Þjóðviljinn - 06.11.1977, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 06.11.1977, Blaðsíða 21
Sunnudagur 6. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 Sköpun Evu — Hvað veit ég, hann sagðist bara ætia að segja henni til i hellafræðum Ekki gripa fram í fyrir honum meðan hann er að sýna garðinn — Þetta er rósin. Notkunarreglur: maður leggur botninn á nefinu ofan á blómhnappinn... — Grænar baunir. Umbúnaður vor er hylki, það er heilsusamlegt og praktiskt i senn... Adolf J. Petersen: VÍSNAMÁL Dynur á stræti dropaslag Það er oft sagt, að skálda- launin lendi ekki ætið á réttum stöðum, hvað sem þvi veldur. Eitt et vist að margir eru þeir sem ekki hljóta arð af andlegri framleiðslu sinni, en ef til vill einhverjir aðrir. Sigurgeir Þor- valdsson i Keflavik hefur um það þetta að segja. Margur græðir aldrei á andans fræðum sinum —, öðrum þræði aðrir fá arð af kvæðum minum. Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla, en Bragi Jóns- son frá Hoftúnum hefur kannski aðra. meiningu: Fjarlægðin þó finnist þér fegurð mesta geyma, sannast það að ætið er allra fegurst heima. Viða fósturfoldar mér fegurð birtist sýnum. Sveitin min þó ávallt er efst i huga minum. Hverjum og einum finnst sinn blettur fegurstur. Þórhildur Sveinsdóttir frá Hóli kvað: Dagsins striti frá ég flý fegin öllu að gleyma, ef að daglangt dvei ég i dölunum minum heima. En það eru ekki allir sama sinnis: Er i sjóði ei hjá mér unaðs hróður finna. Enga glóð af ást ég ber til æskuslóða minna. AJP Lifið leikur ekki við alla. Þor- leifur Kolbeinsson frá Háeyri kvað: Lifið manns er leiðindi, lunti, böl og andstreymi, allra mesti óþarfi sem ekki svarar kostnaði. Þrátt fyrir ýmsar hrellingar gat Sigurður Breiðfjörð brosað móti fegurð himinsins og kvaö: Sólin klár á hveli heiða hvarma gljár við baugunum, á sér hár hún er að greiða upp úr bárulaugunum. Sunnlendingar vita að stundum er sólskin, þótt hitt sé oftar; sennilega hefur verið rigning þegar Tryggvi Emilsson kvað: Dynur á stræti dropaslag dals og vætir kinnar, hreinsar nætur, heiðir dag, hugann bætir innar. „Hinir gömlu góðu timar” eru enn sem fyrr eitthvað sem vert er að muna eftir, að mörgum finnst. Það er sem ljómi frá liðnum dögum í minningunni hjá Höllu Loftsdóttur: Er minn hugur horfin stig hvarflar leiðir sinar, vilja stundum verma mig vonirnar brostnu minar. Þeim á brautum brosir margt biikið helgra dóma. Skinið er svo skirt og bjart að skuggarnir sjálfir ljóma. Heimspekin sækir á suma menn. Teitur Hartmann kvað: Allir tosa inn i heim erfða syndapoka. Fortiö manna fylgir þeim fram til æviloka. Fyrr en varir feigðargrip fast að kverkum herðir, ónýtast i einum svip allar ráðagerðir. En góður er hver genginn: Margan eltir ærurán, uns hann liggur dáinn, en bætt er fyrir brigsl og smán með blómsveigum á náinn. Margt gengur hinn sama veg. Lárus Salómonsson i Kópavogi kvað: Fæstei breytt um forlög neins, fingur lifs þau teyma. Stundum rennur elfan eins og aöföll hennar streyma. Allt flýtur að einum ósi,segir Lárus: Ævi skörin brotnar breiö, blóðug gerist slóðin. öll við förum eina ieið yfir fjörumóðinn. Manngeröin er misjöfn. Þórður Halldórsson á Dag- verðará kvað: Manna reynist misjöfn gerð, I minni og huga festu: Umgangast þá æðstu verð- eins og sýkla verstu. Krists eru orðin ennþá skýr, engu rikir fórna. Fátæktin er furöu dýr fyrir þá sem stjórna. Vestur-lslendingurinn Jón Stefánsson kvað: Fölsuð blekkir, þruggar tál, bræöi skekkir vitið, en það er ekkert efamál, úlfúð hnekkir hverri sál. Likt þessu er veðurlýsing hjá Jóni: Fýlu rudda grimu grett græði nuddar, treður vætu sudda-þoku þétt, það er tudda veður. Það er ekki allt sem sýnist. Sigurgeir Þorvaldsson, Kefla- vik, kveður svo: Eitt sinn hitti maður mann mann, sem enga þekkti. Þekkti enginn heldur hann, hann því alla blekkti. Svo er þetta kannski sjálfs- blekking sem Sigurgeir kveður um: _ Maður nokkuð yngist upp eftir hverja stöku — . Makans strýkur mjúkan hupp milii svefns og vöku. Nú eru strokurnar vel þegnar. Sigurgeir segir: „Allt mitt færi illa geð” æpti mærin Hulda, ,,ef ég væri ekki með einhvern lærakulda.** 1 Rósarimum kveður Jón Rafnsson þannig: Vinarkveðja að vonum hér verður blandin trega. Menjaþöll og mækjagrér, minnast ákaflega. Andans flótti ógnar mér, orðagnóttin flúin. Njörvadóttir nálgast fer, nærri þróttur búinn. Af ýmsum ástæðum komast menn i vanda. Guðmundur Gunnarsson á Tindum kvaö: Skulda ótta að mér slær, aldrei rótt má verða, vökunóttum valda þær. vinnuþróttinn skerða. Þó á mér hvili eins og biý iðgjöld heimsku minnar, dauðahaldi held ég I hálmstrá vonarinnar. Kannski hefur gatan ekki veriðauðrötuð. Baldvin Jónsson skáldi kvað: Ég er á vöndum villustig, veikist önd af trega. Hefur i böndum mæða mig mikiö hönduglega. Um skilningsleysi og sitthvað fleira orti Hreiðar Eyjólfsson Geirdal: Til að greina böl frá bót brestur skilning taman. Allir vita: Gull og grjót getur legið saman. Mönnum titt á móti blæs, margur hrekst á grunninn. Fremur sjaldan flýgur gæs feit og steikt i munninn. Þjóðin öll — i orðum fám — yfir sannleik breiðir. Ekki sjást i ættarskrám ýmsar krókaleiðir. Meðan á verkfalli BSRB stóð kom i Þjóðviljanum undan- þágubeiðni i ljóðum eftir Guðmund Jónsson söngvara; þá var það að einn af lesendum blaðsins hugsaði upphátt.en vill þó ekki láta nafns sins getiö: Hefur vaxtað vel sitt pund, visast soltiö eigi. Guðmundur i „garnalund” gekk á sjötta degi. Ilann i leyni lagði af sér lurðuflein án tafa, en bölvaö mein þar ekki er orðið skeini að hafa. Sendir hafa verið tveir botnar, sá fyrri við: Krafla er af óstjórn lands orðin raunsæ myndin. Karl Jónsson á Kleppsvegi botnar svo: Hugur minn er hugsun blands hverra eign er syndin. Siðari botninn er við: Útvarpsdyrum enn er læst, engin mynd á skjánum. Jóhannes Asgeirsson frá Pálsseli bætir við: Það er af þvi ekkert fæst útúr þessum bjánum. Eldri kona hringdi og kvaðst hafa lært eftirfarandi visu þegar hún var ung,en ekki vita um höfundinn, og biður þá sem það kunna að vita að láta Visna- mál fá höfundarnafn: Þú ert að smiða þundur skiöa, þig vel prýða verkin slyng. fcg er að skriða vesæll viða vafinn kviða og mótlæting. Og hver veit rétt skil á þessum visuhelming? Klukkuna vantar kort i rok, komin er sex á norðan.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.