Þjóðviljinn - 27.03.1977, Side 16
SIÐA 16 ÞJóÐVILJINN — Sunnudagur 27. mars 1977
Strindberg
P.Q. Enquist fjallar í leikriti
sinu, Nótt ástmeyjanna, um per-
sónuveikleika sænska skáldsins
Strindbergs og hjónaband hans og
Siri von Essen (1877-1891) sem
var hið fyrsta og lengsta af þrem
hjónaböndum hans. Persónuleiki
Strindbergs hefur vakið mikinn
áhuga sálfræðinga og hafa verið
skrifaðar margar greinar um
áhrif franskra sálfræðinga á
skoðanir hans, sálfræðilega hugs-
un i verkum hans, skoðanir hans
á afbrýðisemi, hjónabandi, kon-
um, kynvillu, fæðingu og dauða
o.þ.h. Persónuleiki hans hefur
einnig verið sendur i sálgrein-
ingu, athugað hvernig ödipusar-
duldin félli að persónumótun hans
o.s.frv. Athuganir þessa hafa
ýmist byggt á sjálfsævisögu
Strindbergs, leikritum hans
og/eða skrifum eiginkvenna
hans.
Framlag Enquists beinist eink-
um að þvi að sýna fram á kven
leika og ómeðvitaða kynvillu
Strindbergs. Enquist hefur lesið
úr ævi Strindbergs út frá eigin
reynslu og virðist harma að
Strindberg hafi ekki meðgengið
kynvillu sina i stað þess að
forðast hana. Ef Enquist hefði
verið einkasálfræðingur Strind-
bergs og fært honum sinn heima-
smiðaða lykil að hamingjunni, er
eins vist aö Strindberg hefði orðið
enn ruglaöri hefði hann reynt að
apa einkalif sitt eftir lífi Enquists.
Sjálfur gerði hann sér grein
fyrir orsökum óhamingju sinnar i
hjónaböndum, en Enquist viröist
ekki hafa komið auga á það. Hið
mikla sálfræðilega vandamál
sem hrjáir flesta taugaveiklaða
listamenn er að þeir geta aðeins
á einn hátt fullnægt tilfinninga-
þörfum sinum, þ.e. óbeint — i
gegnum list sina. Þessum til-
finninga þrengingum lýsir Strind
berg i Fröken Júliu, sem er skrif-
uð um svipaö leyti og Nótt ást-
meyjanna á að gerast (1889).
Siðari hjónabönd Strindbergs,
sem aðeins vara i tvö og þrjú ár,
benda til þess að hann hafi gert
sér grein fyrir þessum tak-
mörkunum i persónuleika sinum
SALFRÆÐI OG LIST
ARNI BLANDON:
og þess vegna ekki hætt sér út i
fjórtán ára hjónabandstilraunir
eins og hann gerði með Siri.
Karlmennskan
Ein af mörgum kenningum um
orsakir kynvillu hljóðar þannig
aö viökomandi kynvillingur hafi
ekki getað staðið undir þvi að
vera karlmaður, vegna þess að
það gerði kröfur til hans sem ekki
samræmdust eiginleikum og upp-
lagi hans. Þessi skýring kemur
t.d. fram i Saumastofu Kjartans
Ragnarssonar. Þessi kenning á i
sumum tilfellum viö rök að styöj-
ast, þó forsendurnar séu yfirleitt
rangtúlkaðar.
Höfuðtema Enquists i Nótt ást-
meyjanna er karlmennskan.
Leikritiö hefst með langri
útlistun á einkennistáknum
karlmennskunnar: Starfs
eins og isjaki. Hún hefði heldur
aldrei orðað einmanaleika sinn
við hann, þvi um leið hefði hún
oröið undir i valdabaráttu hjóna-
bandsins, sem er mesti hjóna-
djöfullinn skv. skoðun Strind-
bergs o.fl.
Margir tengja kvenfrelsi órofa
böndum við kynvillu. Þó slikt sé
oftast á misskilningi byggt koma
tengslin skýrt fram i þessu atriði
leikritsins: Kynvillusambandið á
sér hlýrri og einlægari tóna en
fólk i óhamingjusömum hjóna-
böndum hefur nokkurn tima
getað fundið i sambúö við hitt
kynið. Þessi staðreynd útilokar
ekki þann möguleika að fólk geti
fengið útrás fyrir tilfinningaþarf-
ir sinar i samböndum við hitt
kynið, þó það hafi ekki uppgötvað
þennan möguleika fyrr en i sam-
vistum við sitt eigið kyn.
Lausn Enquists á vandamálum
Strindbergs er þvi óraunsæ, þvi
eins og fram kemur i Nótt ást
meyjanna nálgast Strindberg
hvorki sjálfan sig né aöra á já-
kvæðan tilfinningabundinn hátt.
Siri nálgast vinkonu sina og á þvi
von til að geta nálgast sjálfa sig.
En Strindberg lét aldrei sinar
leyndustu tilfinningar i ljós við
aðra nema á óbeinan hátt i gegn-
um ritverk sin. Þess vegna segir
hann um Draumaleikinn, sem er
saminn upp úr þrengingum
geðveiki hans: „Leikritið sem ég
elska mest, barn minna mestu
þjáninga.”
ástmeyjanna
orka, festulegur kjálkasvip
ur, e ink e nn is bú n i n gu r ,
leiðangrar, ódauðleiki, dráp, upp-
finningar, stjórnun, ytri velliðan,
drykkjuskapur, kynlif, stór
getnaðarlimur, verkfæri, vélar,
vöðvar, vopn og bardagi. Sem
andstæða við þessi tákn kemur
siðan mynd Strindbergs: „Hann
litur út eins og ung stúlka. Hann
er óttasleginn”. Arátta Enquists
að sýna kvenleika Strindbergs
kemur siðan jafn oft fyrir og við
verður komið i skýringum og
leiktextanum sjálfum. Konu
Strindbergs er siðan lýst nánast
sem karlmanni til að undirstrika
skoðanir Enquists.
Kvenfrelsi, kynlíf og
hjónaband.
Strindberg þjáðist mjög af of-
sóknarbrjálæði. Hann haföi mikl-
ar áhyggjur af stærð getnaðar-
limsins og lét mæla hann sérstak-
lega til að verja sjáifan sig fyrir
árásum konu sinnar. Enquist tek-
ur þetta atriði beint upp i leikrit
sitt og notar ýmsar setningar úr
sendibréfum Strindbergs og
sjálfsævisögu til að leiða rök að
hugmyndum sinum og skapa leik-
ræna spennu.
Vandamál Strindbergs i hjóna-.
böndunum urðu honum mikið efni
að moða úr i leikritum sinum. 1
þvi sambandi ber leikritið Dauða-
dans einna hæst, en það er e.k.
spá um hvernig fyrsta hjónabandi
hans hefði lokið ef ekki hefði kom-
ið til skilnaðar. Framlag
Enquists i útleggingu á hjóna-
bandi Strindbergs er hvorki
fyrsta, siðasta né sista útfærslan
á þessu fræga fyrirbæri. Fræg-
asta verkið er liklega Hver er
hræddur við Virgfniu Wolf? eftir
Albee. Einnig má nefna Lokaspil
eftir Beckett, Vals nautabananna
eftir Anouilh, nokkur af leikritum
Inoescos o.s.frv.
1 einþáttungnum Sú sterkari,
lýsir Strindberg óskamynd sinni
af eiginkonunni. Sú sterkari heföi
getað orðið eiginkona hans til
frambúðar I sambandslausu
hjónabandi, eins og þau eru svo
mörg vegna þess að fólk skortir
forsendur til að bera virðingu
fyrir hvort öðru. Strindberg hefði
ekki komist hjá þvi að hata hana
vegna andlegrar fjarlægðar
þeirra, kúga hana og forðast
hana. En hún hefði samt sem
áður verið honum jafn nauðsyn-
leg og skrifborðið hans.
Eina konan sem Strindberg gat
borið virðingu fyrir var hin
frjálsa kona. En hjónaband
með henni hefði leitt til sömu
niðurstöðu þvi vandamálið er
ekki konan, frelsi hennar eða
kúgun heldur Strindberg sjálfur:
Skortur hans á sjálfsgagnrýni og
einlægni jákvæðra tilfinninga.
Vandamálið sést i hnotskurn i
Nótt ástmeyjanna þegar Siri
grætur hjá Marie, vinkonu sinni
og segist hafa verið einmana. Ef
Strindberg hefði komiö i stað
Marie á þessu augnabliki hefði
hjónaband hans og Siri átt sér
von. En við brjóst Strindbergs
hefði Siri aldrei grátiðtþvi hann er
Nótt
Helga Bachman, Erlingur Gislason og Kristbjörg Kjeld
ERLENDAR
bækur
Eassys in English History
A.J.P. Taylor. Penguin Books in
association with Hamish
Hamilton 1976.
Höfundurinn er nú um sjötugt
og i þessu kveri eru um þrjátiu
ritgerðir um enska sögu og er
þetta safn frá slðustu þrjátiu ár-
um. Þetta er ekki siður safn um
enska stjórnmálamenn, persónu-
saga samtvinnuð pólitiskri sögu
ákveðinna timabila. Taylor hefur
orð á sér fyrir að brydda upp á
ýmsum nýstárlegum viöhorfum
og skoðunum á mönnum og mál-
efnum og kennir þessa nokkuð i
þessu kveri. Höfundur skrifar
skemmtilega um efni og persón-
ur, allt frá Cromwell til Viktoriu
drottningar og frá Churchill og
niður i Manchester.
Four Jacobean City Come-
dies
Maron, Middleton, Johnson and
Massinger. Edited with an in-
troduction and notes by Gamini
Selgado. Penguin Books, 1975.
Enskir gamanleikir eða öllu
heldur reviur frá 16. öld geta
verið ýmsum til ánægju, minnsta
kosti hefur útgefandinn gaman af
þvi að kynna sér forsendur þeirra
og viðmiðun höfunda þeirra og
leikina sjálfa sem spegla það ið-
andi mannlif sem dafnaði I
Lundúnum á 16. og 17. öld. Bókin
er gefin út i Penguin English
Library.
Biicher, die die Welt ver-
ándern.
Eine Kulturgeschichte Europas
in B'úchern. Ausgewahlt und her-
ausgegeben von John Carter und
Percy H. Muir unter Mitwirkung
von Nicoias Barker, H.A. Feisen-
berger, Iloward Nixon und S.H.
Steinberg. Eingeleitet durch ein-
an Essay von Days Hay. Deutsch-
er Taschenbuch Verlag 1976.
Bókin er þýdd af ensku i þýsku
af nokkrum mönnum. Enska út-
gáfan kom út 1967 hjá Cassell.
Það er óþarfi að tina til hinar og
aðrar bækur sem breyttu heimin-
um skoðanir manna hljóta að
vera skiptar um bækurnar eins og
breytingarnar og þvi er hentast
að þeir sem áhuga hafi lesi þessa
þýsku þýðingu eða enska frurrl-
textann. Bókin er skemmtilega
gefin út, myndskreytt með titil-
siðum hinna og annara bóka. Um-
sagnirnar eru lipurlega samdar
og inngangur ágætur.