Þjóðviljinn - 06.11.1977, Page 3
Sunnudagur 6. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
SEXTUGUR Á MORGUN:
Pétur Thorsteinsson
Óliklegt má telja, aö nokkurt
riki annaö hafi sýnt jafn slóttuga
kurteisi i viðskiptum sinum við
Sovétrikin og ísland. Hér er átt
við þá staðreynd, að um langan
aldur höfðum við þar sendiherra
og ambassador sem fæddur var á
sjálfan byltingardaginn, sjöunda
nóvember 1917. Maðurinn er Pét-
ur Thorsteinsson, sextugur á
morgu.n ásamt riki Lenins.
önnur staðreynd og ekki siður
merk er sti, að ferill Péturs Thor-
steinssonar i utanrikisþjónust-
unni er nokkurnvegin jafngamall
lýðveldinu. Hann hefur tekið lög-
fræðipróf 1944 og byrjar störf fyr-
ir utanrikisráðuneytið 1. júni
1944, nokkrum dögum áður en
lýðveldið er endurreist. Hann er
þvi sá maður, sem einna mestan
þátt hefur átt I uppbyggingu utan-
riksiþjónustunnar eins og auð-
veldlega má sjá af starfsferli
hans. Hann hefur verið sendi-
herra hjá helstu stórveldum,
deildarstjóri utanrikisviðskipta,
ráðuneytisstjóri, fyrir utan for-
mennsku i fjölmörgum viðskipta-
nefndum. Og nú hefur hann orðið
sú nýjung að vera fyrstur Isl.
ambassadora á ferð og flugi og þá
um hin mikilvægu gömlu nýsköp-
unarriki Asiu. Svo getur sýnst
sem Pétur vilji i starfi taka nótis
af hugmyndum sagnfræðingsins
Barracloughs um tilfærslur
þyngdarpunkta veraldarsögunn-
ar frá hinu gamla aðsetri hans á
vestanverðri Evrópu.
Aðrir menn væru færari um að
meta starfsferil Péturs Thor-
steinssonar, en mig grunar að það
álit sé með réttu útbreitt, að hann
sé prýðileg fyrirmynd um traust-
an, margfróðan og reyndan em-
bættismann. Areiðanlega hefði
utanrikisþjónustan orðið mun
betri og nytsamlegri, ef að hlutur
atvinnumanna af skóla og gerð
Péturs hefði orðið meiri en raun
ber vitni i þvi ráðuneyti, sem öðru
hvoru verður fyrir miklum
skakkaföllum vegna lákúrulegra
pólitiskra hrossakaupa.
Pétur hóf feril sinn i Moskvu
þegar 1944, og þangað var hann
fyrst skipaður sendiherra 1953.
Nokkru siðar gerðist það í fyrsta
skipti að islenskir stúdentar
kæmu á þær slóðir. Er nú
skemmst frá þvi að segja, að þau
;frú Oddný gerðu okkur sendiráðs-
húsið við Brauðgötu að kær-
komnu athvarfi með gestrisni á-
gætri og velvild sem lengi verður
i minnum höfð með þakklæti.
Arnaðaróskum til Péturs og hans
ágætu konu fylgja og siðbúnar
þakkir fyrir langar samræður og
deilur fróðlegar um Sovétrikj-
anna og annarra landa gagn, böl
og nauðsynjar.
Arni Bergmann.
B
IANDSVIRKJON
Auglýsing
Skrifstofa Landsvirkjunar verður flutt
næstu daga frá Suðurlandsbraut 14 að
Háaleitisbraut 68, Reykjavik.
Skrifstofan verður opin á fyrrnefnda
staðnum á venjulegum skrifstofutima
meðan á flutningunum stendur, en frá og
með mánudeginum 14. þ.m. á siðarnefnda
staðnum. Simanúmer og telexnúmer
haldast óbreytt.
Reykjavik, 6. nóvember 1977
LANDSVIRKJUN
Hjúkrun-
arfélag
/
Islands
KAMRÍEYJAR
eyjar hins eilífa vors
MALLORKA
Vitið þér að Mallorca cr eftirsótt vctrarparadis fyrir milljónir
norður Evrópubúa. Þar crsólrikt og yndislcgt vctrarvcður, dags-
hitinn oftast 20-28°, cnda falla appclsinurnar af trjánum a
Mallorca i janúarmánuði, og sitrónuuppskeran cr í fchrúar.
BESTU HÓTELIN OG
ÍBÚÐIRNAR SEM VÖL ER Á
Sunna býður upp á bestu hótelin, íbúðirnar og smáhýsin, sem
fáanleg eru á Kanaríeyjum. Corona Roja, Corona Blanca, Koka,
Rondo, Sun Club, Eugenia Victoria, Los Salomones, Atindana
bungalows og Don Carlos íbúðir í Las Palmas.
Sunna býður upp á vinsælt dagflug á laugardögum.
Hægt er að velja um 1, 2, 3 eða 4 vikna ferðir.
Brottfarardagar: 5., 26. nóv. 10., 17., 29. des. 7., 14., 28. jan. 4., 11.,
18., 25. fcb. 4., 11., 18., 25. marz. 1., 8., 15., 29. apríl.
Pantið snemma meðan ennþá er hægt að velja um brottfarar-
JÓLAFERÐ MALLORCA
18. des. - 4. jan. Beint dagflug. Dvalið á eftirsóttum íbúðum og
hótelum, s.s. Royal Magaluf, Portonova, Hótel Barbadon,
Guadalupc og Helios.
ÓDÝR LANGTÍMA VETRARDVÖL
Brottfor 4. janúar. Dvalið i 10 vikur með fullu fæði á Hótel
Helios. Oll herbergi mcð baði og sólsvölum, glæsilcgir sam-
komusalir, dansað á kvöldin, sundlaug í garðinum, rétt við bað-
ströndina. Verð aðeins kr. 159.000. Flugferðir, hótel og fullt fæði
állan tímann.
daga og gististaði.
Látið drauminn rætast . . . Til suðurs með Sunnu.
LONDON
Munið ódýru Lundúnarfcrðirnar.
Brottfarir alla þriðjudaga.
FEMASKRIFSTDFAN SDNNA UEKJARGÖTU 2 SIMAR 16400 12070
Félagsfundur verður á Hótel Sögu,
Atthagasal mánudaginn 7. nóvember n.k.
og hefst kl. 20.30.
Fundarefni:
Aðalkjarasamningurinn.
Kjararáð H.F.í.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
Björns Svanbergssonar,
forstjóra.
Bergþóra Jónsdóttir
Hrafnkell Björnsson
Dagbjört Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Hrafnkelsson
Ingveldur Björnsdóttir
Gunnar Þórðarson
og systkini hins látna.
Dl NewYoik
að sjá þaö mjjasta
Tækni — eöa tískunýj ungar, það nýjasta í
læknisfræói eöa leiklist, þaö sem skiptir máli í
vísindum eöa viöskiptum.
Það er í rauninni sama hverju þú vilt kynnast
— þú finnur þaö í Bandaríkjunum — þar sem
hlutimir gerast,
New York er mikil miöstöö hvers kyns lista,
þar eiga sér stað stórviöburðir og stefnumótun
í málaralist, leiklist og tónlist svo dæmi séu
nefnd.
Frá New York er ferðin greiö. Þaöan er stutt í
sól og sjó suður á Flórida - eöa í snjó í
Colorado.
Svo er einfaldlega hægt að láta sér líða vel viö
aö skoöa hringiðu fjölbreytilegs mannlífs.
New York — einn fjölmargra
staða í áætlimarflugi okkar.
flucfélac LOFTLEIBIR
ISLANDS