Þjóðviljinn - 24.04.1977, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. aprll 1977
brýtur leikreglurnar?
Hver
Mjallhvit og
eplið rauða
Fá viðfangsefni eru vinsælli i
borgaralegum blöðum en hætt-
urnar sem steðja að lýðræðinu.
Þær eru þá ekki allar hafðar
sömu ættar. En algengast er
samt að lýsa lýöræðinu sem lit-
illi og fagurri Mjallhvit, sem
labbarsig gegnum skðg sögunn-
ar og áttar sig ekki á þvi, að hin
fláráöa stjúpmóðir liggur I leyni
fyrir henni i mynd kommún-
ískrar nornar. Og býður lýö-
ræðismjallhvit rautt epli að eta,
og er það hið fegursta álitum en
i reynd magnað eitri.
Þessi mynd er mjög höfð á
lofti þegar talið berst að þrem
löndum þar sem kommúnista-
flokkar eru öflugir og samband
þeirra við sósialista aligott:
Frakkland, ltaliaSpánn. Hægri-
kratar, Timatótar og Matthias-
ar ljá hver sina rödd i þann
söng, að aldrei megi treysta
kommúnistum fyrir kosninga-
sigri, ekki einu sinni þeim, sem
hafa sagt skitt og laggo' við
Natóaðild. Þeir muni áreiöan-
lega ekki skila aftur kosninga -
sigri. Þessu tali fylgir svo mikill
harmagrátur um sósialista,
sem er lýst eins og saklausum
fáráöum eða samviskulausum
hentistefnumönnum fyrir þeirra
samstarf viö kommana.
Að þessu sinni skal ekki út i þá
sálma farið, hve illa þessi
Mjallhvitargrátur kemur heim
og saman við raunverulega þró-
un I stjórnmálum. Sem hefur
m.a. gert svonefndan Evrópu-
kommúnisma að áhrifamikilli
staðreynd. Hún táknar það fyrst
og fremst, aö vestrænir
kommúnistaflokkar hafna
sovétbundnum hugmyndum um
„alræði öreiganna” (m.ö.o. al-
gjört forræði flokksins) — en
hvað sem mjallhvitarvinir hafa
annars um þá þróun að segja,
þá ættu þeir aö vita það vel, að
af þessari „villu” vesturkomma
hafa sovéskir haft miklu meiri
áhyggjur en af þvi, hvaða aug-
um þeir þinir sömu kommar litu
Nató eða efnahagsbandalög.
Við „eigum”
þjóðina
Að sjálfsögöu skiljum við vel,
hvaö hægrisinnuöum málgögn-
um gengur til, þegar þau remb-
ast við þaö áfram að láta sem
lýðræðislegum leikreglum geti
aðeins stafað hætta frá vinstri.
Samt mætti ætla, að a.m.k.
sósialdemókratar ættu að reyna
að hafa nokkuð viðara sjónar-
svið þegar þeir reyna að gera
sér grein fyrir samhenginu I
tilverunni. Það er t.d. ekki úr
vegi að minna bæði þá og aðra á
ýmislegt það, sem upp kemur I
Frakklandi þessa daga — og þá
einmitt varöandi hættur þær,
sem lýðræði stafar frá þeirri
borgaralegri samsteypu, sem
nú er viö völd.
Bandalag sósialista og
kommúnista náði miklum sigri I
borgarstjórnarkosningum I
fyrri mánuði. Margt bendir til
þess, að þessir flokkar geti
fengið hreinan meirihluta i
þingkosningum á næsta ári. En
þar með er ekki sagt, að þeir
gætu fengið að stjórna með eöli-
legum hætti i krafti þess sigurs.
Eins og marxistar hafa alltaf
vitaö á hin ráðandi stétt sér
mörg virki önnur en meirihluta
atkvæöa, og á auövelt með að
notfæra sér vopn þaðan til þess
að ónýta niðurstöður kosninga.
Þaö þarf ekki einu sinni einn af
hinum róttækari sósialistum til
að skilja þetta. Til dæmis kemst
borgarstjórinn i Marseilles,
sósialistinn Gaston Deferre, svo
að orði um hina borgaralegu
flokka I nýlegri bók sinni „Si de-
main la gauche....” (,,Ef
vinstrisinnar vinna á morg-
un”):
„Horfur á þvi, að þeir missi
þau völd sem þeir hafa farið
með i tuttugu ár gera þá til alls
búna, því að þeir vita, að það er
ekki auðvelt aðná aftur völdum,
þegar þeim hefur einu sinni ver-
ið tapað. Við stöndum ekki and-
spænis mönnum sem munu
berjast heiðarlega til að vinna
kosningar og sætta sig fyrir
fram viö þann möguleika aö
þeir kunni að tapa, eins og ger-
ist I sönnum lýðræðislöndum.
Við stöndum andspænis stjórn
og pólitiskri stétt, sem litur á
þessa þjóö sem sina eign, og
sem er sannfærð um aö menn
verði að vera við völd til að geta
unnið kosningar. Þeir munu
taka til brúks allar hugsanlegar
aðferðir til aðhalda völdunum”.
Skuggabaldrar
Gaston Defferre visar þá m .a.
til ýmissa skuggalegra samtaka
eins og SAC („Borgaraleg at-
höfn”) sem eru einskonar
blanda af gaullisma og maffu.
Defferre segist hafa frá borg
sinni, Marseille, áreiöanlegar
upplýsingar um það, hvernig
þessi „hliðstæöa lögreglunnar”
áformi að ögra til átaka og æs-
inga með það fyrir áugum, að
óttinn sé I spenntu ástandi vis
liðsmaður hægrisinna.
I Paris stendur mönnum og
stuggur af undirheimafólki sem
stendur I skipulagstengslum við
hina borgaralegu flokka. Þetta
ljósfælna liö, sem kallaö er „Le
Milieu”, er taliö hafa sambönd
allt inn i rikisstjórn, gott ef ekki
við Poniatowski innanrikisráð-
herra. Lið af þessu tagi mun
áreiðanlega hafa sig mikiö i
frammi, hvenær sem vinstri
stjórn birtist við sjóndeildar-
hring. Eða eins og Le Nouvel
Observateur segir i leiðara:
„Það verður ekki duliö, að auð-
magnið og atvinnurekendur
munu gera allt sem i þeirra
valdi stendur til að grafa undan
vinstristjórn — eigandi það á
hættu eða vonandi að útkoman
verði í skásta tilfelli „Italskt” á-
stand, I versta falli Chile-á-
stand”. —
Peningarnir flýja
En auðmagnið á sér fleiri
leiðir. 1 plöggum OECD er þeg-
ar fariö að tala um, að ástæð-
unar fyrir efnahagsvandræð-
um frakka sé m.a. aö leita I
„óvissu fjárfestingaraðila um
framtiöina” — þ.e. i óttanum
við stjórn verklýðsflokka.
Areiðanlegar heimildir eru fyrir
þvi, að stórauðaldið sé nú þegar
farið aö draga fé út úr landinu.
Vinstriflokkarnir frönsku hafa
einmitt gert sér grein fyrir þvi,
að það er hægt að stefna vinstri
stjórn I mjög verulega fjárhags-
lega örðugleika með skipulögð-
um fjárflótta — og hafa sett
gagnráðstafanir við sliku at-
hæfi á blað i sinni „Sameigin-
legu stefnuskrá” — tií háværrar
gremju þeim sem hafa ekki á-
hyggjur af öðru frelsi en frelsi
peningastreymisins.
Þvi er það svo, aö I væntan-
legum kosningaslag I Frakk-
landi veröur liklega bæði gripiö
til skipulegs „óróa” á peninga-
markaði og á götunum — ef að
„ósýnileg öfl” innan borgara-
legs meirihluta vilja svo vera
láta. En Giscard d’Estaing for-
seti getur einnig gripið til ým-
issa ,,þingræöis”kúnsta til aö
gera vinstrifylkingunni lífiö
leitt.
Til dæmis er kosningafyrir-
komulagið þannig, að „meiri-
hlutinn”, sem nú er, þarf ekki
að fá nema 45,2% atkvæða til að
halda þingmeirihluta, en
vinstrifylkingin þarf um 55% at-
kvæða til að tryggja sér þing-
meirihluta. I annan stað hefur
forsetinn sjálfur einkarétt á aö
skipa forsætisráðherra, og hans
umboð rennur ekki út fyrr en
1981. Forsetinn getur og ráðiö
þvi I reynd hvaöa mál kæmust
frá vinstri stjórn til þingsins —
t.d. með þvi að skjóta málum I
sífellu til þjóöaratkvæðis.
Lán með skilyrðum
Þegar svo rætt er um hættur
frá hægri, sem stefnt er að leik-
reglum lýðræðis i hinum þrem
rómönsku löndum sem áður
voru nefnd, þá hljóta menn
einnig að nefna alþjóðlega ihlut-
un. Eins og margir sjálfsagt
muna frá alþjóölegri kappræðu
fyrra árs, á sú skoöun miklu
fylgi að fagna á ítaliu, að þvi
landi verði alls ekki stjórnaö án
hins öfluga kommúnistaflokks
— vinnur þessi skoðun sér einn-
ig fylgi hægt og bitandi meöal
þeirra sem styðja hitt stórveldiö
i italskri pólitik — Kristilega
demókrata. Eftir kosningar I
fyrra situr minnihlutastjórn
kristilegra við völd upp á þau
býti, að kommúnistar greiði
ekki atkvæði gegn henni — og þá
að visst tillit sé tekiö til þeirra
við ákvarðanatöku. 1 fyrra varð
það frægt, að Helmut Schmidt,
kanslari Vestur-Þýskalands,
hafði I hótunum um að þjóðverj-
ar mundu i krafti sins auðs
koma þvi svo fyrir, að Italir
fengju enga efnahagsaðstoð ef
að þeir tækju kommúnista i
stjórn.
Nú í mars hefur Alþjóða
gjaldeyrissjóðurinn, IMF, lagt
fram sinn skerf til þess aö kippa
„leikreglum lýðræðis” úr sam-
bandi. Hann hefur birt skilyröi
sin fyrir því, að Itölum sé veitt
530miljón dollara lán. Skilyröin
eru m.a. þau, aö aflétt sé verð-
lagseftirliti almennings, nýjar
hömlur séu lagðar á lán og fjár-
festingu til atvinnuleysis- og
eymdarhéraða á Suður-Italíu,
dregið sé úr visitölubótum á
laun og stöövaðar samningavið-
ræður við verklýösfélögin. Hér
eru einmitt valin skilyrði, sem
verklýðsfélögin og kommún-
istaflokkurinn geta með engu
móti fallist á — bersýnilega i
þeirri von, að hægt verði að
neyða kommúnista til að hætta
„hjásetustuðningi” sínum við
stjórn Andreottis (og þar með
e.t.v. stöðva hægfara inngöngu
kommúnista inn i stjórn „hinn-
ar sögulegu málamiölunar”).
Heldur er reynt að efla til nýrr-
ar pólitiskrar kreppu, til kosn-
inga — þar sem nýfasistum og
skuggaböldrum öðrum yrði
óspart beitt i þeirri von að „ótt-
inn” reynist hægrisinnum
bandamaður i átökum um
óráðnar sálir.
Gangan langa
Eftir innrásina I Tékkó-
slóvakiu 1968segir sagan aö hist
hafi bandariskur diplómat og
sovéskur og tekið tal saman af
gagnkvæmum skilningi. Hinn
sovéski stundi þungan yfir
vandræðum sinnar stjórnar og
sagði: „Þiö getið alltaf gripiö til
dollaranna. Við höfum bara
skriðdreka”. Svona sögur bera
alltaf I sér einföldun veruleik-
ans, en það felst samt i þeim
drjúgur skammtur af
óskemmtilegum veruleika. í
tafli hins græna páfa, dollarans,
við skriðdrekapólitik og sam-
tvinnun þess við vélabrögð aft-
urhalds i hverju landi, er mjög
þrengt aö þvi bandalagi verka-
lýðsflokka sem i nokkrum lönd-
um Evrópu lyftir fána „sóslal-
isma i lýðræði” eins og
Berlinguer orðar þaö. Það er
ljóst að ganga undir slikum fána
verður löng og ströng og rik af
skakkaföllum. Engu að slöur
verður hún farin, vegna þess
blátt áfram að hún þýðir, að
brugöist er viö þörf fólks fyrir
skynsamlegri sambýlishætti —
þörf sem verður hvorki barin
niður meö lögreglukylfum, né
heldur afskrifuö með hótfyndni.
Arni Bergmann.
Sunnudagspistill
Arna Bergmann