Þjóðviljinn - 06.11.1977, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. nóvember 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis.
tJtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Auglýsingastjóri:-Úlfar Þormóösson
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Sföumúia 6. Simi 81333.
Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
úmsjón meö sunnudagsblaöi' Arni Berg-
,nann Prentun: Blaöaprent hf.
60 ár
\
Þá kviknaði von mannkyns var kveðið
um októberbyltinguna sem minnist sextiu
ára afmælis i dag. En hún kviknaði af
neistum sem voru áður til, af veiku skari
Parisarkommúnunnar og af hugsjónum
stéttabaráttunnar, af marxismanum,
kenningunni um sósialismann, þjóðfélagið
þar sem frjáls þróun einstaklingsins er
skilyrði fyrir frjálsri þróun heildarinnar.
Fyrir þvi þjóðfélagi er barist vopnum
stettabaráttunnar um allan heim. Af þess-
um neistum hefur lifað eldur hugsjónar,
hann lifir enn, oft veikur, stundum skær.
Allskonar öfl hafa vegið að þessum hug-
sjónum, helst auðvitað þau sem hugsjón-
irnar beindust gegn og beinast gegn:
Arðræningjum og gróðaöflum, sem fótum
troða mannleg verðmæti. Arfur fortiðar-
innar hefur einnig reynst þessari glóð
hættulegur, ekki sist i sjálfu landi
októberbyltingarinnar. Þvi miður.
Sósialistum er skyldara en öðrum að
fylgjast með þróun mála i Sovétrikjunum:
þeir þurfa að skoða það sem vel gengur og
ekki siður' það sem miður fer. Það er
margt. Nú er svo komið að eldur hug-
sjónanna er furðuveikur i landi byltingar-
innar: en vonin lifir enn, þeim mun
bjartari annars staðar.
Sigur sósialismans er ekki við næsta
götuhorn, sósialisminn verður ekki feng-
inn á silfurfati einhverrar valdatöku i eitt
skipti fyrir öll Sósialisminn felur i sér
þrotlaust starf og átök við hin hversdags-
legustu vandamál. Stóri-sannleikur er
ekki til, sist i sósialismanum, sem sætir
lögmálum breytinganna og byltingarinn-
ar. Sá sem reynir að breyta sósialisman-
um i endanlegan stórasannleik hættir að
takast á við vandamálin, fyrir honum er
sósialisminn trúarbrögð, ekki iðandi og
sikvikult mannlif.
Sovétrikin og októberbyltingin eru
stærstu tiðindi þessarar aldar. Þau hafa
haft varanleg áhrif á alla heimsmyndina
og skipt sköpum i ægilegustu stéttaátök-
um aldarinnar, þegar framsókn fasism-
ans var stöðvuð. Tilurð og tilvera
Sovétrikjanna, októberbyltingin, hefur
sett svipmót sitt á alla umræðu i afskekkt-
ustu afkimum veraldarinnar i sextiu ár.
Til marks um það er margt: eftirminnileg
hlýtur að verða frásögn Tryggva Emils-
sonar i „Fátæku fólki” af þvi hvernig
rússneska byltingin kom við ungan dreng
frám i einu afskekktasta og fátækasta koti
á íslandi á sinum tima. Enn i dag eru áhrif
októberbyltingarinnar veruleg og enn
valda þau spurningum, vekja efasemdir,
vonbrigði og vonir. Þess vegna er skylt að
reyna að vega og meta staðreyndir eins og
reynt er i Þjóðviljanum i dag á 60 ára
afmælinu.
Samskipti íslands og Sovétrikjanna
hafa um margt verið með jákvæðum hætti
á þessum siðustu áratugum: má þar
fremst nefna afstöðu sovétstjórnarinnar
til útfærslu landhelginnar i 12 milur, 50
milur og 200 milur. Þá skal minnt á við-
skipti landanna með fisk, og ekki siður á
þau menningarsamskipti sem birst hafa
meðal annars i þýðingum bóka, fleiri og
margbreytilegri en gerist jafnvel með
þeim þjóðum sem nær okkur eru. Allt eru
þetta mikilvægir þættir að minnast ekki
aðeins á afmæli, heldur einnig i hinu dag-
lega lifi.
Eftir önnur sextiu ár frá októberbylt-
ingu kemur upp ártalið tvö þúsund þrjátiu
og sjö. Þá mun margt hafa breyst frá þvi
sem nú er: hér skal engu spá
en fullyrt að þá verði sá kyndill sósialism-
ans sem kveiktur var fyrir 60 árum enn
bjartari en nú i landi októberbyltingarinn-
ar, þá hafi nýjar kynslóðir lyft hugsjóninni
i hæðir á ný — i Sovétrikjunum eins og
annars staðar. Þess vegna er manninum
boðið upp á að eiga von þrátt fyrir allt sem
misfarist hefur á langri vegferð. —s.
Tvær fiugur f einu: jarkahögg f brjóstkassann og spark I hnésbæturnar.
Líkamsmeiðingar í knattspyrnu:
FRYSTU
ÞENNAN!
þaö er sama hvernig þú ferð að
Á laugardaginn mun
braka í beinum segja þeir
sem vel þekkja til at-
vinnuknattspyrnu, sem
verður sífellt hraðari og
grimmari. Með sakleysis-
svip munu stjörnur fótbolt-
ans beita svivirðilegustu
brögðum til að koma and-
stæðingnum úr leik.
Þaö eru aöeins asnar sem nota
gróf brögð, segir i nýlegri grein
um þetta mál í þýska vikublaöinu
Stern. Brögðin verða æ verri og
verri.
Þaö er hægt aö valda miklum
sársauka t.d. með þvi aö stinga
spenntum visifingri og löngutöng
i lend andstæðingsins — og oftast
verður ekki eftir þessum
skepnuskap tekið. Það er hægt að
krækja fingri í auga manns eða
skalla i nefbein hans svo litið beri
á. Það er hægt að reka olnbogann
snöggt og eins og óvart i maga
eða rifjahylki andstæðings.
Daglega fjölgar þeim at-
vinnumönnum sem leggja slika
og þvilika iðju fyrirsig. Dómarar
eiga erfitt um vik. Flest afbrotin
gerast i þvögu innan vitateigs,
þegar allir hafa augun á boltan-
um, eða rétt áður en hornspyrna
er tekin meðan allir eru á þönum
eftir sem hagstæðastri stöðu.
Annað er, að yfirleitt hika
knattspyrnumenn við að kæra
hvern annan. Þeir hyggja heldur
á hefndir siðar. Þegar Jupp
Kappellman frá Bayern Milnchen
var kærður fyrir að hafa af ásettu
ráði sparkað i sköflung Werners
Lorant frá FC Saarbrflcken,
svaraði hann þvi til, að Lorant
hefði byrjað: Fyrir nokkru kleip
hann fast um punginn á mér i
hornspyrnuringulreið, sagði
Kappelmann.
Klögumálin ganga á vixl, dóm-
ararnir fórna höndum eða segja
sem svo:
Hvað annað geta strákarnir
gert? Þjálfarinn segir sem svo:
Frystu hann þennan. Og það spyr
enginn að þvi hvernig að þvi er
farið.
Snöggt högg i magann á þeim sem
ætlaöi að verfta fljótur 1 boitann.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSSPÍTALINN
HJCKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast til starfa nú þegar eða eftir
samkomulagi á Barnaspitala
Hringsins (7-C).
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast
nú þegar i framhaldsnám i skurð-
stofuhjúkrun.
Upplýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri spitalans simi 29000.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast til starfa á deild 5.
H Jú KRUN ARFRÆÐIN GUR óskast
i hálft starf á göngudeild.
Upplýsingar veitir hjúkrunarfram-
kvæmdarstjóri simi 42800.
KLEPPSSPÍTALINN
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Ósk-
ast, fullt starf eða hlutastarf kemur
til greina. Barnagæsla á staðnum og
húsnæði i boði. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri i sima 38160.
LÆKNARITARI óskast nú þegar til
starfa, stúdentspróf eða hliðstæð
menntun nauðsynleg ásamt með
góðri réttritunarkunnáttu og leikni i
vélritun. Upplýsingar veitir lækna-
fulltrúi simi 38160.
Reykjavik, 4. nóvember 1977.
SKRIFSTOFA
Rí KISSPÍ TAL ANN A
EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000