Þjóðviljinn - 19.04.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 19. april 1977
Skrifið — eða hringið í síma 81333
Geir og Co. minnist þess
að nú styttist í kosningar
Þaö leikur mörgum forvitni á
aö vita hverslags þjóöflokkur
atvinnurekendur eru, hvort þeir
eru af óæðri kynstofni eöa óæöri
verum. Að þeir dirfist aö bera á
borö smánarsamninga aftur á
bak, þrælahaldi i likingu viö
svartnætti frumskóga. Aö ætla
sér aö lengja vinnutimann i 48
stundirveröur aldrei samþykkt.
Hér er 40 stunda vinnuvika og
öllu heldur ætti hún aö fara niö-
ur i 38 stundir meö óskertum
launum jafnframt þvi sem kaup
ætti að hækka upp aö 50 þúsund
krónum á viku hjá eyrarkörl-
um. Að bjóða frystihúsafólki og
öðrum smánarkjör er hróplegt
ranglæti.
Geirog Co. i myrkraherbergj-
um ihalds skulu minnast þess aö
óöum styttist i kosningar. Viö
launafólk látum ekki vaöa ofan i
okkur með aurugum skónum
éins og nú stendur fyrir dyrum.
Viö munum ekki gefa eftir og
þá mun harka færast i verk-
fallsvörslu. Nú er mælirinn full-
ur.
Heiknisdæmi atvinnurekenda
er sjálfsagt litlu betra en helgi-
dagaþvæla Morgunblaðsins sem
einkennist af heimsku og öllu
heldur aulahætti. Rikisstjórnin
auglýsir best sinn mafiuhátt
fyrir þessa samninga, þar kem-
ur fram sá innri maöur sem i
henni býr.
Meö virðingu fyrir atvinnurek-
endum, rikisstjórn Islands.
Bifvélavirki 9908-715:
Ljósm.: GEL
Myndarlegt tíma-
kaup í Slippnum?
Kona nokkur hafði samband
við blaöiö og sagði farir kunn-
ingja sins ekki sléttar. Hafði
hann brugöið sér til Slippfélags-
ins með timbur i byggingu sina
og beðið um aö fá þaö heflaö og
sagað. Málið var auðsótt, enda
slik þjónusta veitt hverjum sem
vill, og vann einn maður við vél-
arnar sem á skammri stundu
snyrtu timbrið til eftir óskum
eigandans.
Alls tók vinnan um eina
klukkustund, en þegar reikn-
ingurinn kom heföi þó mátt ætla
að um stærra verkefni heföi
veriö að ræða. Var timbureig-
andanum nefnilega gert að
greiða fyrir þetta viövik heilar
þrjátiuþúsund krónur!!
Og eöiilega spyr konan: Er
hægt aö bjóöa upp á svona okur i
mörg ár án þess aö nokkur láti
frá sér heyra opinberlega?
Komast menn upp með hvaö
sem er i þessu verðbólguþjóö-
félagi? Svona nokkuð er a.m.k.
ekki til þess að draga úr hinni
hröðu verðbólgumyndun.
Trotskí var
hans fjandi
Viltu koma i parti?
Hvar er parti?
Býður þú i parti?
Allir i parti á Barónsstig 58!
Skemmtanalifið á Islandi er
sérstætt og setningar á við þær
hér aö ofan hljóma gjarnan þeg-
ar striðir straumar fólks renna
út úr gapaldri veitingahúsanna
að loknum dansleikjum.
Svo lendir maður einhvers
staðar i partii, kannski hjá blá-
ókunnugu fólki, hefur einhvern
veginn þvælst með.
Eina dimma vetrarnótt lenti
ég óvart i partii vestur á Sel-
tjarnarnesi og þar var ungt og
róttækt fólk.
Upp hófst orðaskak um pólitik
og ég fór að ræða við geðfelldan
mann sem sagðist eiga þekkt
ljóðskáld fyrir móðurbróður.
Þetta skáld er kunnugt fyrir
rómantiskar og lyriskar
náttúrustemmningar. Þó að
geðfelldi maðurinn væri greini-
lega upp með sér af þessari
frændsemi vildi hann ræöa póli-
tik.
Trotski var hans fjandi.
Hann byrjaði að tala gegn
Trotski og æsa sig upp gegn
Trotski, ekki bara kenningum
hansheldur manninum sjálfum.
Smám saman æsti hann sig
meira og meira og ég horföi
hissa á.
Ég sem hélt að Trotski væri
löngu dauður og þyrfti ekki að
æsa sig svona út af honum. Mér
hefur meira að segja þótt
Trotski svona heldur notalegur
maður og stilisti var hann góð-
ur.
Þetta minnir mig lika á að
einu sinni lenti ég i aö skoöa
risastórt Leninsafn i Rússlandi
sem byggðist mest á ljósmynd-
um úr lifi Lenins.
Þar sem allir myndatextar og
útskýringar voru á rússnesku,
sem ég skil ekki, setti ég mér
það mark að ganga um þessa
endalausu sali og vita á hversu
mörgum myndum hinni
kunnuglegu ásjónu Trotski
brygði fyrir.
En það er sama hversu
grandskoðaðar myndirnar voru
og hversu margar myndir voru
skoðaðar hvergi sást nánasti
samstarfsmaður Lenins i bylt-
ingunni. Þarna voru þó hóp-
myndir, nefndamyndir, funda-
myndir og alls konar myndir.
En hvergi sást Trotski!
Þetta þótti mér undarlegt.
Og partiið hélt áfram.
Einhver hjú voru farin að kyss-
ast út i horni og feitlaginn piltur
var sofnaður i stól.
Geðfelldi maðurinn hélt
áfram að hatramast út i
Trotski, með skitkast út I mann-
inn eins og hann vildi hann út úr
heimsmyndinni.
Skyndilega hjó ég I umræðu-
efnið og sagöi:
Asskoti er hann frændi þinn
gott ljóðskáld.
Geðfelldi maðurinn gapti
augnablik og siðan breiddist
stolt úr munnvikum um allt
andlit. Svo var farið aö tala um
lyriskar stemmningar fyrir
norðan og fannst mér það betra.
En nú virtist partiið vera búið
þvi að við vorum bara orðnir
tveir eftir i stofnunni. Hinir
höfðu gufað upp. Ekki hef ég
hugmynd um hvert.
Svo rölti ég heim til min i
morgunsárið og hugsaði um
Trotski. —GFr
ALDARSPEGILL
Ur íslenskum blöðum á 19. öld
Er það ekki listileg leiðtogamennska fyrir
lýðinn, piltar, sem saman stendur ekki af öðru
en durgshátt og þjösnaskap, öfund og rógi við
sjer meiri menn; í hausavíxlum á rjettu og röngu,
sönnu og ósönnu, ef um vild eða óvild er að
að tefla, hagsmuni eða óhag; í fleðuiátum við
höfðafjöldann, í því skyui að hafa bylli hans
og fJei °g e^ki síður við höfðingja, sje af því
hagsmuna von; í dindilmennsku aptan í skríl-
skrumuruin; í aula- og andhælisskap, amlóða-
hætti og steihblindni á hvað eina, spm ti)
þjóðþrifa horflr; í sjorgæðingsskap og sjer-
plægni, roluhætti og rangsýni?
tsafold 22. sept. 1894