Þjóðviljinn - 24.04.1977, Qupperneq 23
Sunnudagur 24. aprn 1977 þJÓÐVILJINN — SIÐA 2 3
kompan
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
SKRÍTLUR
Gesturinn: ,<Þaðer stór
maðkafluga í súpunni!"
Þjónninn: „Æ vesa-
lings dýrið! Haldið þér að
hún sé dauð?"
Jón: „Hvernig í
ósköpunum ferðu að því
að lesa og éta i einu?"
Jónas: „Það gengur
ágætlega. Ég les með
öðru auganu og ét með
hinu."
Frænka: „Gættu þín
fyrir alla muni, Gunna
litla, þegar þú ferð að
læra á skauta . Ég datt
einu sinni svo illa á
isnum, að ég lá í hálfan
mánuð á eftir.'
Gunna: „Nei! Er það
satt? Og þú hefur
náttúrulega frosið föst
við svellið?"
•r
SPURNINGAR
— Jæja, hann hafði þá rétt fyrir
sér, þegar hann hélt þvi fram að
pabbi hans væri sterkari en þúj
beldurðu ekki að afi myndi hafa
afa hans....?
Jói: „Ég sá þig hlaupa
með hjólið þitt i skólann í
morgun".
Axel: „Já, ég var svo
seinn, að ég mátti ekki
vera að því að fara á
bak."
m 1111
l/.
Drulludýrín
DRULLUDÝRIN heitir myndasaga eftir Kjartan
Arnórsson. Þetta er stutt spennandi hrollvekja sem
verður í næstu tveimur eða þremur blöðum. Þó drullu-
dýrin minni við fyrstu sýn örlítið á Ijúf ling litlu barn-
anna „Barbapapa" eru þau hreint ekkert lik honum í
háttum. Þau eru sannkölluð drulludýr og ekkert
smábarnagaman!
Lausnir
á myndagátum
1. Hver er munurinn á
hungruðum manni og
átvagli?
2. Þegar þú leitar að
týndum hlut, hvers
vegna er hann alltaf á
þeim stað sem þú leitar
á síðast?
3. Hvað er best að gera til
að halda höndunum
mjúkum?
4. Hvað er hálf u stærra ef
þvi er snúið á haus?
(Svör i næstu Kompu)
Siggi: „Systir mín er í
sjö ára bekk og getur
stafað nafnið sitt aftur á
bak."
Kalli: „Gasalega er
hún dugleg. Hvað heitir
hún?" ~
Siggi: „Anna."
LAUSNIR Á MYNDAGATUAA í síðasta blaði eru:
Blómið heitir HOFSÓLEY, blaðið heitir ÞJOÐVILJ-
INN og stelpan sem gerði gátuna um blaðið og nafnið
sitt heitir SIGRÚN LÁRA.
í þessu blaði fáið þið myndagátu og ef þið getið
ráðið hana kemur út setning sem er fræg úr tungu-
málakennslunni.
MYNDAGATA