Þjóðviljinn - 15.06.1977, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. júní 1977
Skrifið — eða hringið í síma 81333
Embættaveitingar
Kæri bæjarpóstur:
Þar sem Sambandiö hefur
óskað eftir og reyndar farið
fram á að rætt yrði um sam-
vinnuhreyfinguna á fundum
innan hennar i ár, ætla ég að
leggja nokkur orð i belg.
Ég tel mjög óeðlilegt að ungt
fólk með heilbrigða skynsemi
ráði sig til fyrirtækja innan
samvinnuhreyfingarinnar eins
og hún er skipulögð núna. Ef 2
menn skipa svipaða stöðu og
vinna svo til sömu störf hjá SIS
getur annar maðurinn ekki
fengið að vita hvaö hinn fær
greitt, þar sem launadeildin er
nokkurs konar leyniplagg innan
SIS.
Ef starfsmaður hefur hug á að
komast i einhverja hærri stöðu
innan SIS, má það teljast nokk-
urn veginn útilokað nema að
vera i mjög góðu sambandi við
innstu koppana innan SIS. Sem
dæmi um óeölilega embættis-
veitingu skal ég nefna aö nú ný-
lega var ráðinn framkvæmda-
stjóri hjá skipadeild SIS; ég tel
Þakkir
fyrir Ríkid
í ríkinu
Ég færi þeim Einari Karli
Haraldssyni og Erni Harðar-
syni sérstakar þakkir fyrir
þáttinn Rikið i rikinu sem
fluttur hefur verið i sjón-
varpinu og hefur vakið
geysilegt umtal i heimabæ
minum Hafnarfirði og
umræður um þessi mál og er
það stjórnendum þáttarins
til sóma og vonandi þjóöinni
sem heild og löggjafanum til
þess að hefjast handa til úr-
bóta þeim mesta vágesti sem
nú herjar að þjóðinni á svip-
aðan hátt og þorskstofninn
sem nú er að ganga sér til
þurrðar i forðabúri þjóðar-
innar i hafinu sem umlykur
hólmann. Þetta eru svipuð
mál til úrlausnar fyrir
alþingi og rikisstjórn þó að
þau séu ekki byggð á sama
grunni. Hafiö þökk fyrir
Markús B. Þorgeirsson
skipstjóri.
það nokkurn vegin vist að það
hljóti að vera hæfir menn innan
skipadeildarinnar til að gegna
þessu starfi, en það fór nú svo að
sá sem fékk starfið hefur aldrei
unnið hjá skipadeildinni áöur.
Þó að þetta sé tekið sem dæmi
er þetta ekkert sérstakt, 90% —
95% af framkvæmdastjórastöð-
um innan sambandsins eru i
svipuðum dúr. Ef ráðinn væri
framkvæmdarstj. yfir búvöru-
deildina fengi mjög liklega upp-
gjafa skipstjóri starfið, ef um
framkvæmdarstjóra yfir sjá-
varútvegsdeild væri að ræða
kæmi eflaust kaupfélagsstjóri
frá Egilsstööum til greina þar
sem engin fiskvinnsla er þar. A
meðan sambandið gerir ekkert
til þess að breyta til i rekstri
sinum þarf það ekki að búast við
jákvæðum viðbrögðum fólksins
sem að samvinnuhreyfingunni
stendur.
En þá skulum viö snúa okkur
að kaupfélögunum. Þau eru nú
þannig upp byggð i dag (þó að
þau eigi ekki að vera það) að
SIS ræöur nokkurn veginn hver
verður ráðinn kaupfélagsstjóri
i hvert sinn sem slik ráðning fer
fram þó að stjórnir kaupfélag-
ana geri það að nafninu til. Það
virðist vera þannig málum hátt-
að,móralskt’séð að kaupfélags-
menn, stjórnir kaupfélaganna,
og stjórn sambandsins haldi að
kaupfélögin séu dótturfyrirtæki
SIS, en SIS ekki dótturfyrirtæki
kaupfélaganna i sameiningu.
SIS er orðið svo ráðamikið inn-
an kaupfélaganna að óeðlilegt
er. Það ætti að hafa stjórnarkjör
innan kaupfélaganna og SIS
þannig að hver maður sitji ekki
nema i 4 ár og fari svo burtu og
verði ekki endurkosinn að 4 ár-
um liðnum. Það má Hklega telja
þá kaupfélagsstjóra á fingrum
sér sem ráðnir hafa verið til
eins ákveðins kaupfélags og
hafa starfað þar áður, og er
óhætt að segja að stjórnir kaup-
félaganna hafi i flestum til-
fellum ráðið kaupfélagsstjóra
eftir að höfuðstöðvarnar (SIS)
hafi samþykkt það. x.
ALDARSPEGILL
Úr íslenskum blöðum á 19. öld
3rot úr fyrirlestrum um íslenzk skáld
Brot um Gisla Brynjúífsson
cptir Guðmuml Hjaltason.
Sorg málar Ciísli ninð sjálf-
stR)ðum b 1 á m a, scr fr.gurð lifsins og
eískar pað hoitt, stýðst ci við hlátur
njc stálsinnið tómn, styðst oi við
vonanna lánsprikið noitt, finnur
011 polir vol sviðann í sárum, sætt kvcð-
ur lífið og umfaðmar liol — aðoins vil
„svtilun í sjálfstreðum tárum sínuni hjá
vísnuðu blómum á mol“.
IIr „)Skálclalýsing“.
Fróði 7. ágúst 1886
Dýrasti kartöflu-
garöur á landinu
Reglustikumeistarar kapp-
kosta að hafa götur borgarinnar
sem beinastar. Engu likara en
bilar geti ekki beygt. Þannig á
hin glæsta Reykjavikurborg að
vera. Þráðbein stræti með hús-
um i reglulegum röðum, helst
öll eins. I kringum húsin eiga að
vera rennsléttar grasflatir með
trjám i kring og eins blömabeð.
Þetta var ég að hugsa á hægu
tölti vestur á Grimsstaðaholti.
Löngu áður en nýtisku Reykja-
vik teygði sig þangað suður eftir
var þar dreifð byggð húsa og i
mörgum þeirra ólust upp harð-
skeyttir strákar sem sumir urðu
kommúnistar og börðust i
kreppuslagsmálum.
Þegar reglustikumeistarar
lögðu kvarða sina á hverfið stóð
þessi óreglulega byggð þvers og
kruss i vegi fyrir þeim alveg
eins og kommastrákarnir sem
ólust upp i þeim stóðu þvers og
kruss i þjóðfélagskerfinu.
Og var nú úr vöndu að ráða.
Þessi óstýrlátu hús skyldu
hverfa. Allt skyldi verða beint
og hreint og snurfusað og eins.
Ibúarnir voru ýmist keyptir út
úr húsum sinum eða reknir úr
þeim. Kálgarðar, túnbleðlar,
rænfang og birkitré fóru undir
malbik, slétt var úr hólum og
smám saman varð allt eins og
upp reis nýtisku Reykjavík.
Samt varð þetta ekki hægt
með öllu. Sumir og einstaka
menn sigruðu jafnvel reglustik-
una meö islenskum sauðkindar-
þráa.
Þannig átti t.d. að fjarlægja
grásleppuskúrana við Ægissiöu
af þvi að þeir féllu ekki að reglu-
stikunni. Góðir menn komu i
veg fyrir það.
Ein af fáum götum i Reykja-
vik sem ekki er þráðbein er
Tómasarhagi i Grimsstaðaholti.
Þar gáfust beinstefnumenn upp.
Til þess að láta gamla bæi og og
hús, sem standa þar þrákelknis-
lega, hverfa inn f bakgarða af
þvi að ekki var hægt aö koma
þeim i burtu var Tómasarhagi
lagður I stórum boga. Þarna
kúra þessi hús milli Fálkagötu
og Tómasarhaga og eru eigin-
lega ekki við neina götu og i
trássi viö guð og menn og skipu-
lagsyfirvöld.
Einn þessara bæja heitir Litli-
bær og bóndinn i Litlabæ átti
talsvert land og rak þarna bú-
skap. Og enn á fólkið i Litlabæ
stóra lóð og þar eru rætaðar
kartöflur að góðum sið.
Við Tómasarhaga standa stór
og stæðileg góðborgarahús en á
einum stað er eyða. A heilli lóð
við götuna á einum dýrasta stað
i Reykjavík eru ræktaðar kart-
öflur. Það eru kartöflur fólksins
i Litlabæ. 1 stað þess að selja
lóðina fyrir miljónir og græða á
henni ræktar fólkið sina jörð
eins og ekkert hafi i skorist.
Samkvæmt lögmálum kap-
italismans er þessi spilda dýr-
asti kartöflugarður á landinu.
— GFr
Erlendur Einarsson,
forstjóri Sambandsins
NÝJAR
LEIÐIR
í ræðu sinni á hátíða-
fundi Sambands í Háskóla-
biói í fyrrakvöld sagði Er-
lendur Einarsson, for-
stjóri, m.a. í þeim kafla er
f jallaði um framtíðarþró-
un hreyfingarinnar:
En samvinnuhreyfingin
þarf ætíð að leita nýrra
leiða til þess að verða að
liði. Þar mætti nefna til-
raunir með framleiðslu-
samvinnufélög, en menn í
byggingariðnaði hafa nú
hafið rekstur samvinnufé-
laga. Ég tel, að Sambandið
ætti að styrkja tilraunir
með sa m vinn uf ra m-
leiðslufélög. Við þurfum
stöðugf að leita leiða til
þess að sætta f jármagn og
vinnu. Þá tel ég tímabært
Erlendur Einarsson.
aðgerð verði tilraun í sam;
vinnuhreyf ingunni að
stofna samvinnufélög
fyrir aldrað fólk, sem
orðið hefur að hætta störf-
um, til þess að skapa því
starfsgrundvöll við sitt
hæf i.
Þá er verðugt verkefni
að styðja fólk til þess að
eyða frístundum sínum á
skynsamlegan hátt.
Ungmennaf. BorgarQaröar 60 ára
Ungmennafélag Borgarfjarðar,
i Borgarfirði eystra,verður 60 ára
á þessu ári. Haldið verður upp á
afmælið 17. og 18. júni með veg-
legri dagskrá, sem hefst kl. 13
þann 17. með messu i Bakka-
fjarðarkirkju. Hópganga verður
frá kirkjunni á iþróttasvæðið.
Klukkan 14 hefst útisamkoma á
iþróttavellinum. Verður þar m.a.
glimusýning, knattspyrna og
ýmis boðhlaup. Kaffiveitingar
verða i Fjarðarborg og um
kvöldið verður hátiðardagskrá
þar, og dansleikur á eftir. Meðal
gesta á hátiðinni eru Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamála-
ráðherra, Asgeir Sigurvinsson,
knattspyrnumaður, stjórn UlA og
margir eldri ungmennafélagar.
Á laugardag 18. verður
hátiðinni haldið áfram með knatt-
spyrnuleik milli Samyrkjafélags
Eiðaþinghár og UMFB. Um
kvöldið verður svo frumsýnt leik-
ritið „Allra meina bót” eftir
Jónas og Jón Múla Arnasyni
undir leikstjórn Einars Þorbergs-
sonar skólast jóra. Hátiðinni iýkur
með dansleik þar sem Kaktus
leikur og syngur.
Opið hús starfshóps
verkafólks í kvöld
1 kvöld kl. 20.30 heldur Starfshópur verkafólks um opið hús fund að
Hallveigarstöðum við Túngötu. Að venju verður fjallað um stöðuna
i kjarasamningunum og aðgerðir verkalýðshreyfingarinnar. Full-
trúar úr samninganefnd ASÍ koma á fuiidinn.
Verkafólk er hvatt til þess að koma og taka þátt I að móta stefnu
verkalýðshreyfiinnar.
Mótmælasigling nskiskipa
LUNDUNUM 13/6 Reuter —
Breskur frystitogari, nýkominn
heim af miðunum viö Nýfundna-
land, sigldi í dag upp fljótiö Tems
Imótmælaskyni viö tillögur Efna-
hagsbandalags Evrópu i fisk-
veiðimálum. Búist er vlö aö yfir
50 önnur fiskiskip fylgi togaran-
um eftir upp á móts viö breska
þinghúsiö og þeyti þar flautur sin-
ar í klukkustund. Aö lokinni þeirri
mótmælaaögerö er búist viö þvi
aö skipin sigli aftur niöur fljótiö.
Breskir fiskimenn krefjast 50
sjómilna fiskveiðilögsögu fyrir
sig eina út af ströndurh Bret-
lands, þar eð þeir óttast aö fiski-
flotar annarra EBE-rikja ofbjóði
fiskistofnum þar að öörum kosti.
Er þaö breska fiskimálasam-
bandið, sem skipuleggur mót-
mælasiglinguna upp Tems. Tog-
arinn, sem fer i fararbroddi flot-
ans,heitir Junella og er 1300 smál>