Þjóðviljinn - 27.03.1977, Side 11
Sunnudagur 27. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Ef ég þyrfti ekki nauösynlega
aö brúka strætisvagna þá myndi
ég aldrei stiga fæti minum uppl
þessi fyrirbæri. Ekki þaö, aö
vagnarnir séu hastir og sætin úr
tré — þvi fer fjarri. Dúnmjúk
sæti sérhönnuö fyrir likama
sem eru allt ööruvisi en ég i lag-
inu.
Nú, þá er ekki um annaö a ö
ræða en aö standa, segir sá sem
hefur ráö undir rifi hverju.
Jújú einmitt. Þaö eru sér-
smiðuö stæði i miöjum vagnin-
um fyrir þá sem eru einn og
sjötiu eða hærri. Ég gerði einu
sinni heiöarlega tilraun til aö
standa i þessu sérsmiöaöa stæöi
ogþaö lá viö aö ég færi úr axlar-
lið i baráttu minni viö aö halda
mér i handföngin. Siðan hef ég
látið það hafa sig aö hanga eins-
og illa gerður hveitipoki i
dúnmjúkum sætunum.
Svona er ég full af vanþakk-
læti úti strætisvagnana. Ég
kann ekki gott aö meta, það er
alveg greinilegt. Það er til að
Eftir
Valdisi
Oskarsdóttur
um lika. Til dæmis er mjög holt
aö anda aö sér heilnæmu loftinu.
Bremsuvælið gæti verið athug-
un á heyrninni i okkur eða til að
vekja okkur upp ef við skyldum
hafa sofnaö á biöstöðinni eöa út-
rás bilstjóranna á geövonsku
sinni, þvi ekki mega þeir lemja
farþegana. Og viöbragðskönn-
unin er sjálfsagt undirbúningur
fyrir okkur, ef strætisvagninn
lenti einhverntima i árekstri.
Ég erlika viss um að það er til
hægðarauka fyrir þá sem búa
við Laugaveginn og Hverfis-
götuna aö strætisvagnarnir
stoppistöð
mynda strætisvögnunum að
þakka aö ég fæ allt þetta hreina
loft i lungun.
Yfirleitt kem ég tveim til
þrem minútum fyrir áætlaðan
tima vagnsins á stöðina til aö
missa nú ekki af blessuöum
bilnum. Þá hefst biðtiminn og
innöndun hreina loftsins. Ég
dreg andann djúpt til aö losna
við kuldahrollinn sem heltekur
mig. Hárin i nösunum frjósa,
þenjast út, svo mér liggur viö
köfnun.og ég grip andann á lofti,
en þá verður mér kalt að innan-
verðu.
Ég geng nokkur skref svo ég
sjái á klukkuna i bankanum,
timinn er kominn — en enginn
strætisvagn. Ég legg viö hlust-
irnar ... hvergi heyrist hiö al-
kunna bremsuiskur. Ég bölva
strætisvögnunum i sand og ösku
og hóta því aö kaupa mér einka-
bil strax og ég hef efni á þvi. Ég
virði fyrir mér húsið á móti,
hátt grátt og lifvana. Ég var
farin að hallast á þá skoðun aö
þar byggi enginn, uns ég sá
konu eina velklædda koma þaö-
an út einn morguninn — hún tók
ekki strætisvagninn.
Ef strætisvagninn kemur
núna þá finnst mér ég ekki hafa
beðið lengi, hugsa ég meö mér.
En strætisvagninn kemur
ekki og mér finnst ég vera búin
að biða lengi. Alltof lengi.
Ég stelst til að lita aftur á
klukkuna i bankanum og séað
hún er komin óeðlilega langt
frammúr timaáætlun strætis-
vagnsins. Ég er oröin grá og lif-
vana einsog húsiö á móti mér og
óska strætisvagnabilstjóranum
alls hins versta aö pönnukakan
standi þversum I hálsinum á
honum, kleinan haf i veriö eitruö
og kaffiö sé uppþvottavatnið frá
i gær.
Svo gefst ég upp.
Þegar ég er komin útá homið
heyri ég bremsuiskrið og hleyp
til baka. Nú skal ég aldeilis
láta bilstjórann fá orð i eyra,
hugsa ég öskureið. Þrátt fyrir
allthreina loftið og útiveruna þá
eru takmörk fyrir öllu.
Strætisvagninn hendist inná
stöðina, bremsurnar i botn og
iskrið sker i gegnum merg og
bein. Þetta bremsuvæl slær út
allar hryllingsmyndir sem ég
hef séð.
Ég hendist inni vagninn, sting
fimmtiukallinum i baukinn,
horfi með morðsvip á strætis-
vagnabilstjórann og er reiðubú-
in að hella mér yfir hann með
óbótaskömmum um vöntun á
timaskyni, skyldurækni og
ábyrgðarstöðu.Tilaðvera viss i
minni sök lit ég á klukkuna i
strætisvagninum — það vantar
á hana annan visinn, og þar að
auki er hún stönsuö.
Ég verð einsog blaöra sem úr
er allt loft, skjögra aftur i vagn-
inn. hlassa mér niður i eitt af
dúnmjúku sætunum og verö
einsog illa gerður hveitipoki.
Annars eru svona viðburöir
hversdagslegir miðaö viö kvöld-
in, laugardaga og sunnudaga.
Þá er einsog Strætisvagnar
Reykjavikur séu i sumarfrii og
aki eftir happa og glappa aö-
ferðinni. Strætisvagnakerfiö
verður einsog glæpareyfari —
næ ég vagninum (þrjötinum)
eöa næ ég honum ekki—kemur
hann eða kemur hann ekki?
Nú ætla ég að vera sniðug og
leika á strætisvagninn með þvi
aö tal?a aöra strætisvagnaleið.
Ég reikna nákvæmlega út
timaáætlunina. Þrjátiu og fjög-
ur á endastöð, fjörutiu og sjö
niður á Torgi, fjörutiu og ein á
stöðinni á undan minni, fjörutlu
og fjögur á stöðinni hjá mér.
■ Allur er varinn bestur, hugsa
ég og fer út fjöiutiu.
Klukkan verður fjörutiu og
fimm. Ég stend á einu homi og
glápi útá annað horn, rétt
einsog ég geti glápt vagninn á
hornið.
Klukkan verður fjörutiu og
átta og enginn vagn. Tvær telp-
ur gefast upp á biðinni og kuld-
anum og fara heim.
Klukkan verðurfimmtiu og ef
ég er heppin. kemur vagninn
iskrandi fyrir hornið — núna.
Ég er greinilega óheppin og
klukkan verður fimmtiu og
fimm.
Loksins — loksins — loksins
kemur strætisvagninn fyrir
hornið eins og frelsandi engill.
Líklegast koma vagnarnir
fyrr eða siðar — það er bara að
hafa þolinmæði og klæöa sig
einsog verið sé að fara á
Norðurpólinn.
Ég var næstum búin að
gleyma einu sem er séreinkenni
'strætisvagnanna, en það er við-
bragðskönnunin.
Ég er komin inni vagninn
(loksins) og það er ekkert sæti
laust. Ég hætti mér ekki inni
sérsmiðaða stæðið, stend þess
vegna i gangveginum og grip i
næsta handfang. Vagninn renn-
ur af stað, hægt og varlega, en
allt I einu kemur þessi svaka
kippur, rétt einsog vagnínn ætli
að stökkva afturábak eöa útá-
hlið.
Þetta er viðbragðskönnunin:
Ertu nógu fljót(ur) að herða
takið á handfanginu og righalda
iþér. Setja annan fótinn fram
fyrir hinn og halda nokkurn
vegin jafnvæginu. Þú mátt telj-
astheppin(n) ef vagninn er full-
ur af fólki sem virkar einsog
stuðpúöar hvort fyrir annað. Ef
þú ert óheppin(n) geturðu átt á
hættu að rúlla eftir vagninum
endilöngum alveg frammað
vagnstjórasætinu.
*En biðum nú við.
Það eru til tvær ef ekki fleiri
hliðar á öllum málum og þá að
sjálfsögðu strætisvaganmálun-
koma i einni halarófu upp og
niður göturnar en ekki einn og
einn með jöfnu millibili. Það
hlýtur að vera til þess að drun-
urnar i strætisvögnunum komi
allar i einni striklotu, en ekki
ein og ein á stangli. Þáð er lik-
legast betra að verða fyrir einu
stóru ónæði heldur en mörgum
smáum — allavega á kvöldin og
um helgar.
Einu sinni þegar ég var á
dansleik hitti ég gamlan skóla-
bróður minn sem ekur strætis-
vagni. Ég gat náttúrulega ekki
staðist mátið, hellti mér yfir
hann og skammaöist yfir timaá-
ætlun strætisvagnanna. Hann
svaraði þvi til, að ekki væri
nema furða þótt vagnarnir
héldu aldrei réttum tima. Þvi
timaáætlanir strætisvagnanna
væru samdar af mönnum sem
sætu inná skrifstofu meö kort af
Reykjavik og pappirsmiöa fyrir
strætisvagna.
Annars sagði strætisvagna-
forstjórinn einhvern tima þegar
verið var að fjasa útaf strætis-
vögnunum að við sem notum
strætisvagna hefðum ekki
hundsvitá strætisvögnum. Ef til
vill er það rétt hjá honum. Ef til
vill höfum við sem ferðumst
með Strætisvögnum Reykjavlk-
urupp á dag hvern ekki hunds-
vit á strætisvögnum.
Hann hlýtur alltaf að vera i
strætó, strætisvagnaforstjórinn.
Skoda Amigo er mjög falleg og stílhrein bifreió. Hún er
búin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggió hefur verió
aukió til muna. Komió og skoóió þessa einstöku bifreió.
■MB
wCJi vJl 'C HR Tékkneska bifreióaumboóiö ó Isbndi
AUOBREKKU 44-44 - KQRAVOGI - SÍMI 42600
Pú gerir hvergi
mest seldi bíll 1976
AMIGO 105 - kr. ca. 860.000,-
AMIGO 120 L - - - 960.000.-
AMIGO 120 LS - - - 1010.000.-