Þjóðviljinn - 17.12.1977, Side 2

Þjóðviljinn - 17.12.1977, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagurinn 17. desember 1977 AF JOLAHUGVEKIU Með því að jólin eru að nálgast virðist ekki úr vegi að setja saman of urlitla jólahugvekju í kristilegum anda. Jólin eru, einhverra hluta vegna að verða ó- vinsælasta fyrirbrigði sem um getur \ íslensku þjóðlífi. Sjálf fæðingarhátíð frelsarans, gleði- hátíð barnanna, óskahátíð matháka og drykkjubolta, frídagar verkalýðsins og upp- skeruhátíð kaupmanna. Otrúlega margir virðast hafa allt á hornum sér um jólaleytið, ekki veit ég hvers vegna, en hugsanlegt er að orsakanna sé að leita til pen- inga, en þeir eru, eins og allir vita upphaf alls ills og þá ekki síður peningaleysið, ef því er einhvers staðar til að dreifa. Margir halda því fram að jólin séu hégómlegur skrípaleikur kaupmangara, sviðsettur til að Ijúga rusli inná fávísan lýð. Aðrir segja að þeir himnafeðgar, faðir sonur og heilagur andi og móðir sonar- ins vilji gleymast líkt og afmælisbarn sem ekki fengi að vera með í sinni eigin afmælis- veislu. Vonandi er þetta rangt. Að minnsta kosti er eitt vist. Jólin hafa á síðari árum öðlast sér- staklegan menningarlegan sess í íslensku þjóðlífi. Vér íslendingar, sem höfum hlotið í vöggugjöf aldagamlan menningararf fagurra bókmennta getum sannarlega fagnað jólunum í hámenningarlegu tilliti. Bækur eru nef nilega ekki gefnar út hérlendis, nema á jólunum. Bókatiltlar og innihald þess sem út er gef ið ár eftir árá jólunum ber þess glöggan vott hvaða tegundir bókmennta njóta mestrar hylli almennings, því talið er víst að útgefendur reyni að gef a út sem mest af seljanlegum bók- um. Þær bókmenntir, sem hæst ber í jólabóka- flóðinu eru njósnarasögur, harðjaxlasögur, stríðshetjusögur, stórslysa og sjóslysasögur, jarðskjálfta — eldgosa — náttúruhamfara- og samfara- sögur, hrakningasögur og sögur um skriðuföll og snjóflóð. Njósnarasögurnar fjalla venjulega um óráðvandan herbergisy þjón, sem er sí og æ of an í koppum og kirnum takandi myndir af skjölum húsbóndans, eða fagra daðurdrós, sem lætur háttsettan em- bættismann í liði „óvinarins" hvísla ríkis- leyndarmálum í eyrað á sér meðan hann er að gera hitt við hana. Harðjaxlasögurnar eru um herramenn, sem vaða um sírotandi.skjótandi og limlestandi allt og alla til að réttlætið fái eðlilega framvindu. Stríðshetjusögurnar eru oftast um atvinnuhermenn, sem lært hafa að drepa sem f lest fólk á sem stystum tima til að bjarga föðurlandinu. Um sjó og stórslysasög- ur þarf ekki að f jölyrða, nema hvað ástæða er að minna á að í þessu efni eru íslendingar langt á undan sinni samtíð. Vitað er að stór- slysakvikmyndir eru nærri ný bóla, en jafn- framt vinsælasta kvikmyndaef ni sem um get- ur. Jarðskjálfta, eldgosa og náttúruhamfara- sögur þarf ekki að útskýra, en aftur á móti hafa samfarasögur aukið gengi sitt verulega. Samfarasögurnar hafa satt að segja að miklu leyti tekið við af ástarsögunum. Ástarsög- urnar hétu gjarnan „Ást í meinum, Ást í skugga óttans, Vonlaus ást, Ást í skurðstof- unni, Ástin vaknar, Ást gangastúlkunnar, Spítalalosti" og „Ást í læri". Samfarasögurnar hafa nú að miklu leyti leyst ástarsögurnar af hólmi, en i þeim er fjallað um það hver geri hitt með hverjum, hvenær og hvernig. Þessari bókmenntagrein hef ur mjög vaxiðásmegin á síðari árum, enda ( er hér um fróðlegt efni, skemmtilegt og örv-' andi að ræða. Hrakningasögur eru um ferða- menn, sem halda til í snjósköflum og drepast þar úr kulda eða lifa af. Og þá er ótalinn síð- asti flokkurinn af vinsælustu bókmenntum íslendinga á tuttugustu öldinni en það eru frá- sagnir af skriðuföllum og snjóf lóðum. Ég man eftir því, að á árunum gaf „Norðri" út bók með nafninu „Skriðuföll og snjóflóð". Hún var auglýst í útvarpinu og kvöld eftir kvöld kváðu þessi orð við. „Skriðuföll og snjóf lóð — Skriðuföll og snjóflóð inná hvert heimili." Þá er menningargildi jólanna ekki síður fólgið í hinu gífurlega framboði á „þroska- leikföngum" (Persónulega fæ ég ekki skilið hvers vegna leikföng eru ekki á íslensku köll- uð gull). Þroskaleikföngin eru greinilega ætl- uð fullorðnum til kaups þvíivitað er að krakkar hafa ekki mikið fé umleikis. Og hvað kemur í Ijós. Leikföngin túlka, eins og bækurnar, hug- arheim kaupandans. í stað tindáta eru nú komnir fullkomnir plastdátar af harðjöxlum og roturum, leyniskyttum og launmorð- ingjum. María Stúart er meira að segja til á- samt böðli og tilheyrandi og hægt að höggva af henni hausinn svo að blóðið spýtist úr strúp- anum. Af öðrum þroskaleikföngum til jóla- gjafa má nefna pístólur, skammbyssur, hríð- skotabyssur, laghnffa og alls kyns höggvopn að ógleymdum eftirlíkingum af vítisvélum með kjarnaoddum til að tortíma mannkyninu, sprengjuvörpum og fallbyssum, napalm- sprengjum, nef tr jónuspreng j um, atóm- sprengjum, vetnissprengjum og öðrum tor- tímingartólum að ógleymdum pyntingar- tækjum eins og þumalskrúf um.steglum og alls kyns hjólum og tólum til að slíta fólk í sundur í leit að sannleikanum. Slík þroskaleikföng eru sannarlega vænleg til þess að leiða æskuna til þess þroska sem þarf til að velja og hafna í jólabókaflóðinu eftir að mannskapurinn er orðinn fullorðinn. Þroskaleikföng og jólabæk- ur íslendinga eru vafalaust samboðin fæðingarhátíð frelsarans — jólunum. Allir muna gömlu jólavísuna, sem farið var með svo enginn færi í jólaköttinn: Það á að gefa börnum bull í bókarformi á jólunum og fullkomnustu glæpagull með gereyðingartólunum. Flosi Skagfirðinga Sögur Iðunn hefur gefið út Il.bindi af Sögu frá Skagfirðingum. A bak- hlið kápu segir um bókina. Þetta er viðamikið heimildarrit i ár- bókarformi um tíðindi, menn og aldarhátt í Skagafirði 1685-1847, en jafnframt nær frásögnin i og meðtil annarra héraða, einkum á Norðurlandi. Jón Espólin sýslu- maður er höfundur verksins allt fram til ársins 1835, en siðan Ein- ar Bjarnason færðimaður á Mæli- felli og gerist frásögnin þvi fyllri og fjölbreyttari þvi nær sem dregur i tima. Saga frá Skagfirðingum ber öll sömu höfundareinkenni og Ar- bækur Espólins, jafnt um efnistök sem mál og stil. Fyrsta bindi spannaði timann 1685-1786, en þetta bindi nær fram til ársins og £ama.n - Dretfing.'IÐUNN Sraeðrabor^argt. 16,gjmr/2923 Ljóð: Pétur GunnarSSon Lb^; Yalgeir Gudjónssoh Leifur Hauksson 1830. Hér segir frá fjölmörgum mönnum innanhéraðs i Skaga- firði og utan, þar á meðal Sigurði Stefánssyni, siðasta Hólabiskupi, amtmönnunum Stefáni Þórarins- syni og Grimi Jónssyni, Magnúsi Stephensen dómstjóra, fjóðungs- læknunum Jóni Péturssyni og Ara Arasyni, og Lárusi Thorarensen sýslumanni Skagfirðinga. Af sögulegum atburðum má nefna siðustu aftöku i Skagafirði, norðurreið Jörundar hundadaga- konungs, „beinamálið” I Húna- þingi og mál Natans Ketilssonar. Kristmundur Bjarnason fræði- maður á Sjávarborg hefur samið ýtarlegar skýringar og viðauka við verkið, sem færa söguna nær nútímanum. Auk Kristmundar annast útgáfuna Hannes Péturs- son skáld og ögmundur Helgason BA. Bókin er prentuð i Setbergi en bundin i Bókfelli. Hún er 184 bls. Leyndar- málið Ný skáldsaga eftir Anitru Út er komin hjá ísafoldarprent- smiðju skáldsagan Leyndarmál- ið, — saga úr norsku þjóðlifi á 19. öld, — eftir norsku skáldkonuna Anitru. Eftirhana hafa áður verið þýddar á islensku fjórar bækur og er Leyndarmálið að þvi leyti tengthinum fyrri, að sumar sögu- persónurnar koma fyrir í öllum bókunum. Að aðru leyti er hver saga sjálfstætt verk. Umhverfi þessarar sögu er, svo sem hinna er áður hafa verið þýddar, Heiðmörkin i Noregi, og er hún látin gerast fyrir röskum hundrað árum. Ekki er að efa, að þá, sem lesið hafa aðrar sögur Anitru, fýsi einnig að sjá þessa. Leyndarmálið er 160 bls. og þýdd af Hersteini Pálssyni. _mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.