Þjóðviljinn - 19.04.1977, Blaðsíða 10
10 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. april 1977
)x?S6Gfl[p(2
Gerpla fór í „verkfall"
og firmakeppnin varð
ekki eins fjörug og ella
Fyrsta firmakeppni
Fimleikasambands is-
lands fór fram sl. sunnu-
dag og var þar i fyrsta
sinn keppt með for-
gjafarsniði í fimleikum
hér á iandi. Fyrir vikið
var keppnin mun meira
spennandi en fyrr, allir
höfðu jafna möguleika á
sigri.
Orslit uröu þau að Berglind
Sigurðardóttir úr Björk i
Hafnarfirði sigraði. Hlaut hún
55.35 stig. . Berglind er ein af
hinum kornungu og efnilegu
fimleikakonum, og e.t.v. stóð
hún vel að vlgi fyrir forgjafar-
keppnina, þvi á mótum undan-
farið hefur hún ekki sýnt sitt
allra besta og hafði því jafnvel
meiri forgjöf en skyldi. En á
sunnudaginn tókst Berglindi vel
upp og tryggöi hún fyrirtæki
sinu, ÍSAL, fyrstu verðlaun.
1 öðru sæti varð Helga Ing-
jaldsdóttir ÍR. Hún keppti fyrir
Sól h/f og fékk 52.0 stig. Þriðja
varð Karollna Valtýsdóttir úr
Björk. Hún keppti fyrir E. Th.
Mathiesen og hlaut 51.70 stig.
1 4.-5. sæti röðuðu tveir karl-
menn sér. Voru það þeir Stein-
þór Ingibergsson KR og Helgi
Garðarsson Ármanni, en báðir
hlutu 51.25 stig. Steinþór keppti
fyrir Vikingsprent, en Helgi fyr-
ir Garðarsbúð.
Hámarksfjöldi keppenda
hafði verið ákveðinn 40, en mun
færri tóku þó þátt i þessu móti,
eða rúmlega tuttugu. Er það
skaði að ekki skyldi fást meiri
þátttaka, þvi þarna var um góða
tekjulind fyrir félögin að ræða.
Fimleikadeild Gerplu úr
Kópavogi hafði rétt á tiu sætum
af þessum fjörutiu, en frá henni
kom enginn keppandi. Er Þjv.
ekki kunnugt um ástæðuna fyrir
pvi að Gerpla hunsar þetta mót,
en hitt er ljóst að sllk ákvörðun
forráðamannanna er nokkuð al-
varlegur hlutur. Ekki einasta
kastar félagið frá sér tekju-
möguleikum upp á eitt hundrað
þúsund krónur, heldur veröur
Fimleikasambandið af jafn
hárri upphæð. Og ofan á allt
annað bar mótið þess skýr
merki, að margar af okkar
bestu fimleikastúlkum vantaði
vegna „verkfalls" Gerplu—gsp
Tveir Islandsmeistarar
Vals krýndir í kvöld?
Síðustu leikir í 1. deild kvenna og karla
I kvöld er möguleiki á
því að handknattleiksdeild
Vals eignist tvær skraut-
f jaðrirnar til viðbótar í lit-
rikt safn sitt. Fara fram i
Laugardalshöllinni síðustu
leikir islandsmótsins í 1.
deildum karla og kvenna
og eru vinningslíkur Vals
miklar á báðum vígstöðv-
um.
1 karlaflokki keppir Valur við
Fram og hefst leikurinn klukkan
Bikarkeppni HSÍ
Valur
kominn
í 4ra
liða
úrslit
eftir 27:25 sigur
yfir Haukum
Haukar og Valur léku I 8-liða
úrslitum bikarkeppiii HSt sl.
sunnudagskvöld á heimavelli
Hauka suður i Hafnarfirði og
sigraði Valur 27:25. Þar með hef-
ur Valur tryggt sér sæti I 4ra lioa
úrslitum bikarkeppninnar.
Þessir leikur var okkuð sæmi-
legur miðað við ýmislegt sem sést
hefur i handknattleiknum undan-
farið. Valsmenn höfðu yfirhönd-
ina nær allan timann og um miðj-
an siðari hálfleik höfðu þeir náð 7
marka forskoti en misstu það svo
niður I eitt mark um tima. En
þrátt fyrir það náðu Haukar
aldrei að ógna sigri Vals, sem
varö eins og áður segir 27:25.
En eru þrir leikir eftir I 8 liða
úrslitum bikarkeppninnar. Það
eru leikirnir KR — Þróttur ÍR-
Fram og KA-FH.
—S.dói
nlu. Ef tekið er mið af frammi-
stöðu Fram I fyrri leik liðanna,
sem leikinn var sl. föstudag, er
óhætt að bóka Val sem sigurveg-
ara og er Islandsmeistaratitillinn
um leið I höfn. Dugar Val raunar
jafntefli I þessum leik, og ætti
ekki aö verða erfitt að ná þvl.
1 kvennaflokki er útlit fyrir
meiri baráttu. Valur mætir Fram
klukkan 20.00 og þarf að sigra eöa
ná jafntefli til að hljóta Islands-
meistaratitilinn. Tapi Valur þarf
hins vegar aukaleik um vinnings-
sætið.
Staðan I 1. deild karla er núna
þessi:
Valur
Vlkingur
FH
Haukar
IR
Fram
Þróttur
Grótta
13 11 0
14 11 0
8
14
14
14
13
14
382:327 22
357:313 22
331:303 18
302:281 17
301:325 12
266:293 10
8 272:308
14 0 1 13 284:332 1
Markhæstu leikmenn:
Hörður Sigmars. Haukum 111/41
Olafur Einarsson Vik. 88/20
Konráð Jónson Þrótti 85/14
Viðar Símonarson FH 80/27
Geir Hallsteinsson FH 78/13
Brynj. Markússon 1R 76/6
Valur-KR,
Leik Vals og KR I gærkvöldi
lauk með sigri Vals, en valsarar
skoruðu tvö mörk og kr-ingar
ekkert.
Næsti leikur verður á milli
Vikings og Þróttar og hefst hann
kl. 19.00 I kvöld.
am/gsp
Skagamenn og Breiðabliksmenn:
Gefiiui leikur
eða frestað?
Upp er komið deilumál á
mílli Breiðabliks og ÍA vegna
fyrirhugaðs leiks þessara fé-
laga I Litlu bikarkeppninni.
Breiðablik bað um frestun
með eins dags fyrirvara, en
;akurnesingar létu flauta leik-
inn á og af, og telja hann þar
með unninn. En eins og svo oft
i slfkum tilfellum eru menn
ekki á eitt sáttir.
Þorsteinn Friðþjófsson
þjálfari Breiðabliks sagði að
beðið hefði verið um frestun
vegna forfalla fimm leik-
manna Breiðabliks, en Blikar
eygðu vonumað vinna Litlu
bikarkeppnina, og vildu þvl
leggja allt i söíurnar i siðasta
leiknum, sem var gegn ÍA.
Þorsteinn benti á að þessi
leikur hefði upphaflega verið
settur á I byrjun móts, en ver-
ið frestað skv. beiðni 1A, sem
átti þá leik gegn Fram I
meistarakeppninni. Af þeim
leik varð þó ekki þann dag.
Kristján Sveinsson formað-
ur knattspyrnudeildar 1A
sagði að ákveðið hefði verið að
flauta leikinn á, og þar sem
UBK mætti ekki hefði félagið
tapað leiknum. — Þeir til-
kynntu þessi forföll með að-
eins sólarhrings fyrirvara, og
við ákváöum að taka ekki tillit
til frestunarbeiðninnar, úr þvi
hún kom svo seint.
Akurnesingar hafa þar með
jafnað metin frá þvi I Litlu
bikarkeppninni fyrir nokkrum
árum. Þá báðu þeir Breiðablik
um frestun með örstuttum
fyrirvara, en kópavogsmenn
ákváðu að taka beiðnina ekki
til greina og dæmdu leikinn af
skagamönnum.
Þessu deildumáli sem nú er
risið hefur verið visað til
mótshaldara, sem eru að
þessu sinni keflvikingar.
Tveimur leikjum er ólokið i
Litlu Bikarkeppninni, og eru
það viðureignir IA — IBK og
FH — Hauka. Staðan i keppn-
inni er þessi (ef skágamönn-
um er reiknaður sigur gegn
UBK):
Akranes 6 stig
Breiðablik 4 stig
Keflavik 3 stig
FH 3stig
Haukar 3stig
Rúnar Gislason er lengst til vinstri á þessari mynd sem tekin er sekúndubrotiáður en hann skoraði sigurmark Fram gegn Þrótti.