Þjóðviljinn - 15.06.1977, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 15.06.1977, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. júni 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýdshreyfingar og þjódfrelsis. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóösson. Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Sföumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. 700 í eldlínuna, en öll alþýða að baki Hafnbann og stöðvun á öllum flugsam- göngum innanlands og milli landa eru þær aðgerðir, sem verkalýðshreyfingin hefur nú ákveðið að gripa til i þvi skyni að knýja fram viðunandi kjarasamninga. Þessar aðgerðir voru boðaðar i gær með viku fyrirvara og koma til framkvæmda miðvikudaginn 22. júni, en daginn áður er allsherjarverkfall um allt land. Hafnbannið felur það i sér, að allur inn- og útflutningur til landsins stöðvast, svo og vöruflutningar með skipum milli hafna innanlands og störf i vöruafgreiðslum skipafélaga. Löndun á fiski i höfnum landsins verður hins vegar ekki stöðvuð. Flugsamgöngur til og frá landinu leggjast algjörlega niður svo og flugsamgöngur innanlands, nema með smæstu vélum. Hér er um mjög harðar aðgerðir að ræða, sem vonandi munu hafa mikil áhrif til að knýja á um lausn kjaradeilunnar. Með tilliti til fádæma þvermóðsku atvinnurekenda og rikisstjórnar við samningagerðina, mátti alls ekki dragast lengur að til svo harðra aðgerða yrði gripið, og hefðu reyndar gjarnan mátt gerast fyrr. Upphafleg krafa verkalýðshreyfingar- innar um verðtryggð 100 þús. króna lág- markslaun jafngildir nú kröfu um 117 þús. kr. lágmarkslaun á mánuði, og hefur þá verið tekið tillit til verðlagsþróunar siðan Alþýðusambandsþing var haldið og einnig til þess, sem á vantar, hvað varðar fulla visitölutryggingu i þvi samkomulagi, sem gert hefur verið um visitölumálin. Þarna er einnig reiknað með nokkrum bótum fyrir það tjón, sem verkafólk hefur beðið vegna tafa á samningsgerðinni allt frá fyrsta maí. Þessa upphaflegu kröfu hefur verka- lýðshreyfingin nú boðist til að lækka um 12 þúsund krónur, þannig að lágmarkslaunin yrðukr. 105 þús. Þetta er sannarlega mjög mikil tilslökun, en svar atvinnurekenda var i fyrstu það eitt að með tilslökuninni hafi verkalýðshreyfingin siglt samninga- málunum i strand!! — Nú eru atvinnurek- endur þó komnir aftur að samninga- borðinu, en ekkert jákvætt svar hefur enn sést frá þeim við hinu nýja boði verkalýðs- hreyfingarinnar, sem sett var fram á laugardaginn var. Meðan svo er situr allt fast, en verka- lýðshreyfingin mun,sem fyrr segir, gera sinar ráðstafanir. Verkafólk um allt land veit, að það þarf þolinmæði til að knýja óbilgjarna stéttar- andstæðinga til að opna budduna, — það þarf bæði þolinmæði og baráttuvilja, sem kallar fram harðnandi aðgerðir uns sigur vinnst. Þennan baráttuvilja á meginþorri verkafólks, þolinmæðina lika. Vilji atvinnurekendur draga deiluna enn á langinn, þá er það þeirra mál. Skaðinn verður fyrst og fremst þeirra sjálfra. Upp úr næstu helgi gengur hafnbann i gildi og allar flugsamgöngur stöðvast. Til að hrinda þessu i framkvæmd þurfa aðeins 700 menn að leggja niður vinnu. Þeir eru flestir Dagsbrúnarmenn. Þetta verður gert ef ekki semst, en þessir 700 menn standa ekki einir. Þeir munu berjast fyrir alla verkalýðshreyfinguna á Islandi, verða hennar framvarðarsveit, en verka- lýðsfélögin um allt land og fólkið i verka- lýðsfélögunum, sem veit að samstaðan ein færir sigur, munu tryggja, að fjölskyldur þeirra, sem i eldlinunni standa, þurfi ekki að svelta, hvað sem i skerst. Þannig verður barist til sigurs. Á Vestfjörðum hafa nú verið undir- ritaðir sérstakir samningar við atvinnu- rekendur þar. Má vera að sú samnings- gerð verði til að koma einhverri hreyfingu á málin annars staðar. Þar er gert ráð fyrir að um næstu áramót verði lágmarks- laun 91.000 kr., það er i samræmi við hug- mynd sáttanefndar, sem sett var fram um miðjan mai. Þótt þarna sé siðan gert ráð fyrir 9.000,- krónum i viðbót á siðari hluta ársins 1978, þá er hér um lakari samninga að ræða en verkalýðshreyfingin i heild getur sætt sig; við, og geta þeir þvi ekki orðið til fyrir- myndar. —k. Ekki við, en sjúklingamir, — sagði maðurinn Það ér gömul saga og ný, að flestir at- vinnurekendur á íslandi þykjast aldrei geta hækkað kaupið hjá verkafólki svo neinu nemur, hversu vel sem árar. Hins vegar þykjast þeir jafnan hafa mikla „samúð” með vinnandi fólki. Stundum þykjast einstakir menn úr hópi atvinnurekenda jafnvel hafa fundið ein- hver ja gullnámu, sem verkafólk geti ausið úr, án þess það komi þó við pyngju gull- kálfanna sjálfra, sem eiga fyrirtækin. Það var t.d. i sjónvarpsþætti þann 3. þ.m. , að einn samningamanna atvinnu- rekenda, Viglundur Þorsteinsson, þóttist geta bent landsmönnum á,eina slika gull- námu: ,, Við skulum hætta að láta sjúklingana á spitölunum hafa ókeypis fæði, — þá verður hægt að hækka kaupið”, sagði þessi fulltrúi Vinnuveitendasambandsins frammi fyrir alþjóð. Sem sagt góðir hálsar: Til okkar, sem eigum og rekum fyrirtækin, er ekkert að sækja, allar hirslur tómar, — en hver veit nema leysa ætti kjaradeiluna með þvi, að láta þessa ræfla, sem hafa verið lagðir inn á sjúkra- hús, þó að minnsta kosti borga fæðið sitt?!! Svona er að vera á móti samneyslunni og eiga sitt andlega höfuðból vestur i Bandarikjunum. — k. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I Ráðleysi? Af eðlilegum ástæðum hafa kjara- og kaupkröfur verkafólks verið i brennidepli siðustu mán- uði. Það er skiljanlegt að meg- inþunginn sé lagður i þær i landi, þar sem enn hefur ekki tekist að tryggja lifvænleg laun fyrir átta stunda vinnudag. Hinu má ekki gleyma i hita kjaraátakanna að þau munu ekki eyða stéttaandstæðum þjóðfélagsins. Þvi hlýtur verka- fólk að spyrja hvað sé til ráða? Á endalaust að berjast viö óvin- veitt rikisvald og atvinnurek- endur um leiðréttingar á kaupi og kjörum eöa leita annarra ráða? Eða erum við ef til vill ráðalaus i auðvaldsþjóðfélag- inu? Þarf fyrst að kollvarpa þvi áður en verkafólk tekur til sinna ráða? Sósialískar vinjar? Bjarni Þórðarson, fyrrver- andi bæjarstjóri i Neskaup - stað, lagði á það áherslu i sjón- varpsviðtali að sósialistar þar i bæ hefðu alls ekki verið að framkvæma sósialismann á sin- um langa valdaferli. Þeir hefðu að visu hrint i framkvæmd ýms- um félagslegum framfaramál- um, en tómt mál væri að tala um að reisa sósialiska vin i auð- valdsþjóðfélagi. t þessu er m.a. fólgin sú skoðun að enda þótt fyrirtækin á staðnum séu i eigu bæjarfélagsins eða i höndum sósialista verði þau að lúta sömu lögmálum og kapitalisk fyrirtæki og rekast samkvæmt þvi. Róttœk tilraun Við fyrstu athugun má segja að hér sé um niöurstööu raun- sæs og reynds athafnamanns aö ræða. Á hitt verður þó að benda, að um skeið hefur verið gerð at- hyglisverð tilraun i atvinnu- rekstri, sem örugglega á eftir að hafa viðtæk áhrif á rekstrar- form fyrirtækja hériendis i framtiðinni. Hún hófst með stofnun Samvirkis, sem enn starfar, og siðan með þróun Rafafls út úr þvi, en siöarnefnda framleiðslusamvinnufélagið er mun róttækara að formi og opn- ara en hið fyrrnefnda. A aðal- fundi Rafafls nýveriö var sam- þykkt að breyta lögum félagsins til samræmis við nýorönar breytingar á lögum um sam- vinnufélög, og er starfsemi fé- lagsins nú ekki lengur bundin við atvinnurekstur i rafiðnaði, heldur er markmið þess aö hefja starfsemi i flestum grein- um iðnaðar á sem flestum stöö- um. Heitir félagið nú Fram- leiðslusamvinnufélag iðnaðar- manna, og eru 80 tii 90 iðnaðar- menn innan þess. Þetta félag er bundið við iðnaðarmenn, en þó geta allir starfsmenn þess geng- ið i það, enda þótt þeir séu ekki faglærðir. Allir starfandi fé- lagsmenn fá sama kaup, sem er talsvert hærra en gengur og gerist á almennum vinnumark- aði, og samt veitir félagið af- slátt til viðskiptamanna. Þessi algera launajöfnunarstefna inn- an félagsins reynir mikið á fé- lagsþroskann, og skýringin á velfarnaði Rafafls er fyrst og fremst öflug félagsleg starf- semi. Frystihús og togarar? Þvi er minnst á Rafafl i þessu sambandi að flest bendir til þess að þetta rekstrarform henti i flestum tegundum atvinnu- rekstrar. Ekkert er þvi til fyrir- stöðu að reka togara eða frysti- hús sem framleiöslusamvinnu- félag. Einn megintilgangurinn með félagslegri fjárfestingu i byggðum landsins hefur verið að staðbinda kapitalið. Kostur framleiðslusamvinnufélags eins og Rafafls er að það eiga fé- lagsmenn sjálfir og geta þegar þörf kemur upp á hinum ýmsu stöðum fært út kviarnar og tekið heimamenn í félagið. Rafafl starfar nú á 5-6 stöðum á land- inu. Samvinnufélagaformið hefur verið of vitt og þungt i vöfum og fólk, jafnvel sósialistar, sem ráðist hefur i smáfyrirtæki hef- ur frekar stofnað hlutafélag um það heldur en samvinnufélag. Framleiðslusamvinnufélögin hafa alla burði til þess að vega að hlutafélagsforminu, og er það vel. Meira að segja Erlendur ,Með samstilltu átaki verka- fólks, eignarrétti þess og yfir- ráðum yfir atvinnustarfseminni er hægt að gera hvorttveggja I senn, að bæta stórlega launakjör i landinu og lækka verð á vöru og þjónustu. Smáfyrirtæki ein- stakra iðnmeistara, sem al- gengust eru I iðnaði á tslandi, eru ekki megnug þess að þróa fram þá breyttu atvinnuhætti, sem stuðla að verklegum fram- förum og bættum kjörum al- mennings. Þvi ber að efla sam- vinnu i landinu,” segir i frétt frá Rafafii. Það er skoðun þess sem þetta ritar að meðan „beðið er eftir byltingunni” beri að ná fótfestu fyrir sósialisk viðhorf og sósial- isk atvinnurekstrarform á sem flestum sviðum. Framleiðslu- samvinnufélög eru hiklaust ein af leiðunum til þess. Sósialistar i Neskaupstað, sem ráða fyrir- tækjum, mættu vel huga að þvi hvilikri öldu þeir gætu komið af stað ef þar i bæ yrðu teknir upp róttækari rekstrarhættir. Meira að segja Erlendur i Sambandinu er farinn að tala um tilraunir með samvinnuframleiðslufélög. —ekh ‘I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.