Þjóðviljinn - 19.04.1977, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 19.04.1977, Blaðsíða 11
Þriftjudagur 19. april 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Liverpool með öruggt forskot I 1. deUdinni og annað kvöld getur liðið tryggt sér úrslitaleik í Evrópukeppni meistaraliða Englandsmeistarar Liverpool stefna hraðbyri að vörn titilsins og rúmlega það. Um helgina unnu þeir mjög sannfær- andi sigur yfir Arsenal enda þótt fjóra af bestu mönnum liðsins vantaði, en á meðan töpuðu erkifjendurnir í toppbar- áttunni, Ipswich, fyrir Leeds. Hefur „Rauði her- inn" þvi eins stigs forystu og einn leik til góða í bar- áttunni um efsta sætið. Liverpool mætti vængbrotið til leiks á laugardaginn og er e.t.v. ekki nema von að eitthvað láti undan þvi geysilega álagi sem á leikmönnum er um þessar mund- ir. Ian Callaghan, John Toshack, David Fairclough og Phil Thomp- son voru allir á sjúkralista, en engu að siður fékk Arsenal engum vörnum við komið og gat þakkað það markverði sinum að ekki varð um að ræða stærra tap en 0- 2. Liverpool sýndi mikið öryggi og verður ekki auðveldlega stöðvað á sigurgöngunni á meðan svona verður leikið áfram. Annað kvöld verður Liverpool i sviðsljósinu á ný. Þá veröur leikið i Englandi i 4ra-liða úrslitum Evrópukeppninnar og er siðari umferðin á dagskrá. Andstæðing- ar Liverpool er svissneska liðið FC Ziirich, sem Liverpool sigraði 3-1 i Sviss i fyrri umferöinni, og ætti það forskot að duga þeim i þessum siðari leik. Borussia Mönchengladbach og Dynamo Kiev leika einnig siðari leik sinn i Evrópukeppni meistaraliða ann- að kvöld. En litum á úrslitin i ensku knattspyrnunni um helgina: 1. deild Birmingham-Stoke 2:0 Coventry-Aston V illá 2:3 Derby-Everton 2:3 Leeds-Ipswich 2:1 Liverpool-Arsenal 2:0 Man. Utd.-Leicester 1:1 Middlesboro-QPR 0:2 Newcastle-WestHam 3:0 Norwich-Bristol C. 2:1 Tottenham-Sunderland 1:1 WBA-Man. City 0:2 2. deild Blackburn-Wolves 0:2 Blackpool-Charlton 2:2 Bolton-Southampton 3:0 Bristol-Burnley 1:1 Cardiff-Luton 4:2 Chelsea -N otth .For. 2:1 Millwall-Carlisle 1:1 Notts C.-Fulham 0:0 Oldham-Hereford 3:5 Orient-Sheff. Utd. 0:2 Plymouth-Hull 1:2 Staðan er nú þessi: 1. deild Liverpool 36 21 8 7 57:29 50 Ipswich 37 21 7 9 63:35 49 Man.City 36 18 12 6 50:27 48 Newcastle 36 16 13 7 59:39 45 Man.Utd. 34 16 9 9 51:33 41 A. Villa 31 17 5 9 58:35 39 WBA 36 14 11 11 50:46 39 Leicester 37 11 18 9 45:51 39 Leeds 35 12 10 12 43:46 36 Arsenal 36 13 9 14 54:55 35 Middlesb. 37 12 10 15 34:41 34 Birmingh. 36 12 9 15 55:53 33 Norwich 37 13 7 17 42:57 33 Everton 33 11 9 13 50:56 31 Stoke 35 10 10 15 20:37 30 QPR 32 10 '9 13 36:42 29 Sunderland 37 9 10 18 39:47 28 Derby 34 7 14 13 40:50 28 Tottenham 37 10 8 19 42:64 28 Coventry 33 8 11 14 38:48 27 WestHam 35 9 9 17 35:58 27 BristolC. 34 8 9 17 29:40 25 2. deild Wolves 35 19 11 5 65:40 49 Chelsea 37 19 11 7 64:51 49 Notts.C. 38 18 10 10 59:51 46 Notth.For. 37 18 9 10 70:41 45 Bolton 36 18 8 10 65:47 44 Luton 38 19 5 14 60:43 43 Blackpool 37 14 15 8 54:41 43 Charlton 37 13 14 10 62:54 40 Millwall 37 13 12 12 51:47 38 Sheff. Utd. 38 13 11 14 51:55 37 Southampt. 34 13 10 11 61:56 36 Hull 36 10 15 11 41:42 35 Oldham 36 13 9 14 49:53 35 Blackburn 37 13 8 16 38:51 34 Fulham 38 10 12 16 48:58 32 Plymotuh 38 8 15 15 44:59 31 Orient 33 9 12 12 31:38 30 Burnley 37 8 14 15 39:56 30 Cardiff 36 10 9 17 50:58 29 Bristol R. 37 9 11 17 43:62 29 Carlisle 36 9 9 18 41:68 27 Hereford 35 5 12 18 48:72 22 —BB Fram í efsta sæti Reykjavíkurmótsms Björg Jónsdóttir skorar eina mark sitt i fyrri leiknum. Litia myndin hér tilhliðar er af Kolbrúnu Jóhannsdóttur, hinum frábæra markverði isi. liðsins (ljósm. S.dór) ísland — V-Þýskaland 9:11 og 10:12 Þær v-þýsku unnu báða landsleikina — en frammistaða íslensku stúlknanna var betri en búist var við Framarar hafa nú tekið forystu í Reykjavíkurmót- inu í knattspyrnu og eru þeir með eins stigs forskot á Víking. I fyrrakvöld sigr- aði Fram Þrótt með einu marki gegn engu og skor- aði Rúnar Gislason þetta sigurmark um miðjan fyrri hálfleik eftir send- ingu frá Agústi Guðmundssyni. A báða bóga var mikiö um góð marktækifæri sem ekki nýttust. Þróttarar böröust af miklum krafti og ógnuðu oft hressilega, en Árni Stefánsson markvörður Fram var fastur fyrir og hleypti engu skoti framhjá sér. Staðan er nú þannig aö Fram hefur 4 stig, Vikingur 3, KR 2, Þróttur 2, Valur 1 og Armann ekkert. 011 liöin hafa lokið tveim- ur leikjum. islendingar og v-þjóðverjar léku tvo landsleiki i kvennahand- knattleik um siðustu helgi i Laugardalshöllinni, og svo fóru leikar að vestur-þýsku stúlkurnar unnu báða leikina, en þó með minni mun en búist var við fyrir- fram. Og það má telja vist að ef sterkasta liði tslands hefði vcrið teflt fram, hefðum við unnið leik- ina. Fyrri leikurinn var á laugardag og þann leik unnu v-þýsku stúlk- urnar 11:9 eftir að staðan hafði verið 5:3 þeim i vil i leikhléi. Islensku stúlkunun1! tókst að jafna 7:7 og 8:8 en misstu af lest- inni undir lokin og töpuðu með 2ja marka mun. Siöari leikurinn fór svo fram á sunnudag og þann leik unnu v - þýsku stúlkurnar 12:10. Það heföi sannarlega verið gaman aö sjá sterkasta lið okkar leika gegn þýska liðinu. En deilur þær sem uppi hafa veriö i vetur milli flestra okkar bestu handknatt- leikskvenna og landsliðsnefndar komu i veg fyrir að svo yrði. Eigi að siður megum viö vel viö una; 2ja marka tap i hvorum leik er ekki neitt til að hneykslast yfir, miðað við hve litla leikreynslu okkar stúlkur hafa I landsleikjum og öðrum stór-leikjum. Það fer vart á milli mála að Kol- brún Jóhannsdóttir markvörður islenska liðsins var besta leik- kona liðsins. Markvarsla hennar var á köflum stórkostleg, til aö mynda i siðari hálfleik i fyrri leiknum. Þær Svanhvit Magnús- dóttir, Björg Jónsdóttir, Hansina Melsted og Ragnheiður Blöndal komu einnig allar vel frá leikn- um. —S.dói

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.