Þjóðviljinn - 19.04.1977, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 19.04.1977, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. april 1977 Hörkuspennandi viðureign framundan Hort blæs tll stórsóknar að Spasskí í dag! Tékkneski stórmeistarinn hefur nú engu að tapa og virðist hafa alla burði til þess að þjarma rækilega að sovétmanninum Vlastimil Hort, sem i tvigang hefur tapað fyrir Spasski vegna klukkunnar miskunnarlausu, fær i dag sitt siðasta tækifæri til að hefna ófaranna i einviginu gegn Spasski. t dag hefur Hort hvitt og vist er að þetta verður siðasta skák þessa einvigis. Takist Hort að vinna verður hlutkesti varpað, en endi skákin með jafntefli eða sigri Spasskfs er sovétmaðurinn „löglegur” sigurvegari einvigisins. Eftir skákina á sunnudaginn, þar sem Spasski hafði byggt upp yfirburöastöðu, en síðan misst hana niður i gjörtapað tafl þrátt fyrir timahrak andstæöingsins, virðist manni ekki ósennilegt að Hort geti þjarmað verulega að Spasski i dag. Ef litið er ein- göngu á gang siðustu skákar mætti ætla að Spasski sé gjörsamlega úthaldslaus við skákborðið, og takist Hort i kvöld að komast hjá uppskiptum og flækja taflið gæti hann hugsanlega náð fram hinum dýrmæta vinningi. En hvað skyldi hafa komið fyrir Spasski á sunnudaginn? Hann lék hrikalega af sér i 27. leik og breytti þá unninni stöðu i tapaða. Menn hafa látið sér detta i hug þá skýringu að Spas- skl hafi teflt mjög stlft upp á timahrak andstæðingsins, en þegar þarna var komið sögu hafði Hort aðeins fimm minútur fyrir siðustu 13 leikina áður en hann næði 40 leikja lágmarkinu. En þessi kenning um tafl- mennsku Spasskis er þó ekki mjög sennileg. Stórmeistarar, sem legið hafa i tvær og hálfa klukkustund yfir einni skák- stöðu eiga að geta ef i hart fer leikið mjög hratt, og er i þvi sambandi hægt að minnast þess er Friðrik Olafsson hafði mjög erfiða stöðu gegn Gligoric og varð að leika 18 leiki á tveimur minútum! Og Friðrik lét sig ekki muna um það og meira að segja vann hann þarna einn af sinum laglegustu sigrum! En i dag er það Hort sem á leik. Hann hefur engu að tapa og blæs þvi örugglega til sóknar þar sem teflt verður til síöasta manns. Hvort Spasski kann sina varnarlexiu til fulls skal ósagt látiö. Helgi sigraði með Vlastimil Hort skoðar hina örlagarlku tapskák slna ásamt Smyslov, aöstoöarmanni Spasskis og islenskum skákmönnum. Hort var afar vonsvikinn aö leikslokumá sunnudaginn og taldi klukkuna hafa brugöist sér. „Fallöxin” greip aftur í taumana fyrir Spasskí og Hort, sem hafði gjörunna stöðu eftir nákvæma taflmennsku, féll öðru sinni á tíma í einvíginu gegn Spasskí miklum yfírburðum á hraðskákmótinu Fékk 16,5 vinninga af átján mögulegum Helgi ólafsson, Reykjavlkur- meistarii skák og „næstumþvi” tslandsmeistari, sigraöi meö miklum yfirburöum I hraöskák- móti lslands, sem fór fram um helgina. Hlaut hann 16,5 vinn- inga af 18 mögulegum en I ööru sæti varö Sævar Bjarnason meö 13 vinninga. Skákskýrendur Þjóöv. vegna áskorendaein- vfgjanna eru þvi haröir I horn aö taka Ihraöskákunum, en tefldar voru tvær skákir á tiu minútur. Teflt var eftir Monrad-kerfi og voru keppendur alls 48 talsins. Röð efstu manna varö þessi: Helgi Ólafsson 16,5 v. Sævar Bjarnason 13 v. Benedikt Jónasson 12 v. Jóhann Orn Sigurjónss. 12 v. Jón Frið jónsson 12 v. Jón Friðjónsson 12 v. Asgeir P. Asbjörnss. 12 v. JónL.Arnason 11,5v. Kapparnir sem bitust um Islandsmeistaratitilinn fyrir skömmu mættust þarna á nýjan leik, en að þessu sinni I buliandi hraðskák. Eins og i úrslitaskák- inni frægu tefldu þeir félagar hörkuskemmtilega skák, og að þessu sinni hafði Helgi betur. Við birtum hér til gamans viöureignina þegar Helgi hafði svart og vann fallega úr athyglisveröri stööu. Hraöskákmót Islands 1977 Hvitt: Jón L. Arnason Svart: Helgi ólafsson Sikileyjarvörn 1. e4-c5 (16. f51) 2. Rf3-e6 16. — Rg4! 3. d4-cxd4 17. fxe5-Bxe5 4. Rxd4-Rc6 18. c3-Bd4!! 5. Rc3-a6 19. Hf3-Dxh2+ 8. Be3-Bb4 22. Hf2-Rxf2 9. Ra4-0-0 23. Bxd4-Hxb2+ ! 10. Rxc6-bxc6 24. Dxb2-Rxd3+ 11. Rb6-Hb8 25. Kxd3-Dxb2 12. Rxc8-Hfxc(26. Hgl-g6 13. Bxa6-Hd8 27. c4-Dxa2 14. Bd3-Bd6 28. Hal-Db3+ 15. f4-e5 29. Bc3-d5 16. Dcl? Hvitur gafst upp Hvitt: Boris Spassky Svart: Vlastimil Hort Drottningarindversk-vörn 1. d4-Rf6 3. Rf3-b6 2. c4-e6 4. e3 (Fyrsta áskorunin? Traust og gott framhald er 4. g3, gallinn er bara sá að það þykir of jafn- teflislegt.) 4. _ -Bb7 5. Bd3-d5 (Annað gott framhald er 5. — c5 en þann hátt hefur heimsmeist- arinn Karpov á þegar hann á i hlut i þessari stöðu.) 6. 0-0-Rbd7 ^ „ 7. b3-Be7 10- De2-Hc8 8. Bb2-0-0 n- íífdl"?,r7o 9. Rc3-c5 12- Hacl-Hfe8 (.) (Þessi leikur virðist ónákvæm- ur, 12. — g6 hindrar framhald það sem hvltur á nú kost á.) 13. cxd5-exd5 14. Bf5! (Þessi leikur hefur ýmis óþæg- indi i för meö sér fyrir svart, eins og auðvelt er aö sannfæra sjálfan sig um.) 14. — g6 16. Ra4-Re4 15. Bh3-Hcd8 17. dxc5-bxc5 (Þá hefur svartur orðið sér úti um hin svokölluöu hangandi peð, en þau draga nafn sitt af þvi að þau verða ekki völduð með öðrum peðum. Þessi peð geta reynst mikill ógnvaldur, en I þessari stöðu viröast þau tor- timingunni ofurseld gegn sam- einuðum krafti hvitu mann- anna.) 18. Bxd7-Dxd7 21. Rd3-c4 19. Re5-Dc7 22. Rdc5-Bc6 20. f3-Rf6 (Ekki var 22. — Bxc5 gæfulegt. Eftir 23. Rxc5 Dxc5 34. Bxf6 stendur hvfti biskupinn ógn- vekjandi á skálinunni al — h8.) 23. Bd4-Bb5 26. Rc3-Bf5 24. Df2-Rd7 27 e4‘>‘, 25. Rxd7-Bxd7 (Þessi leikur er algerlega van- hugsaður og breytir ágætri hvitri stöðu i rjúkandi rúst. Hvltur gat viöhaldið yfirburðum sinum t.d. með 27. bxc4-dxc4 28. e4meðgóðri stöðu. Spassky hef- ur sýnilega yfirsést 29. leikur svarts.) 27. — dxe4 28. Rxe4? (Spassky er við sama heygarðs- hornið. Skömminni skárra var 28. fxe4, þótt svartur megi vel við una eftir 28. — Bg4 ásamt Hxd4 eftir atvikum.) 28. — Bxe4 29. fxe4-c3! (Þar liggur hundurinn grafinn. Þetta peö má ekki drepa, af þvi myndi hljótast afgerandi liðs- tap, t.d. 30. Hxc3-Dxc3! o.s.frv.) 30. Hfl-Bb4 31. Bxa7 (Varla var um annað að ræöa. Eina von Spasskys var hið geysilega timahrak Horts.) 31. — Hd2! 32. De3 (Að sjálfsögðu ekki 32. Dxd2 Dxa7+ 33. Df2 Bc5 og vinnur.) 32. — Ha8 34. a4-c2 33. Bb6-Dd7 35. Bc5 Fallöxin á klukku Horts greip nú I taumana og i þessari auö- unnu stöðu fór hann yfir tlma- mörkin. Hefði honum unnist timi til að ljúka við að leika 35. — Dg4 verður ekki betur séð en að Spassky hefði getað rétt hon- um lúkuskarnið t.d. 36. g3-Dh5 með tvöfaldri hótun. Sá mis- skilningur virðist nokkuð út- breiddur að einfaldasta leiðin til að gera út af við hvítan eftir 36. Hf2 sé 36. — Hdl+ 37. Hfl-Bd2, ,,0g ölíu er lokið” eins og til orða er tekið i VIsi. Þessu virðist þveröfugt farið, eftir 38. Df2! mætti viðhafa þessi orö um stöðu svarts. Vinningsleiðin eft- ir 36. Hf2 er einfaldlega 36. — Hxf2! t.d. 37. Dxf2 Ddl+ o.s.frv. eða 37. Kxf2Bxc5 38. Dxc5 Df4+ og vinnur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.