Þjóðviljinn - 19.04.1977, Side 3
Þriðjudagur 19. april 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Óvænt
sumar-
gjof
A morgun, siðasta vetrardag,
efnir Rithöfundasamband tslands
til bóksölu á Bernhöftstorfunni til
ágóða fyrir sambandið. Þar
verða seldar bækur sem eftirtald-
ir bókaútgefendur hafa gcfið af
þessu tilefni: Almenna Bóka-
félagið, Helgafell, Iðunn, tsafold,
Mál og menning, Skuggsjá og
örn og Örlygur.
Bækurnar eru allar áritaðar af
höfundum og seljast innpakkaðar
svo að enginn veit hvaða bók hann
hreppir. Hver bókapakki kostar
1500 krónur. Bóksalan stendur frá
kl. 10 til 18 og vonast Rithöfunda-
sambandið til að sem flestir eign-
ist óvænta sumargjöf.
Smith fær
frjálsar
hendur
Salisbury 18/4 reuter — Sérstök
ráðstefna sem stjórnarflokkur
Ian Smiths i Ródesiu efndi til um
helgina veitti honum frjálsar
hendur til að semja um
framtiðarstjórnskipan i landinu.
Hægriarmur flokksins lagði til i
upphafi ráðstefnunnar að barist
yrði gegn valdatöku blökku-
manna þar til yfir lyki en hann
reyndist litlu fylgi eiga að fagna
meðal fundargesta. Meirihlutinn
var þeirrar skoðunar að ekkert
vit væri i að framlengja striðið
gegn frelsissamtökum blökku-
manna þvi valdataka þeirra væri
óhjákvæmileg. Voru þvi sam-
þykktar tillögur þar sem stjórn-
inni eru gefnar frjálsar hendur i
samningum en þó verður hún að
hafa stefnu og grundvallarreglur
flokksins að leiðarljósi.
Halldór Laxness
„Manna-
börn eru
merkileg”
Afmælisdagskrá i
Þjóðleikhúsinu i
tilefni 75 ára
afmœlis
Halldórs Laxness
A laugardaginn verður
flutt i Þjóðleikhúsinu upp-
lestrar- og söngvadagskrá i
tilefni 75 ára afmælis Hall-
dórs Laxness þann dag.
Dagskráin nefnist
„Mannabörn eru merkileg”
og verður aðeins flutt i þetta
eina sinn. Briet Héðinsdóttir
hefur tekið dagskrána sam-
an og stjórnar henni. Flytj-
endur eru tiu leikarar, auk
Þuriðar Pálsdóttur og Guð-
rúnar Kristinsdóttur. Á af-
mælisdagskránni er fjöl-
breytt úrval úr verkum
skáidsins. Hún hefst kl. 15. á
laugardag og er aðgöngu-
miðasala þegar hafin.
Frá
kynningar-
viku
náttúru-
verndar-
félaganna
A kynningarviku náttúru-
verndarfélaganna i Norræna
húsinu kl. 20.30 i kvöld ræðir
Helgi Hallgrimsson um nátt-
úrufar og náttúruvernd á
Norðurlandi.
Hjörtur Eldjárn Þórarins-
son ræðir um náttúruvernd
og búskap.
Páll Pétursson, alþm., tal-
ar um virkjunarmál og fyrir-
hugaða stóriðju á Norður-
landi.
Sýndar veröa litskugga-
myndir frá Mývatnssveit og
Jökulsárgljúfrum.
—mhg
Heildarfiskaflinn fyrstu 3 mánuöi ársins:
Tvö VL-
r i r 1 •• •
mal a donnm
i Hæstarétti
I dag hefst munnlegur mál-
flutningur I Hæstarétti i máli VL-
manna gegn Guðsteini Þengils-
syni, lækni. Þá er á dagskrá
Hæstaréttar munnlegur mál-
flutningur i máli VL-manna gegn
Degi Þorleifssyni, blaðamanni
Þjóðviljans, og ábyrgðarmanni
blaðsins til vara, Svavari Gests-
syni. Fer hann fram þriðjudaginn
26. þessa mánaðar. Að loknum
málflutningi verða málin dóm-
tekin, og kveðinn upp dómur án
mikils dráttar.
Stjórnar-
herinn í
Zaire
sœkir
fram
Læriö skyndihjólp!
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Kinshasa 18/4 reuter — Að sögn
diplómata I Kinshasa, höfuðborg
Zaire, gegna marokkönsku her-
mennirnir sem sendir voru til
Zaire þýðingarmiklu hlutverki að
baki viglinunnar en forðast að
lenda I beinum hernaðarátökum
við innrásarliðið i Shaba-héraði.
Opinberar fregnir af bardögun-
um, komnar frá stjórn Mobutos,
herma að sameiginlegar hernaö-
araögerðir stjórnarhersins og
hermannanna 1.500 frá Marokkó
séu farnar að bera árangur og
hafi hersveitir innrásarmanna
veriðhraktar 20 km til vesturs frá
hinni mikilvægu koparnámuborg
Kolwesi. Diplómatar segja að
markmið aðgeröanna viröist vera
að endurheimta borgina
Mutshatsha sem innrásarmenn-
irnir náðu á sitt vald fyrir nokkru.
Sæki stjórnarherinn fram I tvær
áttir en marokkönsku hermenn-
irnir fylgja þeim eftir og annast
flutninga oþh. Diplómatarnir
bæta þvl við aö Mutshatsha hafi
ekkert hernaðarlegt gildi en end-
urheimting hennar væri nauösyn-
leg til að hressa upp á andann i
liði Mobutos.
í ábyrgðartryggingu hjá okkur 1977 með
iögjald kr. O.ow
Ökumenn þeirra hafa ekki valdið tjóni í samfleytt 10 ár.
Þeir fá eitt ár iðgjalasffítt,
og spara ser þar með 13,1 milljón króna.
SAMVIMHTRYGGINGAR GT
ÁRMÚLA3 SÍMI 38500
MuniA alþjóAlegt
hjálparatarf
RauAa krosains.
RAUOI KROSSÍSLANDS
250 þús. lestum
meiri en í fyrra
Heildarfiskaflinn
fyrstu 3 mánuði þessa
árs var 692.498 lestir, en
var fyrir 3 fyrstu mán-
uði ársins 1976 450.323
lestir, eða nærri 250 þús-
und lestum meiri i ár.
Togaraaflinn var 57.366
lestir fyrstu 3 mánuði
þessa árs en 50.115 i
fyrra. Loðnuaflinn var
546.875 lestir i ár en
332.022 i fyrra.
Bátaaflinn, það er hin eiginlega
vetrarvertið, var fyrstu 3 mánuði
þessa árs 83.654 lestir en var i
fyrra 64.022 lestir.
Hér fylgir skýrsla frá Fiskifé-
lagi tslands um heildarfiskafla
landsmanna fyrstu 3 mánuði árs-
ins i ár og 1976.
I. BOTNFISKAFLI: ....
SflSáíSítfiÍJtílSL ‘
Vestm. /Stykkishólmur.
Vestfirðir
Norðurland
Austfirðir ■
Landað erlendis •
b) Togaraafll alls:.
Vestm. /Stykkishólmur
Vestfirðir
Norðurland . . -
Austfirðir —
Landað erlendis
II. LOÐNUAFLI: ..
III. RÆKJUAFLI: - - -
IV. HÖRPUDISKUR: -
V. ANNAR AFLI: .
HEILDARAFLI ALLS:
J!an - Marx (léstlr ósl)
Bráðabirgða- tölur 1977 Bráðabirgða- tölur 1976 Endanlegar tölur 1976
141.020 112.607 114.137
83.654 64.160 64.022
58.762 11.727 7.027 ‘ ' 6.138 0 57.366 21.645 9.884 16.854 7.782 1.201 45.460 11.096 3.541 3.476 587 48.447 17.371 7.759 14.554 4.745 4.018 44.248 11.114 4.010 4.065 585 50.115 17.940 7.858 15.497 4.704 4.116
546.875 331.000 332.022
3.543 3.079 3.173
988 443 444
72 0 547
692.498 447.129 450.323