Þjóðviljinn - 19.01.1978, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.01.1978, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. janúar 1978 Staða f ramkvæmdast j óra Orkubús Vestfjarða Stjórn Orkubús Vestfjarða auglýsir eftir framkvæmdastjóra Orkubús Vestfjarða. Lögð er áhersla á haldgóða menntun og starfsreynslu á sviði stjórnunar og fjár- mála. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1978. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsóknir skulu stilaðar til stjórnar Orku- bús Vestf jarða og sendar formanni stjórn- ar, Guðmundi H. Ingólfssyni, Holti, Hnifs- dal sem jafnframt gefur nánari upplýsing- ar. Isafirði 4. janúar 1978 Stjórn Orkubús Vestfjarða. BLAÐBERAR óskast 1 eftirtalin hverfi: Vesturborg: Hjarðarhaga Kvisthaga Háskólahverfi Austurborg: E;ikjuvog Sogamýri Seltjarnarnes: Lambastaðahverfi Melabraut Afleysingar: Efri-Laugaveg Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða- birgða i nokkrar vikur. ÞJÓÐVILJINN Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna, Siðuinúla 6. — Simi 81333. 2 C 2 \gjf Sjúkrahús á Akureyri Tilboð óskast i múrhúðun þriggja hæða nýbyggingar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri og skrifstofu bæjarverkfræðings á Akureyri gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri fimmtudaginn 2. febrúar 1978 kl. 11 fyrir hádegi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Su&ureyrarbátar Hér fer á eftir yfirlit um afla Súgfirðinga árið 1977. Kemur þá fyrstur m/s Kristján Guömundsson, 1S 77, keyptur hingaö frá Noregi og kom þann 6/10 1970, þá tveggja ára gamall. Stærð hans, samkvæmt siðustu mælingu, er 170 brúttósmálestir. Heildarafli hans árið 1977 varö 1158,9 tonn en árið 1976 1224,9 Sigurvon.Kom hingað að sunn- an 9/10, 1971. Varsmiðuð i Noregi 1963. Stærð hennar samkvæmt nýjustu mælingu er 189 brútto- lestir. Heildarafli hennar árið 1977 varð 983,7 tonn. Arið 1976 1138,8 tonn. Aflafréttir frá Suðureyri Ólafur Friðbertsson kom hing- að frá Noregi áriö 1964, þá nýr. Stærð hans samkvæmt fyrstu mælingu er 193 ^brúttólestir. Heildarafli hans árið 1973 varð 962.8 tonn. Arið 1977 1001,2 tonn. Togskipiö Elin Þorbjarnardótt- ir er 375 brúttólestir, smiðuð i Stálvik. Kom hingað 21. mai i vor. Fór á veiðar 22. mai. Heildarafli hennar frá þeim tima og til ára- móta varð 2.216,3 tonn. Auk þess fékk Matthias ráðherra 3.5tonn úr einum svokölluðum skraptúr. Skiptaverðmæti aflans varð kr. 181.558.676.-. Hlutur með orlofi varð kr. 3.848.847.-. Afli á úthalds- dag varð 11,7 tonn. Meðalverð kr. 81.92 kg. Og aö lokum er svo togskipið Trausti. Hann kom hingað frá Noregi 29/9 1974. Smfðaár hans var 1968. Stærð hans 299 brúttó- lestir. Afli hans fyrstu fjóra mán- uði ársins 1977 varð 756.7 tonn. Hannernútilheimilis áPatreks- firði. Heildarafli þessara fimm ofan- greindra skipa varð samtals á ár- inu 6.078,4 tonn. Atta smábátar, sem við köllum trillur, fiskuðu alls 287,6 tonn. Er þá samanlagð- ur afli Fiskiðjubátanna árið 1977 6.366,0 tonn. Hann var árið 1976 5.615,8 tonn. Eitthvað kom hingað af fiski frá aðkomubátum og einna helst frá Bildudal. Gisli Guðmundsson Adalfundur Sambands gardyrkju- bænda Nýlega var haldinn i Heykja- vík aðalfuiidur Sainbands garö- vrkjubænda. Félagsmenn eru 128 og i 4 félögum. A fundinum mættu fulltrúar frá þessum félögum. Undir umræðum um hagsmunamál garöyrkjubænda kom eftirfarandi fram: Rekstrarörðugleika garð- yrkjustöðvar má rekja til þess hve litlar þær eru, sem veldur þvi, að erfitt verður um alla tæknivæðingu og þar af leiöandi aukna rekstrarhagkvæmni. Lánakjör til garðyrkjubýla eru mun óhagstæðari en til útihúsa- bygginga isveitum, en til þeirra er lánað til 20-30 ára meðan lán til byggingar gróðurhúsa eru aðeins til 10 ára, þótt húsin séu það vönduð, að þau endist i 50-60 ár. Fundurinn taldi óeðlilegt að ekki fengist Viðlagatrygging á gróðurhús nema þvi aðeins að þau væru brunatryggð, jafnvel þótt þau séu eingöngu byggð úr járni og gleri. Fundarmenn voru sammála um hættu þá, sem stafar af inn- flutningi pottablóma, en með þeim geta borist plöntusjúk- dómar, sem ekki eru fyrir i landinu. Þá var vakin athygli á þvi, að til landsins eru fluttar stórar pottaplöntur, sem tollað- ar eru eins og græðlingar. Fundurinn fa^naði auknu samstarfi við Stettarsamband bænda og við hin ýmsu búnaðar- sambönd og væntir þess, að það muni aukast á næstu árum. Mjög mikilll áhugi kom fram á fundinum um aukna kynn- ingarstarfsemi á vegum sam- bandsins á gróðurhúsaafurðum, hollustu þeirra og næringar- gildi. Þá var ákveðið að taka þátt i landbúnaðarsýningunni, sem haldin verður á Selfossi i ágúst næsta sumar. í stjórn Sambands garðyrkju- bænda eru: Gústaf Sæland, for- maður, Erlingur ólafsson, gjaldkeri, örn Einarsson, ritari A baksiöu sunnudagsblaös var birt frétt af þeirriaðferö, aö láta kisilgúr, sérstaklega meö- höndlaðan, hreinsa oliu af yfir- borði sjávar meö þvi að sökkva henni til botns. Magnús Jóhannesson hjá Siglingamálastofnun hafði sam- band við blaðið út af þessari frétt. Hann sagði, að þessi aö- ferö, aö sökkva oliu t.d. með kisilgúreða öðrum efnum, væri nú mjög á undanhaldi enda skaðleg talin. en meðstjórnendur eru Björn Sigurðsson og Reynir Pálsson. —mhg Olfan veldur meiri skaða eftir á en ef hún væri látin kyrr liggja. Hún veldur tjóni á lifriki hafsbotns, og auk þess er þessi lausn að þvi leyti timabundin, að fyrr eða siðar losnar olian aftur úr sambandi við „sökkul” sinn og veldur óskunda. Reyndar getur þessi aðferð komið að notum i einstaka til- vikum, sagði Magnús ennfrem- ur. Til dæmis má nota hana til að hreinsa oliumengað vatn áö- ur en það rennur til sjávar. En yfirleitt er þetta aðferð sem er á undanhaldi og kemur litt til álita. Úrelt aö sökkva olíu á hafebotninn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.