Þjóðviljinn - 18.12.1977, Page 17

Þjóðviljinn - 18.12.1977, Page 17
Sunnudagurinn 18. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17. Kristberg Kristbergsson og Hannes Hafsteinsson sýna blaBamanni saltkjötib. andi fyrir ákveðna framleiðslu, sagði Jón óttar. Þar taka nemendur fullan þátt i framleiðslunni og til dæmis má nefna að i Kjörveri unnu þeir um 10.000 pylsur fyrir skömmu og einnig bökuðu þeir um 1800 brauð á öðrum stað. Þess á milli vinnum við að matvælaframleiðslu i smærri stil á rannsóknastofu sem við höfum til umráða á lofti Iþróttahúss Háskólans. Þar höfum við m.a. unnið að sultugerð úr eplum og appelsin- um og einnig búið til ávaxtasafa og vin. Matvælafræðin hefur einnig að- stöðu á Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins og á Rannsóknastofn- un landbúnaðarins til tilrauna og rannsókna, og hafa nemendur unnið að þvi þar að bragðbæta mysu með ýmsum tegundum ávaxtasafa, kannað áhrif pökk- unar i litlar fernur og geymslu- þol mysunnar. Saltkjötiö efnagreint Þegar Þjóðviljamenn bar að garði voru nemár önnum kafn- ir við að efnagreina saltkjöt, sem þeir höfðu sjálfir saltað á 6 mis- munandi vegu tveimur vikum áður. Þar var bæði um þurrsöltun og pækilsöltun að ræða, en i pæklin- um var mismunandi magn af nitriti eða saltpétri. Einnig höfðu þau bætt C-vitamini i pækilinn og sögðu okkur ófróðum, að við það yrði kjötið rautt og fallegt. Við spurðum Jón Óttar einnig hver þörfin væri fyrir matvæla- fræðinga hér, og hver starfsvett- vangur þeirra yrði. Kennslan er fyrst og fremst hugsuð til þess að fullnægja þörf- um islensks matvælaiðnaðar fyrir háskólamenntað fólk, sagði Jón Óttar. Af þeirri ástæðu er lögð áhersla á að nemendur fái haldgóða þekkingu á öllum grein- um islensks matvælaiðnaðar. Þriðjudaginn 20. desember kl. 20.30 i franska bókasafninu (Laufásveg 12) verður sýnd franska kvikmyndin i lit- um og með enskum texta: ,,LA MORT D’UN GUIDE” fjallar um átakanlega við- burði sem gerast upp til fjalla. Myndin er gerð árið 1975 af Jacques Ertaud. Aðal- leikarar: Victor Lanoux og Georges Claisse. Þörf fyrir 6—10 manns á ári Að námi loknu geta matvæla- fræðingar þvi orðið liðtækir við framleiðsluna sjálfa, i heilbrigðiskerfinu og i skólakerf- inu, og ég gæti trúað að þörf yrði fyrir 6—10 manns árlega á þessu sviöi. Að námi loknu geta matvæla- fræðingar starfað að vöruþróun, stjórnun framleiðslunnar og endurskipulagningu, sé hennar þörf; auk þess geta þeir komið á fót og annast matvælaeftirlit, svo sem gæðaeftirlit og efna- og gerlaeftirlit. Þá verður lögð mikil áhersla á kennslu i löggjöf og reglugerðum sem matvælaiðnaðinum eru sett- ar, þvi það mun áreiðanlega koma i hlut nemenda að semja vörulýsingar og reglur um með- ferð vörunnar siðar meir. Einnig er lögð áhersla á að nemendur fái það góða undir- stöðu i næringar- og manneldis- fræðum, að þeir geti eftir stutt viðbótarnám starfað sem fæðis- fræðingar innan heilbrigðis- kerfisins, svo dæmi sé nefnt. Þá má einnig reikna með að veruleg þörf verði fyrir sér- menntaða kennara i þessum greinum á hinum ýmsu stigum skólakerfisins og að siðustu má nefna að sjálfsagt verður þörf fyrir sérmenntað fólk i þessum greinum hjá hinu opinbera, bæði við eftirlits- og rannsóknarstörf. —AI. Jólahangikjötið komið ! Hálfir skrokkar, læri, frampartar, hryggir. Einnig fæst úrbeinað hangikjöt í lofttæmdum umbúðum. REYKIÐJAN HF. SMIÐJUVEGl 36 ® 7 63 40 Blikkiðjan Asgaröi 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 „Mest spennandi bók ársins" Sunday Times Marco Riccione er félagi í Mafiunni og kunnur fyrir að geta framið fullkomna glæpi. Frammistaða hans í störfum Mafiunnar gerði það að verkum að hann komst frá fátæku þorpi á Sikiley til æðstu starfa á vegum Mafiunnar í Bandarikjunum. Samstarf Mafiunnar og CIA I ákveðnum verkefnum varð til þess að hann var valinn í verkefni, sem talið var það erfiðasta. En hann vissi ekki í hvað mikilli hættu hann var sjálfur „Það rísa á manni hárin við lestur þessarar bókar" Financial Times NORMAN LEWIS ST&Æ M • ■ " NORMAN LEWIS Sikilcyjar ixinn H 525 U g o » s I cc CIA FÉKK LANAÐAN SERFRÆÐING FRÁ MAFÍUNNI Verö kr. 2.990.- SAMSTARF MAFIUNNAR OG CIA FÉKK ÓVÆNTAN ENDI . . .

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.