eftir honum, og setti I lás. Þegar Hort kom til baka var hurðin læst. Hann bankaði hæversklega, en þvi var ekki svarað. Hort beið rólegur, hann sá á sjónvarpsskermi að Spassky var enn að hugsa... og var raunar i vandræðum. En smám saman ókyrrðist tékkinn, og þegar hann sá að Spassky var að leika knúði hann fast á dyrnar. Allt kom þó fyrir ckki. og það var ekki fyrr en nærstaddir skárust i leikinn að Hort komst i gegn- um herbergið og inn i keppnis- salinn. Nokkrar sekúndur höfðu þarna tapast, en það skipti raunar engu máli, þvi skákin var rétt að byrja. En óneitan- lega er það kaldhæðnislegt að tékkinn skyldisvo falla á tima i þessari viðureign, eftir svo óvænta atburði i bakherberg- inu og fyrir utan hinar læstu dyr þess. Sagan er hér birt án ábyrgð- ar, en þó höfð eftir nokkuð áreiðanlegum heimildum. um sömu átökin og sömu úrslit og urðu i gærkvöldi. En þetta var dramatiskur endir, og vist er að þessi fyrsti sigur I einviginu getur haft veruleg áhrif á framvindu næstu viðureigna. Hort þarf þó ekki að láta sér bregða mikið. Hann tefldi með svart i gær- kvöldi og stýrði mönnum sinum af öryggi þar til i lokin að tíma- hrakið varð honum til trafala. En hann hefur veitt Spassky mikla mótstöðu og kemur flest- um á óvart með öryggi sinu. Fyrir fjölmarga áhorfendur var gærkvöldið afar skemmti- legt. Siðustu klukkustundina var keppnissalurinn troðfullur og ráðstefnusalurinn sömuleiðis og á göngunum æddu margir um i eirðarleysi, greinilega búnir að halla sér um of á sveif með öðrum hvorum keppandan- um. Hvltt: Boris Spassky Svart: Vlastimil Hort Enskur leikur. 1. c4-e5 4. Bg2-Bg7 2. Rc3-Rc6 5. e3-d6 3. g3-g6 6. Rge2-f5 (1 rauninni má segja aö svart- ur tefli lokaða afbrigðið i Sikil- eyjarvörn með skiptum litum. 1 áskorendakeppninni 1968 notað- ist Spassky mikið viö þetta af- brigöi með frábærum árangri I einvígjunum við Geller og Lar- sen. Þannig mætti segja að Hort beiti vopnum andstæðingsins!) 7. d4 (öllu traustara er 7. d3) 7. ... e4 8. b4-Rf6 (Hvltur hefur hér öllu frjáls- ara tafl og svartur á við nokkra liðsskipunarörðugleika að striða. Það framhald sem hann velur er greinilega mjög áhættusamt) 20. h4!?-Re6 21. g4? I wrn §H i. Ww i W/ n ym. up Ww. m ■ gp i j§§ B % wm mk i Æk. HP ili HP i 'W/ ggi A wm iH & ÉB 0 mg ém A. HJj |||p mm m ■ 2 n (Sú spurning skýtur upp koll- inum hvort þessi leikur sé ekki byggður á yfirsjón. Spasský tekst að minnsta kosti ekki að réttlæta þennan vafasama peðs- leik I framhaldinu. Eftir þennan leik setti aöstoðarmaðurinn Smyslov upp mikinn þykkju- svip). 21.. . fxg4 22. Dxg4-Rxd4! Spassky virðist verða að fara út I mjög óhagstætt enda- tafl). 23. Dxd7 (Hvað annaö?) 23.. . Bxd7 24. exd4-Bxd4+ 27. Hf7-Bd4+ 25. Hbf2-Bxc3 28. Kh2-Hf5 26. Bxb7-Hb8 29. Hxc7 (Djörf ákvörðun. Tafl- mennska Spasskys I lokin ein- kennist af þvl að hann leggur allt á eitt spil). 29.. . He2+ 33. He7-a5 30. Kg3-Hxa2 34. bxa6-Hxa6 31. Bf4-Hd8 35. Bg5-Hb8 32. Bd5-h5 36. Hxf5!? (Darraðardansinn hefst. Spassky vílar það ekki fyrir sér aö hræra upp I stööu Horts með óvæntri og afar tvisýnni skipta- munsfórn. Hort á nú aðeins u.þ.b. eina minútu eftir og hefur engan tima til að skoða nákvæmlega þennan óvænta leik andstæðingsins). 36.. . gxf5 37. Kf4-Hf8 38. Bh6-Hg8 (Allir I salnum héldu að Hort gæti leikið 38... Be5+ En Spassky vissi betur, þvi hann á svarið 39. Kg5-Bf6+. 40. Kg6!-Hg8+ 41. Bxg8-Bxe7. 42. Be6!! o. sfrv. 39. Kxi5-Hgl 40. Bg5 Og Hort féll á tima. Drama- itiskur endir. j§jj U l m-': I U§ mm iH pHi I gp m wm ww, 1 mk 1 ÉSg 'mm éJ k ɧ i I A m iH ff 1 Wk W mm wk wm fp wm iip W 1 wm. mk gp W Wm áHs 1 i Larsen þrjóskaðist viö — og náði loks vinningi! Bent Larsen sýndi mikla hörku og enda- taf Iskunnáttu þegar hann knúöi fram vinning yfir Portisch í þriðju einvígisskák þeirra. Skákin fór í bið í fyrra- dag eftir 42 leiki og þótti hún þá „steindautt" jafn- tefli að mati flestra. Larsen var hins vegar ekki á sama máli. Hann hafði einu peði meira en andstæðingurinn og ætl- aði sér að pressa fram vinning á þvi, en fjórir hrókar voru einnig á borðinu.og þóttu tilraunir danans vonlausar. — Þetta er fræðilegt jafn- tefli, sögðu menn jafnvel í ráðstefnusal Hótel Loft- leiða i gær. En þegar leikirnir I biöskák- inni tóku að berast á fjarritun- um einn af öðrum hljóðnuöu þær raddir og hægt en bitandi lagaði Larsen stöðu sina uns hann sið- an vann skákina á fallegum lokaleikjum. En það kostaði átök og tók sinn tima. Portisch gafst ekki upp fyrr en i fulla hnefana, og áður en yfir lauk höfðu kapparnir leikið 86 leiki. Larsen hefur þar með jafnað stööuna. Hann tapaði fyrstu skákinni og gerði jafntefli i annarri viðureigninni. Með þessum sigri I þriðju skák er staðan i einviginu jöfn, 1 1/2 gegn 1 1/2. Biðstaðan eftir 41. leik hvits mp mm íllii =* WM. ■ ■ w H wm wM, wm /K ■ W/ wk ..... »j § ■ //m Wm ÍÉil W/ wk nm wÆ/. i ifH m ' .' wÆ mM 41..Hg4 42. Hd8 + -Kh7 45. Ke2-Hg5 43. a3-Hgg5 46. Hh4 + -Kg8 44. Hd4-Hgf5+ 47. Hc4-Hcd5 (Svartur má aldrei fara i hrókakaup. Með svarta kónginn skorinn af yrði b-peðið fljótt upp i borði). 48. Hf4-Hd6 58. Hfd3-Hb6 49. Hfe4-Hdg6 59. Hc8+-Kh7 50. Kf2-Hf6+ 60. Hc4-Hg5 51. Hf3-Hb6 61. Hh4+-Kg8 52. Ke2-Hgb5 62. Hd8+-Kf7 53. Hee3-Hd5 63. Hf4 + -Kg6 54. Hd3-Hh5 64. Hd3-Kh7 55. Ke3-He6+ 65. g4-Hgb5 56. Kd2-Hc6 66. Kc2-Kg6 57. Hc3-Hd6+ 67. Hfd4-Kg5 (Mikilvæg staða. Spurningin er hvort ekki hefði verið betra' fyrir Portisch að hafa hrókana eftir 5-lfnunni. Það myndi a.m.k. verða erfitt fyrir Larsen að framkvæma áætlun sina um að koma kvitum hrók til b5). Framhald á 14. siðu Sjá 6. síðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.