Þjóðviljinn - 26.11.1977, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. nóvember 1977
Agreiningur milli
stj ór nar flokkanna
um raforkumálin
Agreiningur milli stjórnar-
flokkanna um stefnuna i orku-
málum hefur komiö greinilega
fram i umræöum á Alþingi
siöustu daga. Framsóknarmenn
hafa lagt fram þingsályktunartil-
lögu um skipulag orkumáia sem
er andstæö hugmyndum sjálf-
stæöismanna, og hafa þingmenn
Sjálfstæöisflokksins gagnrýnt
þetta „frumhlaup” framsóknar-
manna, einkum i ljósi þess, aö nú
starfar nefnd á vegum iönaöar-
ráöherra aö þvi aö gera tillögur
um heildarskipulag og yfirstjórn
orkumáia.
Framsóknarmenn leggja til aö
komiö veröi á fót einu fyrirtæki
sem annist alla meginraforku-
vinnslu og flutning raforku á milli
landshluta. Aöilar aö þessu fyrir-
tæki og stjórn þess veröi rlkis-
sjóöur og landshlutaveitur, en
eignarhluti rikissjóös veröi aldrei
minni en 50%. Fyrirtækiö skuli
undirbúa virkjanir og láta virkja.
Þá veröi komiö á fót landshluta-
veitum sem annist alla dreifingu
og sölu á raforku i viökomandi
landshluta.
Þessi tillaga framsóknar-
manna er mjög svipuö tillögum
sem alþýöubandalagsmenn hafa
lagt fram á Alþingi um skipulag
orkumála, og auk þess hefur Jón
Arm. Héöinsson lýst þvi yfir á
Alþingi aö þingmenn Alþýöu-
flokksins séu sammála megintil-
gangi tillögunnar. Er þvi ljöst aö
meirihlutier fyrir hendi á Alþingi
til aö endurskipuleggja raforku-
mál landsins.
Til hjálpar þegar
háska ber að höndum
Indónesía:
eru ódýrar, handstöövar um 20
þús. kr. en bilastöðvar um 60 þús.
Þær eru auk þess svo léttar og
handhægar, að stinga má þeim i
vasa.
Unnið er að þvi af Norræna
sambandinu að gera mönnum
kleift aö nota talstöðvar sinar
hvar á Norðurlöndunum sem þeir
eru staddir.
— Tilgangur okkar með þessum
félagssTkap er einkum sá, — auk
þeirra almennu þæginda, sem
stöðvarnar veita, — að kenna
mönnum að nota þær þegar háska
ber að höndum, svo að auðveld-
ara verði um aðstoð, sagði Þor-
lákur Asgeirsson.
Aðalstjórn félagsins skipa:
Þorlákur Asgeirsson, formaður,
Sverrir Þorleifsson, ritari, Bjarni
Jónasson, gjaldkeri, Sævar
Sverisson og Ólafur Friðjónsson,
meðstjórnendur. —mhg
100.000
pölitískir
fangar?
JAKARTA 23/U Reuter —
Indónesisk yfirvöld ætla nú aö
stefna fyrir rétt um 1600 póiitisk-
um föngum, sem hafa verið i
haldi siðan 1965, að sögn yfir-
manns öryggisiögreglu ríkisins.
Yfirmaðurinn, Sudomo aðmiráll,
sagði að siðan þá hefðu um 900
pólitiskir fangar verið dæmdir til
dauða og teknir af lifi. Hann gat
um 400 pólitiska fanga aðra, sem
hann gaf til kynna að ekki yrðu
látnir lausir.
t siöastliönum mánuði til-
kynntu indónesisk stjórnarvöld
að um 31.500 pólitiskir fangar
væru i landinu og yrðu 10.000
þeirra látnir lausir i desember,
jafnmargirá komandi ári og 3000
1979. Mannréttindasamtökin
Amnesty International halda þvi
fram aö tala pólitiskra fanga i
Indónesiu sé miklu hærri, eða að
minnsta kosti um 55.000 og ef til
vill allt að 100.000.
Fiskiþing sett
um helgina
Fiskiþing verður sett i Fiski-
félagshúsinu á mánudagsmorg-
uninn kemur, kl. 10 f.h.
Kynning á félagi farstöðvaeigenda
Sýningum Alþýðuleikhússins á
leikriti Böðvars Guðmundssonar,
Skollaleik, fer nú senn að ljúka.
Skollaleikur hefur að undan-
förnu verið sýndur i Reykjavik og
nágrenni, en siðustu sýningar i
Reykjavik verða í Lindarbæ
sunnudag og mánudag, 27. og 28.
nóvember. Sýnt verður á Selfossi
ikvöld, laugardag.og Minni-Borg,
Grimsnesi á þriðjudag.
Að loknum þessum sýningum
verður sýnt á fimm stöðum
norðanlands: Skagaströnd, Hofs-
ósi, Ólafsfirði, Dalvik og
Akureyri.og mun þar með ljúka
lengstu leikför islensks leikhúss
til þessa, en hún hefur staðíð
óslitið siðan3.ágúst,s.l. Sýningar
eru nú þegar orðnar 85 á 54 stöð-
um hér heima og erlendis. Sýn-
ingin hlaut einróma lof leiklistar-
gagnrýnenda og hefur hvarvetna
verið forkunnar vel tekið, enda
talin einn merkasti leiklistarvið-
burður islenskur um árabil.
—mhg
— Hvað er nú það, spurði blaða-
maður þegar hringt var i hann og
honum tiikynnt um fréttamanna-
fund hjá Félagi farstöðvaeig-
enda. Liklega þykir ekki gáfulega
spurt en þó grunar okkur að þeir
séu æði margir, sem ekki vita
mikil skil á Félagi farstöðvaeig-
enda, þótt það sé búið að starfa i 7
ár. Má þvi e.t.v. ætla, að þetta sé
ærið siðbúinn fréttamannafundur
og hefði kannski dregist lengur ef
ekki hefði viljað svo til, að félagið
er nú að opna skrifstofu i Siðu-
múla 22. Verður hún opin frá kl.
13-17 og þar að auki á fimmtu-
dagskvöldum, frá kl. 20-22.
Formaður félagsins skýrði svo
frá að nýlega hefði verið haldinn i
Lysekill stofnfundur Nordisk
Radio Samarbete og verður Leif
Samuelsen formaður þess næstu
tvö árin.
En þessi hlédrægi félagsskapur
hefursamtekki setið aðgerðalaus
undanfarin ár. Komið hefur verið
upp deildum og miðstöðvum vitt
um landið, sem fólk getur haft
samband við, ef það lendir I
erfiðleikum á ferðum sinum um
landið og hefur talstöð meðferðis.
Miðstöðvum verður fjölgað eftir
þvi sem félagatala eykst úti um
land. 1 miðstöðvunum eru um-
boðsmenn félagsins og geta
félagsmenn snúið sér til þeirra.
Þess má geta, að nýr umboðs-
maður er nú tekinn við á
Akureyri, Paul Hansen.
Félaginu hafa verið úthlutaðar
8 talrásir en það telur sig þurfa
23.
Mjög mikið öryggi er i þvi að
hafa talstöðvar með sér á ferða-
lögum, ef slys, villur eða önnur
óhöpp bera að höndum. Er þá oft-
ast hægt að ná sambandi við ein-
hverja miðstöð eða einstakling og
verður það þvi auðveldara sem
netiö þéttist meir. Talstöðvarnar
Skollaleikur
sýndur á Sel-
fossi í kvöld
Kóngurinn i salarkynnum slnum
Snædrottningin
sýnd í dag og á morgun
Leikfélag Kópavogs sýnir
barnaleikritið Snædrottninguna
tvivegis nú um helgina. Sýnt er i
Félagsheimili Kópavogs, þarsem
áður var Kópavogsbió, og eru
sýningarnar i dag kl. 17 og á
morgun, sunnudag, kl. 15. Miöa
má kaupa eða panta I Félags-
heimilinu.
Snædrottningin er leikrit eftir
Jewgeni . Schwarz byggt á
samnefndu ævintýri H. C. Ander-
sen.
Leikritið eins og raunar öll
ævintýri H. C. Andersen á i raun
jafnmikið erindi til fullorðinna og
barna, en þó er þetta fyrst og
fremst barnasýning.
Snædrottningin hefur nú verið
sýnd tvær helgar og hefur leikn-
um verið vel tekið. Leikendur eru
um 20 talsins, áhugafólk úr Kópa-
vogi, en einnig eru þrir nýútskrif-
aðir leikarar með I leiknum.
Leikritið hefur fengið góða
dóma gagnrýnenda dagblaðanna,
enSnædrottningin er fyrsta frum-
sýning á barnaleikriti þessa vetr-
ar á höfuðborgarsvæðinu.
Leikstjóri Snædrottningarinnar
er Þórunn Sigurðardóttir,
leiktjaldateiknari Þórunn S. Þor-
grímsdóttir, og leikhljóö eru gerð
af Gunnari Reyni Sveinssyni.
Allir aðgöngumiðar að
Snædrottningunni eru seldir á
barnaverði, og þá má kaupa eða
panta i Félagsheimilinu, sima
41391.
Tvö stjórnarfrumvörp
Nýlega voru lögð fram á
alþingi tvöný stjórnarfrumvörp,
Hið fyrra felur i sér breytingu á
læknalögunum i þá átt að ráð-
'herra geti veitt mönnum tak-
markað lækningaleyfi, ef þeir
hafa til þess næga þekkingu að
dómi landlæknis og hann mælir
með leyfisveitingunni. Þetta
ákvæðivaráður i læknaiögum, en
féll Ut úr þeim þegar gerð var
breyting á lögunum 1973.
Siðara frumvarpið felur i sér
breytingu á lögum um kjara-
samninga opinberra starfs-
manna, og lýtur að þvi að Kjara-
dómur ákveði launakjör ráðu-
neytisstjóra, en Kjaradómur
ákveður nú launakjör raðherra,
hæstaréttardómara og rikissak-
sóknara.
Júgóslavía:
Pólitískir
fangar náðaðir
BEOGRAD 24/11 Reuter
— Talsmaður utanríkis-
ráðuneytis Júgóslavíu til-
kynnti í dag, að nú um
helgina yrðu að meira eða
minna leyti náðaðir 723
fangar í tilefni þjóðhátið-
ardags Júgóslavíu, sem er
á þriðjudaginn. Sumir
fanganna verða látnir
lausir og fangelsisdómar
annarra styttir. Þar á
meðal eru 218 pólitískir
fangar, einn þeirra hinn
kunni rithöfundur AAihajlo
Mihajlov, sem látinn verð-
ur laus.
Mihajlov, sem er 42 ára að
aldri, var dæmdur til sjö ára
fangelsisvistar i febrúar 1975,
sakaður um að dreifa áróðri
fjandsamlegum Júgóslaviu.
Mannrettindasamtök á Vestur-
löndum hafa reynt að fá hann lát-
inn lausan og snúið sér til Titos
Júgóslaviuforseta I þeim tilgangi.
Samkvæmt opinberum skýrslum
eru nú rúmlega 500 pólitiskir
fangar i júgóslavneskum fangels-
um.
Mihajlov hefur nokkrum sinn-
um gert hungurverkfall i fangels-
inu til þess að fá ákveðnum kröf-
um framgengt, og segir fjöl-
skylda hans að gengið hafi verið
að þeim flestum. Mihajlov krafö-
ist þess meðal annars að fá til sin
bækur og blöð og að fá að hafa rit-
vél og útvarpstæki i fangaklefa
sinum.
Nemendasamband
Löngumýrarskóla:
Basar í
Lindarbæ
Nemendasamband Húsmæöra-
skólans á Löngumýri heldur
köku- og hlutabasar I Lindarbæ
laugardaginn 26. nóvcmber kl. 14.
Þarverða á boðstólum gómsæt-
ar kökur og ýmsir smámunir,
hentugir til jólagjafa.