Þjóðviljinn - 05.04.1977, Page 3
TRYGGVA EMILSSYNI
veitt heiðursmerki
Dagsbrúnar úr gulli og
bókmenntaverðlaun
Tryggvi Emilsion
Það varpar
ljóma á stétt
verkamanna
Góöir félagsmenn.
Þaö skeöur ekki oft aö Verka-
mannafélagiö Dagsbrún heiöri
félagsmenn sfna, — en I dag á
þessum fundi ætla ég aö tilk. aö
stjórn og trúnaöarráö hafa
ákveöiö aö heiöra einn félags-
mann okkar og á tvennan hátt. Til
er heiöursmerki Dagsbr. úr
gulli er veitt var i fyrsta sinn á
fimmtfu ára afmæli félagsins 1956
og var þetta heiöursmerki þá
veitt öllum þá lifandi stofnendum
Dagsbrúnar. Viö sama tækifæri
var einnig Otto Þorlákssyni
fyrsta forseta Alþýöusambands-
ins og einum af frumherjum
verkalýöshreyfingarinnar og eld-
huganum og brautryöjendanum
ölafi Friörikssyni veitt gullmerk-
iö. Siöan hafa aöeins tveir menn
veriö sæmdir þessu merki. Þaö
voru þeir Siguröur Guönason og
Hannes M. Stephensen, formenn
félagsins.
Allir þessir félagar okkar eru
nú látnir svo enginn af núlifandi
Dagsbrúnarmönnum ber þetta
heiöursmerki.Nú hefur stjórn og
trúnaöarráö Dagsbrúnar sam-
þykkt aö veita Tryggva Emils-
syni heiöursmerki félagsins úr
gulli. Fyrir alla Dagsbrúnarmenn
sem þekkja Tryggva og störf
hans er ekki nauösyn langrar
skýringar. Hann starfaöi í verka-
lýöshreyfingunni á Akureyri um
áratugaskeið og slöustu árin áöur
en hann flutti til Reykjavfkur var
hann formaður Verkamannafé-
lags Akureyrar. 1 ársbyrjun 1947
gekk Tryggvi Emilsson i Dags-
brún — 1949 var hann kjörinn 1
varastjórn félagsins og 1952 tók
hann sæti í aðalstjórn — 1954 var
hann kjörinn varaformaöur fé-
lagsins — 1961 til 1970 var hann
ritari Dagsbrúnar en lét þá af
störfum sökum heilsubrests. —-
eftir aö hafa verið í 20 ár I stjórn
Dagsbrúnar. Þessi margvfslegu
ábyrgöar- og trúnaöarst. eru aö-
eins upptalning á ytri störfum en
þeir sem þekkja störf Tryggva
Emilssonar vita af hvers konar
trúmennsku og elju hann rækti
störf sfn sem Dagsbrúnarmaöur,
knúinn áfram af eldmóöi og
tryggö viö bestu hugsjónir verka-
lýöshreyfingarinnar. Verka-
mannafelagið Dagsbrún stendur
þess vegna I þakkarskuld viö
Tryggva Emilsson og þegar viö
nú sæmum hann heiðursmerki
Dagsbrúnar þá vitum viö aö fáir
Dauða-
slys
Þrjátiu og sjö ára gamall
maöur, Hreiöar Grettisson,
lést i vinnuslysi sl. laugar-
dagsmorgun. Veriö var aö
vinna viö gufuborinn Dofra i
Mosfellssveit, er Hreiöar
hrapaöi niöur úr 4-5 metra
hæö. Hann var meö öryggis-
hjáim, sem datt af I fallinu.
Hreiöar hlaut höfuömeiösl og
var látinn er komiö var meö
hann á sjúkrahús. Hann
lætur eftir sig eiginkonu og
börn.
menn bera þann heiður með meiri
sóma, og þaö er vissa okkar aö
þaö muni gleöja alla Dagsbrúnar-
menn sem til Tryggva þekkja og
störf hans og alla unnendur hug-
sjónar verkalýöshreyfingarinnar
aö hann verður þessa heiöurs aö-
njótandi. En þaö er ekki einungis
heiöur Tryggva heldur heiöur
Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar aö eiga þennan mann sem fé-
laga.
En máli mfnu er ekki lokiö — 1
árslok 1976 kom út bókin „Fátækt
fólk” höfundur hennar er Tryggvi
Emilsson. Bók þessi hefur vakiö
veröskuldaöa athygli og allir sem
hafa gefiö umsögn um þessa bók
ljúka upp einum munni aö þarna
sé á feröinni frábært listaverk.
En gildi þessarar bókar er á fleiri
en einn veg, hún er fágæt aldar-
farslýsing og I aöra tfö hefur ekki
verið betur lýst ævikjörum barns
og unglings á fyrstu tuttugu árum
aldarinnar. En fyrir þetta eitt á
bókin vfsan sess I íslenskum bók-
menntum — en þaö er ekki ein-
ungis þessi þáttur sem gerir bók-
ina merka heldur einnig ritsnilld
og meöferö fslensks máls. Þá er
tilurö þessarar bókar svo sérstæö
að ég vil fara um þaö örfáum orö-
um. Tryggvi hefur aldrei notiö
neinnar skólamenntunar utan
þess aö I bernsku naut hann
farandkennslu tvo vetrarparta.
Sföan gekk hann götu erfiðis-
mannsins allt sitt lff. — Bókin
„Fátækt fólk”er ekki bók áhorf-
andans, „Fátækt fólk” er Tryggvi
sjálfur, fjölskylda hans, vinnu-
félagar og samherjar, heimilda
leitar hann ekki i bókum, heim-
ildin er lff hans sjálfs og félaga
hans íslenskra erfiöisvinnu-
manna. Vinnudagur hans er jafn-
an langur og strangur og tóm-
stundum slnum ver hann I
baráttu og störfum i verkalýös-
hreyfingunni og hver sá sem
gengur óskiptur þar til leiks á
fáar tómstundir. Þegar þessi
erfiöisvinnumaöur veröur aö
hætta störfum sökum heilsu-
brests nær sjötugur aö aldri þá
fyrst gefast honum tómstundir,
hann er aö vfsu orðinn slitinn og
lúinn eftir langa vinnuævi en þá
skeður þetta ótrúlega undur, þá
sest þessi erfiöisvinnumaöur niö-
ur og skrifar æviminningar sfnar,
og þá veröur þetta listaverk til.
Þaö er ekki einungis skoöun mfn
heldur mál manna sem bókina
hafa lesið, aö hún sé bók ársins
1976 og þegar margar bækur
veíöa gleymdar, þá muni bókin
„Fátækt fólk” lifa.
Engum skyldi koma á óvart
þótt aö í íslenskri lestrarbók sem
kennd yröi f framtföinni væru
kaflar úr bókinni. Ætlun Tryggva
er aö bók þessi veröi þrjú bindi og
nú mun hann aö mestu hafa lokiö
öðru bindinu og þaö er von okkar
allra aö honum endist heilsa til ab
ljúka þeim öllum þremur. Þaö
mun gera hvoru tveggja: auöga
Islenskar bókmenntir og verða
ómetanleg heimildarsaga um
ævikjör íslenskra erfiöisvinnu-
manna. Þaö varpar ljóma á stétt
verkamanna aö einn úr þeirra
hópi ritar slika bók. Ég er þegar
búinn aö tala gegn vilja Tryggva
Emilssonar meö umsögn minni
um bók hans, viö þekkjum öll
hógværö hans og litillæti. Stjórn
og trúnaðarráð hefur ákveöiö aö
veita Tryggva Emilssyni 300 þús-
und krónur í heiöursritlaun. Slfk
verk er aldrei hægt aö meta til
fjár en stjórn og trúnaðarráö
Dagsbrúnar vill á þennan hátt
votta Tryggva Emilssyni viöur-
kenningu sfna og þakklæti fyrir
þetta bókmenntaverk. Þvi miöur
er heilsu Tryggva Emilssonar
nú þannig háttaö aö hann getur
ekki veriö hér hjá okkur I dag til
þess aö veita þessum heiöurs-
launum móttöku en stjórn Dags-
brúnar mun afhenda honum þau á
heimili hans.
Verkalýðshreyfingin hefur ekki
gert mikiö af þvi að veita bók-
menntaverðlaun og af þvf mætti
gera meira, en ég veit aö á bak
viö þessa ákvöröun stjórnar og
trúnaðarráös rikir einhugur og
gleði og ég veit einnig aö ég má
færa Tryggva frá þessum aöal-
fundi Dagsbrúnar þakklæti og
kveöjur frá Verkamannafélaginu
Dagsbrún meö þá ósk heitasta aö
honum auönist heilsa til aö ljúka
þessum ritverkum sínum.
Skírdags-
kvöldvaka í
Borgarnesi
Alþýöubandalagib i Borgarnesi
og nærsveitum heldur hina árlegu
skirdagskvöldvöku sina n.k.
fimmtudag, 7. april kl. 20.30 i
Snorrabúö.
Kaffiveitingar veröa á borö
oornar.
Ýmislegt veröur til skemmt-
jnar svo sem söngur, upplestur,
spurningakeppni, leikir o.fl.
Veislustjóri veröur Eyjólfur
Magnússon.
Jónas Árnason, alþingismaður,
veröur á samkomunni.
Abgangur ókeypis og öllum
heimill meöan húsrúm leyfir.
ÞriOJudagur 5. aprll 1977 ÞJ6DVILJINN — SÍÐA 3
JXýjar bœkur
frá Iðunni
Þorgeir Þorgeirsson
Uml
Greinar um dægurmál 1974—1977. Hispurslaus bók og
gustmikil um menn og málefni. Það verða sjálfsagt ekki allir
sammála Þorgeiri, en um ritleikni hans eru ekki skiptar
skoðanir.
Emanuel Lasker
Heilbrigð skynsemi í skák
Ný skákbók í þýðingu Magnúsar G. Jónssonar...þessi
litla bók er sígilt rit sem hefur ýmislegt að bjóða íhugulum
lesendum. . .,“ segir Guðmundur Arnlaugsson íformála.
Markús Á. Einarsson
Veðurfar á íslandi
Yfirlit um helstu niðurstöður rannsókna á veðurfari (slands.
Ekki aðeins bók handa áhugamönnum um veðurfar og
náttúru landsins, heldur einnig þörf og tímabær handbók fyrir
verkfræðinga skipulagsfræðinga og náttúrufræðinga.
Dr. Magnús Pétursson
Drög að almennri og íslenskri hljóðfræði
Hér birtast í fyrsta sinn á íslensku helstu niðurstööur dr.
Magnúsar eftir margra ára rannsóknir á myndun íslenskra
málhljóða. Bókin er fyrst og fremst ætluð kennurum og
kennaraefnum.
Baldur Ragnarsson
Móðurmál
Leiðarvísir handa kennurum og kennaraefnum um íslensku-
kennslu. Ný móðurmálsnámskrá handa grunnskóla er reist á
þeim grunni sem hér er lagður.
Ingólfur R. Björnsson
Setningafræði, málfræði, hljóðfræði
Námsbók handa 9. bekk grunnskóla, þar sem fjallað er um
námsefnið á nýstárlegan hátt. Efnið er sett fram eftir reglum
um þrepanám.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason
Þættir úr rekstrarhagfræði
Námsbók handa framhaldsskólum. Áður eru komnar út
bækurnar Bókfærsla, Þættir úr viðskiptarétti og Bókfærsla og
reikningsskil.
Guöni Karlsson
Bíllinn
Bók handa þeim sem vilja fræðast um bílinn og spara
viðgerðarkostnað og eldsneyti. Einnig ætluð sem kennslubók
fyrir bifreiöastjóranámskeið, iðnskóla, bændaskóla og vél-
skóla.
Guórún Helgadóttir
í afahúsi
Ný útgáfa þessarar frábæru barnabókar, sem seldist ger-
samlega uþp fyrir síðustu jól.
Guörún Helgadóttir
Jón Oddur og Jón Bjarni
Þriðja útgáfa hinnar nafntoguðu bókar um „vinsælustu
stráka landsins."
Pétur Gunnarsson
Punktur punktur komma strik
Þriðja útgáfa þessarar snjöllu 'skáldsögu, sem kom út í
janúar, er nálega uppseld.
Sendum gegn póstkröfu um land alit.
IÐUNN . Pósthólf 5176 . Reykjavík . Sími 12923