Þjóðviljinn - 24.04.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. aprn 1977
.. ..........................1.■■■"■................ "■■■■■■. ...
fil hnífs og skeidar
Þegar við lesum smá-
auglýsingar dagblaðanna
sjáum við að mikil eftir-
spurn er eftir ýmsum
notuðum hlutum, t.d.
reiðhjólum, vögnum,
kerrum, barnarúmum,
barnastólum og fleiru.
Ástæðan er augljós:
Þessar vörur eru orðnar
svo dýrar að fæstir hafa
efni á að kaupa þær nýj-
ar. Og þeir sem kaupa
nýtt, reyna að fara sem
best með það til þess að
koma því í verð þegar
notkuninni er lokið — sé
það þá ekki geymt fyrir
næsta barn.
Viða erlendis, t.d á Noröur-
löndunum eru greiddar
„fæðingarbætur” við hvert barn
sem eru svo riflegar að fyrir
þær má kaupa það sem nauö-
synlegt er fyrir barnið fyrsta
áriö. Slikar bætur eru sem
kunnugter ekki til hér, utan það
smáræði sem fer beint i aö
greiöa fyrir sjúkrahúsleguna
við fæðinguna.
í ,,Vi föraldrar”, sænska
foreldrablaöinu, gat nýlega að
lita ýmsar góðar ráðleggingar
til þeirra sem hyggjast kaupa
notaðar vörur, t.d. vagna, rúm
o.s.frv. Flest af þvi á við hér
einnig,og þvi er ekki úr vegi að
kynna sér þessar leiðbeiningar.
Fyrst er að gæta þess, að
maður þarf að taka sér nokkra
daga til þess að detta niður á
það sem mann vanhagar um.
Það borgar sig ekki að kaupa
bara það fyrsta besta sem
maður sér. En maður þarf að
vera snöggur ef maður sér aug-
lýsingu sem manni list vel á,
þvi sé i raun og veru um að ræða
góð kaup, þá selst varan oftast
samdægurs. Varðandi veröið er
óhætt að segja að notaður
barnavagn eöa t.d. barnabil-
AÐ
KAUPA
NOTAÐ
stóll sem litið sér á selst á allf
að hálfvirði. Er þá miöað viö aö
1—2 börn hafi notað hlutinn; en
sjái verulega á honum getur
verðið farið allt niður i 1/3. Oft
sér maður auglýstan hlut ,,sem
nýjan”, á næstum fullu veröi, en
notuð vara á ekki að seljast
fyrir meira en sem svarar 2/3 af
verðinu, þótt ekkert sjái á
henni. En hálfvirði er sem sagt
algengast. Það er þó rétt að
benda á að maður getur gert
miklu betri kaup ef maður er
heppinn. Til dæmis ef maður
lendir á hlut sem keyptur er
erlendis, eöa hlut sem er ónot-
aður, en eigandinn verður að
losa sig við vegna þess að hann
passar ekki þegar til kemur. 1
slikum tilfellum setur fólk oft
mjög lágt verð á hlutinn og þá
gildir bara að vera nógu snögg-
ur að ná i hann um leið og aug-
lýsingin birtist. Sjálf get ég sagt
dæmi af isskáp nokkrum, sem
ég keypti fyrir mörgum árum á
3000krónur, en hann hafði verið
keyptur erlendis, en passaði svo
ekki inn i eldhúsinnréttinguna.
Þetta var aðeins brot af þágild-
andi verði, en eigandinn þurfti
að losna við hann samstundis af
eldhúsgólfinu.
Það sem er hættulegast þegar
keypt er notað, er að leyndir
gallar séu i hlutnum; sem geta
reynst hættulegir.einkum ef um
er að ræða barnarúm, stól eöa
hjól. Séu gallar á öryggisbúnaði
þessara hluta, geta þeir verio
stórhættulegir. Mörg slys hafa
hlotist af gölluðum barnastól-
um, hjólum og rúmum. Hér eru
nokkur minnisatriði sem vert er
að hafa i huga, þegar keypt er
notað.
Barnastóll
Ef keyptur er hár barnastóll
þarf fyrst og fremst að athuga
hvort hann er farinn að gefa sig
á samskeytunum. Stólar, sem
hægt er að leggja samanog gera
að lágum stól með borði eru
einkum varasamir hvað þetta
snertir. Gæta þarf vel að öllum
nöglum og ekki sist hjörunum,
sem börn geta auðveldlega
klemmt sig á, ef þær eru ekki
stöðugar og læsingin örugg.
Fæturnir á stólnum veröa að
vera algerlega stöðugir, annars
er hætta á að stóllinn hvolfist ef
barnið hreyfir sig i honum. Gæt-
ið einnig vel að lakkinu á stóln-
um (eða málningunní) Víður
inn má hvergi vera ber, þvi þá
er hætta á að barnið fái i sig flis-
ar. Úr þessu má þó auðveldlega
bæta með þvi að lakka stólinn
eöa mála hann, þvi þá litur
hann út eins og nýr.
Hjól
Hvort sem um er að ræða tvi-
eða þrihjól er aðalatriðið að all-
ur öryggisútbúnaður sé i lagi. A
tvihjólinu er þýðingarmest aö
bremsur, bjalla, ljósog stýrisé i
fullkomnu lagi. Einnig eiga að
vera kattaraugu á hjólinu; aur-
hlifarnar þurfa að vera vel fast-
ar, svo og sætið. Athugiö aö
hjólin séu stöðug og dekkin góð.
Slys hafa hlotist af þegar hvell-
springur á lélegum dekkjum, ef
hjólaðerhratt. Þrihjólið þarf að
vera vel stöðugt. Gætið aö sæt-
inu, sem oft vill losna.
Hjól, sem farin eru að ryðga,
má mála upp, eftir að búið er að
pússa ryðblettina með sand-
pappir og bera ryðvarnarefni
undir málninguna. Einkum er
hætta á að aurhlifarnar á
tvihjólunum ryðgi, og getur þá
oft borgað sig að kaupa nýjar
frekar en reyna að iappa upp á
þær gömlu. Gætið vel að
gúmmiinu á „pedölunum”. Sé
það lélegtgeturverið erfitt fyrir
barnið að bremsa.
Vagnar og kerrur
Þegar keyptir eru notaðir
barnavagnar eða kerrur er
margt sem þarf að athuga.
Fyrst og fremst eru það
öryggisatriðin, bremsur, hjól og
grindin. Athugið að hvergi sé
komið ryö i samskeytin á grind-
inni, þ'annig að hægt sé aö leggja
hana saman. Þá er að athuga
dúkinn á sjálfum vagninum.
Plastdúkur er fljótur að springa
i frosti og rifnar við minnstu
viðkomu. Þegar raki kemst inn i
dúkinn (sem oftast er tvöfaldur
með svampi á milli) er hætt við
fúa. Þið skuluð þvi athuga vel
hvort dúkurinn er heill. Sé hann
úr taui gerir minna til þótt hann
sé farinn að slitna, enda
auðveldara að bæta hann. Hjól-
in mega heldur ekki vera mjög
slitin,og athugið aö þau séu vel
föst á. Þau eiga helst að vera
28,5 sm i þvermál.
Rúm
Notuö barnarúm getur borgað
sig að kaupa, þvi séu þau máluð
lita þau út eins og ný. Aðalatrið-
ið er aö botninn sé vel fastur og
hvergi sé sprunga i rimlunum.
Gætið einnig að skrúfum, en oft
getur þurft að skipta um skrúfur
og setja stærri, ef rúmið er mik-
ið notað. Bilið á milli rimlanna á
helst að vera 8,5 sm og á milli
rimlanna i botninum 2,5 sm.
Hornrimlarnir (stólparnir) eiga
helst ekki aö ná upp fyrir hina
rimlana, þvi börn geta fest t.d.
smekkböndin á hornunum.
Barnabílstóll
Strax og barnið fer að sitja, á
það aö vera i bilstól þegar það
ferðast i bíl. Það er nær óþekkt
að börn i bilstól slasist, ef hann
erréttsettur (imitt aftursætið).
Athugið að öryggisólarnar séu i
góðu lagi og ekki farnar að
slitna. Sömuleiðis þarf aö
athuga að allar skrúfur fylgi
með sem nota þarf til aö festa
sætið i bilinn. Best er að
leiöbeiningarnar fylgi einnig
með, þvi þá er auðveldara fyrir
þann sem setur sætiö i að átta
sig á þvi hvernig það er gert.
Helst á að láta setja sætið i á
verkstæði þvi ótrúlegustu óhöpp
hafa gerst þegar fólk hefur ver-
ið að reyna að bora sjálft fyrír
bilsæti, m.a. að borað hafi verið
i gegnum bremsuborðana. Og
munið að kaupa aðeins örugga
bilstóla, þ.e. sem ná upp fyrir
hnakkann, eru með öryggisól-
um og eru boltaðir niöur i bilinn.
(Byggt að miklu leyti á Vi
FörSldrar).
Umsjón: Þórunn Siguröardóttir
Ráö til þeirra
sem hyggjast
kaupa eftir
smáauglýsingum