Þjóðviljinn - 27.03.1977, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 27. mars 1977
RAGNAR ARNALDS
Yirkjum eftir eigin þörfum -
ekki fyrir erlenda auðhringi
• Áætlanirum Hrauneyja-
foss ber að endurskoða.
• Nokkrar miðlungs-
virkjanir, m.a. á Austur-
landi og Norðurlandi
vestra, ættu að vera
næsta skrejið
12 20 ■
Álver lárn-
blendi
400 — 500
„Intergral”
áætlun
Ahisuisse
Saman-
burður
✓ 09 /
a fjar-
festíngu
(þús. miljónir kr.)
(Verðlag ársins 1975)
Orkuver
Hófleg og
stóriðjuáform” raflínur
130
Allur
annar
iðnaður
34
I
Súlurnar á þessari teikningu sýna stæröarhlutföllin; annars vegar er
fjárfesting I iönaöi á isiandi aö álveri undanskildu, hins vegar sú fjár-
festing erlendra auöfélaga sem áformuö er samkvæmt Integraláætlun-
inni og I þriöja lagi fjárfesting I iöju- og orkuverum samkvæmt hug-
myndum svonefndrar iönþröunarnefndar. Miöaö er viö verölag ársins
1975og má þvihækka allar tölur um 80%.
Viö Islendingar stöndum á
vegamótum i orkumálum um
þessar mundir:
Veröur á næstu árum tekin
ákvöröun um röö störvirkjana
(130-250 mw), sem byggðar yröu i
þágu eriendrar störiöju á næsta
áratug án verulegs tiUits til inn-
lendra þarfa? Þetta gætu orðiö
störvirkjanir viö Hrauneyjafoss,
i Fljötsdal, viö Blöndu, Sultar-
tanga og Dettifoss, samtals 900-
1000 mw. Þær yröu hugsanlega
allar byggöar á einum áratug og
seldu 2/3 hluta af afli sinu til er-
lendrar störiöju, en samkvæmt
nýjustu orkuspá viröist þörf á um
300 mw viðbótarafli til almennra
nota á næsta áratug.
Eða veröur sá kosturinn valinn,
aö haga virkjunaráformum I
samræmi viö innlendar þarfir?
Þá er aö sjálfsögöu bæöi átt viö
almenna orkunotkun, húshitun og
nýiönaö i eigu iandsmanna
sjálfra, m.a. ýmis konar orku-
frekan iönaö sem falliö getur meö
eðlilegum hætti inn I islenskt
efnahagslif.
Stórvirkjun eða
miðlungsvirkjun
Sumum hættir til aö trúa þvi,aö
i þessu efni stöndum viö frammi
fyrir að velja á milli, hvort viö
viljum hagkvæmustu tegund
virkjana, svonefndar stórvirkj-
anir, eða smávirkjanaleið, sem
leiði til hærra orkuverös til eigin
þarfa. En það er ekki rétt.
Þaö er aö visu hæpið aö ráðast i
stórvirkjun sem eingöngu er
ætluð til að fullnægja áætlaöri
aukningu á almennum orku-
markaði, ef aðeins litill hluti
virkjunarinnar nýtist fyrstu árin.
En i stað erlendrar stóriðju má aö
sjálfsögöu tengja stórvirkjun viö
framkvæmd islenskrar iðn-
þróunaráætlunar og uppbyggingu
orkufreks nýiðnaðar á vegum
landsmanna sjálfra, hugsanlega i
fjölmörgum einingum viða um
land.
Þess háttar iðnþróunaráætlun
liggur þvi miður ekki fyrir, og
nokkurn tima tekur að undirbúa
hana. En meðan hún hefur ekki
komið til framkvæmda er tvi-
mælalaust hagkvæmast að reisa
nokkrar virkjanir af miölungs-
stærð (20-70 mw) i samræmi viö
áætlanir um orkuþörf á landinu
öllu i samtengdu raforkukerfi.
Við eigum kost á mjög hagkvæm-
um virkjunum af þessari stærð,
sennilega I öllum landshlutum, og
þurfum þvi ekki að kviöa háu raf-
orkuverðiaf þeim sökum.Reynsl-
an er sú, að orkan er seld til er-
lendrar stóriðju á framleiðslu-
kostnaðarverði, sem yfirleitt er
miklu lægra en verð framleiddrar
orku frá næstu virkjun á eftir, en i
hana veröur að ráöast fyrr en
ella. Niðurstaðan verður þvi sú,
að innlendir orkunotendur greiða
niður orkuveröið fyrir erlenda
stóriðju, þótt annað sé látið heita
á pappirnum, þegar aðeins er
hugsað um afborganir og vexti af
hverri virkjun fyrir sig.
Tvær
stóriöjuáætlanir
Litum svo á hina hlið þessara
tveggja valkosta: Ahrif erlendrar
stóriðju á islenskt efnahagslif.
A teikningu sem grein þessari
fylgir er litil svört súla og við
hana talan 34. Súla þessi á að
tákna allan iönað á Islandi að
stóriðjunni 1 Straumsvik frátal-
inni. A verðlagi ársins 1975 var
fjárfesting i innlendum iðnaði
metin þaö ár á 34 miljarða (þús.
milj.) kr. Til samanburöar eru
svo sýndar á þessari teikningu
tvær áætlanir, sem gerðar hafa
verið um stóriöjuuppbyggingu á
islandi á næsta áratug.
Annars vegar er um aö ræða
Integral-áætlun Alusuisse, sem
miðar að þvi að Islenska rlkið og
Alusuisse myndi dótturfyrirtækið
Alis.Alis á siðan að mynda sam-
steypu með nokkrum erlendum
auðhringum um risafyrirtækið
Alconis, Álsamsteypu Islands.og
þessum nýja auðhring, sem Is-
lenska rikið á ekki að eiga itök I
nema að litlum hluta (10-20%) er
siöan ætlað að eignast raforkuver
á Islandi, sem framleiöi 8000
gwst. af orku. Virkjanir þessar
myndu jafnast á við 10 Sigöldu-
virkjanir. Jafnframt er Alconis
ætlað að byggja risavaxna súr-
álsverksmiðju á Islandi, einnig
álverksmiðjur tilaö framleiða 500
þús. tonn af áli á ári (sjöföld
stærö verksmiðjunnar I Straums-
vlk), og þar að auki á Alconis að
ráða yfir nægum bauxitnámum I
þróunarlöndum. A verðlagi árs-
ins 1975 má áætla fjárfestingu á
Islandi samkvæmt Integral
áætluninni 400-500 miljarða kr.
Integral-hugmyndin er vissu-
lega tröllsleg I samanburði viö
þann iönað sem fyrir er I landinu.
Kannski munu talsmenn stór-
iðjunnar hika við það fyrst um
sinn að afhenda erlendum auö-
félögum eignarhald á orkuverum
og orkulindum i landinu. Þó má
glöggt sjá af viðbrögum ýmissa
hægri manna, að þeim finnst til-
boðiö freistandi. Hinu verður ekki
neitað að meöal áhrifamanna á
sviöi iðnaðar og orkumála hafa
verið uppi áform um stóriðjuupp-
byggingu á næsta áratug, sem
slaga a.m.k. hálfa leið upp i
Integral-áætlunina, hvað
stæröina snertir. 1 skýrslu iðn-
þróunarnefndar, sem I fyrra
skilaði áliti um eflingu iðnaöar I
landinu á næstu 10 árum, var
varpaö fram hugmyndum um
„takmarkaða uppbyggingu stór-
iöju” innan ákveöins ramma, og
áttu það að sögn að vera einkar
„hófleg” áform. Hér var um aö
ræöa sjö stóriðjuframkvæmdir til
viöbótar við byggingu málm-
blendiverksmiðjunnar I Hvalfiröi
og var áætlaður kostnaður sam-
tals um 115 miljarðar Islenskra
kr. Við þennan stofnkostnað mun
svo bætast fjármögnun vegna
orkumannvirkja I þremur lands-
hlutum, sem knýja eiga þessi
miklu iöjuver, ásamt kostnaði við
flutningslinur og hafnir og var sá
kostnaður áætlaður i f yrra nálægt
130 miljörðum isl. kr. Stærð
þessara „hóflegu” stóriöju-
áforma sést vel á meðfylgjandi
teikningu I samanburöi við Isl.
iðnaö eins og hann er I dag.
Enginn þarf að efast um, að
verði erlendum auðhringum leyft
að festa hér mikla fjármuni mun
jafnframt aukast verulega
þrýstingur i þá átt, að koma Is-
landi ’ I Efnahagsbandalag
Evrópu. Auðhringunum verður
það mikið hagsmunamál aö
tryggja stöðu sina i landinu sem
best, bæði hernaöarlega og póli-
tiskt, og þeir munu fyrr eða slðar
skapa sér þá aðstöðu I Isl. efna-
hagslifi, ef þeir fá tækifæri til að
koma sér hér fyrir aö boð þeirra
og bönn hafi úrslitaáhrif I hægri
sinnuðum stjórnmálaflokkum.
íslenskt samfélag er einfald-
lega það smávaxið I samanburði
við auðhringa heimsins, að stór-
iðjuþróun Ilandinu hlýtur að leiða
til þess á nokkrum áratugum að
isiendingar glati efnahagslegu og
pólitisku sjáifstæði sinu.
Iönþróunaráætlun
er forsenda
stórvirkjunar
Með Jietta i huga leggjum við
Alþýðubandalagsmenn mjög
þunga áherslu á það um þessar
mundir að mótuð verði önnur
stefna I orku- og iðnaðarmálum
en nú er fylgt. Þetta er aðalefni
þáltill., sem allir þingmenn Al-
þýðubandalagsins hafa nýlega
flutt á Alþingi og stefnir að þvi
framar öðru, að framkvæmdir I
orkumálum á næstu árum verði
miðaðar við þarfir innlendra at-
vinnuvega, en ekki við áform um
erlenda stóriðju.
Það atriði i þessari tillögu sem
vafalaustvekurmesta athygli, er
krafan um að áætlanir um virkj-
un Hrauneyjafoss veröi teknar til
endurskoðunar. Sjálfsagt spyrja
einhverjir, hvort við séum al-
mennt andvigir virkjun Hraun-
eyjafoss eða byggingu annarra
stórvirkjana. En eins og fyrr var
nefnt, fer þvi viðs fjarri. Við telj-
um hins vegar einsýnt, að sér-
hverri stórvirkjun verði að fylgja
áætlun um sölu orkunnar tÚ ný-
iðnaðar, sem bæði sé örugglega i
höndum landsmanna sjálfra og
verði auk þess fær um að greiða
viðunandi verð fyrir orkuna. Við
setjum iönþróunaráætlun efst á
blað og viljum slðan miða
virkjunaráform viö væntanlega
orkuþörf nýiðnaöar. En meðan
þessi áætlun hefur ekki komið til
framkvæmda er eins og ég áður
sagði, hagkvæmast að reisa
nokkrar virkjanir af
miðlungsstærö (20-70 mw) m.a. á
Austurlandi og Norðurlandi
vestra i þágu orkukerfisins um
land allt. Sérstakt kapp verður að
leggja á samteng ingu raforku-
kerfisins m.a. með stofnlínu til
Vestfjarða og Austfjarða svo og á
nauðsynlega uppbyggingu dreifi-
•kerfisins.
Stóriöjumenn fara
öfugt aö
Samkvæmt orkuspám Orku-
stofnunar er útlit fyrir að orku-