Þjóðviljinn - 19.01.1978, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. janúar 1978
Stefnubreyting nauðsyn
Ljóst er að vegna afskiptaleysis
borgaryfirvalda af atvinnumál-
um hefur atvinnuþróun i borginni
orðið með öðrum hætti en æski-
legt er.
Eins og berlega er dregið fram i
skýrslu embættismanna borgar-
innar um atvinnumál hefur aukn-
ing á atvinnustarfsemi, á liðnum
árum og áratugum, nær eingöngu
orðið á sviði viðskipta og þjónustu
en framleiðslu og úrvinnslugrein-
ar standa i stað eða eru jafnvel á
undanhaldi.
BorgarstjórnReykjavikur telur
af þessari ástæðu að nauðsynlegt
sé aö gera viðtækar ráðstafanir I
atvinnumálum til að tryggja hag-
stæða atvinnuþróun.
Borgarstjórn bendir á aö
Reykjavik og höfuðborgarsvæðið
hafi upp á margvislega kosti að
bjóða fyrir hvers kyns iðnað og
framleiðslu, sem einmitt þarf aö
efla, eigi atvinnuöryggi að vera
tryggt:
a. Höfuðborgarsvæðið er stærsta
markaðssvæði landsins.
b. Reykjavikurhöfn er helsta út-
og innflutningshöfn landsins.
c. Reykjavik byður upp á næga og
ódýra varmaorku bæði til
framleiðslu og hitunar.
d. Hvergi er raforkuöflun og
dreifing öruggari en hér og
verð á raforku fyllilega sam-
keppnisfært við önnur land-
svæði.
e. Við bæjardyr Reykjavikur eru
ein bestu vatnsból landsins og
þarf að fara fram itarleg könn-
un á þeim til þess aö tryggja
nægjanlegt vatn til iðnaðar.
f. Reykjavik er miðstöö sam-
gangna innanlands — á landi,
lofö og legi.
Allir þessir þættir ættu að geta
skapað skilyrði fyrir öflugt og
blómlegt atvinnulif.
Efling atvinnulifs i Reykjavik
er ekki aöeins hagsmunamál ibú-
anna og metnaðarmál borgar-
stjórnar: það er nauðsyn þjóðar-
innar að traust atvinnuþróun eigi
sér stað i höfuðborginni og að þar
sé einnig stunduð önnur iðja en
verslun og þjónusta.
Af þessum ástæðum ályktar
borgarstjórnaönauðsynlegt séað
efla atvinnumálanefnd borgar-
innar og að henni verði fengið það
hlutverk meö aðstoð skrifstofu
borgarhagfræðings að fylgjast
með atvinnuþróun i borginni og
Sigurjón Pétursson
gera tillögur til borgarstjórnar
um nauðsynlega aðstoð til efl-
ingar atvinnulifs i þvi augnamiði
að teysta undirstöðuatvinnu-
greinarnar i borginni.
Atvinnumálanefnd skal gera 4
ára áætlun um uppbyggingu at-
vinnulifs, og skal hún lögð fyrir
borgarstjórn eigi siöar en f októ-
ber n.k.
Viö gerö atvinnumálaáætlunar-
inar skal nefndin leggja áherslu á
eftirfarandi grundvallaratriöi:
Adda Bára Sigfúsdóttir
1. Borgin hafi sjálf frumkvæði og
forystuum uppbyggingu nýrra
atvinnutækifæra.
2. Reynt verði eftir því sem kost-
ur er að laða almenning til
beinnar þátttöku i atvinnu-
starfsemi með stofnun fram-
leiöslusamvinnufélaga og skip-
an samstarfsnefnda á þeim
vinnustöðum, sem þegar eru i
eigu borgarinnar.
Þar sem margskonar atvinnu-
rekstur er svo stór i sniðum að
útitokaðer að koma honum á legg
nema meö beinni eignaraöild
Þorbjörn Broddason
borgar eða rikis, telur borgar-
stjórn eðlilegt og sjálfsagt að
borgin taki þátt i uppbyggingu
slíkra atvinnufyrirtækja enda
falli þau að öðru leyti vel að reyk-
visku atvinnulifi.
Þegar á þessu ári verði varið
kr. 15 miljónum til að vinna að
áætlunargerð og nauðsynlegum
undirbúningi.
Eftirtalin atriði bendir borgar-
stjórn sérstaklega á:
Efling Bæjar-
útgerðarinnar
Stuðla ber að þvi að útgerð efl-
ist á ný frá Reykjavik. Bæjarút-
gerð Reykjavikur verði efld og
fyrirtækinu gert kleift að færa
rekstur sinn allan i nýtiskulegt
horf eftir þvi sem aðstæður i landi
leyfa.
Stefna ber að þvi að allar fisk-
afurðir sem fluttar eru út verði
fullunnar til neyslu.
Borgarstjórn minnir á þessi
sérstöku verkefni við Bæjarút-
gerðina:
a. Tryggja þarf að framkvæmdir
við kælda fiskmóttöku, bætta
starfsmannaaðstöðu og
„kassavæðingu” tefjist ekki
vegna fjárskorts.
b. Fjölga þarf togurum BÚR i
5—6 auk þess sem BÚR þarf að
eignast 1 eða 2 nótaveiðiskip.
c. Veiðiferöir togaranna taki
styttri tíma þannig að engin
taki lengri tima en 10 daga til
að tryggja sem ferskast hrá-
efni.
d. Kanna þarf gaumgæfilega
hagnýtingu á fiskúrgangi til
lyfjagerðar og manneldis. 1
þessum efnum ber að hafa
samstarf við Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins og Háskóla
íslands.
e. Gera ber einnig tilraunir meö
nýtingu kolmunnaog spærlings
til manneldis.
Þannig verði megináherslan
lögðá betri vinnslu og aukin verð-
mæti þess afla sem berst á land.
Reynslan af Bæjarútgerö
Reykjavikur sýnir nauðsyn þess
að borgin sjálf hafi frumkvæöi og
forystu.
Fiskrækt
Jafnframt þvi sem lögð verði
megináhersla á að auka verð-
mæti þess sjávarafla sem berst á
land, þarf að huga vel að þeim
möguleikum, sem vatnahverfi
borgarimiar bjóða uppá i fisk-
eldismálum.
Borgarstjórn bendir á tvennt:
a. Laxeldi i sjó með hagnýtingu
hitaveitu þarf að kanna gaum-
gæfilega.
b. Kanna þarf möguleika á rækt-
un vatnafiska f tilbúnum tjörn-
um i borgarlandinu.
Stór skipaverkstöð
Borgarstjórn beiti frumkvæði
sinu og áhrifum til að hefja hér
atvinnustarfsemi og framleiðslu,
sem nú er keypt erlendis frá.
Þannig ynnist tvennt: Aukin at-
vinna innanlands og mikill gjald-
eyrissparnaður fyrir þjóðarbúið i
heild.
í þvi sambandi er bent á eftir-
farandi atriði:
a. Skipasmiðar og skipaviðgerðir
verði efldar i höfuðborginni
m.a. með byggingu stórrar
skipaverkstöðvar.
b. Kannaður verði gaumgæfilega
grundvöllur fyrir aukinn raf-
eindaiðnað, ýmiskonar vél-
smiði, t.d. framleiðslu vara-
hluta i vélar og taski, smiði á
lokum og dælum fyrir t.d. hita-
veitur og vatnsveitur, samsetn-
ingueða smiði á rafmagnsmæl-
um og heitavatnsmælum
o.s.frv.
c. Kannaður verði grundvöllur
fyrir endurvinnsluiönaði i
borginni t.d. framleiðslu á þil-
plötum úr pappirog timburaf-
göngum, vinnslu á brotajárni,
áburðarframleiðslu og fleiru.
d. Kannaðir verði möguleikar til
matvælaframleiðslu I yl-
ræktarverum i stórauknum
mæli.
e. Undirbúin verði framleiðsla
fiskikassa og fiskibakka.
Iðngarðar
Jafnframt þeim verkefnum,
sem hér hafa verið talin upp,
bendir borgarstjórn á nauðsyn
þess að huga vandlega að eftir-
töldum atriðum á vegum atvinnu-
málanefndar og borgaryfirvalda
i framtiðinni:
a. Fylgst verði vandlega meö
framleiðslugetu og fram-
leiðslumöguleikum innlendra
fyrirtækja og viðskiptum opin-
berra aðila beint að þeirri
fríimleiðslu.
b. Reykjavikurborg hafi frum-
kvæði að þvi að efla samvinnu
fyrirtækja i skyldum starfs-
greinum i þvi augnamiði að
auka samkeppnishæfni þeirra
gagnvart innflutningi.
e. Borgin hafi jafnan nægjanlegt
framboð af iðnaðarlóðum
þannig að fyrirtæki i fram-
leiðslu ogúrvinnslugreinum fái
svæði, sem nægi til eðlilegs
vaxtar og stækkunar um all-
langt árabil. Eftirlit verði haft
með þvi að iðnaðarhúsnæði
verði ekki tekið til annarra
nota.
d. Reykjavikurborgbyggi ein sér
eða i samvinnu við aðra iðn-
garða til útleigu fyrir fy rirtæki.
Leigukjör fyrstu 3—5 árin verði
sérlega hagstæð.
Skipulagið
Borgarstjórn telur að aðgrein-
ing ibúðahverfa og atvinnustarf-
semi hafi verið of mikil á undan-
fórnum áratugum og að nú beri
markvisst að auka atvinnustarf-
semi i ibúðahverfum og beita
skipulagi hverfanna og lóðaút-
hlutunum i þvi skyni. Borgar-
stjórn leggur áherslu á eftirfar-
andi atriði:
a. 1 skipulagi nýrra ibúðahverfa
verði jafnan gert ráð fyrir iðn-
aðarsvæðum i eða við ibúða-
byggðina.
Framhald á bls. 14.
Stefán
Benedikt
Soffia
Kjartan
Helgi
ALÞÝÐUBAND ALAGIÐ
Hvað er í húfi —
Hvað er framundan?
Alþýðubandalagið boðar til almennra stjórnmálaf unda á eftirtöldum stöðum um helgina i Norðurlandskjördæmi eystra:
Olafsfjörður: Föstudaginn 20. janúar kl. 20:30 Stefán Jónsson, alþingismaður Soffia Guðmundsdóttir, kennari, Helgi Guðmundsson, trésmiður, flytja stuttar framsöguræður og sitja fyrir svörum. Dalvík: Sunnudaginn 22. janúar kl. 14:00 i Vikurröst: Stefán Jónsson, alþingismaður Soffia Guðmundsdóttir, kennari, Helgi Guðmundsson, trésmiður, flytja stuttar framsöguræður og sitja fyrir svörum.
Akureyri: Laugardaginn 21. janúar kl. 14:00 i Alþýðuhúsinu Stefán Jónsson, alþingismaður Benedikt Daviðsson, form Sambands byggitigarmanna Kjartan Olafsson, ritstjóri flytja stuttar framsöguræður og Á f undunum verður rætt um orsakir fjármálaspillingar- innar i íslensku þjóðlífi, íslenska atvinnustef nu og hvernig vernda má kaup- mátt launa og réttindi verkafólks gegn þeim árás- um á kjörin sem yfir vofa.
sitja fyrir svörum. Allir velkomnir á fundina Burt með ríkisstjórn braskaranna
Þjóðviljinn birtir í heild tillögu borgar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins um at-
vinnumál. Tillögurnar verða ræddar á
fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag