Þjóðviljinn - 07.10.1977, Page 3
Föstudagur 7. október 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Frá Bændaskólanum á Hvanneyri
Af 83 nemum eru 19 stúlkur
Blessaö barna-
lán flyst í
Austurbæjarbió
Leikfélag Reykjavikur tekur nú
upp á ný til sýninga ærslaleikinn
Blessað barnalán eftir Kjartan
Ragnarsson sem var sýnt fyrir
fullu húsi i fyrra i 18. skipti. Hefur
nú verið gripið til þess ráðs að
flytja sýninguna i Austurbæjarbió
og verður fyrsta sýning laugar-
daginn 8. okt. á miðnætti. "Sú
breyting verður á hlutverkaskip-
an að Margrét ólafsdóttir tekur
við hlutverki Þorgerðar kerlingar
af Herdisi Þorvaldsdóttur. GFr
Séra Benedikt og Bina á löppinni
(Sigriður Hagalin og Sigurður
Karlsson)
Bændaskólinn á Hvanneyri var
settur s.l. sunnudag. Athöfnin
hófst með guðsþjo'nustu I Hvann-
eyrarkirkju, þar sem sóknarpest-
urinn, sr. ólafur Jens Sigurðsson,
predikaði.
Tilnámsvið skólann i vetur eru
skráðir 83 nemendur, 9 i bú-
visindadeild og 74 i bændadeild.
Er þetta stærsti hópur, sem inn-
ritast hefur I skólann til þessa. Af
nemendum bændadeildar eru tæp
60% úr sveitum og smærri þétt-
býlisstöðum. I hópi nemenda eru
19 stúlkur.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á kennaraliði skólans. Ami Snæ-
björnsson tekur á ný við kennslu i
jarðrækt, að afloknu framhalds-
námi i Edinborg. Friðrik Pálma-
son hefur verið ráðinn til kennslu
I liffræði og jarðrækt, auk þess
sem hann mun stjórna efnarann-
sóknarstofu Bændaskólans. Gisli
Sverrisson hefur verið ráðinn til
bútæknikennslu og GIsli Karlsson
hefur tekið við störfum yfir-
kennara Búvisindadeildar. Fast-
ráðnir kennarar við skólann eru
11, auk skólastjórans, Magnúsar
B. Jónssonar.
A þessu hausti eru 30 ár liðin
siðan fyrstu nemendurnir innrit-
uðust til náms við framhaldsdeild
Bændaskólans á Hvanneyri, sem
nú nefnist Búvisindadeild. t ræðu
sinni drap skólastjóri á þá
baráttu,semháð hefur verið fyrir
tilveru þessarar námsbrautar.
,Hann kvað það efamál, að nokk-
urt eitt framtak til eflingar
fræðslu- og leiðbeiningaþjónustu
landbúnaðarins hafi skilað jafn
miklum árangri og starfræksla
framhaldsdeildarinnar, sem
útskrifað hefur nokkuð á annað
hundrað búfræðikandidata. Vonir
standa til, að frumvarp, sem felur
i sér viðurkenningu á búvisinda-
deildBændaskólans á Hvanneyri,
sem búnaðarháskóla nái fram aö
ganga á næsta Alþingi, en
frumvarpið hefur nú um alllangt
skeið verið til athugunar hjá
stjórnvöldum.
Á Hvanneyri er nú unnið
nokkuð að endurbyggingu eldri
húsa, með það fyrir augum, að
bæta aðstöðu til búrekstrar og
rannsóknarstarfsemi. Lokafrá-
gangi heimavistarhúsnæðis mun
ljúka snemma á næsta ári.
A liðnu sumri heimsóttu
nokkrirafmælisárgangar skólann
ogfærðu honum góðar gjafir. Með
tilkomu hinnar nýju heimavistar
og mötuneytisaðstööu færist það i
vöxt, að húsnæði skólans sé nýtt
utan skólatimans. —mhg
Concorde-þotan
fyrir hœstarétti
NEW YORK 6/10 Reuter — Yfir-
stjórn Kennedy-flugvallar I New
York sagði I gær að hún myndi
áfrýja til hæsta réttar Bandarikj-
anna þeim úrskurði áfrýjunar-
dómstóls að gefa hinni hljóðfáu
Concorde-þotu lendingarleyfi.
Hefur stjórnin þegar falið aðal
lögfræðingi sinum að fara fram á
hæstarréttarúrskurð um þetta
efni, en áfrýjunardómstóllinn úr-
skuröaði einungis að Concorde-
þotan ætti að fá leyfi til tilrauna-
flugs, en tók ekki afstöðu til
kjarna málsins.
Stjórn Kennedy-flugvellar hef-
ur neitað að gefa Concorde-þot-
unni lendingarleyfi i 18 mánuði
vegna þess að hún telur að þotan
uppfylli ekki sett skilyrði um há-
markshávaða, og hefur hún kraf-
ist betri upplýsinga um hávaða
hennar. Orðrómur er uppi um það
að stjórnin hyggist setja nýja
reglugerð sem útiloki það fylli-
lega að Concorde-þotan fái að
lenda á Kennedy-flugvelli, en slik
reglugerð myndi þó einnig útiloka
margar aðrar tegundir af þotum,
sem hingað til hafa lent þar
reglulega. i
r
Jsflutningsmenn’
veröa gjaldþrota
VERSÖLUM 5/10 Reuter —
Franskt fyrirtæki sem hafði á
prjónunum að draga Isjaka frá
Suðurskautslandinu til Rauða
hafsins til að leya úr vatnsskorti
Sádi-Arabiu, varð nýlega gjald-
þrota.aðsögn talsmanna fransks
dómstóls i Versölum.
Þetta fyrirtæki, sem bar nafnið
„Cicero”, hafði gert áætlanir um
að draga fsjaka, sem hver væri
100 miljónir tonna að þyngd, frá
Suðurskautslandinu yfir Ind-
landshaf inn til Rauða hafsins og
bræða þá þar á strönd
Sádi-arabiu til að fá drykkjarvatn
eða vatn til áveitu. Til að vernda
isjakana átti að vefja þá inn i
plast-umbúðir, og siðan áttu sex
dráttarbátar að draga þá áfram
með um það bil eins hnúts hraða á
klukkustund. Þessi áætlun vakti
mikið umtal, en hætt er við þvi að
bið verði á þvi að hún komist i
framkvæmd, þvi að nú er fyrir-
tækið „Cicero” komið fyrir
skiptirétt, og eru skuldir þess að
upphæð þrjár og hálf miljón
franka (140 miljónir Isl. króna).
Rikisstarfsmenn
Endanleg
úrslit
Endanleg úrslit I atkvæða-
greiðslu rikisstarfsmanna
um sáttatillöguna liggja nú
fyrir. Úrskurði vafaatkvæða
lauk i gær um 1/2 4, á þriðja
degi eftir að kosningu lauk.
Atkvæði greiddu 7878, auð-
ir seðlar voru 90, ógildir 6. Já
sögðu 716 eða 9,20%, en nei
sögðu 7066 eða 90,8%.
Um kjörsóknina eru menn
ekki á eitt sáttir, þvi ágrein-
ingur var um þann fjölda
sem á kjörskrá var.
Ljóst er þó að kjörsóknin
var alveg um 90%.
Vönduöustu sjónvarps-
tæki sem völ er á í dag
Margra ára reynsla. Kalt kerfi, Inline myndlampi.
Tækin eru byggð upp á einingakerfi sem
auðveldar allt viðhald. Einingarnar eru prófaðar
undir miklu álagi í 240 klukkustundir.
17” Verð kr. 210,000,—
20” Verð kr. 250,000,—
26” Verð kr. 313,000,—
Uppseld. Ný sending kemur á þriðjudag
Verð frá kr.
133,000,—
með hátölurum
LOEWE
OPTA
UMBOÐIÐ
3ja ára ábyrgð á myndlampa.
1 árs ábyrgð á tækinu.
Vitastíg 3 Sími 25745
Póstsendum