Þjóðviljinn - 26.11.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.11.1977, Blaðsíða 1
djodviljinn Laugardagur 26. nóvember 1977 —42. árg. 265. tbl. Sjávarútvegsráðherra á þingi LÍU: I ræðu sem Matthias Bjarnasori/ sjávarútvegs- ráðherra,hélt á þingi Liú í Grindavík í gær, boðaði hann 12 daga þorskveiði- bann í desember mánuði nk. Þetta bann verður með þeim hætti að togurum verður leyft að stunda veiðar, en með þvi skilyrði að hlutdeild þorsks í af lan- um nemi ekki meiru en 10% aflans. Þá gat hann þess, að hugleiddar hafi veriö ýmsar leiðir til tak- mörkunar á þorskveiðum á næstu vertið og nefndi eina þeirra, en sú loönuskipa og eins á milli loðnu- vertiða, auk þess sem ráðherra sagði að veita yröi netaveiöiskip- um miklu meira aðhald en verið hefði, þar sem það væri viður- kennt aö reglur um netafjölda á bát væru þverbrotnar. Menn taki eftir þvi að hér talar sá sem valdið hefur og ber aö sjá um að öllum reglum sé fylgt. Matthias Bjarnason hefur hvað eftir annað ráðist að fiskifræðing- um okkar og sagt að ekkert mark væri takandi á spám þeirra og hefur neitað hvað eftir annaö að fara eftir tillögum þeirra um tak- mörkun á þorskveiðum. Ræða hans að þessu sinni var engin undantekning, en þar sagði hann m.a. orðrétt: KORTSNOJ VANN AFTUR — SIÁ SÍÐU 9 ingalitið hefur sjávarútvegsráöu- neytið farið að tillögum Hafrann- sóknastofnunarinnar og góð sam- vinna verið um framkvæmdir. Ein af undantekningunum var ákvörðunartakan um hámarks- afla á þorski, en má ég enn einu sinni minna á, að ósk Hafrann- sóknastofnunarinnar um 230 þús- und tonna hámarksafla árið 1976 kom fram eftir að sjávarútvegs- ráðuneytið baö um tölulegar upp- Framhald á bls. 18. V erkalýðsf élögir i á Vestfjörðum Segja upp samningum Skálum vonandi í kampavíni fyrir nýjum samningum um áramótin, segir Pétur Sigurösson form. ASV Verkalýðsfélagið Baldur á ísa- firði og verkalýðsféiögin á Bildu- dal og i Bolungarvik, hafa sagt upp kauplið gildandi kjarasamn- inga, frá og með næstu áramótum og að sögn Péturs Sigurðssonar, formanns Alþýðusambands Vest- fjarða, og má búast við að öll verkalýðsfélögin innan sam- bandsins geri slikt hið sama, inn- an tiöar. Þegar Vestfirðingarnir sömdu á sl. sumri komu þeir ákvæði þess efnis inni samningana, að ef fjölmennir hópar i þjóöfélaginu næöu betri samningum, mætti segja kaupliðnum upp og hefja nýja samninga. ,,Nú hefur þetta einmitt gerst. Eins og allir vita hefur það verið siður mjög fjölmennra félaga og annarra starfshópa, að láta verkamenn draga vagninn i öll- Pétur Slgurðsson, form. ASV. um samningum, en hiröa siðan það sem þeir hafa fengið og meira til á eftir. Við þetta vildum við ekki lengur una og fengum þvi þetta ákvæði inni siöustu samn- inga og ætlum þvi aö nota þaö nú, þegar BSRB og fleiri hafa fengið meiri hækkanir en við fengum sl. sumar”, sagði Pétur Sigurösson. Hann sagði að enn væri ekkert farið að ræðast við um nýja samninga, enda hafa ekki öll fé- lögin innan ASV enn sagt upp samningum. ,,En ég vona að við getum skál- að i kampavini um næstu áramót, til að fagna nýjum samningum,” sagði Pétur að lokum. — s.dór> Tólf daga þorskveiðibann í desember Ráðherra heldur áfram að hnýta í fiskifrœðinga Daggjöld á lelkskóla 35 þúsund á mánuði? SIÁ BAKSÍÐU LANDHELGIN 1 Þjóöverjarnir út á mánudag A mánudaginn, þann 28. nóv- ember, rennur út samningur tslendinga og V-Þjóðverja um veiðiheimildir til handa V-Þjóð- verjum innan 200 mflna land- helginnar á vissum sivsðum. Samkvæmt þessum samningi var Þjóðverjum heimilt að veiða alls 60 þúsund lestir af fiski þar af 5 þúsund lestir af þorski. Þennan aflakvóta hafa Þjóðverjar ekki nýtt, hvorki 1 fyrra né i ár. Frá 1. des. 1976 til 1. okt. 1977 höfðu þeir veitt sam- tals 43.500 lestir, þar af 1581 lest af þorski. Þegar nú Þjóðverjar fara út fyrir landhelgismörkin, eru enn eftir Norðmenn, Færeyingar og Belgíumenn. Belgarnir mega Þá eru enn eftir Fœreyingar, Belgiumenn og Norðmenn vera hér með 12 togara á móti þvi aö Þjóðverjarnir máttu vera með 40 togara, og þessir 12 tog- arar Belganna mega veiöa sam- tals 6.500 lestir, þar af 1500 lestir af þorski. Færeyingar mega veiða 17.000 lestir alls, þar af 8.000 lestir af þorski, með 10 togurum, linuveiðurum og handfæraveiðiskipum. Norðmenn mega einungis stunda hér linuveiöar og afla- kvóti þeira er óákveðin, en var i fyrra 2.800 lestir, mest megnis langa og keila. Þeirra veiðar er hægt að stöðva fyrirvaralaust og var þaö til að mynda gert sl. sumar. Nú hefur þvi verið lýst yfir af sjávarútvegsráðherra að Fær- eyingar fái áfram að veiða i islenskri landhelgi, en sjómenn eru almennt andvigir þvi og benda á aö á sama tima og Færeyingum er leyft að stunda veiðar hér við land, taki útlend- ingar um 60 þúsund lestir á ári á Færeyjamiðum. Þeim beri þvi að hreinsa sina landhelgi og þar með hafi þeir mun meiri afla en þeir mega veiða hér við land — —S.dór EFNAHAGSBANDALAGIÐ VILL: Hrekja Færeyingana af Grænlandsmiðum eða þvinga þá inn 1 EBE Líkur benda til þess# aö vegna aöildar Danmerkur að Efnahagsbandalaginu verði Færeyingar að sætta sig við minni réttindi á Grænlandsmiðun en fiski- menn frá Bretlandi, Þýskalandi og öðrum EBE-löndum. Fyrst ætluðu Danir að koma þvi svo fyrir að allir þegnar danska rikisins hafðu sama rétt til fiskveiða viö Grænland, en Grænlendingar sjálfir hefðu þó sérréttindi nokkur. Þetta viil yfirstjórn Efnahags- bandalagsins i Brussel ekki sætta sig við, að þvi er blaðið Inform- ation hermir nú á miðvikudag. Færeyjar eru- aðilar að danska rikinu, en hafa ekki viljað gerast aðili að EBE. Þvi eiga Færeying- ar að vera eins og hver önnur „þriðja þjóö” að þvi er varðar fiskveiöar við Grænland, segja þeir i Brtíssel. EBE segir: Það skiptir meiru að Danmörk (meö Grænlandi) er i EBE en að Færeyingar eru danskir rikisborgarar, búsettir i Færeyjum. Fyrst á þvi að semja um rétt grænlenskra og danskra fiskimanna við Grænland, siöan um rétt annarra fiskimanna EBE-landa, og siöastir koma Færeyingar. Færeyingar hafa veitt 7000 smál. af þorski og 12.000 tonn af rækjum við Grænland á ári og mega illa viö að missa þann afla. Færeyingar hafa verið óánægöir með samskipti sin við EBE ; þeir segja að sjómenn frá EBE-mið- um taki fjórum sinnum meira afla við Færeyjar en Færeyingar taka á EBE-miðum i Norðursjó. Efnahagsbandalagið svarar þvi til, að Færeyingar eigi að reikna Grænlandsveiðar sinar meö i þessu dæmi. Information telur að með þessu móti sé EBE að reyna að þvinga Færeyinga inn i Efnahagsbanda- lagið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.