Þjóðviljinn - 18.12.1977, Side 4

Þjóðviljinn - 18.12.1977, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagurinn 18. desember 1977 Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóbviljans. Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaói: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: úlfar Þormóösson. Ritstjórn, afgreiösia, auglýsingar: Sföumúla 6, Sfmi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. Sviptir fjárforrœði með valdboði í lok siðasta áratugs knúðu verkalýðs- félögin fram stofnun hinna almennu lif- eyrissjóða verkalýðsfélaganna eftir langa og hraða baráttu. Lifeyrissjóðum verkalýðsfélaganna var ætlað það hlutverk, að skapa verkafólkinu aukið öryggi á elliárum og ef slys bæri að höndum. Þeir áttu að draga úr hinu mikla misrétti, sem fyrir hendi var, milli þess fólks sem engan aðgang hafði átt að lif- eyriss jóðum og hinna sem lengi höfðu búið að verðtryggðum lifeyrissjóðum. Lifeyrissjóðir verkalýðsfélaganna hafa á siðustu árum gegnt tviþættu hlutverki. Þeir hafa tryggt öldruðum félagsmönnum nokkur auraráð umfram það sem al- mannatryggingakerfið skammtar þessum þjóðfélagsþegnum, og þeir hafa einnig með lánum til ibúðarbygginga komið mörgu yngra fólkinu i verkalýðsfélögun- um að notum. Lán frá lifeyrissjóðum verkalýðsfélaganna hefur á þessum sið- ustu árum oft ráðið úrslitum um það, hvort ungt og eignalaust fólk, sem var að hefja búskap, gat fest sér ibúð eða ekki. Það er ekki að ástæðulausu, að á þetta er minnt einmitt nú. Þessa dagana liggur fyrir Alþingi frum- varp frá rikisstjórninni um að skylda lif- eyrissjóðina til að kaupa skuldabréf af rikinu á næsta ári fyrir hvorki meira né minna en 40% af öllu ráðstöfunarfé sinu. Við kjarasamningana, sem gerðir voru snemma árs 1974 var um það samið, að lif- eyrissjóðirnir keyptu verðtryggð skulda- bréf rikisins fyrir helmingi lægri hluta af ráðstöfunarfé sinu en nú er talað um, það er fyrir 20% af ráðstöfunarfénu. Um þetta var þá samið, — og á móti skuldbatt rikisvaldið sig til að gera veru- legt átak til að hrinda i framkvæmd stór- auknum byggingum ibúðarhúsnæðis á félagslegum grundvelli. Mjög stuttu eftir, að þessir samningar voru gerðir urðu sem kunnugt er stjórnar- skipti. Núverandi rikisstjórn hefur tviveg- is endurnýjað yfirlýsinguna frá 1974 um átak varðandi byggingu ibúðarhúsnæðis á félagslegum grundvelli, — en efndirnar hafa engar orðið, þótt brátt séu liðin fjög- ur ár, siðan yfirlýsingin var fyrst gefin út. Samt var þessi yfirlýsing á sinum tima forsenda þess, að verkalýðsfélögin féllust á, að kaupa rikisskuldabréf fyrir 20% af ráðstöfunarfé sinu. En nú hefur rikisstjórnin enn einu sinni kastað hanskanum i samskiptum sinum við verkalýðshreyfinguna. Nú er lagt fram frumvarp á Alþingi um að gera hvorki meira né minna en 40% af ráðstöf- unarfé lifeyrissjóðanna upptækt. Nú er ekki talað um að leita samkomulags við verkalýðshreyfinguna eða stjórnir lif- eyrissjóðanna um málið. Valdboðið eitt skal gilda. — Og þetta frumvarp er lagt fram án þess, að nokkur ástæða sé talin til þess að minnast á málið við fulltrúa verka- lýðshreyfingarinnar eða stjórnir lifeyris- sjóðanna. Eðvarð Sigurðsson, formaður Dags- brúnar andmælti þessum fyrirætlunum rikisstjórnarinnar mjög harðlega á nætur- fundi á Alþingi nú i vikunni. Hann benti á að áform rikisstjórnarinn- ar stefndu að þvi, að taka ráðstöfunar- réttinn yfir fé sjóðanna af eigendum þess- ara fjármuna, sem*væru fólkið i verka- lýðsfélögunum. Ef rikisstjórnin framkvæmdi þessa fjárupptöku þá hlyti það óhjákvæmilega að bitna með beinum hætti á þvi fólki i verkalýðsfélögunum, sem leita þyrfti til lifeyrissjóðanna með lán. Frá þessu fólki ætlaði rikisstjórnin að taka peningana með valdboði, og teldi sig ekki einu sinni þurfa að ræða málið við verkalýðsfélögin. Eðvarð sagði, að allt ráðstöfunarfé lif- eyrissjóðanna, sem ekki hafi verið varið til kaupa á rikisskuldabréfum, hafi farið i lifeyrisgreiðslur og lán til sjóðfélaga. Hjá mörgum lifeyrissjóðanna væru langir bið- listar eftir lánum, — dæmi væru um 18 mánaða biðtima. Eðvarð kvaðst lýsa fyllstu andstöðu við að lögbinda meðferð á fjármunum lif- eyrissjóðanna, og hann kvaðst sannfærður um að það markmið, sem rikisstjórnin stefndi að með þessum fyrirætlunum, það næðist ekki. Ástæða þess væri sú, að væru sjóðirnir með þessum hætti sviptir þeim möguleikum til lánveitinga, sem þeir hafa haft, þá yrði áhugi sjóðfélaganna fyrir að greiða sin iðgjöld einfaldlega ekki lengur fyrir hendi. Slik lagasetning um að svipta fólkið i verkalýðsfélögunum að mjög verulegu leyti sinun umráðarétti yfir eig- in lifeyrissjóðum mun hreinlega torvelda mjög alla innheimtu iðgjalda i lifeyris- sjóðina. Eðvald lauk máli sinu með þvi að skora á rikisstjórnina að hverfa frá þessum valdbeitingaráformum gagnvart verka- lýðshreyfingunni, og gerir Þjóðviljinn þau orð að sinum. k. Pýðir nokkuð að glíma við Vísindamenn fylkja nú liði gegn gervivísindum Oft hafa visindamcnn verið sakaðir um að láta sér I léttu rúmi 'iggja. hvað aðrir menn haida um lifið og tilveruna — a.m.k. meðan menn ekki segja sitt perso'nulega álit vera einskonar visindi. En nú upp á siðkastið hefur orðið sú merka þróun i Bandaríkjunum, að visindamenn hafa fundið hjá sér hvöt til að mótmæia öllum Loks heldur hann kjafti i þeim góða og iærða bæ Oxford er nú meiri kyrrð en verið hefur um stund — loksins heldur náungi að nafni Ray Cantwell kjafti. Ray þessi einsetti sér að setja nýtt heimsmet i að samkjafta ekki. Hann hélt áfram i 150 stundir nema hvað hann tók sér 1 1/2 klukkustundar hlé á sólar- hring til að raka sig, baða sig og éta. Fyrir þetta afrek fékk hann 900 pund i verðlaun þeim kynstrum af gervivisindum, sem sniðugir menn hafa verið að selja fólki að undanförnu. Hérerum að ræöa bæði gamlar og nýjar lummur. Stjörnuspeki hefur aldrei verið vinsælli, og enginn veit hve margir hinna „raunsæju” kapitalista Banda- rikjanna gripa til stjörnuspá- dóma i sambandi við fjárfest- ingar. Fljúgandi furðuhlutir riða húsum — Carter forseti er einn þeirra sem á þá trúa. Hér við bætast Bermundaþrihyrningur- inn (flugvélar og skip eiga að hafa horfið sporlaust á vissu svæði), pýramídavald svokallað, stjörnugeislar, bækur um að maðurinn sé upphaflega kominn frá öðrum hnöttum og svo hinir sérkennilegu og margauglýstu hæfileikar Uri Gellers sem beygir hnifa og gaffla með augunum. Og sumir háskólar i Bandarikjunum eru farnir að auglýsa námskeið i dulsálfræðum og stjörnuspeki — ekki til að rannsaka þessi fyrir- bæri frá félagsfræðilegu sjónar- miði heldur til að boða þau sem æðri sannindi. Vísindamenn o g galdramenn. Og nú er svo komið, að visindamönnum er farið að leiðast. Þeir komu á fót i fyrra timariti sem þeir kalla Zetetic (dregið af griska orðinu yfir efa- hyggjumann) sem birtir gagn- rýni á staðhæfingar gervi- visindanna. Riti þessu er stjórnað af nefnd sem heitir ,,Nefnd til visindalegra rannsókna á tilkalli sem menn gera til yfirnáttúrulegra fyrir- bæra”. I þessari nefnd sitja bæði eðlisfræðingar, stjörnufræðingar, sálfræðingar — og svo „galdramenn” — það er að segja menn sem vita, hvernig á að fara að þvi að nota tiltölulega einfald- ar aðferðir til að telja fólki trú um að „yfirnáttúrulegir” atburðir eigi sér stað. Fyrir tveim árum stóðu fyrir- rennarar þessarar nefndar að undirskriftasöfnun meðal visindamanna gegn stjörnuspá- dómadellunni. Nýlegt hefti tima- ritsins gagnrýnir hinar vel aug- lýstu hugmyndir um að saga okk- ar hnattar sé tengd samböndum við aðra hnetti fyrr á timum. Galdramaður einn, sem James Randli heitir, hefur i þágu þessa ágæta efasemdartimarits endur- tekið öll afrek hins fræga Uri Gellers — hann hefur beygt og sveigt hluti úr málmi, látið brotin úr fara af stað aftur og lesið „leynileg” skilaboð. Fyrir ári bauð ofangreind nefnd Geller á fund sinn til að prófa „yfirnáttúru- leg” afrek hans, en hann mætti aldrei til leiks. Dixon og við hin Nefnin hefur einnig tekið til bæna stjörnuspádóma Jeane Dixon, sem birtust i Morgun- blaðinu með miklu yfirlæti þang- að til Matthías ritstjóri sagði þessari kerlingu upp. Það kemur á daginn, að Dixon þessi getur spáð fyrir um atburði t.d. i stjórn- málum af nákvæmlega sama viti og hver annar sem leggur þaö á sig að fylgjast litilsháttar með fréttum i. blöðum. Nefndin hefur m.a. stefnt fyrir rétt sjónvarpsstöðinni NBC fyrir dagskrár um andalækningar á þeim grundvelli, að hinn öflugi áróður sem leikarinn frægi, Burt Lancaster, var keyptur til að flytja i myndaflokki þessum um Betty Talmadge heitir kona bandarisk, sem nú hefur bætt nafni sinu við langan lista höf- unda ritverka — Bókin heitir „Hvernig hægt cr að sjóða svin”. Frú Talmadge segir, að til þess að skrifa bók þessa, hafi hún orðið Vísindi og samfélag „hjálp að handan”, gæti beinlinis komið i veg fyrir að fólk leitaði sér skynsamlegrar læknis- fræðilegrar aðstoðar. En ekki vilja allir visindamenn taka þátt i baráttunni gegn gervivisindunum. Sumir segja sem svo, að það skipti ekki máli á hvað fólk trúir — það muni alltaf finna sér eitthvað til. Aðrir segja að það sé gjörsamlega vonlaust að reyna að tala með rökum við þá sem trúa á „gervivisindin” — það fólk hafi fyrirfram lokað að sér og taki ekki sönsum. (áb byggðálHT) að sjóða litinn og elskulegan grls, en það hafi hún aldrei gert áður: „Og fyrst þurfti ég að drepa gris- inn”. Það var að vísu erfitt, sagði höfundur bókarinnar, en ég imyndaði mér að þetta væri eitt af þessum karlsvinum — og þá kom þetta strax. Að sjóða svínið!

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.