Þjóðviljinn - 10.03.1977, Page 4

Þjóðviljinn - 10.03.1977, Page 4
 4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. marz 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. (Jtgefandi: Otgáfufélag ÞjóOviIjans. Otbreiðslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Auglýsingastjóri: Olfar Þormóðsson Ritstjórar:Kjartan ólafsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Svavar Gestsson Slðumúla 6. Simi 81333 Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Prentun: Blaðaprent hf. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Engin eftirkaup um mengunar- varnir viðmálm- blendiverk- smiðjuna Þegar frumvarp til laga um stað- festingu á samningum um álverið i Straumsvik var til umræðu á alþingi á sin- um tima, bentu margir á þær hættur sem gætu stafað af menguninni, bæði fyrir starfsfólk i verksmiðjunni og ekki siður fyrir allt umhverfi hennar. Einn þeirra manna sem þarna gekk skeleggast fram var Alfreð Gislason, læknir, sem þá var þingmaður Alþýðubandalagsins. Benti hann sérstaklega þó á þá hættu sem starfsmönnum verksmiðjunnar gæti verið búin af þvi að starfa i slikri verksmiðju. Talsmenn álstefnunnar hunsuðu alger- lega allar ábendingar og aðvaranir vis- indamanna, Alfreðs Gislasonar sem ann- arra. Þeir hæddu náttúrufræðinga sem létu i sér heyra, þeir töluðu glaðklakka- lega um lægðirnar sem „ryksugur háloft- anna” sem myndu koma i veg fyrir alvar- leg áhrif mengunar. Þessir mengunar- leiðtogar viðreisnarflokkanna, Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins, hafa. nú hinsvegar orðið i skjóli reynslunnar að draga svigurmæli sin til baka. Meira að segja Morgunblaðið, aðalmálgagn rikis- stjórnar viðreisnarflokkanna, viðurkennir afglöpin i orði i forystugreinum, og for- maður Alþýðuflokksins hefur viðurkennt á alþingi að þeir forráðamenn viðreisnar- stjórnarinnar sem tóku trú á „ryksugur háloftanna” hafi verið hafðir að ginn- ingarfiflum. Þessi reynsla manna hér á landi af ál- verinu varð til þess árið 1972 að sett var reglugerð um heilbrigðishætti i slikum verksmiðjum sem gerði ráð fyrir þvi, að heilbrigðiseftirlitið setti skilyrði fyrir starfsleyfi slikra verksmiðja. Jafnframt ætti heilbrigðiseftirlitið að fylgjast vand- lega með mengun slikra fyrirtækja að þvi er varðaði heilsu starfsmannanna. Heilbrigðiseftirlit rikisins hefur siðan fylgst rækilega með i álverinu i Straums- vik og nýlega var lesin á alþingi skýrsla eftirlitsins. Þar koma fram margar æði hrikalegar staðreyndir um skaðleg áhrif andrúmslofts verksmiðjunnar á heilsu mannanna sem þar vinna. Það segir sina sögu hins vegar um þann hroka sem alltaf má vænta af forráðamönnum slikra erlendra stórfyrirtækja, að forstjóri álverksmiðjunnar, Ragnar Halldórsson, kaus i sjónvarpsþætti að svara vísindaleg- um vinnubrögðum heilbrigðiseftirlitsins með pólitiskum skætingi. Verður ekki sagt að hann hafi vaxið að virðingu með framkomu sinni, en hún er engu að siður lærdómsrik um það mengaða svartnætti skilningsleysisins sem rikir i höfði þeirra manna sem tekið hafa að sér að vera um- boðsmenn útlendinga með þeim hætti sem Ragnar Halldórsson hefur gert. Reynslan af menguninni i Straumsvik, reynslan af sinnuleysi ráðamanna þar, reynslan af hroka Ragnars Halldórssonar gagnvart visindalegum vinnubrögðum, sýnir okkur, að það er lifsnauðsyn að tryggja allan mengunarbúnað verksmiðja fyrirfram. Þar verður áður en verksmiðj- ur hefja starfsemi sina að ganga frá hnút- unum þannig að ekkert fari á milli mála. Þetta er sérstaklega mikilvægt að hafa i huga þessa dagana þegar til athugunar er hjá stjórnarvöldum hvort veita eigi málmblendiverksmiðjunni á Grundar- ganga starfsleyfi. Þegar heilbrigðiseftir- litið útbjó forsendur þess leyfis skv. samn- ingum við Union Carbide var gert ráð fyrir 99% hreinsun á rykútblæstri og ekki reiknað með neinni heimild til þess að starfrækja verksmiðjuna ef hreinsibún- aður bilaði eða skilaði ekki fullkomnum árangri. Eftir að norska fyrirtækið Elkem kom til sögunnar hafa viðhorfin breyst, ' þvi að það fyrirtæki hefur til þessa neitað að ganga að sömu skilyrðum og Union Carbide um mengunarvamirnar. Hefur Elkem farið fram á að fá að starfrækja verksmiðjuna án rykhreinsibúnaðar 4% starfstimans eða um 14 daga á ári. Slikum kröfum ber auðvitað skilyrðislaust að hafna og yfirleitt að standa fast á full- komnustu mengunarvörnum fyrirfram svo þar verði ekki um nein eftirkaup að ræða. „Af þeim afglöpum verða menn að læra”, sagði ritstjóri Timans i leiðara á dögunum um reynsluna af álverinu. Nú þessa dagana kemur i ljós hvort stjórnar- völd hafa lært af afglöpunum þegar þau fjalla um mengunarbúnað málmblendi- verksmiðjunnar. — s. Bændur snúa vörn í sókn I ritstjórnargrein nýútkomins tölublaós Búnaöarblaösins Freys fjallar Jónas Jónsson, rit- stjóri, um bændafundina, sem haldnir hafa veriö i tiu sýslum, fyrst á vegum áhugasamtaka en siöan á snærum búnaöarsam- bandanna. Hann ræöir fyrst um þá áhugaöldu sem risiö hefur meöal bænda og tilgang fund- anna: Meö þessum fundum hefur risiö áhugaalda á þvl, aö bænd- ur láti meira til sin heyra I þjóö- félaginu, og vegna þess hve mikla athygli fundirnir hafa vakiö hjá almenningi, jafnt i þéttbýli sem meöal sveitafólks, veröa þeir vonandi spor i þá átt, aö bændum takist aö snúa vörn i sókn i þeirri gjörningahrlö, sem mögnuö hefur veriö gegn land- búnaöinum af þekkingarlitlum og skilningslausum en ósvifnum öflum i þjóöfélaginu. Best er aö spá þó ekki of miklu um þetta, þó aö eitthvaö hafi rofaö til i moldviörinu, er þaö kannski bara stundarh.lé. Þaö er ljóst af þvi, hve fund- ir þessir hafa veriö mikiö sóttir og staöiö lengi svo og ályktun- um, sem frá þeim hafa komiö, aö bændum, sem aö flestra dómi eru stétta seinþreyttastir til vandræöa, þykir nú svo komiö kjörum sinum og aöbúö I þjóö- félaginu, boriö saman viö aörar stéttir, aö ekki veröi lengur viö unaö. Fundir þessir hafa veriö til þess haldnir, aö bændur gætu komiö á framfæri viö forystu- menn sina I stéttar- og sölusam- tökum svo og viö hina pólitisku forystu i landbúnaöarmálum * rikri óánægju yfir lélegri af- komu og slæmum kjörum á ýmsum sviöum. Samið verði beint við ríkið Þá ræöir Jónas um þaö helsta sem fram hefur komiö á fund- unum og dregur þaö saman I nokkra punkta: 1 fyrsta lagi hefur komiö fram mikil óánægja meö lágar útborganir viö innlegg afurö- anna og langan drátt á greiöslu eftirstööva afuröaverösins. Þetta kemur nú þeim mun harö- ar niöur á bændum og afuröa- sölufélögum þeirra, sem verö- bólgan i þjóöfélaginu er meiri og vextir hærri. „Okurvextir” eru nú lögbundnir á öllum skuldum I þjóöfélaginu og slöan lagöir á þær enn hærri refsi- vextir, ef ekki er hægt aö standa I skilum, allt magnar þetta veröbólguna, gerir fjárþörf enn meiri og bitnar hvaö mest á bændum og afuröasölu- og viö- skiptafélögum þeirra. Vaxta- byröi þeirra bænda, sem standa I framkvæmdum og skulda I kaupfélaginu fyrir rekstrarvör- ur og nauösynjar, hlýtur þvi aö veröa nær óbærileg. Fyrir vikiö hljóta kröfur um enn meiri af- uröalán og þó einkum mikiö hærri rekstrarlán aö vera hér efst á blaöi. I ööru lagi kemur þaö fram, aö viö þessar veröbólgu- og okurvaxtaaöstæöur ná bændur ekki þeim tekjum, sem þeir eiga rétt á, bæöi siöferöilega og lög- um samkvæmt. Störf kvenna I aveit eru vanmetin — þau snúast ekki bara um heföbundin innanhús- störf.... Biliö á milli bænda og viö- miöunarstéttanna, sem heföi þurft aö þrengja og raunar brúa alveg, hefur nú breikkaö, a.m.k. tvö undanfarin ár. Þar er þvi öfugþróun. Þetta beinir spjótun- um aö verölagsgrundvellinum og þvi „samningsformi”, sem bændur veröa aö sæta. Krafan um, aö samiö veröi viö rikiö i staöinn fyrir óábyrgan, óskil- greindan hulduaöila, svonefnd- an neytendafulltrúa, hefur þvi aftur veriö sett fram, a.m.k. á mörgum fundanna. 1 þriöja lagi hefur veriö rætt um ófullnægjandi stofnlán, hörö lánakjör og annaö i sambandi viö lánareglur Stofnlánadeildar og annarra sjóöa, sem eiga aö veita landbúnaöinum og þjón- ustufyrirtækjum hans stofnfjár- magn. ...heldur taka þer fullan þátt I útivinnu enda hjúahald ai mestu úr sögunni. Gilda lands- lög ekki um konurí sveit? í bréfi til Búnaöarblaösins Freys ræöir Ruth Konráös- dóttir á Flögu I Hörgárdal um tómlæti bændasamtakanna um málefni kvenna I sveitum. Hún varpar fram mörgum spurning- um, sem ekki er svaraö I Frey, en bændasamtökin og þá ekki sist Búnaöarþing, ættu aö taka afstööu til. Hún segir: „Þaö er nú meö hálfum huga, sem ég skrifa i þennan þátt, þvi mér hefur hálfpartinn skilist, aö ykkur þætti minna um þaö vert aö fá bréf frá kvenfólki. Ég er þeirrar skoöunar, aö einmitt tómlæti bændasamtakanna um málefni kvenna i sveitum muni ráöa miklu um þaö, hver staöa landbúnaöarins er núna. Ef ekkert veröur gert til þess, aö konur I landbúnaöi veröi metnar aö veröleikum, þá munu þær tæplega haldast i þessari at- vinnugrein, þegar til lengdar lætur. t þessu sambandi langar mig aö spyrja, hvers vegna eru laun húsfreyju I verölagsgrund- velli landbúnaöarins (1. sept. ’76) ekki reiknuö á sama kaupi og laun bóndans? Eru þaö ekki landslög, aö kynin eigi aö hafa sama kaup fyrir sömu vinnu? 1 verölagsgrundvellinum er ekki tilgreint, hvaöa kaup hús- freyja hefur á timann, aðeins reiknaö meö 600 st. i dagv., 100 st. i eftirv. og 100 st. I nætur- vinnu og svo 329.939 kr. sem árs- laun. Eftir hvaöa timakaupi er reiknaö? Laun unglinga eru öll reiknuö, sem dagvinna skilst mér, 940 st. á 238.73 kr. á tim- ann. (Eg hélt, að búiö væri aö afnema aura úr öllu verölagi?) Viö hvaö er þetta kaup miöaö? Lægsta kaup, sem ég sé I taxta „Einingar” á Akureyri fyrir 14 ára, er 300 kr. á timann fyrir dagvinnu Mér finnst algjörlega óraunhæft aö taka miö af bú- reikningum til ákvöröunar um vinnuframlag húsmæöra i land- búnaöi. Væri ekki hægt aö senda konunum sjálfum spurninga- lista, þar sem gerö væri könnun á þessu? Ef búreikningar eru nauðsyn, sem undirstaöa verölagsgrund- vallarins, hvers vegna er þá bændum ekki gert aö þegn- skyldu aö færa þá eftir ein- hverju skipulegu úrtaki? (Xd. tiltekinn árafjölda). Jafnvel aö búnaöarfélögin greiddu ómaks laun. Eins og þetta er núna er þaö allt of tilviljanakennt, aí minu mati, til þess aö fá rétta mynd til grundvallar.” —ekh (

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.