Þjóðviljinn - 07.10.1977, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. október 1977
Guðmmdar og Geirfinnsmálin:____________________
Voru játningar þvingaöar fram?
Tveir verjendur sakborninga telja líkur á aö svo sé
Klukkan 9,30 i gærmorgun var
vörn haldið áfram fyrir sak-
borninga i hinum svo nefndu
Guðmundar og Geirfinnsmál-
um, svo og hliöarmálum, sem
sakborningar eru ásakaðir
fyrir. Fyrstur á mælendaskrá
verjenda i gær var Hilmar Ingi-
mundarson, verjandi Tryggva
Rúnars Leifssonar, sem er
ásakaöur fyrir aðild að morði
Guðmundar Einarssonar,
fkveikju aðLitla Hrauni, nauðg-
un og fleira.
Hilmar krafðist þess i byrjun
að Tryggvl Rúnar yrði sýknaður
af ákæru um aðild að morði
Guðmundar Einarssonar, taldi
hann þar hvergi hafa nærri
komið, ekki einu sinni verið við-
staddan þegar verknaðurinn
var framinn og færði síðar að
þvi rök.
Aður en lengra er haldið frá-
sögn af vörn i málunum vill
undirritaður taka það fram,
eftir að hafa hlýtt á varnarræð-
ur i tvo daga, aö ljóst er að,
afturköllun sakborninga á fyrri
játningum fyrir dómrannsókn
og siðan alger neitun á sakar-
giftum, sem þeir höfðu áður ját-
að á sig, var og er alger for-
senda þess að verjendur þeirra
gætu haldiö uppi vörn fyrir þá i
málinu. Það liggur alveg ljóst
fyrir.
Harðar ásakanir.
Bæði Hilmar Ingimundarson,
sem fyrstur talaöii gær og siðan
Jón Oddsson hrl. sem talaöi
næstur og varði Sævar Marinó
Ciecielski komu fram með mjög
harðar ásakanir á hendur rann-
sóknarlögreglumönnum þeim
sem að frumrannsókn málanna
unnu. Þeir ásökuðu þá fyrir aö
brjóta allar reglur varöandi rétt
grunaöra manna við lögregiu-
rannsókn svo sem að hafa yfir
heyrt fanga lengur en 6 klukku
stundir á dag, votta hefði hvað
eftir annað vantað við yfir-
heyrslur, þvingunum hefði jafn-
vel verið beitt svo og hótunum
margskonar.
Þá eru lögreglumenn ásakað-
ir fyrir að hafa spurt leiöandi
spurninga og að hafa sagt við-
komandi manni I yfirheyrslu
hvað sá næsti á undan sagði og
þannig notfært sér greindar-
leysiog ruglaðan huga sakborn-
inga sem oft á tiðum hefðu ekki
getað greint á milli hugarburð-
ar og raunveruleika og hefðu
jafnvel verið farnir að trúa þvi
vegna frásagna annara, að þíeir
hefðu framið fyrr nefníia verkn-
aði, eins og lögmenn orðuðu það
i ræðum slnum.
Hilmar Ingimundarson, verj-
andi Tryggva Rúnars sagðist
telja vitnisburð Erlu Bolladótt-
ur, um að Tryggvi hefði tekiö
þátt i að bana Guðmundi Ein-
arssyni, einskis virði. Hún hefði
orðið sönn að þvi að sverja
rangan eið, svo og að hún hafi
oftar en einu sinni breytt fram-
burði sinum og að hún hefði tek-
ið þátt I að ásaka fjóra saklausa
menn um þátttöku i Geirfinns-
málinu. Og hún væri aðal vitnið
gegn Tryggva Rúnari, að sögn
sækjenda málsins.
Þá kom fram hjá Hilmari að
skjólstæðingur sinn hefði tjáö
sér,að honum hefði verið hótaö
og aö hann hefði veriö þreyttur
svo við langar og strangar yfir-
heyrslur að hann hefði tekið það
til bragðs aö játa i skjóli þess að
geta tekið aftur játninguna og
sannað sakleysi sitt við dóms-
rannsókn. Mætti þvi segja að
jatning hefði verið þvinguð
fram.
Hilmar rakti siðan ýmislegt,
sem hann taldi renna stoðum
undir þá kenningu sína aö
Tryggvi Rúnar Leifsson heföi
alls ekki verið staddur að Ham-
arsbrautlliHafnarfirði kvöldið
þegar Guðmundi Einarssyni
var ráðinn bani.
Nefndi hann að fyrst hefði
HUmar Ingimnndarson, verj-
andi Tryggva Rúnars Leifsson-
ar. (ljósm-eik)
Tryggva verið sýnd herbergis-
skipan að Hamarsbraut 11, en
siðan hefði hann verið látinn
lýsa henni og það sett i skýrslu.
Eins hefði hann verið látinn
gera riss af herbergjaskipan, en
þessu rissi hefði verið týnt og
spurði verjandi hvers vegna svo
mikilvægt sönnunargang hefði
týnst. Var það kannski óheppi-
legt fyrir rannsóknarlögreglu-
mennina að það væri til? spurði
sækjandi. Verjandi nefndi lika
að Erla Bolladóttir hefði talað
um að viðstaddir hefðu verið
Sævar Marinó og Kristján Viðar
og svo 3ji maður, sem hún siöar
sagöi að hefði verið Tryggvi
Rúnar. Hvers vegna var ekki
látin fara fram sakbending. Var
það af þvi áð hún gat ekki átt við
Tryggva Rúnar, spurði Hilmar.
Hilmar gagnrýndi einnig
hvemig Gunnar Jónsson hefði
veriö tekinn sem vitni i málinu,
eftir að Sævar Marinó heföi ver-
ið búinn að segja að hann hefði
lagt á ráðin um aö fela lik Guð-
mundar Einarssonar. Gunnar
var sóttur og sendur aftur til
Spánar, eftir að hann hafði borið
vitni. Heföi litið komið útúr
vitnisburði hans, enda hefði
hann sifellt borið við minnis-
leysi. Taldi Hilmar fulla vissu
fyrir þvi að Tryggvi Rúnar hefði
ekki verið að Hamarsbraut 11
þegar Guðmundi Einarssyni
var ráðinn bani og ekki mætti
vera eitt einasta atriði, sem
hægt væri að véfengja, þegar
dómur yrði felldur og þvi krefð-
ist hann sýknu fyrir skjólstæð-
ing sinn.
Þegar Hilmar lauk máli sinu
hóf Jón Oddsson varnarræðu
sina, en hann krafðist lika sýknu
fyrir Sævar og taldi hann ekki.
hafa verið að Hamarsbraut 11
umrætt kvöld, þegar Guðmundi
Einarssyni var ráðinn bani. Til
vara gerði Jón kröfu um væg-
ustu refsingu þvi að ef Sævar
hefði tekiö þátt i verknaðinum,
hefði það ekki verið af ráðnum
hug, heldur hefði verið um slys
að ræða.
Siðan rakti Jón hvernig lang-
varandi einangrun (nærri 2 ár)
hefði farið með skjólstæðing
sinn og hvernig honum hefði
verið hótað við yfirheyrslur,
hann hefði jafnvel orðið að þola
likamsmeiðingar og einu sinni
likamsárás Tryggva Rúnars við
yfirheyrslur, sem Sævar telur
hafa verið samantekin ráð
Tryggva og rannsóknarlögregl-
unnar. Fangavöröur sem starf-
aði i Siðumúlafangelsinu i april
og mai 1976 hefði borið viö dóm-
rannsókn málsins að yfirheyrsl-
ur yfir Sævari hefðu oft verið
mjög hávaðasamar og að henn
hefði séð fangavörð leggja
hendur á Sævar. Taldi Jón að
allri frumrannsókn málsins
væri mjög ábótavant.
Jón sagði að Sævar hefði alla
tið haldiðþvi fram að hann hefði
ekki verið staddur að Hamars
braut 11 kvöldið, sem Guðmundi
Einarssyni var ráðinn bani.
Hann hefði þá ekkert samband
haft við Erlu Bolladóttur, held-
ur gist hjá stúlku sem vann á
Kópavogshælinu. Hefur hún
borið fyrir dómi að Sævar hafi
gist hjá sér um þær mundir.
Guðmundi var ráðinn bani að
kvöldi 26. jan 1974, en Jón hélt
þvi fram að Sævar, sem kom til
landsins frá útlöndum 19. jan.
1974 hafi ekki hitt Erlu Bolla-
dóttur fyrr en að kvöldi 27. jan.
1974, er hann var á leið austur i
ölfus.
Varðandi játningu Sævars i
þessu máli taldi Jón aö hvergi i
skýrslum væri um sjálfstæða
frásögn hans að ræða, heldur
leiðandi spurningar lögreglu-
manna, sem siðan væru gerðar
að hans orðum. Þá taldi Jón að
aðalvitnið gegn Sævari, Albert
Skaftason væri ekki sakhæfur,
þar sem hann greini ekki á milli
imyndunar og raunveruleika og
að framburður Erlu Bolladóttur
sé svo ruglingslegur að ekki sé
mark takandi á honum.
Nefndi hann sem dæmi um
rugling Albertsað hann segði að
i hann hefði verið hringt um
nóttina sem Guðmundi var ráð-
inn bani, en Iljós hefði komið að
siminn að Hamarsbraut 11
hefði- verið lokaður þessa nótt.
ÞábreyttiAlbert framburðisin-
um og sagðist hafa verið við-
staddur. Þá sagðist hann hafa
verið á Toyota bifreiö fööur
sfns, en þá bifreið eignaðist fað-
ir hans ekki fyrr en um voriö.
Þá breytti Albert enn f rambur IS
og sagðist hafa verið á VW bif-
reið.
Loks benti Jón á að Erla
Bolladóttir hefði alltaf i þessum
málum, reynt að gera hiut
Sævars sem allra mestan og
verstan, en hann aftur á móti
reynt að gera hlut Erlu, sem og
annara vina sinna sem minnst-
an og tekið sem allra mest á sig.
Þegar dómi var frestað i gær
var j8n Oddsson kominn aö
Geirfinnsmálinu og mun hann
þvi hefja vörn I þvi kl. 9.30 i dag.
m m
Dilkakjöt
s
a
gamla
verðinu
Fékk aðeins
að lesa
Morgunblaðið
1 varnarræðu Jóns Odds-
sonar hrl. fyrir Sævar
Marinó Ciesielski fyrir Saka-
dómi f gær, komu fram mjög
harðar ásakanir á hendur
rannsóknarlögreglumönn-
um, svo og á meöferð sak-
borninga i Guðmundar og
Geirfinnsmálunum. Meðal
annars taldi Jón Oddsson
einangrun sakborninga hafa
verið of stranga eftir aö mál-
in voru komin á hreint.
Nefndi hann sem dæmi að
skjólstæðingi sinum hefði
ekki verið leyft að lesa bæk-
ur né blöð og ekki hefði hann
fengið skriffæri meðan hann
var ieinangrun. En þar kom
eftir að dómrannsókn hófst,
að dómarar úrskuröuðu að
Sævar Marinó mætti lesa
dagblöðin en þá brá svo við
að hann fékk eingöngu að
lesa Morgunblaðið, önnur
dagblöö fékk hann ekki.
Mann undrar ekki á þvi að
Jóni Oddssyni þyki þetta
„þunnur þrettándi”.
-Sdór
Pípulagnir
Nýlagnir, breyting-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli kl.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)
Herstöövaandstæöingar
Herstöövaandstæöingar
Smáibúðahverfi.Fundur verður haldinn i Tryggvagötu 10 mánudag
kl. 830. Rætt verðurum landsráðstefnu og starfið framundan. Dreif-
ing Dagfara og sala happadrættismiða herstöðvaandstæðinga
Herstöðvaandstæðingar, — Sogamýri, Mýrar og Leiti
Fundur kl. 14 laugardag i Tryggvagötu 10.
Rætt verður um landsráðstefnuna og verkefnin framundan.
Laugarneshópur: Fundur kl. 16 laugardag i Tryggvagötu 10. Rætt
verður um landsráðstefnuna og verkefninu framundan.
Herstöðvaandstæðingur um land allt eru hvattir til að skrá sig sem
fyrstá ráðstefnuna 15-16. október n.k. á skrifstofunni, Tryggvagötu
10 simi 17966, frá kl. 1-5.
Blaðberar
Vinsamlegast komið á afgreiðslu blaðsins
og sækið rukkunarheftin.
Afgreiðslan opin: mánud. — föstud. frá kl.
9-17.
Þjóðviljinn Síðumúla 6 sími 81333
!************************♦*♦*****♦*****
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
FRAMHALDS æ/tl/ti
STOFNFUNDUR tHÍTUj
veröur í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn
9. október n.k. kl. 14.
DAGSKRÁ:
1. Lög félagsins
2. Kjör stjómar
3. Önnur mál.
Stofnfclagar em hvattir til að fjölmcnna.
^UUlIUUIlIIlgSIIt'IIIU. /V
5|C5jC^5|C5|C5|€^**5|€5|C5|C5ÍC*5|C5|C5ÍC5|C5|C5ÍC5Í<3ÍC5ÍC*5|C5ÍC*5Í€*5ÍC**5ÍC*^^$