Þjóðviljinn - 20.11.1977, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. nóvember 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýöshreyfingar
og þjóöfrelsis
(Jtgéfandi: Otgáfufélag Þjóðviljans. Auglýsingastjori: Clfar Þormóðsson
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar srðumúla 6. Simi 81333.
Gestsson.
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaði: Árni
Bergmann. Prentun: Blaðaprent hf.
Islensk atvinnustefna
í ræðu sinni á landsfundi Alþýðubanda- í kjölfar stóriðju-hugmyndanna hefir
lagsins á föstudaginn, ræddi Lúðvik Jó-
sepsson, alþingismaður, itarlega stefnu-
mörkun flokksins i efnahags- og atvinnu-
málum. Lúðvik sagði m.a. ,,'Atökin um
verðbólguna, kjaramál dagsins og tima-
bundnar ráðstafanir til þess að draga úr
verðbólguvandanum og skipa reksturs-
málum þjóðarbúsins eitthvað skynsam-
legar en nú er gert, eru að visu mikilvæg
mál og stór-mál — en þau eru þó lítil i
samanburði við átökin um það, hvernig is-
lenzkt þjóðfélag skuli þróast á komandi
árum á sviði atvinnumála.
Þau öfl i okkar þjóðfélagi, sem hafa ein-
sett sér að sveigja islenskt atvinnulif i
vaxandi mæli inn á braut erlendrar stór-
iðju, eru býsna sterk. Þau öfl hafa sér-
staklega hreiðrað um sig i forystuliði
Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins og einnig talsvert i liði Alþýðu-
flokksins. Þessi öfl hafa uppi mikil áform
um erlenda stóriðju og vilja jafnframt
ryðja erlendu einkafjármagni braut inn i
islenskt atvinnulif.
Þau knúðu fram byggingu járnblendi-
verksmiðjunnar i Hvalfirði, sem nú dreg-
ur til sin milljarða króna, sem beint fram-
lag rikissjóðs.
Þau knúðu fram ákvörðun um byggingu
Hrauneyjarfossvirkjunar ekki fyrir is-
lenskan atvinnurekstur, heldur með
stækkun Alversins i Straumsvik i huga.
Þessi öfl hugsa sér erlenda stóriðju á
Norðurlandi, á Austurlandi og Suðurlandi
og þau hafa gengið svo langt að ræða um
þann möguleika að ísland og erlendur
auðhringur stofnuðu með sér eitt risa-fyr-
irtæki um stóriðju á íslandi, þar sem ís-
lendingar leggðu fram, sem sinn hlut,
allar helstu vatnsorku-auðlindir landsins,
en hinn erlendi auðhringur sæi hins vegar
um stóriðju-reksturinn.
siðan siglt áróður gegn islenskum at-
vinnuvegum. Fullyrt hefur verið að
sjávarútvegurinn geti ekki tekið við fleira
fólki á næstu árum, þar sé um ofveiði að
ræða og gildi hans i þjóðarbúinu geti ekki
orðið meiri en hann er i dag.
Landbúnaðurinn hefur þegar verið
dauðadæmdur af öllum stóriðju-postulum.
Iðnaðurinn fær að visu nokkurt lof i orði
hjá þeim stóriðjumönnum, en ekki þarf
lengi um málefni hans að ræða til þess að
ljóst verði, að islenskan iðnað hugsa stór-
iðjumenn sér aðeins, sem minniháttar
þjónustugrein við hinn erlenda storiðnað.
Það er gegn þessari stefnu um erlenda
stóriðju á íslandi sem við Alþýðubanda-
lagsmenn risum. Við teljum okkur skylt
að upplýsa þjóðina sem best um eðli- og
tilgang þessarar stefnu og þær gifurlegu
hættur sem þjóð og þjóðerni og öllu efna-
hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar er búið af
framkvæmd hennar.
Stóriðjustefnan getur fyrr en varir náð
undirtökunum i islensku atvinnulifi jafn-
vel þó að hún sé framkvæmd i áföngum —•
fyrst ein verksmiðja hér, siðan önnur á
öðrum stað o.s.frv. íslenskt efnahagskerfi
er litið og þolir ekki mikla erlenda innrás.
Gegn þessari stóriðjustefnu reisum við
Alþýðubandalagsmenn okkar íslensku at-
vinnustefnu.
Með henni viljum við sýna og sanna
þjóðinni að möguleikar hennar til atvinnu-
uppbyggingar og atvinnulegra framfara
eru gifurlega miklir. Auðlindir hafsins i
kringum landið, landsins sjálfs, gróður-
moldar, heita vatnsins og fallvatnanna
eru svo stórkostlegir að það er hrein firra
að tala um verkefnaskort okkar litlu þjóð-
ar á komandi árum.
Við höfum reynt i tillögum okkar að
draga fram ýmsar staðreyndir um þessa
atvinnumöguleika. í málflutningi okkar
Alþýðubandalagsmanna á þessu sviði er
það höfuð nauðsyn, að okkur takist að
kveða niður hinn erlenda stóriðju-draug,
og jafnframt að sannfæra almenning um
það, að islensk atvinnustefna er rétt og að
henni eigum við að snúa okkur. Það er af
hálfu okkar Alþýðubandalagsmanna
grundvallaratriði nýrrar atvinnustefnu að
íslendingar eigi og ráði sjálfir sinum at-
vinnutækjum og að atvinnureksturinn sé
miðaður við þarfir fólksins og hagsmuni
þjóðarheildarinnar, en ekki þröng
gróða-sjónarmiðsvonefndra eigenda at-
vinnutækjanna.
1 þeim kosningum sem i hönd fara verð-
ur að venju tekist á um mörg mál. Af okk-
ar hálfu mun bera hæst á sviði efnahags-
og atvinnumála, baráttan gegn erlendri
stóriðju, og baráttan fyrir islenskri at-
vinnustefnu, og baráttan gegn gengis-
lækkun og kjara-skerðingarstefnu rikis-
stjórnarflokkanna, og baráttan fyrir þvi
að allt launafólk i landinu og allt það fólk,
sem vinnur fyrir sér með hörðum hönd-
um, til lands og sjávar, sameinist i póli-
tiskri hagsmunafylkingu fyrir réttlátum
hluta sér til handa af arði þjóðarbúsins.
Alþýðubandalagið er óumdeilanlega
orðinn forystuflokkur launafólks á Islandi,
eini trausti verkalýðsflokkurinn. Það er
jafnframt eini stjórnmálaflokkurinn sem
berst óhikað og án undansláttar gegn
hernaðarlegri, pólitiskri og efnahagslegri
ásælni útlendinga i islensk málefni.
Það er ekki takmark okkar Alþýðu-
bandalagsmanna að komast i rikisstjórn
að loknum næstu kosningum — heldur er
hitt takmark okkar að Alþýðubandalagið
verði svo stór og öflugur flokkur, að af-
loknum kosningum, að engum detti i hug
að ráða fram úr hinum þýðingarmestu
málum þjóðarinnar án þess að hafa um
það samráð við verkalýðshreyfinguna, i
viðustu merkingu þess orðs, og flokk
hennar Alþýðubandalagið.
VISINDAMENN VELTA VÓNGUM YFIR
Hinu þriðja formi lífs sem
er um leið hið fyrsta
Fyrr á tímum greindu
menn lifríkið í tvennt, dýr
og plöntur, dýraríkið og
plönturíkið. Með tilkomu
smásjárinnar og viðkynn-
ingu við smásæjar lifverur
kom.í Ijós að þessi tvískipt-
ing dugði alls ekki til, ekki
var hægt að f lokka nær all-
ar örverur til þessara
tveggja meginstofna
stærri lífvera.
Nú á timum er lifrikinu enn
skipt i tvo meginstofna. Þaö eru
þ<5 ekki hinir tveir upprunalegu,
heldur kjarnfrumur, sem bæöi
dýr og plöntur teljast til og dreif-
kjörnungar, sem gerlar teljast til.
Tvö lifsform
Þessi tvö lifsform eru álitin
eiga sameiginlegan forfööur
langt aftur i árdaga, en þau eru
mjög frábrugöin hvort ööru I allri
gerö.
Kjarnfrumur, sem æöri Hfverur
eru byggöar úr, eru 1000 sinnum
stærri en gerlarnir, kjarni þeirra
er skýrt afmarkaöur meö himnu,
i frumunni eru eiginleg frumulif-
færi, sem starfa nær sjálfstætt aö
frumuöndun, ljóstilllfun kjarn-
skiptingu og fleira.
Nokkuö er um liöiö siðan þaö
varö almennt viöurkennt aö þessi
örsmáu frumuliffæri hafa skipm
lag dreifkjörnunga (gerla) og
uppruni þeirra er hinn sami.
Kjarnfrumurnar hafa þvi ein-
hvern tima aftur i öldum tekið ör-
smáa dreifkjörnungana i þjón-
ustu slna, innlimaö þá I skipulag
sitt þar sem þeir sáu um frumu-
öndunina og ljóstilllfunina.en meö
þróuninni hafa þeir algerlega
misst sjálfstæði sitt og geta ekki
lifaö utan kjarnfrumunnar, og
hún getur heldur ekki lifað án
þeirra.
Dreifkjörnungar eöa gerlar eru
mjög fjölbreytilegir aö gerð og
starfsemi. Sumir þeirra þarfnast
sólarljóss, aörir myrkurs, sumir
hita, aörir kulda, sumir lifa ekki
nema inni I sérstökum hýslum
þar sem þeir valda oft sjúkdóm-
um. Þessir gerlar eru allir flokk-
aöir eftir skyldleika og umhverfi
niöur i ættir og tegundir. Fjöl-
breytni þeirra hefur þó valdiö þvi
aö enn eru þekktir hópar dreif-
kjörnunga sem ekki er hægt aö
finna staö i flokkunarkerfi lif-
fræöinnar.
Eldra og einfaldara
Nýlega birtist i International
Herald Tribune grein þar sem
skýrt er frá rannsóknum erfða-
fræöings, sem Woese heitir. Hann
fullyrðir aö hann hafi fundiö nýtt
lifsform sem sé eldra og uppruna-
legra en þau sem menn hafa hing-
að til haldið hin elstu.
Visindamennirnir viö Illinois
háskólann i Bnadarikjunum voru
kostaöir til rannsóknanna af
NASA, geimferðaáætlun
Bandarikjanna og Visindasjóöi
Bandarikjanna. Tilgangurinn
meö rannsóknunum var aö öðlast
meiri vitneskju um uppruna lifs-
ins á jöröinni til þess aö gera
menn hæfari til aö skilja og finna
lif, sem gæti hafa þróast einhvers
staðar annars staöar I geimnum
eöa sólkerfi okkar.
Þetta þriöja lifsform, sem dr.
Woese telur sig hafa fundiö, er
einfaldara aö gerö en bæöi gerlar
og kjarnfrumur.
Eftir biljónir ára finnst lifs-
formið aöeins i súrefnissnauöu
umhverfi eins og djúpum heitum
uppsprettum i Yellowstone þjóö-
garðinum, á botni sjávar og i
innyflum búpenings.
Þessar lifverur hafa hingaö til
veriöálitnarein gerö gerla og vit-
aö hefur veriö aö þær geta þrifist
viö lifsskilyröi sem voru á jörö-
inni 1 árdaga. Þær lifa á koltvi-
sýningi, vetni og vatni en láta frá
sér metangas (CH4).
I greininni segir aö þessi nýja
uppgötvun Woese og félaga hans
muni ekki breyta neinu I þeim
áætlunum sem geröar hafa veriö
til þess aö finna lif á öörum hnött-
um. Geimskip sem send hafa ver-
ið til tunglsins og Marz höföu sér-
: staka skynjara sem heföu fundiö
sérhverja metangasuppsprettu
og heföu þvi átt aö finna eöa
varða varir viö lifverur af þessu
tagi þar. Engar visbendingar
; hafa þó fundist um slikt lif á þess-
um hnöttum.
Tvær ættir eða þrjár
Woese og aðrir þróunarfræö-
Framhald á bls. 22