Þjóðviljinn - 20.11.1977, Síða 3

Þjóðviljinn - 20.11.1977, Síða 3
Sunnudagur 20. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA .3 Söfnuðir bandarískra lútherstrúarmanna taka upp helgisiöi gyðinga Aftur til frumkristni Bandaríska blaðið New York Times skýrir svo frá/ að lútherska kirkjan í Bandaríkjunum saki ýmsa söfnuði sína um að taka upp gyðinglega helgisiði, og að sögn blaðsins eru þær ásakanir ekki með öllu rakalausar. Eru til nefndir tveir söfnuðir lútherana i Long island/ sem leggi að vísu út af guðspjöllunum í kirkjum sína/ en viðhafi helgisiði gyðinga. „Viö höfum lika tekiö upp nokk- uö svo gyöinglegt liferni,” segir John Hove, einn þriggja presta sem þjónar téöum söfnuöum. Hann segir að þvi fylgi aö safnaðarfólkið tileinki sér mata- ræöi gyðinga, og við guðsþjónust- ur klæöist þaö jarmútk og talliþ (bænasjali gyðinga) og syngi og biðjist fyrir á hebresku. ,/Jesús var gyðingur." ,,Ég skynja mig sem gyðing,” segir séra Hove. ,,Ég vil lifa eins og gyöingur, lifa eins og lögmál gyöinga (Tora) segir aö ég skuli lifa.” Hvers vegna? Annar prestanna þriggja, séra Donald Smestad, svaraöi spurn- ingunni þannig: „Jesús var gyö- ingur, er gyöingur og veröur allt- af gyöingur.” — Frá sjónarmiöi þeirra, sem ekki taka helgisögn- ina um hið guölega faöerni höf- undar kristindómsins bókstaf- lega, er þaö vist mála sannast. Þar viö má bæta aö margir virt- ustu lúthersku guöfræöingar samtimans halda þvi fram aö meistaranum frá Nasaret hafi áreiðanlega aldrei dottiö þaö i hug að hann væri aö stofna ný trúarbrögö. Prestar þeir þrir, sem hér um ræöir, eru allir um hálffimmtugt að aldri og hafa allir komist aö núverandi sannfæringu sinni siö- ustu tiu árin eöa svo. Þeir segjast hvergi hræddir við æöstu ráöa- menn lúthersku kirkjunnar i landinu, þvi aö miöstjórnarvald hennar sé i rauninni ekkert. Hver söfnuður er sjálfstæöur og þótt hægt sé aö reka hann úr sam- bandi lúthersku safnaðanna, er ekki hægt að banna honum að hafa þá helgisiöi, sem hann helst vill. Helgisiðir heiðingja Sóknarbörn prestanna þriggja hafa brugðist mjög misjafnlega viö þessari ráöabreytni þeirra. Sumir hafa gengið úr söfnuöun- um, aðrir orðiö eftir I von um aö helgisiðunum yrði aftur breytt til réttrar lúthersku og enn aðrir hafa sætt sig viö nýbreytnina. Ennfremur hafa þó nokkrir nýjir safnaðarmeðlimir bæst viö, bein- linis vegna nýbreytninnar. í öör- um safnaöanna eru nú aðeins eft- ir rúmlega tuttugu af um 700 sóknarbörnum, sem voru I söfn- uöinum þegar byrjaö var aö messa á hebresku, en hinsvegar hafa nokkrir nýjir bæst viö i staö þeirra sem fóru. Þá má geta þess aö innbrot var framið i aöra kirkjuna og rifiö hliföarhylkiö utan af bókrollu með lögmáli gyöinga. Prestarnir segja aö ekki sé vafi á þvi aö gyö- ingahatarar séu I söfnuðunum, kannski meira aö segja margir. „Þegar viö byrjuöum á þessu,” sagði einn þeirra, „uröu mörg sóknarbarna okkar gyðingahatar- ar eða uppgötvuöu aö þau höföu alltaf veriö þaö.” „Meginmunurinn á okkur og gyðingum er sá, að viö viður- kennum Jesús sem Messias,” segir séra Smestad. Fyrst þeir viðurkenna Jesús sem Messias, hversvegna vikja þeir þá frá venjulegri kristni? „Við höfum kosið aö likjast kristinni kirkju eins og hún var á fyrstu öld, þegar margir gyöingar viöurkenndu Krist sem Messias,” svarar séra Smestad. „Jerúsalem var lögö i eyði áriö 70 og þar meö missti kirkjan miö- stöö sina. Þá glataöi kristin kirkja gyöinglegum erfðavenjum sinum og tók upp siði heiðingja.” Séra Smestad hefur tekið upp nýtt merki fyrir söfnuð sinn, og fara þar saman krossinn og Daviðsstjarnan. Hann játar hins- vegar aö hann sé nokkuð utan- veltu. „Hvorki lútherska kirkjan né trúarsamtök gyðinga vilja telja mig i sínum hópi,” segir hann. Sjálfum datt honum aldrei i hug aö hann yrði höfundur nýrra trúarbragða, aö áliti margra nú- timaguöfræöinga. dþ. 5 ÁR 1972 25. nóv 1977 / I tilefni þess að fimm ár eru nú frá opnun J.L. Hússins bjóðum við viðskiptamönnum okkar 5% aukaafslátt af öllum Höfundur F. Astríks látínn Réne Goscinny, höfundur Ast- riks og Steinriks og Lukku láka og ýmissa merkra kunningja ú heimi teiknimyndasagna er lát- inn. Hann féll af þolhjóli: hjartaö þoldi ekki áreynsluna. Goscinny var afburöasnjall teiknari, sem hefur haft áhrif á heila kynslóö myndasögusmiöa. Hann, ásamt belgiumanninum Hergé (höfundi Tinna) hefur öör- um fremur unnið aö þvi að trufla þá einokun sem Bandarikja- menn höföu lengst á þessum áhrifamikla fjölmiöli. Myndin sýnir Ástrik og Steinrik bera höfund sinn til grafar. Bókmenntakynning í Norræna húsinu I dag, sunnudag, kl. 3 e.h. verður bókmenntakynning i Norræna húsinu. einar Bragi leá úr öðru bindi Eskju, bókarinnar um Eskifjörð. Á eftir verður sýnd litkvik- mynd um Eskifjörð. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Einar Bragi mun árita bókina fyrir þá sem óska. Bókin kemur út á mánudag og veröur dreift frá Frimerkjahúsinu, Lækjargötu 6 A, simi 11814 og bæjarskrifstofunni á Eskifirði, simi 976170. vörum J.L. Hússins öðrum en eldhúsinnréttingum og heimilistækjum. Þetta gildir aðeins í þessari viku frá mánudegi til föstudags 5% staðgreiðsluaf- sláttur af málningar- vörum, veggfóðri, gólf- dúk, flisum, verk- færum, hreinlætis- tækjum, rafljósum, raftækjum og innflutt- um húsgögnum. /■/>.* staðgreiðsluafsláttur I af islenskum JL / ö húsgögnum. á\CY7 staðgreiðsluafsláttur 1 1 a^/á\ afstökum mottum og Ji. vr / U gólfteppum. afsláttur af öllum kaupsamningum. ATH. við veitum einnig staðgreiðsluafslátt af póstkröfusendingum. Komið og skoðið mesta húsbúnaðarúrval landsins á einum stað. 5 hæðir — 5000m Jón Loftsson hf. rTt'H?!.....H..f'TI'fHirr*. Hringbraut 121 Sími 10600

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.