Þjóðviljinn - 06.11.1977, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 06.11.1977, Blaðsíða 24
P/ODVH/i m Sunnudagur 6. nóvember 1977 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348. Ci 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans I sima- skrá. Bókaútgáfan Bjallan nemur land í Bröttu- götunm 1 SHIÍ — |Ui=ÍJ m-. es u fflfflnglpwffi PTTii nii QQJöl Aðalstræti tfri.qi.iitXLat Ðókaútgáfan Bjallan hefur nú flutt f nýtt húsnæði að Bröttugötu 3-A í Grjótaþorpinu og verður þar daglega opið á milli kl. 4 og 6. Bjallan var stofnuð áriö 1973 og hefur siðan einbeitt sér aö útgáfu fræðibóka fyrir börn og unglinga. Tveir bókaflokkar hafa komið út á vegum Bjöllunnar, þýddir úr ensku. Er þar i fyrsta lagi að nefna Bjöllubækurnar: Mannslik- aminn, Geimferðir, Merkar uppfinningar, Billinn, Næturhim- inninn Ljós, speglar og linsur. Hinn flokkurinn nefnist: Alfræði barnanna, Forsöguleg dýr Tölur og hlutföll, 1 fjöruborðinu, Or heimi skordýranna, Vatnið og Blómjurtir. Báðum þessum bókaflokkum var mjög vel tekið af kennurum og þeir hafa mikið verið notaöir við sjálfstæða heimildaöflun i skólum. A þessu hausti hafa þrjár nýjar bækur komiö út á vegum Bjöll- unnar: Berin á lynginu er úrval ævintýra, ljóða, leikja og sagna. I bókinni er til skila haldið mörgu þvi helsta i barnabókmenntum heimsins, er telst hafa varanlegt gildi. Fjórir norrænir sérfræðing- ar um lesefni barna hafa annast valið, en þýöandinn, Þorsteinn frá Hamri, hefur með tilliti til sumra myndskreytinganna, skeytt inn nokkru af islensku efni. Myndirnar eru ýmist gamlar og góðkunnar eða nýjar af nálinni og sumar beinlinis unnar fyrir þessa bók. Þær ættu engu siður en texti bókarinnar, að geta orðið góðir heimilisvinir á Islandi. Norræni Menningarmálasjóðurinn veitti styrk til útgáfunnar. Prentstofa G. Benediktssonar setti bókina, auk þess sem hún sá um umbrot og filmuvinnu og er hlutur Prent- stofunnar allur hinn ágætasti. Bókin er prentuð i Póllandi i sam- vinnu við sænsku útgáfuna Bonniers. Örvar-Oddssaga kemur út I fyrsta sinni hérlendis i elstu og upprunalegustu gerð sinni. Sagan á heima i þeim flokki fornra rita er tiðast er nefndur Fornaldar- sögur Norðurlanda. „Örvar-Odd- ur er stórbrotið afkvæmi sagnaþokunnar, sem hvilir yfir Noröurþjóðum fyrir íslands- byggð þegar vikingaferðirnar voru að hleypa öllu i ærsl og busl”, segir Þorsteinn frá Hamri i formála, en hann bjó söguna til prentunar meö nútimastafsetn- ingu og samdi skýringar. Guðrún Svava Svavarsdóttir teiknaði myndir ibókina. Setningu umbrot og filmuvinnu annaðist Prent- stofa G. Benediktssonar. ísafoldarprentsmiðja sá um prentun og bókband. Ættum við að vera saman?? Bókin fjallar um Tómas. Hann er heilaskaðaður, vangefinn, þroskaheftur, fatlaður. Nafniö, sem við notum um ástand Tómas- ar, skiptir ekki máli. Barnið sjálft skiptir máli. Tómas segir okkur frá ýmsu, sem hann getur gert einn eða með aöstoð annarra. Hann hefur ánægju af sömu hlutum og önnur börn. Munurinn á Tómasi og öðrum börnum er sá, að hann þarf meiri hjálp en flest önnur börn til að framkvæma það, sem talið er sjálfsagt að börn á hans aldri geti. Bókin er kjörinn grundvöllur til umræðna um vandamál fjölfatl- aðra barna. Höfundur hennar er Hanne Larsen, en Bryndis Viglundsdóttir, sérkennari, þýddi bókina. Prentstofa G. Benedikts- sonar sá um setningu og myndun texta. Bókin er prentuð i Dan- mörku i samvinnu við dönsku bókaútgáfuna Borgen. Auk þeirra bóka, sem hér hafa verið nefndar og komnar eru út er á næstunni væntanleg fræðibók fyrir börn og unglinga um þorsk- inn, eftir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðing og Kolbrúnu Sigurðardóttur kennara. Fjallar Ý 5 bókin m.a. um liffræði þorsksins, veiðar og vinnslu, landhelgisdeil- ur og fiskivernd. Bókina prýðir fjöldi mynda og teikninga. Hún er hentug i átthaga- og samfélags- fræðikennslu i grunnskólum. Fiskimálasjóður veitti styrk til útgáfunnar. Framangreindar upplýsingar Framhald á bls. 22 STANLEY I® Verkfærin sem fara vel í hendi Góð verkfæri þurfa að fara vel í hendi, að öðrum kosti standa þau ekki undir nafni sínu og merki. STANLEY verkfærin hafa frá upphafi verið talin með bestu verkfærum, sem völ er á. Sumir fagmenn vilja alls ekki önnur verkfæri, hvort sem það heitir hefill, hamar, skrúfjárn eða surform, — meðal annars vegna þess hve STANLEY fer vel í hendi! ✓

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.