Þjóðviljinn - 17.12.1977, Síða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagurinn 17. desember 1977
Tónlistarfélagstónleikar i Austurbæjarbiói
Lauk prófi meö frá-
bærum vitnisburði
heldur nú sinn fyrsta opinbera konsert
Unnur Sveinbjarnardóttir, lág-
fiðluleikari, heldur í dag sína
fyrstu opinberu tónleika á vegum
Tónlistarfélagsins i Austurbæjar-
bíói kl. 14.30. Pianóieikari er
Halldór Haraldsson. Á efnisskrá
eru verk eftir Marais, Hindemith,
Schumann og Brahms.
Jólatré á Nesi
Á morgun, sunnudaginn 18.
desember kl. 16.00 verða tendrub
ljós á jólatré, sem komið hefur
verið fyrir sunnan við inngang
iþróttahúss Seltjarnarness. Auk
þess verður flugeldasýning.
Jólatré þetta er gjöf frá Kiwan-
isklúbbnum i Nesodden i Noregi
en hann er vinaklúbbur Kiwanis-
klúbbsins Nes á Seltjarnarnesi.
Unnur Sveinbjarnardóttir
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
ólafs Sigurðssonar, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til forstöðukonu og starfsfólks Dvalar-
heimilis aldraðra, einnig til Verkalýðsfélagsins, Bridge-
félagsins og fleiri, sem heiðruðu minningu hans og höfðu
glatt hann með gjöfum og heimsóknum.
Valdis Sigurðardóttir ólöf Pétursdóttir
Albert Sigurðsson Þorsteinn ólafsson
og aðrir vandamenn.
Málf relsissj óður
Tekið er á móti framlögum i Málfrelsissjóð á
skrifstofu sjóðsins Laugavegi 31 frá kl. 13-17
daglega. Girónúmer sjóðsins er 31800-0.
Allar upplýsingar veittar i sima 29490.
Áramótaskaup útvarps og sjónvarps:
Fjölmiðlar í
brennipunkti
Fréttamenn útvarps og sjónvarps teknir
í gegn en blaðamenn látnir i friði
Áramótaskaup útvarpsins
verðuri léttum dúr að vanda. Það
veröur byggt upp af söngvum og
gamanþáttum. Brugðið verður á
leik i sambandi við pólitikina og
þjoðmálin. Efnið er samið af inn-
anhússmönnum, eins og leiklist-
arstjóri útvarpsins Klemens
Jónsson komst að orði, og er
óspart gert grin að fjölmiðlunum
útvarpi og sjónvarpi og starfs-
mönnum þeirra. Blaðamenn fá aö
vera i friði að þessu sinni, sagði
Klemens.Leikarari skaupinu eru
tiu og ieikstjóri er Benedikt Arna-
son en um tónlistina sér Gunnar
Reynir Sveinsson.
Aramótaskaup sjónvarpsins
nefnist að þessu sinni „Aður en
árið er liðiö”. Þetta er blandaður
þáttur með léttu Ivafi, þar sem
meðal annars veröur fjallaö um
ýmsa atburði ársins 1977 og dag-
skrárefni sjónvarpsins skoðað i
nýju ljósi. Kunnur leikarar, tón-
listarmenn og skemmtikraftar
koma við sögu ásamt þekktum
borgurum, sem sýna af sér nýja
hlið.
Umsjón með áramótaskaupi
sjónvarpsins er I höndum Taage
Ammendrup sem einnig stjórnar
upptöku ásamt Ólafi Ragnars-
syni. Ólafur er kynnir ásamt
Bryndisi Schram. Hljómsveitar-
stjóri er Magnús Ingimarsson.
—IGG
Þingsjá
Framhald af6. siðu.
fiskverð þá eykst sá vandi fisk-
vinnslunnar sem Þjóðhags-
stofnun hefurbent á. Spurningin
er þvi hvað rikisstjórnin ætli að
gera i þessum málum.
Vandamál landbúnað-
ar
Þá sagðist Lúðvik einnig vilja
spyrja rikisstjórnina hvað hún
hyggðist gera i sambandi viö
þann vanda sem nú er mest tal-
að um meöal manna i landbún-
aði. Landbúnaöurinn sé nú
þannig rekinn, að greinilegt er
að tekjur bænda dragast nú af t-
ur Ur tekjum viðmiöunarstétt-
anna og það miklu meir en áður
hefur gerst. Nú haldi bændur
fundi um land allt og geri sinar
kröfur. Augljóst sé að eitthvaö
verður að gera i málefnum
landbúnaðarins ef ekki á svo að
fara að tekjur bændanna verði
svona rétt I kringum helmingur
aftekjum viðmiðunarstéttanna.
Sagðist Lúðvík eiga erfitt meö
að trúa þvi að rikisstjórnin
treysti sér til að standa þannig
aö málum, að hún látist hvorki
sjá þetta né heyra, og að i þess-
um efnum þurfi hún ekkert aö
gera.
Tap í ullar- og
skinnaiðnaði
Þá hafi forsvarsmenn
iðnaðarins gert kröfur um það
að aðlögunartiminn samkvæmt
EFTA-samningi verði lengdur,
þannig að um frestun yrði að
ræða á tollalækkun á innfluttum
iðnaðarvörum. Einnig er vitað
að það hefur veriö fram á veg-
um Þjóðhagsstofnunar sérstök
úttekt af afkomu bæði ullar- og
skinnaiðnaöarins I landinu, og
þar kemur i ljós að um stórfellt
tap er aö ræöa oguppier kröfur
um miklar fjárgreiöslur eða
stuöning við þessar atvinnu-
greinar.
Lúövik sagðist þvi vilja
spyrja rikisstjórnina um leiö og
verið væri að afgreiða fjárlög
fyrir næsta ár og marka stefn-
una I peninga- og fjármálum,
hvernig hún hugsaöi sér að
mæta þessum vanda. Ef hún
hugsi sér aö mæta þessum
vanda á sama hátt og hún hefur
yfirleitt gert áður, þ.e.a.s.
lækka gengi krónunnar, leggja á
nýja skatta fyrir rikið,þá þýðir
það auövitað ennþá aukna
verðbólgu I landinu og launa-
samningar standa þannig að þá
hækka öll laun sjálfkrafa.
Spurningin er þvi hvort rlkis-
stjórnin hafi ekki gert sér neina
grein fyrir þvi hvernig takast
skuli á við þennan vanda.
Orörómur
Fratnhald af 3. siðu.
krata, þar á meðal fyrrum for-
sætisráðherrar Aldo Moro og
Amintore Fanfani, séu að bolla-
leggja um nýja rikisstjórn meö
aukinni hlutdeild Kommúnista-
flokksins. Vegna stærðar sinnar
hefur Kommúnistaflokkurinn
þegar mikil áhrif á stjórnarstefn-
una og getur i raun fellt fyrir
stjdrninni svo að setja hvaða
frumvarp, sem honum sýnist.
Osservatore della domenica,
vikurit Páfagarðs, varaði i dag
kristilega demókrata við þvi aö
taka kommúnista með i stjórn og
bendir það til þess að harðlinuaf-
staöa Páfagarös, sem ræður
miklu innan Kristilega demó-
krataflokksins, gagnvart komm-
únistum sé óbreytt.
Audunn
Framhald af 12. siðu.
drottningu, manninn i hálfvirðis-
markaðinum sem býr i penthúsi
fyrir ofan markaðinn og svo er
það málarinn sem gerði alla lista-
mennina spólvitlausa, er i Lions
og málar myndir þegar laxinn
tekur ekki. Hann kemur inn i
myndina þegar Lulla er að segja
vinkonu sinni frá partýi sem þau
Bússi fóru i. Þar varð frúin I hús-
inu ósátt við gesti sina og kastaöi i
þá nautahakki, agúrkum og eggj-
um:
Hann Bússi minn segir að hann
sé praktiskur. Hann er ekkert að
mála þessa fugla sem eru vísir tii
að fljúga út úr mótivinu áður en
myndin er búin. Heldur málar
hann bara gæsirnar, ekki fljúga
þær frá manni. Og svo fjöllin svo
manni dettur i hug að fara aö
syngja frjálst er i fjallasal, fagurt
i skógardal, heilnæmt er heið-
loftið tæra. Það var bara verst að
eitt eggiö lenti á fallegasta fjall-
inu hans, og lak niður á gæs sem
var að syngja á árbakkan-
um:....(31)
Metsölubók
Framhald af bls'. 1
tök af bókinni og það hefðist vart
undan að vinna hana i bókbandi,
svo ör væri salan.
Svona tilgamans má geta þess,
að bókaútgefendur á Islandi telja
jafnan að meðal upplag bóka sé
um það bil 1200 eintök hér á landi
sem er að visu fjarri öllu .lagi,
enda eru þá teknir með allir bækl-
ingar og smárit, sem litið seljast.
Sannleikurinn er sá að meðal
upplag bóka hérá landi er i kring-
um 1800 eintök og það þykir mjög
góð sala á bók, ef hún selst i 3000
eintökum I fyrstu atrennu, þ.e.
fyrir jólinog menngapaaf undrun
ef bók selst I 5 til 6 þúsund eintök-
um. En svo kemur „Páll Vil-
hjálmsson” og þá dugir ekki
minna en 13 til 14 þúsund eintök
og hver veit nema prenta verði
meira af bókinni, þvi að hún á
eftir að seljast i lengri tima en
bara fyrir þessi jól. —Sdór.
Mótmæla
Framhald af 1
skuldbindingar sinar um verð-
tryggð skuldabréfakaup af Bygg-
ingarsjóði rikisins og munu hér
eftir sem hingaö til standa við
gefin loforð þar um.
Hinir almennu lifeyrissjóðir
voru settir á stofn i ársbyrjun 1970
samkvæmt ákvæðum i kjara-
samningum aðila vinnumarkað-
arins frá árinú 1969. Við það verð-
ur ekki unað að stjórnvöld geti
einhliða ráðskast með fjármuni
lifeyrissjóðanna og gripið þannig
inn i gerða kjarasamninga aðila
vinnumarkaðarins.
Framkvæmdastjórn Sambands
almennra lifeyrissjóða er að
sjálfsögðu ljós sá mikli vandi,
sem sjóðirnir eiga við að etja á
verðbólgutimum. Framkvæmda-
stjórnin er og hefur ávaiit verið
reiöubúin aö ræða ávöxtunarmál
lifeyrissjóðanna og leita lausnar
á þeim málum i samvinnu við
stjórnvöld. Hins vegar munu
stjórnir lifeyrissjóðanna, sem
skipaðar eru að jöfnu fulltrúum
aðila vinnumarkaöarins, ekki ljá
máls á þvi, að hægt verði með
einhliða lagasetningu að ráðskast
með fjármuni þeirra.
Framkvæmdastjórn Sambands
almennra lifeyrissjóða lýsir yfir
fyllstu andstöðu sinni Við slikum
vinnubrögðum, og skorar jafn-
framt á stjórnvöld að falla nú
þegar frá ráðagerðum sinum um
lagasetningu vegdna skulda-
bréfakaupa lifeyrissjóðanna af
fjárfestingalánasjóðum. Um slik
kaup, skal nú sem áður, semja á
jafnréttisgrundvelli”.
V erkfall
orkustarfs-
manna
á Grænlandi
bannað
GODTHAB 15/12 Reuter —
Starfsmenn við orkuver á Græn-
landihættu við fyrirhugað verkfall
eftir að danska stjómin hafði
knúið gegnum Danaþing löggjöf
um ibann viö berkfallinu. Var það
gert á þeim forsendumað verk-
fallið myndi valda Grænlending-
um miklum vandræðum á köld-
ustu mánuöum vetrarins, en þvi
hefði fylgt að tekiö hefði verið
fyrir rafmagn til húsahitunar.
Nemendaleikhús
Leiklistarskóla
íslands
Sýnir leikritið:
,/Við eins manns borð"
eftir Terence Rattigan i
Lindarbæ
sunnudagskvöld kl.
20.30.
Leikstjóri: Jill Brooke
Arnason.
Mióasala í Lindarbæ frá
kl. 17.
Pípulagnir
Nylagnir, breytmg-
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli' kl.
12 og ’ og eftir k!. 7 a
kvoldm!
VERZUfl MR SEM ÚRVAUÐ ER MESTOG KJÖRIN BEZT
Einfalt og ódýrt
undir Mjómtækin
ogplöturnar
Verð aðeins kr. 24.500.-
Húsgagnadeild
HRINGBRAUT121 -SIMI28-601