Þjóðviljinn - 20.11.1977, Qupperneq 24
DIQÐVIUINN
Sunnudagur 20. nóvember 1977
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
L 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.
tttltiUHK
Hver urðu áhrif íslenskrar iðnkynningar
Betur má ef
duga skal
L
Hver urðu áhrif ís-
lenskrar iðnkynningar á
viðhorf almennings
gagnvart íslenskum iðn-
aði og breytingar fólks á
innkaupum? Hvað segja
þær kannanir, sem Hag-
vangur hf. hafði með
höndum um það?
Hagvangur framkvæmdi fjór-
ar spurningakannanir, þar sem
ýmsar spurningar voru lagöar
fyrir valiö úrtak heimila. Jafn-
framt var athuguö sala á nokkr-
um vöruflokkum i þremur
verslunum á Reykjavikursvæö-
inu til þess aö ganga úr skugga
um raarkaöshlutdeild islensks
iönvarnings. Kannanirnar voru
geröar i mai 1976, júni 1976, fe-
brúar 1977 og október 1977.
Þrjár siðari kannanirnar
leiddu i ljós vaxandi áhuga á
málefnum iönaöarins. Sem
dæmi má nefna aö i siðustu
könnuninni töldu 46% spuröra
að I sambandi við innkaup iön-
varnings bæri að hafa i huga
þjóöarhag, gjaldeyrissparnaö,
trygging atvinnu o.s.frv. Til-
svarandi tala i fyrstu könnun-
inni var 16%, i annari 27% og
þriöju 41%. Þeir, sem töldu, aö
fátt eöa ekkert gott væri viö is-
lenskan iönvarnig voru meö öllu
horfnir i tveim siðari könnunun-
um en voru 12% I þeirri fyrstu
og 5% I annari.
Tvær fyrstu kannanirnar
sýndu ekki marktækar breyt-
ingar á markaöshlutdeild is-
lenskra iönvara. Þriöja könnun-
in sýndi hinsvegar umtalsverða
aukningu. Fjórða könnunin,
sem gerö var eftir að iönkynn-
ingu lauk, leiddi I ljós að mark-
aöshlutdeildin fór aftur minnk-
andi.
Af niöurstööum þessara skoö-
anakannana viröist mega á-
lykta aö áhrif iðnkynningarinn-
ar hafi einkum verið tvennskon-
ar:
1. Annarsvegar viröist hafa
tekist að auka vitneskju fólks og
breyta viðhorfum almennings
til isl. iðnaðarvara. Þaö er nú
betur upplýst um islenskan iön-
að og gildi hans en áður. Búast
má viö að áhrif þessi séu nokkuð
varanleg.
2. Hinsvegar gefa niðurstöður
markaðskönnunarinnar tilefni
til aö álykta, að markaössókn
islenskra iðnaöarvara sé ekki
varanleg, þrátt fyrir þann áróö-
ur, sem rekinn var um tima. A
meöan auglýsingaherferðin stóö
sem hæst jókst markaðshlut-
deildin en er dregið var úr henni
minnkaði hlutdeildin á ný. Virö-
ist því aö mun meira þurfi til
þess að breyta innkaupsvenjum
fólks en sú auglýsingaherferö,
sem rekin var.
—mhg
nhg j
CIA
Njósnurum
nú fækkað
WASHINGTON. Stans-
field Turner, núverandi
yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar CIA
hefur tilkynnt að hann ætli
að fækka fólki í njósna-
deild þjónustunnar.
Nú þegar hefur um 200 njósnur-
um verið sagt upp störfum, og á
næsta sumri á aö segja 700 til
viðbótar upp.
Þetta þykir njósnurum allmikil
blóðtaka og segir Herald Tribune,
að mórallinn sé i lakasta lagi I
bækistöövum CIA vegna
uppsagnanna. Sú deild sem er um
aö ræöa hefur 4000 njósnara á sin-
um snærum og þeir hafa' 4000
manna aðstoðarliö.
Turner segir, aö meginástæöan
fyrir þessari fækkun sé sú, aö
njósnatæki allskonar hafi fleygt
mjög fram, þær upplýsingar sem
t.d. gerfihnettir búnir næmum
ljósmyndatækjum geta aflað eru
á viö marga njósnara.
Þá er önnur ástæöa fyrir ráð-
stöfunum Turners sú, að meöan á
Vietnamstriöinu stóö^hljóp mikil
þensla i starfsmanna hald hjá
CIA.
Laun hækka í
Sovétríkjunum
MOSKVU 15/11 Reuter — Nærri
niu miljónir sovéskra
verkamanna sem starfa viö
skólakerfiö, heilsugæslu, fram-
reiðslu og fleira fá launahækkun
að meöaltali 18% fra byrjun
næsta mánaöar, að þvi er Tass-
fréttastofan tilkynnti I dag. Ekki
kom fram i tilkynningunni hve
hátt kaup fólk I þessum starfs-
greinum hefur eins og er, en flest
af þvifær að likindum minna en -
sem nemur sovéskum meöal-
launum, sem eru nærri 39 rúblur
á viku. Sú upphæö samsvarar 52
dollurum. Tass sagöi aö launa-
hækkunin væri liður i fyrirætlun
um að veita þriöjungi sovéskra
verkamanna launahækkuh á
timabili yfirstandandi fimm ára
áætlunar, er nær til 1980.
Vopnasala
Bandaríkja
manna fer
fram úr
áætlun
WASHINGTON. Bandariska
varnarmálaráðuneytið hefur nú
játaö, aö Bandarlkin hafi selt úr
landi vopn fyrir 11.3 miljaröi doll-
ara þaö sem af er árinu. Er þaö
1.4 miljarði hærri upphæö en ráö
haföi veriö fyrir gert.
Þessar upplýsingar koma
heldur illa við stjórn Carters
vegna þess aö hún hafði skuld-
bundiö sig til aö draga úr vopna-
sölu til annarra rikja.
Rex Granum, aöstoöarblaöa-
fulltrúi Hvita hússins hefur reynt
að skjóta sér bak viö þaö, aö tölv-
ur I Pentagon hafi ekki varað
menn viö i tima vegna bilana, en
talsmenn varnarmálaráöuneytis-
ins hafa borið þá einkennilegu af-
sökun til baka.
*r