Þjóðviljinn - 26.11.1977, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 26.11.1977, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. nóvember 1977 Ónotaður stökkpallur BRIDGE Efv*'' 'k Urnsión: I ■átQm Xfefjr' 1 Baldut Kristjansson j ■ Olafur Larusson Þaö er engum blööum um þaö aö fletta að bridge er orðið langvin- sælasta hugíþróttin hér á landi. Það bera t.d. frétt- ir hér á síðunni með sér, þó að þær séu aðeins frá þriðjungi þeirra bridge- félaga, hvar spilað er reglulega einu sinni í viku. Jafnhliða þessarri miklu þátt- töku hafa félagsmál bridge- hreyfingarinnar ekki tekið við sér sem skyldi. Þannig stendur bridgehreyf- ingin mjög illa fjárhagslega. A til dæmis ekki eina einustu fast- eign (húsnæði), og er það mikill baggi, hvað mikið af tekjum fé- laganna og sambandsins fara i leigukostnað og þess háttar. Aðal-tekjulind félaga og sam- bands eru, auk keppnisgjalda, firmakeppnir. Þá þarf að skriða fyrir verslunarstéttinni i land- inu og fá fyrirtækin til að leggja til nokkurt fé, gegnt þvi að nafn þess verði hengt á einhvern bridgemann. Þau fyrirtæki sem eru svo heppin að veðja á þá sem fram úr skara njóta aug- lýsingar i krafti hæfileika spil- aranna. Vafasöm fjáröflunar- aðferð, svo ekki sé meira sagt og setur leiðinlegan svip á flest- ar iþróttagreinar. Astæður nefnds fjárskorts eru vafalaust margar. Sú einfald- asta sú, að upprennandi pólitik- usar hafa enn ekki séð sér hag i þvi að nota bridgeiþróttina sem stökkpall inn i pólitikina, likt og hefur gerst t.d. hjá KSÍ og Skák- sambandinu. Það hefur nefni- lega mest að segja i glimu fé- lagssamtaka hérlendis við fjár- veitingavaldið að hagsmunir þeirra samfléttist hagsmunum einhverra óskabarna stjórn- málaflokkanna. Formannarádstefna Á morgun er formannaráö- stefna BSt á Loftleiðum. Þó að sá fundur hafi ekkert formlegt vald, er vonandi að hann skili einhverjum árangri. Þessa ráö- stefnu átti að halda á Akureyri fyrir nokkrum vikum, en tvi- vegis hefur orðið að fresta henni. Ber að harma það, að fundarstaðurinn skyldi aö lok- um fluttur „heim i heiðardal- inn”, á Hótel Loftleiðir, þrátt fyrir vilja stjórnar BSl að halda hann úti á landsbyggðinni. Hver veit nema að betur tak- ist til næst. Frá B.R. Á miðvikudaginn, lauk hjá fé- laginu 3 kvölda hraðsveita- keppni. Sigurvegarar urðu „gömlu” kempurnar, sveit Hjalta Eliassonar, núverandi tslandsmeistara sveitakeppni. 1 Röð efstu sveita varð þessi: stig 1. Hjalti Eliasson 1945 2. Guðmundur T. Gislas. 1911 3. Esther Jakobsdóttir 1869 4. Páll Valdimarsson 1835 5. Vigfús Pálsson 1813 6. Steingrimur Jónass. 1809 Athygli er vakin á góðri frammistöðu kvennakandidata okkar til landsliðs næsta sumar, sveit Estherar. Næsta keppni félagsins, er 3 kvölda tvimenningskeppni, sem gefur rétt til meistaratviménn- ingskeppni BR, siðar i vetur. Væntanlegir keppendur eru hvattir til að láta skrá sig hið fyrsta, hjá stjórninni eða keppnisstjóra Páli Hjaltasyni. Frá Bridgefélagi Kópavogs Fimmtudaginn 17. nóvember lauk hraðsveitarkeppni félags- ins, en keppni þessi var undan- keppni aðalsveitarkeppni, sem spiluð verður eftir áramót. Gert er ráð fyrir að átta efstu sveitirnar spili i meistaraflokki, en- hinar i fyrsta flokki og hann verður opinn fyrir þátttöku allt að 8 sveita. Úrslit keppninnar urðu þau, að sveit Grims Thorarensen sigraði, en hún hafði forystu alla keppnina. t sveitinni eru, auk Grims, Guðmundur Pálsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Óli M. Andreason og Kári Jónas- son. Röð 8 efstu sveita varð þessi: stig 1. Sv. Grlms Thorarensens 2.999 2. Sv. Bjarna Péturssonar 2.920 3. Sv. Jónatans Lindals 2.910 4. Sv. Armanns J. Lárussonar 2.849 5. Sv. Böðvars Magnúss., 2.744 6. Sv. Birgis Isleifss., 2.704 7. Sv. Guðm. Jakobssonar 2.672 8. Sv. Guðm. Kristjáns- sonar 2.611 Meðalskor 2.700 Fjögurra kvölda tvimenn- ingskeppni hófst hjá félaginu sl. fimmtudag. Frá Baröstrend- ingafélaginu Þrem umferðum af fimm i hraðsveitarkeppni félagsins er nú lokið, og virðist sveit Ragnars Þorsteinssonar hafa tekið örugga forystu. 1. Sv. Ragnars Þorsteinss., 897 2. Sv. Sig. Kristjánssonar 839 3. Sv. Sig. tsakssonar 793 4. Sv. Guðbjartar Egilss. 792 Frá Bridgefélagi Fljótsdalshéraös Hallgrimur Hallgrimsson verkfræðingur er duglegur við að senda okkur fréttir, og þökk- um við honum það. Að loknum þrem umferðum af fimm i tvimenningskeppni félagsins er röð efstu para þessi: Stig 1. Aðalsteinn og Sölvi 476 2. Sigurður og Þórarinn 474 3. Björn og Guðmundur 473 4. Asgeir og Þorsteinn 471 Frá Hafnarfirdi Þriðja umferð i sveitakeppni B.H. var spiluð sl. mánudag. 4 efstu sveitir eru: stig 1. Björn Eysteinsson 60 2. Þórarinn Sófusson 52 3. Sævar Magnússon 51 4. ÓlafurGislason 42 Meðal úrslita má nefna að sveit Björns vann A sveit Flens- borgar 20-0, og sveit Þórarins gerði B sveit Flensborgar sömu skil. Næst verður spilað á þriðju- daginn kemur. Sigurbjörn efstur hjá T.B.K. Eftir tvö keppniskvöld i hrað- sveitarkeppninni eru þessir efstir: stig 1. Sigurbjörn Armannsson 1283 2. Margrét Þórðardóttir 1261 3. Gestur Jónsson 1239 4. Rafn Kristjánsson 1237 Hæstu skor siðast fékk sveit Gests Jónssonar 642 stig. Sú sveit hefur einokað titla félags- ins nú um alllangt skeið og verð- ur fróðlegt að sjá hvort að á þvi verði nú breyting. Frá Bridgefélagi Akureyrar Eftir fjórar umferðir Akureyrarmótsins i sveitar- keppni er staðan þannig: stig 1. Sv. Alfreös Pálssonar 69 2.Sv. Páls Pálssonar 64 3. Sv. Páls H. Jónssonar 63 4. Sv. Ingimu.idar Árnasonar 51 Meðal úrslita i 4.umferð má nefna, að sveit Alfreðs vann sveit Stefáns og sveitir Páls Pálssonar og Ingimundar skildu jafnar. Bridgefélag Selfoss Eftir tvær umferðir I tvi- menningskeppni félagsins er röð efstu manna þessi: stig 1. Sigfús Þórðars.-Vilhj. Pálss. 260 2. Halldór Magnúss.- Haraldur Gests. 251 3. Hannes Ingvarss.-Gunnar Þórðars. 228 4. Guðm. G.ólafss.-Haukur Baldv.s. 227 Frá Bridgefélagi Breiöholts S.l. þriðjudag, lauk hjá félag- inu „Butler "-tvimennings keppni félagsins. Sigurvegarar urðu bráðefnilegir ungir piltar, bræðurnir Kristján Blöndal og Valgarð Blöndal. Þeir leiddu mestallt mótið, og eru þvi vel að sigrinum komnir. Til hamingju, bræður.. Röð efstu para varð annars þessi: stig 1. Kristján—Valgarð 313 2. Guðlaugur Karlsson— Óskar Þráinsson 305 3. Finnbogi Guðmundsson— Sigurbjörn Ármannsson 271 4. Baldur Bjartmarsson— Helgi Fr. Magnússon 269 5. Bragi Björnsson— Hreinn Hjartarson 267 6. Guðlaugur Nielsen— Tryggvi Gislason 253 Næsta keppni félagsins er 3 kvölda hraðsveita .keppni. öll- um er frjáls þátttaka. Spilað er i húsi Kjöts og fisks, á þriðju- dögum, og hefst keppni kl. 20.00. Keppnisstjóri er Sigurjón Tryggvason. / Frá Asunum A mánudaginn var hófst að- alsveitakeppni félagsins, 1977—78. Liklega hefur mótið aldrei verið jafn sterkt og nú, þó aðeins 10 sveitir hafi mætt til leiks. Úrslit i 1. umferð: Sv. Páls Valdimarssonar—Sv. BaldursKristjánssonar: 20-0 Sv. Sigtryggs Sigurösson- ar.—Sv. Kristjáns Blönd- als.:19—1 Sv. Ólafs Láruss.—Sv. Jóns Páls Sigur jónssonar.: 17—3 Sv. Jóns Hjaltasonar—Sv. Sig- urðar Sigurjónss.: 14—6 1 leik var frestað. 1 2. umferð, leika m.a. saman, Sigtryggur—Jón Páll, Jón Hjaltason—Kristján Blöndal, Ólafur Lár^-Sigriður R. Frá Bridgesambandi Suðurlands Sveitakeppni Bridgesam- bands Suðurlands fer fram i Vestmannaeyjum dagana 25.-27. nóv. n.k. Þátttaka til- kynnist til Jóns Haukssonar, sima 98—2001, eða Vilhjálms Pálssonar, síma 99—1562. Hér er jafnframt um að ræða undankeppni fyrir Islandsmót i sveitakeppni og öðlast tvær sveitir þátttökurétt. Að lokum bridgeþraut A83 G53 A84 D854 95 64 KD10872 964 DG10 962 107 G9632 KDG1072 A K753 AK Suður spilar 7 spaða. Vestur spilar út hjarta kóng. Hvernig fær Suður 13 slagi. Nánar um það eftir viku. bækur The Ages of the Masses Ideas and Society in Europe since 1870. Michaei D. Biddiss. The Pelican History of European Thought. Vol. VI. Penguin Books Höfundurinn hefur starfað við háskólann i Cambridge og I Leic- ester og viöar. Hann hefur skrifað nokkur sagnfræðirit. Timabilið sem hér er rætt um einkennist af stórum einingum fjölmennra - svæða. A nitjándu öld aflögöust vltt um Evrópu smærrí einingar héraðssamfélaga, sem voru tengd hvort ööru innan rikjanna, sem héldu þó I mörgu vissri sjálf- stjórn; þegar dregur að aldarlok- um koma upp massa-samfélög, sem hafa I siauknum mæli ein- kennt tuttugustu öldina. A siðustu hundrað árum hefur hugmynda- auðgi aldrei veriö slik I allri sögu Evrópu. Höfundurinn rekur þessa sögu i öllum sínum fjölbreyti- leika, allt frá pólitlskum hug- myndum, listastefnum, heim- speki og sálfræöi. En það sem einkennir alla þá nýbreytni I mati og hugmyndum er grund- völlurinn, samfélagiö og þá massa-samfélagið. Stjórnmálin miðast við fjöldann og sama er að segja um menninguna, sem er á góðri leið aö verða mono-menn- ing, sem spannar mikinn hluta álfunnar. Sérkenni byggðarlaga og héraða hverfa smám saman og mónó-menningin flæðir til yztu útkjálka og innstu fjalladala. Fjölmiðlar og bættar samgöngur eiga hér mikinn hlut og einnig miðlunarkerfi þekkingarinnar, sem eru miðuð við fjöldann og þarfir hans og ekki slöur þeirra, sem nýta hann I margvislegum atvinnu og starfsgreinum, en meðal þeirra virðist stefnan mörkuð að miklu leyti. Höfundur- inn f jallar um margra þá einstak- linga, sem hafa ýtt undir þessar breytingar með starfi sinu, bæði á sviði visinda og lista, heimspeki og sálfræði og einnig sumir varað viö þeim. Ritið er þvi menningar og samfélagssaga og er einkar fróðlegt. 1 bókarlok er ágæt rita- skrá til frekari athugunar. 30.000 manna borg í rústum eftir jarö- sk j álfta BUENOS AIRES 24/11 Reuter — Að minnsta kosti 70 manns fór- ust i jarðskjálftanum mikla i héraðinu San Juan I vesturhluta Argentlnu I gærmorgun en óttast er að fleiri hafi farist, þvi að lik kunna enn að leynast undir rúst- um. Verst varð úti borgin Caucete, en jarðskjálftinn jafnaði hana þvinær við jörðu. Þar bjuggu um 30.000 manns. Jarðskjálftinn var 8.2 stig á Richter-kvarða og sá öflugasti, sem mælst hefur i heiminum i ár. Hann stóð yfir 190 sekúndur. Vit- að er þegar að yfir 250 manns slösuðust af völdum náttúruham- fara þessara og tugþúsundir misstu heimilisin. Jarðskjálftinn náði einnig til Chile, Úrúgvæ, Perú og Brasiliu. Jarðskjálftinn sem varð i Klna i júli I fyrra var álika mikill og þessi, og varð hann mörgþúsund manns að bana. JOHN CREASEY Spennandi bók frá Ægis- útgáfunni Hjá Ægisútgáfunni er komin út bókin „Baróninn fæst við glæpa- hringinn”, eftir John Creasey og mun þetta vera fyrsta bókin, sem þýdd er á islensku eftir þennan höfund. Á bókarkápu segir að bókin sé spennandi frá upphafi til enda, ein þeirra bóka, sem enginn leggur frá sér fyrr en lokið er. 106 ára kona heilsar Carter WASHINGTON, Reuter — 106 ára gömul kona, Annie Dpuitscher, varö I dag þeirrar náðar aðnjótandi að taka I hönd- ina á sjálfum Bandarlkjaforseta, og fylgir það sögunni að þar meö hafi hún fengið uppfyllta heitustu ósk slna um ævina. Gamla konan gekk óstudd inn I Sporöskjulög- uðu skrifstofuna I Hvlta húsinu, þar sem Carter forseti faðmaöi hana og kyssti og sagði um leið að hún liti út fyrir aö vera miklu yngri en árafjöldinn gæfi til kynna. Fyrir 92 árum — 1885 — var frú Duitscher viðstödd er Crover Cleveland forseti sór embættiseið sinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.