Þjóðviljinn - 19.01.1978, Side 16

Þjóðviljinn - 19.01.1978, Side 16
UOÐVIUINN Fimmtudagur 19. janúar 1978 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. ^ 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans i sima- skrá. Krafla Hörð skjálfta- hrina kom í gær og hraði landsigs jókst mikið um leið Um kl. 11 i gærmorgun kom mjög snörp jarðskjálftahrina á Kröflusvæöinu og uni leið seig land á svæðinu mun hraðar en áður. Að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings, sem er staddur fyrir norðan, var eng- inn skjálftinn yfir 3,5 st. á Richt- er, en skjálftarnir voru margir i eina tvo tima, en upp úr hádeg- inu fór að draga úr hrinunni. Siðdegis gekk yfir ný skjálfta- hrina. Páll sagöi að þarna heföi greinilega veriö um nokkuö mikið kvikuhlaup að ræöa og viröist sem kvikan hafi hlaupiö norður i Gjástykki, þvi aö upp- tök skjálftanna heföi veriö þar noröurfrá. Sá órói, sem veriö hefur á Kröflusvæðinu sl. 3 vikui;er með nokkuð öðru móti en veriö hefur áður; einkum er allt mun óreglulegra en áöur hefur verið. A stundum viröist sem hrinan sé liðin hjá, en svo fer allt af staö aftur. Til aö mynda voru menn farnir aö halda að hrinan væri liðin hjá að þessu sinni, þegar skjálftar og landsig jókst aftur i gær. Páll sagöi ennfremur aö meö- an svo mikill órói væri á svæö- inu sem raun ber vitni, væri goshætta alls ekki liðin hjá aö þessu sinni. — S.dór Síðustu fréttir: Um kl. 19 i gærkvöldi hófst verulegur órói á Kröflusvæðinu, og óttuðust menn að eldgos væri að hefjast. Jarðskjálftar voru snarpir og sumir allt að 4 stig. Um kl. 22 virtist hrina þessi hins vegar vera liðin hjá um sinn. Stokkseyri: Vinna hafín í frystihúsinu — en mikið vantar á að hráefni sé nóg Frystihúsið á Stokkseyri tók aftur til starfa á mánudaginn, en það hefur verið lokað siðan i nóv- emberlok, er öllu starfsfólkinu var sagt upp. Að sögn Björgvins Sigurðsson- ar, formanns Verkalýðs- og sjó- mannafélagsins Bjarma á Stokkseyri, eru enn 30 manns á atvinnuleysisskrá þar, en 78 voru á skrá fyrir helgina. Atvinnuleys- iðer þvi ekki úr sögunni á Stokks- eyri. Frystihúsið er ekki komið i fullan gang. Aðeins 40 manns starfa þar nú. Bráðabirgðaúr- lausn mun hafa fengist á fjár- hagsvanda frystihússins, en eng- in vilyrði fyrir framtiðarlausn. Björgvin sagði að afli þeirra fjögurra báta, sem nú eru haffær- irá Stokkseyri, auk þriðja hluta i afla togarans Bjarna Herjólfs- sonar, væri allt of litið hráefni til að geta skapað næga atvinnu. Það hlyti þvi að verða næsta skref að athuga leigu á bátum eða að tryggja hráefni með samningum við báta frá öðrum stöðum. Þeir bátar sem nú eru gerðir út frá Stokkseyri eru Fróði, Arni Magnússon og Njörður, allir i eigu frystihússins, og Hólm- steinn, sem er i einstaklingseigu. Hólmsteinn er minnstur þessara báta, 54 tonn, og hinn eini þeirra sem lagst getur að bryggju á Stokkseyri. Hinir bátarnir þrir eru frá 103 upp i 200 tonn og landa afla sinum i Þorlákshöfn. Einn bátanna er að hefja netaveiðar. Það er Fróði, en Árni Magnússon og Njörður fara fljótlega til neta- veiða. Hólmsteinn byrjar að lik- indum ekki veiðar fyrr en i febrú- ar. Af bátunum fjórum, sem skemmdust i flóðinu mikla i des- ember sl., er það að frétta, að tveir þeirra hafa verið dæmdir gjörónýtir, Vigfús Þórðarson og Bakkavik frá Eyrarbakka. Há- steinn hefur verið dreginn i slipp i skipasmiðjunni Dröfn i Hafnar- firði og eru taldar mestar likur á þvi að hann verði dæmdur ónýtur lika. Gert verður við Jósep Geir, en það mun að líkindum taka alla vertiðina, þannig að báturinn kemst ekki til veiða á þessari vetrarvertið. —eös Friðarviðræðum í Jerúsalem slitið: Sadat hefur kallað sma menn heím JEROSALEM 18/1 Reuter — Sadat Egyptaforseti kallaði í dag heim viðræðu- nefnd egypsku stjórnar- innar, sem hóf viðræður við sa mninganef ndir Bandaríkjanna og Israels í Jerúsalem i gær. Forustu fyrir egypsku sendinefnd- inni hafði íbrahim Kamel, utanríkisráðherra. Hann og aðrir talsmenn egypsku nefndarinnar segja Sadat hafa kallað þá heim vegna þess að ummæli israelskra ráðamanna bentu til þess, Mikiö vatnsveður gekk yfir Reykjavfk i gærdag og voru starfsmenn borgarinnar önnum kafnir viö aö losa um stfflur sem mynduöust f niö- urfallsopum gatnanna. Myndina tók eik. að þeim væri engin alvara með að ná fullnaðarsam- komulagi um deilumál israels og araba. Einn talsmanna Egypta sagði að það hefði verið fullljóst frá upphafi viðræðnanna, að Sadat forseti krefðist þess að ísraels- menn skiluðu að fullu svæðum, sem þeir hafa hertekið af aröb- um, og veittu Palestinumönnum fullan sjálfsákvörðunarrétt. En i ræðu, sem Begin forsætisráð- herra Israels flutti i miðdegis- verðarboði i gær, virtist hann hafna þessum kröfum. Haft er eftir egypskum heimildum að Sadat hafi fyrirskipað Kamel ut- anrikisráðherra að láta ekki draga sig út i heimspekilegar málalengingar, sem ekki myndu leiða til neins. Fréttin um brottför Egyptanna kom eins og reiðarslag yfir bandarisku og israelsku fulltrú- ana, og sagter að jafnvel egypsku nefndarmennirnir sjálfir hafi Sadat — hugsanlegt aö friöarum- leitanir hans og tsraelsmanna séu I bráöri hættu. orðið hissa. Rétt áður en fréttin komst á kreik hafði talsmaður bandarisku sendinefndarinnar sagt að allt væru i góðu gengi.og Israelsmenn létu einnig bjartsýni i ljós. Lokunaraögeröir RARIK Báru árangur Hjá RARIK var nýlega ákveðið að gripa til lokunar fyrir rafmagn til fjölmargra aöila, vegna van- skila. Gert var ráö fyrir aö til þessara aðgerða kæmi i fyrradag ef skulunautar væru þá ekki búnir að gera eitthvað i málinu. Hjá Gylfa Þórðarsyni, yfir- manni fjármáladeildar RARIK, fengum við þær upplýsingar i gær að aðeins hefði komið til lokunar hjá örfáum aðilum. Allflestir hefðu verið búnir að gera tilskild- ar ráðstafanir fyrir þann tima er til lokunar átti að koma. Þessar tilskildu ráðstafanir voru að borga þegar um helming gjald- fallinnar skuldar og eftirstöðv- arnar fljótlega. Ég býst við að vandinn hjá þessum fjórum eða fimm aðilum, sem lokað var hjá, leysist fyrir helgina. Þessar að- gerðir virðast hafa heppnast nolckuð vel,og við verðum bara að vona að það gangi vel að inn- heimta eftirstöðvarnar af þessum skuldum, ella verður að gripa til frekari aðgerða, sagði Gylfi. —IGG Drangsnes: F rysti- húsið tekið til starfa eftir eins og hálfs árs hlé Fyrir hálfu ööru ári brann frystihúsiö á Drangsnesi, eins og þá var frá skýrt i fréttum. Var þaö óhapp ákaflega tilfinnanlegt fyrir ibúana þar, þvi frystihúsið var aðal-atvinnutæki þorpsbúa, þeirra sem ekki er á sjónum. Fljótlega var hafist handa við aö endurbyggja húsið og nú i fyrra- dag hófst þar loks vinna, eftir eins og hálfs árs hlé. Blaðið hafði i gær tal af Jóni Alfreðssyni, kaupfélagsstjóra á Hólmavik, en kaupfélagið á um J0% i húsinu á Drangsnesi. Jón sagði, að þótt vinna væri nú hafin i húsinu þá vantaði þó töluvert á að það væri frágengið að fullu. Fyrir var látið ganga að koma upp aðstöðu til rækjuvinnslunnar, sem nú er lika byrjuð. Búið er að ganga frá öllu i sambandi við frystikerfi og frystiklefa,en það er fyrst og fremst fiskvinnslubúnað- urinn, sem vantar, og svo ýmis smærri frágangur, sem allur tek- ur sinn tima. Jón Alfreðsson vildi álita að kostnaður við bygginguna væri orðinn nálægt 140 milj. kr. Kostn- aðaráætlun, sem gerð var i janú- ar 1976 mun hafa hljóðað upp á 112 milj., kr. og ber þarna dálitið á milli. Þó er þetta nú ekki nema eins og þriðjungur af verði eins skuttogara, sagði Jón Alfreðsson. En við þessar 140 milj. á auðvitað eftir að bætast talsvert, áður en húsið verður full-frágengið. Jón Alfreðsson sagði að bátarn- ir væru nú eingöngu á rækjuveið- um. Róa 10 bátar, 4 frá Drangs- nesi og 6 frá Hólmavik. Rækju- veiðin gengur ágætlega, prýðileg veiði og rækjan mjög þokkaleg. Töluvert var um seiði á rækju- miðunum i haust,en þeirra verður ekki vart nú. Aftur á móti var mikið um þau i fyrra og var það i fyrsta skipti, sem seiða varð vart þarna á rækjuslóðunum. Rækj- unni er jafnað milli frystihúsanna á Hólmavik og Drangsnesi, eftir þvi sem aðstæður henta og þörf er á hverju sinni. _ mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.