Þjóðviljinn - 19.01.1978, Blaðsíða 12
12 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. janúar 1978
Kveðjukvöld í Laugardalshöll
Island kvaddi með sigri
islenska landsliðið i
handknattleik lék sinn síð-
asta leik fyrir HM í Dan-
mörku í Laugardalshöll-
inni og var leikið gegn
úrvali. Leiknum lauk með
sigri landsliðsins sem
skoraði 36 mörk gegn 28
mörkum úrvalsins. Leik-
urinn var sæmilega leikinn
og voru mörg mörk lands-
liðsins mjög falleg.og voru
þaö þá þeir félagar Axel
Axelsson, sem átti mjög
góðan leik/ og Björgvin
Björgvinsson sem áttu oft-
ast hlut að máli.
Annars gékk leikurinn þannig
fyrir sig að Gunnar Einarsson
skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
landsliðið.og þegar fyrri hálfleik-
ur var hálfnaður var staðan orðin
9:6 landsliðinu i hag. Þennan mun
tókst úrvalinu ekki að minnka
fyrir hlé og jók landsliðið jafnt og
þétt fengið forskot, og i leikhléi
var staðan 13:8 landsliðinu i hag.
t siðari hálfleik var sama sagan
uppi á teningnum. Mikið um
mörk, en minni áhersla lögð við
varnarleikinn. Þegar siðari hálf-
leikur var rúmlega hálfnaður var
staðan orðin 25:20 landsliðinu i vil
og þá var sem allur máttur væri á
bak og burt úr úrvalsmönnum og
landsliðið skoraði fimm mörk i
röð án þess að úrvalið fengi svar-
að og staðan breyttist i 30:20 og
útséð um úrslit leiksins sem lauk
eins og áður sagði með sigri
landsliðsins 36:28.
Þessi leikur var sæmilega leik-
inn og er greinilegt að landsliðs-
menn okkar eru á réttri braut.
Það helsta sem lagfæra þarf er
varnarleikurinn. Þá virðist vanta
meiri skilning i sóknina.en Janus
ætti að geta lagað það þegar þar
að kemur.
Bestan leik landsliðsins að
þessu sinni átti Axel Axelsson og
var hann markhæstur með 6
mörk. Þá átti Björgvin Björg-
vinsson einnig mjög góðan leik og
skoraði mörg glæsileg mörk úr
hornunum. Hann skoraði 4 mörk
en Jón H. Karlsson 6. Af úrvals-
mönnum bar einna mest á Gisla
Blöndal og Páli Björgvinssyni, en
báðir áttu þeir þokkalegan leik.
Gisli var markhæstur með 7 mörk
en þeir Jens Jensson og Páll
Björgvinsson skoruðu sin 5 mörk-
in hvor. Leikinn dæmdu þeir Karl
Jóhannsson og Hannes Þ.
Sigurðsson og gerðu það illa.
SK.
Birgir Björnsson:
Ég er mjög bjartsýnn á að við
komumst i 8-liða úrslitin. Við höf-
um verið með erfiðar æfingar
þessa viku og það er greinilegt að
snerpan hefur aukist til mikilla
muna hjá strákunum. Ég er sem
sagt mjög bjartsýnn á gengi okk-
ar manna i Danmörku.
Gunnar Einarsson:
Það er greinilegt að þetta er allt
að koma hjá okkur. Hver og einn
okkar er að komast i betra form
og þá kemur þetta vonandi fljót-
lega. Það sem einna helst skortir
er meiri skilningur i vörn og sókn
en ég vonast til að Janusi takist
til að koma og kveðja okkur i
kvöld. Ég vona að það hafi komið
okkar vegna. Eins vona ég að við
sem erum i landsliðinu getum
launað fólkinu þennan dýrmæta
stuðning. Það eru flestir leik-
menn liðsins ómeiddir og i góðu
formi,og eins og ég hef alltaf sagt
að þá er ég mjög bjartsýnn á
gengi okkar i Danmörku, sagði
Jón Karlsson fyrirliði landsliðsins
að lokum.
SK.
Arni Indriðason átti góöan leik i gær
að koma þvi i lag áður en i slaginn
er komið.
Hins vegar er ég afar hræddur
um að ef markverðirnir okkar
verja ekki betur en þeir hafa gert
til þessa að þá komumst við ekki i
8-liða úrslitin.
Axel Axelsson:
Það er greinilegt á leiknum hér
i kvöld að þetta er allt að koma
hjá okkur. Þetta er að falla sam-
meft landsliftinu.
an. Við erum búnir að æfa vel upp
á siðkastið og árangurinn er nú
sem óðast að koma i Ijós. Við
þurfum að finpússa okkar kerfi
aðeins betur i sókninni og þá er ég
mjög bjartsýnn á gengi okkar i
Danmörku.
Jón H. Karlsson fyrirliði:
Það er afar ánægjulegt fyrir
okkur sem stöndum i þessu fyrir
HM að hafa fengið allt þetta fólk
SAGT
EFTIR
LEIKINN
BRÉF TIL ÍÞRÓTTASÍÐ UNN AR:
Mikið hefur verið skrifað um
körfuboltann að undanförnu og þá
um dómarana sérstaklega.
Allir eru það, að ég hygg, unn-
enduríþróttarinnar og viljahenni
allt gott, en þvi miður bera um-
sagnir ©g greinar sumra þeirra
meðsér hö gagnstæða. Til dæmis
þessi: Þessi leikur var lélega
dæmdur eins og alltaf. Þetta
sagði fyrirliði eins 1. deildar liö-
anna i einu dagblaðanna nýverið.
Svona umsögn virkar nú ekki
beint hvetjandi á dómara, og
skapar stjórnendum dómara-
mála ekkertnema erfiðleika, sem
eru nógir fyrir.
Ekkert er við þvf að segja, að
þetta er hans álit, en að láta hafa
það eftir sér I opinberu málgagni
er ekki beint uppörvandi. Benda
má á að einmitt féiag umrædds
fyrirliða stendur einna verst af
liðunum i 1. deiid með útvegun
dómara.
„Fyrr má nú dæma en for-
dæma”.
Stefán Kristjánsson skrifar
greinarkon i Þjóðviljann þar sem
hann talarum misnotkun á rauðu
og gulu spjöldunum. Ef til vill
mætti eitthvað betur i þeim efn-
um, en eins og Stefán setur grein-
ina fram er hún mjög ósanngjörn
oggreinilega hallaö á annan að-
ilann. Til dæmis: „Þjálfarar og
leikmenn eru útilokaðir frá tóm-
stundagamni sinu”.
Eitthvaö er nú undarlegt við
svona setningu. Ætti hún ekki aö
vera eitthvað .á þessa leið: Þjálf-
arar og leikmenn útiloka sjálfa
sig frá tómstundagamni sinu,
vegna þess að þeir hafa ekki
taumhald á skapi sinu.
Engum heilbrigðum manni
dettur I hug i alvöru að dómarar
veifi spjöldum bara aö gamni
sinu. Stefán talar um misjafnan
aldur dómaraog að þvi yngri sem
þeir séu þvi örari séu þeir og f ijót-
ari til reiði. En ég spyr, hverjir
eru það sem reyta þá til reiði? A
mjög svo ósmekklegan hátt nafn-
greinir hann svo tvo af þessum
yngri dómurum.og á enn ósmekk-
legri hátt talar hann um að þeir
séu frægir fyrir mikla notkun á
spjöldunum og að „einhverjir
fróðir menn” segi sér að þeir séu
búnir að koma sér upp spjaldskrá
yfir alla þá sem biinir eru að finna
fyrir spjöldum þeirra.
Sé það einlæg ásetning Stefáns
að hafa áhrif til hins betra með
svona skrifum, verður hann að
vanda sig betur. Ekki get ég látið
hjá liða að nefna siðasta atriðið í
grein Stefáns þar sem hann talar
um að skipulagsleysiö I körfubolt-
anum sé algjört, og að móta-
nefndin hafi unnið slæmt starf.
Nú ætla ég ekki að fara að segja
að allt sé óaðfinnanlegt hjá KKl
þar mætti eflaust ýmislegt gera
betur en gert er. En dálitiö bros-
legt finnst mér hvernig Stefán
varpar fram tillögu um það
hvernig mætti gera hlutina betur,
en endar svo ráðleggingarnar
með þvi að segja að sennilega sé
ekki hægt aö nota þær vegna þess
aðsárafáir menn fáisttilað vinna
fyrir körfuboltann. Og þar hittir
Stefán einmitt naglann á höfuðið.
Það eru allt of fáir menn sem gefa
sig i þetta starf, svo málglaðir og
ritglaðir „körfuboltamenn” séu
ekki að gera þeim erfitt fyrir.
Gagnrýni er þessum mönnum
vafalaust nauðsynleg, en hún
veröur þá að vera sanngjörn og
réttlát; aö öörum kosti verða eng-
ir eftir til að vinna að þvi aö sam-
eiginlega áhugamáli okkar að
gera veg körfuboltans sem mest-
an og bestan.
Jón Otti Ólafsson,
Form. Dómaranefndar KKI
Svar íþrótta-
síðunnar
tfl lóns Otta
Eins og sjá má hér á sfðunni rit-
ar Jón Otti Olafsson formaður
dómaranefndar KKt athugasemd
við grein mina sem birtist i Þjóð-
viljanum þann 11. janúar s.l.
Þar skrifaði undirritaður um
þann spjaldaávana sem gripið
hefur yngri kynslóö dómara okk-
ar og einnig um skipulagsleysið
sem sé algjört.
Ég stend enn við hvert það orð
sem i greininni stendur og vel
það. Jón Otti veit vel að misnotk-
un hefur verið á spjöldunum siðan
þau voru tekin I umferð. Menn
hafa aö mestu leyti gleymt einni
mestu refsingunni sem var áður
en til spjaldanna kom, þ.e. tækni-
vitinu. Istað þess að dæma tækni-
viti á ieikmann sem hegðar sér
ekki samkvæmt reglum körfu-
knattleiksins er honum nú sýnt
annaöhvort rautt eða gult spjald
og þó aðallega rautt.
Jón Otti leyfir sér að brosa að
þvi.að fáir menn fáist til að vinna
fyrir körfuboltann og gerir grin
að tillögum minum til úrbóta i
þeim efnum.
Jón Otti veit vel aö þetta er al-
vörumál sem við er að glima,þ.e.
mannfæðin. En samt leyfir hann
sér aö brosa að tillögum til úr-
bóta. Enginn botnar aö sjálfsögðu
i svona vitleysu.
Jón Otti veit vel þó hann þykist
ekki vita það aö forusta KKI er
engin Idag. Þvi miður. Körfubolt-
inn hefur verið i mikilli sókn að
undanförnu, og hefur tilkoma er-
lendu leikmanna þar örugglega
mikið að segja. Þaö sem hins veg-
ar hefur verið á stöðugri niðurieið
er forustan, forustusauðurinn
hann hefur villst illilega af leið i
þetta skiptið.
Um þessi mái veit Jón Otti eins
vel og ég.en samt reynir hann að
klóra i bakkann fyrir stjórn KKI
sem þó heföi átt að geta svaraö
fyrir sig sjálf.
En ég vil að lokum leyfa mér aö
vona að dómarar takmarki eftir
bestu getu notkun spjaldanna.
Málinu er lokið af minni hálfu.
Stefán Kristjánsson.