Þjóðviljinn - 17.12.1977, Síða 9

Þjóðviljinn - 17.12.1977, Síða 9
Laugardagurinn 17. desember 1977 ÞJÓDVILJINN — StÐA|9 Þaö held ég að komi aöallega til af því óvirka (passiva) hlutverki sem þær eru aldar upp til. Þær eru beinlínis svo aögeröalitlar aö þær fá ekki (it úr samlffinu þaö sem þær gætu fengið ef þær væru virkari. Þaö tiökast yfirleitt ekki að konur hafi frumkvæöi, jafnvel ekki i hjónabandi. Karlar eru aftur á mdti aldir upp til þess aö hafa frumkvæði i þessum efnum og þeir vita oft ekki einu sinni aö konan fær ekki fullnægingu. 33% fá ekki útrás Helga: Samkvæmt bandariskri könnun eru það um 33% giftra kvenna sem aldrei hafa fengiö út- rás í kynlifinu, og þaö er ástæöa til aö ætla að talan sé svipuö hér. Kolbrún: Það veröur áreiðan- lega erfitt aö breyta viöhorfunum varðandi þetta meö frumkvæöiö. Margir karlmenn fara hjá sér ef kona leitar á þá. Þeir veröa bein- linis hræddir og halda jafnvel að viðkomandi sé eitthvaö skritin. Fjórðungur 14 ára ,,sofa hjá” Hvaö haidiö þið aö unglingar séu gamlireöa réttara sagt ungir þegar þeir byrja aö ,,sofa hjá”? Helga: Samkvæmt niðurstöð- um könnunar sem islenskir sál- fræðinemar viö Arósaháskóla gerðu hér i fyrra hefur fjóröi hluti 14ára unglingajhaftsamfarir.Það eru nokkuö skiptar skoöanir á þvi hvort svo ungar stúlkur fái yfir- leitt nokkuö út úr kynlifi. Ég held persónulega aö þær hafi ekki þann tilfinningalega þroska sem til þarf til aö njóta þess. Ég held aö margar stúlkur láti undan þrystingi strákanna, þeir hóta kannski að hætta aö vera með þeim ef þær láta ekki aö vilja þeirra, þær halda kannski lfka aö þær séu gamaldags o.s.frv. Astriöur: Já, þaö er eflaust all- ur gangur á þessu, og ákaflega einstaklingsbundiö. Kornungar stúlkur hafa þó sagt mér aö þeim þyki þetta gott, og þær geri það þess vegna en ekki bara fyrir strákinn. Helga: Góðar fræðibækur fyrirunglinga eruhér af ákaflega skornum skammti. Sú sem mér finnst best og ég mæli meö viö unga fólkiö er bókin Æska og kyn- lif. Litið um að óskað sé fóstureyðinga Hver er algengustu viöbrögö kornungra stúlkna þegar þær komastaöþviaö þær eru ófriskar gegn viija sínum? Astriöur: Þau eru á ýmsan veg, en það er litiö um aö þær láti sér fóstureyöingu koma til hugar, jafnvel ekki þó að þær séu aöeins 15 ára og hafi slæmar aðstæður á heimili sinu. Ég held aö þarna komidálitiö til mikill áróöur gegn fóstureyðingum og auövitaö eru þær algert neyöarúrræði, en þaö er lika mikil ábyrgö aö fæöa i heiminn barn sem enginn er raunverulega tilbúinn að taka á móti. Ilelga: Fóstureyðing er svo sannarlega ekkert grin og viö reynum alltaf að komast aö þvi hver sé raunverulegur vilji stúlk- unnar. Þaöerhún sem mun gang- ast undir aögerðina og hún verður sjálf aö taka ákvörðunina. Og viö gerum öllum, sem til okkar leita um aðstoö viö að fá fóstureyð- ingu, grein fyrir þeirri félagslegu aðstoö sem þeim stendur til boða eftir aö barniö er fætt. En þaö liggur nú við aö maður roöni, þeg- ar fariö er að telja þaö upp. Úr- ræðin eru ekki mörg, mæöralaun eru 2600 á mánuöi, dagheimili alltof fá. Einstæðir foreldrar eiga svo sannarlega ekki sjö dagana sæla. Fræðsluefni Eru uppi einhver jar hugmyndir um aö auka starfsemina hér á deildinni? Astriöur: Viö erum nú aö vinna aö gerö fræösluefnis og þaö á aö vera tilbúiö i janúar. Viö ætlum aö byrja með að safna saman hingaö fólki sem hefur komiö til okkar og kynna þvi þetta efni. Þaö veröur i fjórum þáttum. Sá fyrsti veröur liffræðúegs eölis, næsti um tilfinningar og kynllf, hinn þriöji um umhverfi og kynlif og sá siöast um getnaöarvarnir og kynsjúkdóma. Nýjungar og útgáfu- starfssemi Kveikt á jólatrénu í Kópavogi kl. 16 í dag Laugardaginn 17. des,, kl. 16, veröur kveikt á jólatrénu I Kópa- vogi. Sendiherra Sviþjóöar dr. Olav Kaijser, afhendir tréð, sem er gjöf frá vinabæ Kópavogs, Norrköbing. Jóhann H. Jónsson, forsetibæjarstjórnar, veitir trénu viötöku. Skólahljómsveit Kópa- vogs leikur. Sira Ami Pálsson flytur hugleiöingu og jólasveinn- inn kemur I heimsókn. Athöfnin fer fram i biósalnum i félagsheimilinu. Nýjar bækur um Tuma og Emmu Bókaútgáfan Iöunn hefur sent frá sérf jórar nýjar bækur I bóka- flokknum um Tuma og Emmu. Nefnast þær Tumi er litill, Tumi bakar köku, Emma fer til tann- læknis og Emma fær mislinga. Aöur eru komnar út fjórar bækur um Tuma og tvær um Emmu. Höfundur bókanna, bæði mynda og texta, er Gunilla Wolde, sem viökunn er fyrir barnabækur sinar, ekki sist þær sem ætlaöar eru yngstu börnun- um. Bækur hennar komu fyrst út á sænsku, en vöktu fljótt slíka at- hygli, að breskt stórfyrirtæki i bókaprentun tók þær upp á sina arma og hóf samprentun þeirra fyrir útgefendur viðs vegar um heim. Koma þessar bækur nú út á meira en þrjátiu tungumálum og eru miljónir eintaka prentaöar á ári hver ju, bæöi frumprentanir og endurprentanir. Eru stórar og hraövirkar vélasamstæöur bundnar viö prentun og band á þessum bókum áriö um kring. Og vegna hins gifurlega framleiðslu- magns er unnt aö selja þessar bækur á lægra veröi en dæmi eru til um aörar bækur. tslenska útgáfan er aö öllu leyti unnin af hinu breska fyrirtæki. Þýðandi bókanna er Þuriöur Baxter. Sem forystuféiag í íslenskúm brídge, hefur BR ætíð gert góða hluti, hvern virkan starfsvetur. I mars, á komandi ári, mun BR gangast fyrir „boðsmóti" á Loftleið- um, og munu bjóða til þess m.a. sænsku EM- meisturunum Göthe-Mor- ath. Auk þess, munu verða valin pör sérstaklega til þáttöku á mót þetta, eftir þeim reglum sem stjórn BR setur, eða ákveð- ur. öll aðstaða á Loftleiðum er hin glæsilegasta sem völ er á, og jafnvel er i bigerð, að sýna þessa tvimenningskeppni á töflu fyrir áhorfendur, i fyrsta sinn i tvimenning. Talað hefur verið um 28 para mót, en um það verður fjallað nánar siðar. A næsta ári, mun Bridgesam- band Islands eiga 35 ára afmæli. Að likindum verður eitthvað gert til hátiðahalda, fyrir utan NM. Mót hjá BR. Sú tillaga kom fram á form- annaráðstefnunni, að gefið yrði út afmælisrit, um sögu BSl fram á þennan dag. Gæti það fylgt NM-mótaskrá t.d. Nóg er af mönnum, til að færa i letur þær heimildir sem fyrirfinnast, og fjalla um þróun bridgemála. Nefna má t.d. Hall Simonarson, Guðmund Pétursson Stefán Guðjohensen, Jakob R. Möller eða Hjalta Eliasson. Einnig var fjallað um útgáfu uppsláttarrits á vegum BSt, sem inniheidi almennar upplýs- ingar um menn og málefni»um land allt. Sýnist ekki vanþörf á, þvi bridgeskrif á Islandi i dag eru á núlli... Hvað sem gert verður, er það vel þegið, sé staðið af alhug að þvi. Virkja mætti nýtt blóð, til skrifa og upplýsingaöflunar, jafnvel ritnefnd ungra manna, sem gæfu þá vinnu sina, fyrir það eitt, að sjá um útgáfuna, undir umsjá BSl. Frá Bridgefélagi Reykja- víkur S1 miðvikudag lauk tvi- menningskeppni félagsins. Fyrir siðustu umferðina, höföu Sverrir og Þorlákur 20 stiga for- skot á næsta par, sem er all gott. En lániö lék ekki við þá i tveimur siöustu setunum i um- feröinni, þar sem þeir skoruðu aðeins 8 stig af 60 mögulegum. Og þarmeð skutu þær ,,gömlu” kempur, Guðmundur Pétursson og Karl Sigurhjartar- son öðrum pörum ref fyrir rass, og báru sigur úr býtum. Röö efstu para varö þessi: 1. Guömundur Pétursson-Karl Sigurhjartarson 533 stig. 2. Jóhann Jónsson- Stefán Guð- johnsen 521 stig. 3. Jón Gislason-Snjólfur ölafs- son 520 stig. 4. Sverrir 'Armannsson-Þorlák- ur Jónsson 513 stig. 5. Gestur Jónsson (lögfr.)- Marinó Einarsson 513 stig. 8 efstu pörin úr keppni þessari unnu sér rétt til þátttöku i meistaratvimenning félagsins Frá Ás-unum: Úrslit s.l. mánudag: Ólafur Lárusson-Jón Hjaltason: 0-20. Baldur Kristjánsson-Kristján Blöndal: 0-20 Jón Páll Sigurjónss.-Sigriöur Rögnvaldsd.: 2-18 Gunnlaugur Kristjánsson- Sigurður Sigurjónsson: 4—16 Og þarmeð tók sveit Jóns Hjaltasonar góöa forystu, meö sigri sinum yfir sveit Ólafs. Staða efstu sveita eftir 4 umferðir: 1. Jón Hjaltason 74 stig (Jakob M., Jón B., Sverrir og Sigurður Sv.) 2. Óiafur Lárusson 57 stig. 3. Sigtryggur Sigurðsson 51 stig. 4. Sigriður Rögnvaldsdóttir 47 stig (á inni leik....) 5. Kristján Blöndal 41 stig. Næsta mánudag, er jólaveisla Ásanna 1977, þar sem spiluð er viöeigandi jólasveinahrað- sveitakeppni. Að sjálfsögðu er öllum heimil þátttaka, meðan húsrúm leyfir og til gamans má geta, að um sl. jól, mættu 21 sveit til leiks. Keppendur eru beðnir um, að mæta timanlega til skráningar. Byrjunartimi i sveitakeppn- inni á ný, verður auglýstur sið- ar. Frá Reykjanesi : Lokið er 3 umferðum i undan- rás sveitakeppni BRU. Spilaö er i 2 riðium. Þátttaka er svipuð og sl. ár., þ.e. ekki nógu góð. Staða efstu sveita er þessi: A-RIÐILLt 1. Albert Þorsteinsson 53 stig. 2. Armann J. Lárusson 44 stig. 3. Gunnar Sigurgeirsson 35 stig. 4. Guðmundur Pálsson 34 stig. B-riðill: 1. Jónatan Lindal 41 stig. 2. Gunnar Guðbjörnsson 35 stig (og leik inni). 3. Sigurður Margeirsson 25 stig. 4. Gisli Torfason 22 stig (og leik inni). Undanrásinni lýkur8. jan. ’78. Siðan tekur við úrslitakeppnin, þar sem allir leika við alla og meistarar fyrra árs, sveit Björns Eysteinssonar, ver titil sinn. Spilað er i Þinghóli, Kópa- vogi. Tropicanakeppni TBK Úrslitaumferðin I mótinu var sniluð fyrir skemmstu, en fyrir hana hafði sveit Gests Jóns., forystu. Sveit Sigurbjörns Armannssonar, sem leitt hafði mótið i byrjun, gafst ekki upp, og náði forystunni og sigrinum um leið i siðustu lotunni. Auk Sigurbjörns, voru i sveitinni: Helgi Einarsson, Orwelle Utley og Ingvar Hauksson. Annars varð röðin þessi: 1. Sveit Sigurbjörns 3173 stig. 2. Sveit Margrétar Þórðardóttur 3146 stig. 3. ' Sveit Gests Jónssonar 3120 stig. 4. Sveit Rafns Kristjánssonar 3118 stig. Alls tóku 17 sveitir þátt i hrað- sveitakeppninni. Siðasta keppni félagsins f. jól, var jóla- tvimenningur. Þátttaka var góð. Frá Bridgefélagi Fljóts- dalshéraðs Úrslit i fimm kvölda tvimenningskeppni félagsins: 1. Asgeir og Þorsteinn 818 stig. 2. Hallgrimur og Kristján 806 stig. 3. Aðalsteinn og Sölvi 700 stig. 4. Sigurður og Þórarinn 780«stig. 5. Pálmi og Sigfús 769 stig. 6. Björn og Ingólfur 766 stig Þrjú siðustu kvöldin voru einnig spiluð sem firmakeppni. Þar sigraði Búnaðarbankinn Egilsstöðum, hlaut 548 stig. Spilarar voru Sveinn og Magnús. I öðru sæti varð prjónastofan Dyngjan, spilarar Asgeir og Þorsteinn. 1 þriðja sæti varð Plastiðjan Ylur, spil- arar Astráður og Hallgrimur og i fjórða sæti Ræktunarsamband Austurlands, spilarar Magnús og Ófeigur. Frá Bridgefélagi Breið- holts Sveit Guðlaugs Nielsen tryggði sigur sinn i hraðsveitar- keppni félagsins með glæsilegri skor 509 stig (meðalskor 432 stig) Heildarúrslit urðu: 1. Sveit Guðlaugs Nielsen 1449 St. (Tryggvi Gíslason, Sigur- björn Ármannsson, og Finnbogi Guðmarsson) 2. Sveit Eiðs Guðjohnsen 1363 stig (Kristinn Helgason, Guð- laugur Karlsson, Óskar Þráins- son) 3. Sveit Kristjáns Blöndal 1334 stig. (Valgarð Blöndal, Friðrik Guðmundsson, Georg Sverris- son, Hreinn Hreinsson og Karl Adolfsson) 4. Sveit Guðbjargar Jónsdóttur 1312 st. 5. Sveit ólafs Tryggvasonar 1310 st. BRIDGE Utnsjón: Baldut Kristjansson Olafur Larusson Fréttir i stuttu máli 34. bók Árna Liklega skortir þó nokkuð á að almenningur hafi gert sér grein fyrir þvi hversu mikilvirkur rit- höfundur Arni Óla hefur verið um dagana. Ekki af þvi að bækur hans séu ekki um margt hinar merkustu og njóti mikiila vin- sælda hjá öllum þeim, sem unna þjóðlegum fróðleik og sagnfræði, heldur sakir hins, hvað maðurinn er yfirlætislaus og hljóðlátur, gjörsneyddur allri hneigð til aug- lýsingamennsku. Fyrsta bók Ama Óla kom út 1928. Siðan verður 12 ára hlé en 1940kemur önnur bókin frá hendi hans fyrir almenningssjónir. Úr þvi hefur hver rekið aðra. Og nú er nýkomin út sú 34. Huliðsheim- ar, gefin út af Setbergi. Bókin skiptist i 20 kafla er heita: Heilsan, Hinn mikli huliðs- heimur, Fegurð, Rúm og lif, Sköpunarsagan, Opinberanir, Skyndisköpun, Visindi, Lifheim- ur, Sálfræði, Dulrúnir, Tvær sög- ur, Bréf að handan, Dómsdagur, Innri maður, Islensk heimspeki, Framþróun, Guðsriki, Sál vor allra og Viðbót. Af þessum kaflaheitum má e.t.v. nokkuð ráða efni bókarinn- ar.en i henni er höfuijdur á sömu slóðum og i bókunum: „Alög og bannhelgi”, „Huldufólk” og „Dulheimalslands”- Eru Huliðs- heimar einskonar framhald af þeim og jafnframt „seinasta rit- smiðin I þessum bókmennta- flokki”. I þessum bókum hefur höfundur „leitast við að sýna hve náin tengsl hafi verið milli trúar og hjátrúar frá örófi alda”. Huliðsheimar er 171 bls., prent- uö hjá Setbergi. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.