Þjóðviljinn - 17.12.1977, Qupperneq 7
Laugardagurinn 17. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
En hver eru svo viðbrögð bændasamtakanna
þegar almennirlaunþegarfara fram á kjarabœtur?
Þá gleymast þessi sannindi og bændasamtökin
hasla sér völl undir merki Vinnuveitendasam-
bandsins, gegn hagsmunum alþýðunnar
Björn Bjarnason,
formaöur Lands-
sambands iðnverka-
fólks.
Sannleikanum verð-
ur hver sárreiðastur
1 Þjóðviljanum 13. þ.m.
sendir Olafur Kristjánsson,
bóndi, mér kveðju sina og er til-
efniö greinarkorn það, sem ég
skrifaöi, að gefnu tilefni, I Þjóð-
viljanum um landbúnaðarmál.
Sálarástand mannsins þegar
hann semur þessa ritsmið sina
virðist sanna það eitt aö enn er
gamli málshátturinn, sannleik-
anum verður hver sárreiðastur,
i fullu gildi.
Ólafur bóndi virðist sóma sér
velihópi þeirra vitlausustu sem
um landbúnaöarmál tala og
skrifa, þeirra sem telja það at-
vinnuróg að læknar hafi mis-
munandi skoðanir á hollustu
landbúnaðarvara eða þeirra,
sem á Alþingi krefjast aðgerða
gegn fréttamönnum Útvarps og
Sjónvarps af þvi að þeir skýra
rétt frá viðbrögðum almennings
við hóflausum hækkunum á
landbúnaðarvörum.
Það er rétt hjá Ólafi bdnda að
mér féll miður afstaða Alþýðu-
bandalagsins til þeirrar löngu-
vitleysu sem islenskur landbún-
aöur er oröinn, þvi þó ég sé ekki
meðlimur Alþýðubandalagsins
hafði ég vissulega ætlað þvi
stærri hlut i islenskum þjóð-
málum en aö forystumenn þess
fengju „vinnukonuhné” af þvi
aö skriða fyrir bændasamtök-
unum.
Ólafur viðurkennir að aukinn
kaupmáttur neyténda sé bænd-
um hagstæður. En hver eru svo
viðbrögð bændasamtakau.ia
þegar almennir launþegar fara
fram á kjarabætur? Þá gleym-
ast þessi sannindi og bænda-
samtökin hasla sér völl undir
merki Vinnuveitendasam-
bandsins, gegn hagsmunum
alþýðunnar.
Vangaveltur Ólafs bónda, aö
það sé eingöngu sök veröbólg-
unnar að sá útflutningur sé ekki
arðbær og að raunverulegur
halli á útflutningi dilkakjöts sé
óverulegur, fá á engan hátt
staöist. En við Ólafur ættum að
geta sameinast i þeirri ósk að
loðnuaflinn verði góður svo að
verðmæti hans nægi til að
greiöa útflutningsbætumar á
landbúnaðarvörum.
Þá telur Olafur alveg fráleitt
að bændur sjálfir þurfi að bera
nokkurn skaða af þvi öngþveiti
sem landbúnaðarmálin er
komin í, þann skaða telur hann
að aörir eigi að bera.
Það mun rétt vera að islenskir
bændur hafi ýmislegt lært af
langri sambúð sinni viö sauð-
kindina. En stolt hennar og
reisn hefur ólafur að minnsta
kosti ekki tileinkað sér.
ólafur bóndi minnist á ullina
og gærurnar. Undanfariö hefur
Útvarpið verið að birta áskor-
anir til bænda frá Sauðfjár-
vemdinni um aö rýa það fé, sem
er i tveim reyfunum. Þessar
auglýsingar benda til þess aö
nokkur brögð séu af þvi aö
bændur hirði ekki um aö rýa fé
sitt á venjulegum tima og nýti
þannigekkiafuröirbúa sinna að
fullu, en það bendir aftur til þess
að afkoman sé ekki eins slæm og
samþykktir bændafundanna
gefa tilefnitil aðálykta. Þá slær
hann fram þeirri fullyrðingu að
hver gæra jafngildi aö verðmæti
einum bolla af molakaffi.
Bollinn af molakaffi mun kosta
frá tvö til þrjú hundruð krónur,
eftir þvi hvar hann er keyptur.
S.l. haust mun verð á gærum til
bænda hafa verið kr. 289.37
hvert kg., en meöal þungi á
gæru mun vera nálægt þrem kg.
Annað tveggja er, að Ólafur
sækir dýrari veitingastaöi en ég
þekki til, eða hann fer hér með
visvitandi ósannindi.
Ég nenni svo ekki aö munn-
höggvast frekar viö Ólaf bónda,
nú eða siðar.
Björn Bjarnason
Vegna þess að ég er aö fara i
mitt sumarfri nú alveg á næstu
dögum, verð ég að biðja Þjóð-
viljann að skila þvi til þeirra,
sem telja sig hafa þörf fyrir að
skamma mig, að af þeim sökum
muni ég ekki svara þeim.
Björn Bjarnason
Basar Sambýlisins
á Sogni í Lindarbæ
Skátamerki
1977
Nú i ár gefur Bandalag Is-
lenskra Skáta út i 21. skiptið jóla-
merki skáta. 1957 komu fyrstu
jólamerkin út, þá með mynd af
Baden Powell á 100. afmælisári
hans.
I ár ber jólamerki skáta yfir-
skriftina, SKÁTALIF er ÚTILtF,
en það er yfirskrift starfsárs
skáta I ár. Myndin á merkinu er
frá skátaskálunum að Úlfljóts-
vatni, og er gömul kirkjuklukka
úr Kristskirkju i forgrunni, en
klukkuna fengu skátarnir að gjöf
og reistu hana þarna upp.
Ennþá er til heildarsafn af jóla-
merkjum skáta og er hægt að fá
þau á skrifstofu Bandalags Is-
lenskra Skáta að Blönduhlíð 35
Reykjavik.
Nýlega er útkomið mjög
myndalegt jólablað af Æskunni,
100 siður að stærð. Meðal efnis i
þvi blaði mætti nefna: Gleðileg
jól, Sagan um jólatréð, Stjarnan i
austri, Jesú i Nasaret, eftir Selmu
Lagerlöf, Dýrin i Betlehem, Jóla-
saga, eftir Skúla Þorsteinsson,
Lyngbrekkubræður eftir Sigurð
Draumland, Tréskórnir hans Úlf-
ars litla, Jólin hans Mumma,
Blóðbankinn, saga eftir Einar
Loga Einarsson, Agnes hjálpar
jólasveininum, Nátttröllið ærist,
Jól i kotinu, Er nýársklukkur
klingja, Mikko litli, Vanka, saga
eftir Anton Tchekov, Regnboga-
blómið, ævintýri islenskað og
myndskreytt, eftir Jóhönnu
Brynjólfsdóttur, Jólin, eftir Guð-
rúnu Jóhannsdóttur frá Brautar-
holti, Gullstjarnan góða, Verð-
launaferð Flugleiðar og Æskunn-
ar til Chicago, Næsta verölauna-
ferð Flugleiða og Æskunnar er
næsta sumar til Parisar, Notre
Dame, Versalir, Sigurboginn I
Paris, Jólahald i öðrum löndum,
1957-SKATAMERKM977
ISLAHD
Jólakort i 100 ár, Snærisinn, Jólin
i skóginum, Jólasveinninn, Jóla-
engillinn, saga eftir Jóhönnu
Brynjólfsdóttur, Indiánasögur,
Hvenær gerðist það? Granni
kóngurinn og feiti matsveinninn,
Sögur af Churchill, Afmælisveisla
isbjarnarins. Hatturinn hans
Halla, Framhaldssagan um ævin-
týri Tarzans, Hvaða dýr eru
greindust? Fyrir yngstu lesend-
urna, Jatan, leikþáttur, uppsetn-
ing og efnisval, Sigurður H. Þor-
steinsson, Smábarn úr skýjunum,
saga eftir Eirik Sigurðsson, Jóla-
snjór, saga eftir Sigurbjörn
Sveinsson, Úrslitakeppni aö
Laugarvatni 1977, Flugþáttur,
Andrésar Andar leikarnir, A
hljómþlötumarkaðinum, eftir
Benedikt Vjggósson, Jólaþula,
eftir Snævarr, Jól eftir Matthias
Jochumsson, Aðfangadagskvöld
jóla 1912, eftir Stefán frá Hvita-
dal, Verlaunagetraunir, Kross-
gáta, Skrýtlur og m.fl. Ritstjóri
er Grimur Engilberts.
I dag, laugardaginn 17. des.,
heldur Sambýlið að Sogni basar i
Lindarbæ i Reykjavik.Margt ný-
stárlegt verður á boðstólum, m.a.
handgerð kerti, gjafamunir ýmis-
konar, jólaskraut og skreytingar
og að sjálfsögðu jólakökur og
annað sætara. Ennfremur verða
kaffiveitingar og sitthvað til
skemmtunar (tivoli).
Eins og kunnugt er, búa að
Sogni unglingar, sem eiga við
mikil félagsleg svo og önnur
vandamál að striða. Fullorðnir,
sem búa á staðnum, reyna með
unglingunum að mynda hiýlegt og
traust heimili, þar sem sam-
vinna, sameign, samneysla og
samábyrgð eru aðal lögmálin.
Fjárhagslegur grundvöllur var
ekki fyrir hendi, þegar sambýlið
var stofnsett fyrir rúmu ári, og
það hefur ætið siðan búið við fjár-
skort. Auk þess býður núverandi
húsnæði ekki upp á aðstöðu til
þeirrar fjölbreyttu starfsemi,
sem er forsenda þess áð árangur
náist varðandi félagsleg vanda-
mál unglinganna.
Þvi er það, að efnt er til mark-
aðar i þvi skyni að skapa fjár-
hagslegan möguleika á að eignast
eða fá leigt hentugra húsnæði og
útfæra hugmyndir okkar um
heppileg starfssvið, s.s. smiði
gróðurhúsa og ræktun, búskapur
o.fl.
Basarinn verður opnaður kl. 13
og stendur til kl. 18.
Auglýsið í
Þjóðviljanum
Jólablað Æskunn-
ar komið út